Morgunblaðið - 17.11.1996, Side 14
14 B SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Þó rödd Móeiðar Júníusdóttur
heyrist alloft í útvarpi um
þessar mundir, hefur hennar
eigin tónlist ekki verið ýkja
áberandi í íslensku tónlistarlífi
undanfama mánuði, enda upp-
tekin við að koma sér á framfæri
ytra og undirbúa upptökur á næstu
breiðskífu. Nokkuð er síðan gengið
var frá samningum um útgáfu á
tónlist Bong um allan heim og í
sumar héldu þau Móeiður og Eyþór
til Lundúna að leita sér að sam-
starfsmönnum til að taka upp næstu
breiðskífu sem kemur væntanlega
út á næsta ári. Meðfram tónlistinni
hafa þau líka starfað að kynningu
á tölvutækni, því Eyþór er einn
starfsmanna hugbúnaðarfyrirtækis-
ins OZ og hefur Móeiður tekið þátt
í að kynna OZ, þar á meðal á stefnu
frammámanna í bandarískum tölvu-
og skemmtanaiðnaði í sumar.
í hamborgarabúllu í Soho
Bong hefur unnið að samninga-
og upptökumálum undanfarin miss-
eri og fyrir skemmstu voru þau
Móeiður og Eyþór stödd í Bretlandi
að velja sér samstarfsmenn til að
ljúka upptökum á væntanlegri breið-
skífu. I hamborgarabúllunni Ed’s
Diner, sem er því líkust sem hún
hafi verið flutt í heilu lagi frá mið-
vesturríkjum Bandaríkjanna og
plantað niður í Soho hitti ég Móeiði
og Eyþór sem segja að gerð væntan-
legrar breiðskífu hafi tekið alllangan
tíma, en nú sé lag að ljúka verkinu
því samningastússi um útgáfuna sé
lokið og því séu þau komin til Bret-
lands að leita samstarfsaðila. Móeið-
ur segir að ansi langt sé síðan þau
hafi byrjað að velta fyrir sér næstu breið-
skífu, en á þeim tíma hafi orðið sú grundvall-
arbreyting að forðum var Bong skipuð jass-
söngkonu og poppara, Móeiði og Eyþóri, en
nú sé jasssöngkonan búin að bera popparann
ofurliði. Hún segir að sú þróun hafi verið
mjög eðlileg, en framan af stundaði hljóm-
sveitin miklar tilraunir og söngurinn var ekki
eins áberandi og í dag. „Það er líka margt
skemmtilegt að gerast í tónlist í dag og það
sem við horfðum til á sínum tíma, house,
hefur vikið fyrir jungle og tripphoppi sem er
margt mjög jassskotið," segir Móeiður og
bætir við að líklega eigi Bong eftir að leggja
fyrir róða ýmsum upptökum sem voru þegar
tilbúnar því þær falli ekki allar að stefnunni
sem sveitin hafi tekið á síðustu mánuðum.
Þeremín og fleira
Þau Móeiður og Eyþór segjast
vera búin að finna sér samstarfs-
menn, þá George de Angelis og
Phil Chill, en ekki gátu þau hafið
vinnu strax, því það er margt í bí-
gerð með tónleikahald og ferðalög.
Upptökuvinnan tefst því fram í nóv-
emberlok en fýrr í sumar settu þau
saman hljómsveit með ýmsum ung-
um tónlistarmönnum. Með þá hljóm-
sveit fóru þau út til Kölnar að spila
og stefna síðar á tónleikahald í New
York í desember. Þó Eyþór láti ekki
eins mikið á sér bera í Bong og forð-
um, leikur hann enn á selló og
þeremín, „eina hljóðfæri í heimi sem
leikið er á án þess að snerta“, segir
hann og hlær við, en þeremín varð
til í lok seinna stríðs.
Þau Móeiður og Eyþór taka ekki
undir það að þau stefni á að flytja
til Lundúna, það sé mun skemmti-
legra að vera í Reykjavík. „Þannig
langar alla breska tónlistarmenn
sem við hittum héma úti til að fara
til íslands. Kannski má jafna við-
skiptajöfnuðinn með því að skiptast
á listamönnum," segja þau og skella
uppúr en Móeiður bætir við af meiri
alvöru að þó það séu mun betri hljóð-
ver til í Lundúnum sé gott að losna
út látunum þar og vinna í friði
heima.
