Morgunblaðið - 17.11.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 B 7
MANNLÍFSSTRAUMAR
DKNS/Hvemig kom póst-módemismi fram í dansi?
Aþetta aö kallast dam?
EF FÓLK er spurt spurningarinnar: Hvað er dans? kemur í ljós að allflest-
ir hafa sína eigin hugmynd að svari. Margir hneykslast þegar þeir sjá
nútímadansverk og tauta með sjálfum sér: á þetta nú að kallast dans? En
hver veit nema hugmynd höfundar dansverksins hafi einmitt verið að vekja
upp þessa spurningu hjá áhorfandanum.
Rétt eins og í öðrum listgreinum
koma upp ólíkir straumar og
stefnur í dansi. Klassískur ballett
hefur nú þegar fagnað þrjú hundruð
ára afmæli sínu og hefur yfir ævina
gengið í gegnum
klassískt, róman-
tískt, nýklassískt
og nýrómantískt
tímabil. Nútíma-
dans, barn nútíma-
hyggju tuttugustu
aldarinnar hefur
þegar átt fimmtíu
ára afmæli. Hann
eftir Rögnu Söru
Jónsdóttur
var við fæðingu andsvar við hinni
fastmótuðu hefð ballettsins og barn
módernisma. Á sjötta áratugnum tók
barnið að þroskast og verða fyrir
miklum áhrifum frá stefnu sem nú
er kölluð póst-módernismi.
Póst-módemismi er samnefnari
yfír áhrif sem gætti í flestum list-
og vísindagreinum seinni hluta tutt-
ugustu aldarinnar. Margir listamenn
urðu frægir undir formerkjum póst-
módemismans en sá þekktasti er
sennilega Andy Warhol. Póst-mód-
ernískir listamenn áttu það sameigin-
legt. að einbeita sér að því að koll-
varpa hefðum módernisma sem höfðu
mótast allt frá aldamótunum 1900.
Póst-módemistar gagnrýndu flestar
stefnur í listum og vísindalegar kenn-
ingar harðlega, en hafa á hinn bóg-
inn verið gagnrýndir fyrir að koma
sjálfír með fá svör og fáar lausnir. í
dansi gerðist margt nýstárlegt undir
áhrifum póst-módemisma eins og í
öðrum listgreinum. Danshöfundar
tímabilsins gagnrýndu nútímadans,
eins og hann hafði mótast meðal
módemista eins og Mörthu Graham
og Doris Humphrey. Nútímadansinn
var að þeirra mati orðinn of fastmót-
aður og útreiknanlegur, í hann vant-
aði nýjar hugmyndir og nýtt líf. Dans-
höfundar eins og Trisha Brown,
Steve Paxton, David Gordon, Yvonne
Rainer og Simone Forti höfðu marg-
ar og ólíkar hugmyndir um hvemig
nútímadans ætti að vera. í dag má
þó greina nokkrar sameiginlegar
áherslur sem gera það að verkum
að ofantaldir höfundar hafa ásamt
fleirum verið kallaðir einu nafni póst-
módemískir danshöfundar.
Póst-módernískir danshöfundar
höfðu ekki áhuga á dansi sem tján-
ingarmáta eins og módernistar
höfðu haft. Þeir litu fremur á dans
sem kerfisbundna könnun á hreyf-
ingum líkamans. Þeir leituðu upp-
runa hreyfinga og notuðu einfaldar
hreyfingar eins og að ganga, skríða,
hlaupa, hoppa og detta. Þannig
þörfnuðust þeir heldur ekki þjálfaðra
dansara í verk sín heldur gátu, og
vildu fremur, notast við óþjálfaða
dansara sem gátu gengið, hlaupið
og dottið án þeirrar tilgerðar sem
póst-módernískir danshöfundar
töldu þjálfaða dansara hafa. Helsti
vettvangur danshöfundanna var um
tíma í New York þar sem líflegt
samfélag listamanna af öllum svið-
um myndaðist. Aðrir listamenn hrif-
ust af þessum róttæku atburðum og
rithöfundar, ljóðskáld, myndlistar-
menn og leikarar íjölmenntu á dan-
sviðburði þessa tíma sem kallaðir
voru uppákomur eða „happenings".
Póst-módemísku danshöfundarn-
ir framkvæmdu ýmis uppátæki á
margvíslegum stöðum. Uppákomur
þeirra voru haldnar í kirkjum, hjóla-
skautahöllum, listasöfnum og skóla-
stofum. Leiksvið voru lítið notuð
vegna þess að danshöfundarnir voru
með uppákomunum að reyna að
bijóta niður múrinn sem myndast
hafði á milli listar og hins raunveru-
lega iífs. Þeir notuðu því helst ekki
leiksvið heldur ýmis rými sem voru
notuð á hversdagslegan hátt af sam-
félaginu, eða jafnvel hversdagsleg
rými sem voru sáralítið notuð. Trisha
Brown samdi til dæmis verkið Walk-
ing on the wall árið 1971 þar sem
hún lét nokkra dansara ganga á
veggjum listasafns í New York.
