Morgunblaðið - 17.11.1996, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 B 5
KVIKMYNDIR
Jólamyndir kvik-
myndahúsanm
BRÁÐUM koma blessuð jólin; Hringjarinn frá Notre Dame og Arnold í „Jingle
All the Way“.
Forstöðumenn kvikmynda-
húsanna í Reykjavík hafa
undanfarið tekið ákvarðanir
um hvaða myndir þeir muni
frumsýna um jólin. Kennir
þar margra grasa og ef að
líkum lætur munu bíójólin í
ár vera óvenju fjölskyldu-
væn en myndir fyrir alla
íjölskylduna, sumar talsett-
ar á íslensku, verða mjög
áberandi. Hér verður farið
yfir helstu jólamyndirnar og
nefndar þær myndir sem
hugsanlega verða sýndar
um áramótin en svokallaðar
áramótamyndir hafa mjög
verið að ryðja sér til rúms
á undanförnum árum.
Sambíóin munu frumsýna
nokkrar jólamyndir og
m.a. í hinu nýja kvikmynda-
húsi í
Kringl-
unni en
stefnt er
að því að
það kom-
ist í gagn-
ið fyrir
jólin og
verður
fjórða kvikmyndahúsið sem
Sambíóin reka í höfuðstaðn-
um. Á annan í jólum munu
Sambíóin frumsýna nýjustu
Disney-teiknimyndina,
Hringjarann frá Notre
Dame, með íslensku og
ensku tali. íslenska talsetn-
ingin á eldri Disney-mynd-
um hefur tekist aðdáanlega
vel og gert mikið fyrir að-
sóknina á þær. Þá verður
„Jack“ með Robin Williams
frumsýnd en hún verður
einnig í Háskólabíói. Francis
Coppola er leikstjóri og segir
myndin af strák sem eldist
mun hraðar en aðrir. Þá hafa
Sambíóin í hyggju að frum-
sýna nýjasta spennutryllinn
með Mel Gibson um hátíðim-
ar en hann heitir Lausnarfé
eða „Ransom" og er í leik-
stjóm Ron Howards. Gibson
leikur föður sem grípur til
eigin ráða þegar syni hans
er rænt. Einnig er hugsanlegt
að „The First Wives Club“
verði sýnd um jólin.
í Háskólabíói verður æv-
intýramyndin „Dragon-
heart“ auk „Jacks“ en hún
er um síðasta eldspúandi
dreka ævintýranna. Er hann
gerður í tölvu mestmegnis
og talar Sean Connery fyrir
hann. Mótleikari drekans er
Dennis Quaid. Þá sýnir Há-
skólabíó nýjustu myndina
um Gosa og verður hún sýnd
með íslensku tali. Martin
Landau leikur brúðusmiðinn
en Gosi er gerður í tölvu og
með hjálp brúðutækninnar.
Hugsanleg áramótamynd
Háskólabíós er „Sleepers"
eftir Barry Levinson með
Brad Pitt og De Niro og
Hoffman en myndin er
byggð á sönnum atburðum
um misnotkun, pyndingar
og morð og réttarhöldin sem
fylgja í kjölfarið.
I Stjörnubíói verður nýj-
asta gamanmyndin með
Danny DeVito fmmsýnd en
hún heitir Matthildur og er
gerð eftir samnefndri sögu
Roalds Dahls. Eiginkona
Danny, Rhea Perlman, leik-
ur á móti honum en myndin
er fjölskylduskemmtun og
fjallar um svolítið sérstaka
fjölskyldu svo ekki sé meira
sagt. Stjörnubíó hefur einn-
ig í hyggju að frumsýna
grínmyndina „High School
High“ eða Ruglukollar í
menntó frá einum úr ZAZ-
genginu.
í Regnboganum verður
nýjasta mynd Amolds
Schwarzeneggers fmmsýnd
um jólin en hún verður einn-
ig sýnd í Laugarásbíói.
„Jingle All the Way“ heitir
hún og er jólasaga um sér-
lega upptekinn föður sem
gerir allt hvað hann getur
til að ná eina leikfanginu sem
sonur hans þráir í jólagjöf
en það er vægast sagt af
nokkuð skomum skammti.
Þá verður teiknimyndin
Svanaprinsessan frá Col-
umbia Pictures fmmsýnd í
Regnboganum um jólin og
sýnd með íslensku tali en
ánægjulegt er að sjá hve bíó-
húsin em iðin orðin við það
að bjóða barnamyndir á ís-
lensku. Ekki er ákveðið end-
anlega hvaða mynd Regn-
boginn sýnir um áramótin.
Loks er það Laugarásbíó.
Þar verður Schwarzeneg-
ger-myndin eins og áður
sagði en einnig ævintýra-
myndin Skuggi með Billy
Zane í hlutverki Tímahetj-
unnar ósigrandi. Áramóta-
mynd bíósins verður svo
„Fled“ með Laurence Fish-
burne og Stephen Baldwin.
eftir Arnold
Indriðason
15.000 höfðu séð
Guffagrín
Alls höfðu um 15.000 ods í aðalhlutverki, „The
manns séð Disney-teikni- Glimmer Man“ með Ste-
myndina Guffagrín eftir ven Seagal, „Jack“ með
síðustu sýningar-
helgi í Sambíóun-
um.