Ekki er kominn útgáfutími á
væntanlega breiðskífu; Móeiður seg-
ir þau ekki hafa sett sér nein tíma-
mörk önnur en að ljúka við plötuna
fyrir áramót. Framundan er útgáfa
Móeiður Júníusdóttir stendur í ströngu þessa dagana
með Eyþóri Amalds, en þau voru á ferð í Lundúnum
fyrir skemmstu að undirbúa upptökur á væntanlegri
breiðskífu. Arni Matthíasson hitti þau að máli og komst
að því að kynning á tölvutækni tekur æ meiri tíma frá
tónlistinni.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Móeiður og Eyþór fyrir utan Coach and Horses
í Soho.
á smáskífum sem þau segja að séu orðnar
„eldgamlar", enda gangi allt hægar fyrir sig
í tónlistarheiminum ytra. „Heima á íslandi
ákveðum við að taka upp plötu,“ segir Móeið-
ur, „förum í hljóðver næsta dag og platan
kemur út þriðja daginn. Hér þarf að halda
milljón fundi og tala við milljón manns áður
en hægt er að taka hvert skref.“
Ævintýri í Sun Valley
í júlí í sumar fóru Móeiður og Eyþór utan
á vegum OZ á sérstaka -ráðstefnu helstu
frammámanna í bandarískum tölvu- og af-
þreyingariðnaði í Sun Valley í Kalifomíu. Þar
vom staddir menn eins og Bill Gates, Rupert
Murdoch, Michael Ovitz, Sumner Redstone.
Þessir menn hittast einu sinni á ári og reyna
að halda sig utan sviðsljóssins, tveir til þrír
frá hveiju fyrirtæki. Andy Grove, forstjóri
Intel, eins helsta tölvufyrirtækis heims, valdi
OZ til að koma fram á ráðstefnunni og kynna
það sem framundan væri á alnetinu, líkt og
hann hefur gert á þessari stefnu á síðustu
ámm, en Intel er samstarfsaðili OZ. Þau
Móeiður Júníusdóttir albúin að stýra þrívíddar-
fígúrunni og Guðjón Már Guðjónsson.
Móeiður og Eyþór segja að kynningin hafi
farið þannig fram að á sviðinu vom þeir
Andy Grove og Guðjón Már Guðjónsson, for-
stjóri OZ, og skjár þar sem sjá mátti þrívídd-
arfígúmr. Þeir Grove og annar Bandaríkja-
maður, Barry Diller, bragðu sér í jakkaföt á
skjánum og fóm inn á búllu að sjá söngkonu
sem var að syngja. „Óforvarandis var tjald
dregið frá á sviðinu og sást þá hvað Móeiður
var að syngja og stýra fígúranni á skjánum
með hreyfíngum sínum. Þetta þótti Banda-
ríkjamönnunum bráðmerkilegt og vakti mikla
hrifningu, enda vilja þeir fá að sjá tæknina
á skemmtilegan hátt, þeir vilja „show busi-
ness“.“
Móeiður söng eitt lag, endurhljóðblandað
lag eftir Bong, Do You Remember, en í loka-
teiti fyrirmannamótsins réði umsjónarmaður
þess, Herbert Allen, tuttugu manna
jasssveit til að spila undir hjá Móeiði
sem vakti að vonum mikla hrifningu.
„Þetta var óundirbúið,“ segir Móeið-
ur, „en þetta vora svo vanir menn
að þeir gátu spilað hvaða lag sem
ég stakk uppá.“
Frekari kynningar eru framund-
an, því sl. fimmtudag héldu þau
Móeiður og Eyþór aftur til Banda-
ríkjanna á vegum OZ, að þessu sinni
til að taka þátt í Comdex tölvustefn-
unni í Las Vegas, stærstu tölvu-
stefnu heims, en þar kynnir OZ í
samfloti við Creative Labs nýja
tækni. Að þeirra sögn er það sam-
starf vænlegt fýrir OZ því Creative
Labs sé helsti framleiðandi hljóð-
korta í heiminum. Á Comdex treður
Móeiður upp með svipaða dagskrá
sem verður útvarpað úr bás Creative
Labs í aðra bása.