Dansararnir voru bundnir í reipi sem
gerði þeim kleift að ganga bæði upp
og niður veggi byggingarinnar. Með
verkinu var Trisha Brown að eigin
sögn að breyta sjónarhorni áhorf-
enda og ögra hinu venjulega sviði
með því að sýna fleiri möguleika en
hina hefðbundnu.
Danshöfundar undir póst-módern-
ískum áhrifum gagnrýndu ekki ein-
ungis leiksviðið heldur einnig óraun-
sæi tímans í leikhúsi. Onefndur
danshöfundur reyndi að nota eðiileg-
an en ekki tilbúinn tíma í einu verka
sinna og lét tvo menn sitja hreyfíng-
arlausa á tveimur stólum í tuttugu
mínútur. Gagnrýni var einnig sett
fram á tilbúnar og tilgerðarlegar
hreyfingar í nútímadansi. Danshöf-
súrefnið að því jákvæða svo lítil
hætta er raunar á að þetta gerist.
En ástæðan fyrir því að súrefnið
fer út með vatninu er að allt tækið
er jákvætt rafhlaðið.
Einnig þarf að einangra vetnis-
tækið gegn öðrum málmhlutum bils-
ins. Við framleiðsluna verður til hiti
svo nauðsynlegt er að setja t.d.
þykka krossviðarplötu milli vetnis-
framleiðslunnar og hins hluta far-
angursrýmisins. Hins vegar er ávallt
ylur í bílnum af þessum sökum.
Gott er að hafa aukarafhlöðu í
bílnum fyrir alla aðra rafmagns-
notkun. Þá er auðvitað langbest
að skipta út vélarstrokkunum og
hólfunum líka fyrir sams konar úr
ryðfríu stáli því að í vélinni mynd-
ast vatn á ný við sprengingu. Út
úr pústkerfinu kemur því aðeins
gufa en engin mengun af neinu
tagi! Auk þess er nýtingin á vetn-
inu 100% en ekki bara 43% eins
og þegar bensín á í hlut.
Það er unnt að láta venjulega
vélina ganga en hún vill ryðga að
innan og standi bíllinn í viku er
allt ryðgað fast. Það þarf að blása
heitu lofti inn í hólfin eftir hveija
notkun. En einnig má nota
keramíska húð sem er búin til úr
efninu heanium.
Unnt væri að nota pústvatnið
aftur ef það væri þétt með loftkæl-
ingu frá aksturshraða bílsins og
veita því á ný í tankinn. Þá mætti
byggja inn í þak bílsins fjarstýrða
opnara við vatnsrennurnar eins og
notaðir eru við lokanleg aðalljós
og safna þannig rigningarvatni sem
fer beint á vatnstankinn.
Þetta er frásögn Cella. Hann
bætir því við að ýmsir fjölmiðlar
þori ekki að segja frá bilunum hans
tveimur þó þeir hafi skoðað dæmið
allt. En geri þeir það sé lögð áhersla
á að vetni sé hættulegt í meðförum.
Þetta er aðeins háð útfærslunni á
þessari tækni segir Cella að lokum.
Nú er bara að ná sér i teikning-
arnar og hefjast handa með alla
öryggisþætti í lagi til þess að geta
ekið frítt. Ekki eru hagsmunir þess-
arar þjóðar tengdir útflutningi á
olíu eða hvað?
Tannverndarráð
ráðleggur foreldrum
að gefa börnum sínum
jóladagatöl
án sælgætis
Aðalfundur ÍR
Aðalfundur Iþróttafélags Reykjavíkur verður haldinn
þriðjudaginn 3. des. 1996 í ÍR heimilinu við
Skógarsel kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
V
Stjórnin.