Þá höfðu
17.000 séð Fyr-
irbærið, 5.000
höfðu séð „Tin
Cup“, 14.500
Dauðasök, 20.500
Tmflaða tilveru,
2.000 Fortölur og
fullvissu og loks
3.500 Ótta.
„The Fan“
byrjaði í Sambíó-
unum um þessa helgi en Stallone, „Mars Attacks!"
næstu myndir verða m.a. eftir Tim Burton og
„Killer“, sem Oliver Stone „Surviving Picasso", svo
framleiðir með James Wo- og „Turbulance".
SÝNDá
næstunni;
Mel Gibson
í „Ransom“.
Robin Williams,
sem einnig verður
í Háskólabíói,
„The First Wifes
Club“, Hringjar-
inn frá Notre
Dame með ís-
lensku tali og
„Ransom" með
Mel Gibson.
Fijótlega uppúr
áramótum koma
svo myndir eins
og „Daylight“
með Sylvester
Af fert-
ugustu
Lundúna-
hátíðinni
Fertugasta kvikmynda-
hátíðin í Lundúnum er nú
í fullum gangi en henni
lýkur þann 24. nóvember.
Álls voru sendar um 2.000
myndir á hátíðina og eins
og oft áður vekja banda-
rísku myndirnar talsverða
athygli.
Nýjasta mynd Jack Nic-
holson, Blóð og vín, er á
hátíðinni og einnig
„Portrait of a Lady“ eftir
Jane Campion sem síðast
gerði Píanóið. Aðrar
myndir eru m.a.: Vagninn
eftir Stephen Frears, sem
hann gerir eftir sögu
Roddy Doyles, Jarðarförin
HÁTÍÐARMYNDIR; Hoffman í „Buffalo" og Nichol-
son og Judy Davis í Blóði og víni.
eftir Abel Ferrara, Kansas-
borg eftir Robert Altman,
sem einnig var á Reykjavík-
urhátíðinni og „American
Buffalo“, sem er með Dust-
in Hoffman og er gerð eftir
leikriti David Mamets.
Á hátíðinni er einnig
„Crash“ eftir David Cron-
enberg með James Spader
og umdeild bresk heimild-
armynd eftir Nick Broomfi-
eld sem heitir „Fetishes"
og fékkst hvorki sýnd á
Cannel 4 né BBC í Bret-
landi.
MEin af eftirtektarverðari
myndum Walter Hill frá því
í gamla daga (áður en hann
hætti að gera almennilegar
bíómyndir) var Okuþórinn
eða „The Driver“ frá 1978.
Nú mun franski stælgæinn
Luc Besson hafa í hyggju
að endurgera myndina,
framleiða hana og jafnvel
leikstýra henni sjálfur.
MBreski hjartaknúsarinn
Hugh Grant hefur í hyggju
að leika í rómantískri gam-
anmynd á næstunni senni-
lega vegna fjölda áskoranna.
Myndin heitir „Love Crazy“
en Grant hafði áður hafnað
tilboði um að fara með aðal-
hlutverkið í henni. Af hveiju
honum snerist hugur er mjög
á huldu. Handritshöfundar
myndarinnar skrifuðu einnig
Föður brúðarinnar.
■Þá hefur einn af gömlu,
góðu handritshöfundunum í
Hollywoodborg verið falið að
skrifa framhald Sendifarar-
innar eða „Mission: Im-
possible". Höfundurinn er
William Goldman sem á þá
gullvægu setningu um Holly-
wood, þar sem menn eru sí-
fellt að spá í hvað gengur
og gengur ekki í fjöldann:
Enginn veit neitt.
■Francis Ford Coppola
ætlar að filma „The Rainma-
ker“ eftir John Grisham.
Tveir menn eru sagðir hafa
áhuga á aðalhlutverkinu:
Sean Penn og Nick Nolte.
------»-♦ .....
13.000
manns á
Kvikmynda-
hátíð
Alls sóttu um 13.000
manns Kvikmyndahátíð
Reykjavíkur dagana 24.
okt. til 3. nóv. að sögn
Guðrúnar Eddu Þórhann-
esdóttur, framkvæmda-
stjóra hátíðarinnar.
Sagði hún aðstandendur
kvikmyndahátíðar nokkuð
ánægða með þá aðsókn og
er hún ríflega helmingi
meiri en aðsóknin á siðustu
Kvikmyndahátíð Listahá-
tíðar. Nokkrar myndir há-
tíðarinnar hafa verið sýnd-
ar á almennum sýningum
eftir að henni lauk.
ÍBÍÓ
Hreyfimyndafélagið legg-
ur áherslu á fræga vestra í
nóvemberdagskrá sinni.
Þegar hefur mynd John
Fords, „Stagecoast“, verið
sýnd og frægur grínvestri
Mel Brooks, „Blazing Saddl-
es“. Hreyfnnyndafélagið
sýnir einnig meistarastykkið
„Shane“, eftir George Stev-
ens og í lok mánaðarins sýn-
ir félagið „For a Few Dollars
More“ eftir Sergio Leone.
Sýningar eru á þriðjudög-
um og fímmtudögum. Eftir
áramót er hugsanlegt að
Hreyfimyndafélagið taki
fyrir ákveðin temu eins og
kaldastríðsmyndir eða
myndir frá Asíu og fyrirhug-
uð er hátíð með svokölluðum
kult-myndum í mars.
1