Leitað að framtíðarstraumum
Áður en spjallinu lauk var okkur
hent út af Ed’s Diner, ekki tala,
bara éta, segir þjóninn dónalega, og
við hrökklumst inn á krá í nágrenn-
inu, The Coach and Horses, en þar
inni ræður ríkjum sigurvegari í
keppninni um dónalegasta barþjón
Bretlands. Hann er þó hvers manns
hugljúfi að sjá, en hreytir þó öðru
hvora út úr sér ónotum til aðstoðar-
manna sinna, en brosir til kúnnanna;
kannski er hann bara dónalegur við
sitt heimafólk.
Þegar við tökum upp spjallið segir Eyþór
að menn séu sífellt að leita að framtíðar-
straumum í tölvumálum og vænlegt að veðja
á tónlist að hans mati. „í nánast hverri ein-
ustu tölvu sem seld er í dag er geislaspilari
og sífellt algengara að menn spili tónlist í
tölvunni sem gerir að verkum að hún er að
færast úr svefnherberginu inn í stofuna og
keppir beint við sjónvarpið um afþreyingar-
hlutverkið. Á sínum tima sögðu menn að
hugbúnaður seldi vélbúnað og það má yfír-
færa til dagsins í dag sem svo að innihald
selji hugbúnað. Öll helstu tölvufyrirtækin
hafa áttað sig á að innihaldið er það sem
skiptir meginmáli og þannig miðar til að
mynda Microsoft allt sitt starf í dag við inni-
hald.
Dæmi um breytta hugsun i hugbúnaðar-
sölu er það að Netscape hefur misst af lest-
inni í vefhugbúnaðargerð, fyrst og
fremst vegna þess að þar á bæ átt-
uðu menn sig ekki á því að það
þurfti innihald til, ekki var nóg að
vera með yfirburðastöðu á mark-
aðnum. í stað þess að fara út í
samstarf til að mynda við CNN,
eins og þeir hefðu getað, heyrast
bara kvartanir og kvein frá höfuð-
stöðvunum, kærur á Microsoft og
álíka. OZ áttaði sig á því fyrr en
sambærileg fyrirtæki hvert stefndi
og það hefur haldið því í fremstu
röð alnetsfyrirtækja víða um heim.
Það skiptir almenning engu máli
hvað fyrirbærið kallast og hvaða
tækni liggur á bak við það, aðalatr-
iðið er hvort það sé skemmtilegt
eða ekki.“
Lagst í ferðalög
Frekari ferðalög eru framundan
hjá Móeiði og Eyþóri, því eftir kynn-
inguna halda þau til Bretlands að
halda áfram vinnu við plötuna með
þeim de Angelis og Chill, og síðan
liggur leiðin aftur til Bandaríkj-
anna, því haldin verður mikið OZ
hátíð á tónleikastað í New York í
tengslum við Intemet World-kaup-
stefnuna 11. til 13. desember. Á
Intemet World verður OZ með „bás
sem verður ekki bás, það verður
eitthvað skiýtið", segir Eyþór. Til
stendur að kynna nýja tækni frá
OZ 12. desember og síðar þann dag
verður haldin OZ-hátíð í Irving
Plaza, 1.500 manna stað, sem
stendur ítólf tíma, en staðurinn verður opinn
frá 18.00 til 6.00. Þar syngur Móeiður og
OZ verður með allskyns uppákomur í tónlist
og sýndarveruleika, en auk þess sem þar er
að fínna fyrsta flokks hljóðkerfi er hann sér-
staklega vel netvæddur með skjái um allt.
„Við erum að skipuleggja þetta sem stendur,
að undirbúa samrana tölvutækni og tónlist,
að gera eitthvað spennandi," segir Móeiður
og bætir við að eins víst sé að fleiri íslenskir
tónlistarmenn taki þátt og einnig breskir,
plötusnúðar og hljómsveitir.