THE NORWICH UNION LIFE
INSURANCE SOCIETY
(Norwich Union lííitryggingafélagið)
Viðskipta- og iðnaðarráðuneyti Bretlands hefur, í samræmi við
vátryggingalöggjöf Bretlands frá 1982, sent tilkynningu til
Vátryggingaeftirlitsins um tillögu varðandi The Norwich Union Life
Insurance Society (,,NUL1S“), sameignarfélag í eigu ákveðinna
tryggingarhafa. Samkvæmt tillögunni yrðu langtímatryggingaviðskipti
NULIS færð til hóps fyrirtækja, sem munu tengjast NULIS sem liður
af fyrirkomulagi er myndi leiða til að viðskipti NULIS yrðu undir
hatti hóps fyrirtækja, er væru í eigu hluthafa og skráð á London Stock
Exchange, verðbréfamarkaði Lundúna. Hagsmunir handhafa
tryggingaskírteina verða tryggðir og framkvæmd tillögunnar mun ekki
fela í sér skerðingu á bótarétti. Nú er stefnt að því að aðilar að NULIS
muni verða beðnir að greiða atkvæði um tillöguna næsta vor og hljóti
hún samþykki þeirra muni enskur dómstóll, High Court of Justice,
leggja mat sitt á tillöguna í því ljósi að henni verði hrint í framkvæmd
síðar á árinu 1997. Handhafar tryggingaskírteina NULIS búsettir á
íslandi, er vilja tjá sig um tillöguna, eru beðnir um að hafa samband
við Rúnar Guðmundsson, aðstoðarforstöðumann eftirlits (lagalegur
ráðgjafi) hjá Vátryggingaeftirlitinu, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík.
31. október 1996
undurinn Steve Paxton samdi til
dæmis verkið Satisfying Lover þar
sem hann lét sjötíu manns ganga
þvert yfir sviðið hver á eftir öðrum
í nokkur skipti. Með þessu móti skoð-
aði hann mannslíkamann og hreyf-
ingar hans á kerfisbundinn hátt og
sýndi fram á að mismunandi göngu-
lag væri líka dans.
Á þessum árum gat hvað sem er
talist vera dans. Hreyfingarlaus
óþjálfaður maður gat haft jafn mik-
ið listrænt gildi og flókið samspil
þaulæfðra dansara. Hugmyndir og
spuni voru oftast meginuppistaða
uppákomanna þar sem enginn vissi
fyrirfram hver útkoman yrði. Til
dæmis var oft notast við áhorfendur
í uppákomunum til að auka spenn-
una á útkomunni. Þeir voru fengnir
til að lesa ljóð, sýna slides-myndir,
ganga um eða klippa út í pappír því
allar tegundir listrænna fram-
kvæmda voru leyfilegar.
Möguleikar póst-móderníska
tímabilsins voru ótakmarkaðir og
danshöfundum voru engar skorður
settar. Áhrif póst-módernisma gerðu
það að verkum að sjóndeildarhringur
dansins breikkaði og nánast allt varð
Ieyfilegt undir formerkjum hans.
Danshöfundar tímabilsins höfðu
samt sem áður hver sínar skoðanir
og er erfítt að setja þá alla undir
einn hatt. Tímabilið var uppspretta
nýrra hugmynda og nýrrar nálgunar
á dans en útfrá þessu tímabili hófst
mikil umræða um hvað væri dans
og hvað ekki. Um það verður hver
að dæma fyrir sig.
Hovedgaden - 7752 Snedsted - Denmark
TLF. 97 93 44 OO
Fax. 97 93 44 77
r~.----------—
Hringið eða skrifið
og fáið nýja pöntunar-
listann fyrir 1996
sem er með allt
fyrir barnið þitt.
Við sendum
skattfrjálst
til íslands
EDI-félagið
ICEPRO
Pappírslaus viðskipti
Stóraukin velta ■ enn fleiri möguleikar!
EDI-félagið og ICEPRO gangast fyrir ráðstefnu um
stöðu staðlaðra pappírslausra viðskipta í íslensku
atvinnulífi, þriðjudaginn 19. nóvember kl. 14:00 í
Skála, Hótel Sögu. Þátttökugjald er kr. 1.500,-
Dagskrá:
Setning: Vilhjálmur Egilsson, formaður EDI-félagsins.
Ávarp: Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
1. EDI og upplýsingastefna stjórnvalda: Guðbjörg Sigurðardóttir.
2. EDI í íslenska bankakerfinu: Þór Sv. Björnsson, RB.
3. EDI og Internetið: Stefán Hrafnkelsson, Margmiðlun hf.
4. EDI og Búr ehf.: Sigurður Á. Sigurðsson, Búri ehf.
5. EDI og Olíufélagið hf.: Viðar Viðarsson, Olíufélaginu hf.
6. EDI og tollurinn: Karl F. Garðarsson, Ríkistollstjóra.
7. EDI og opinber innkaup: Júlíus S. Ólafsson, Ríkiskaupum.
8. EDI og heilbrigðiskerfið: Karl Steinar Guðnason.TR.
9. EDI og Eimskip: Óskar B. Hauksson, Eimskip hf.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 588 6666,
eða netfang: jakob@chamber.is