Morgunblaðið - 17.11.1996, Page 20
20 B SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLÁÐIÐ
ATVINNUA UGL YSINGA R
Viðskipta-/
atvinnutækifæri
Af sérstökum ástæðum er til sölu vöruum-
boð, sem hefur mikla sérstöðu á markaðn-
um. Um er að ræða ábatasaman vöruflokk
- efnavöru. Endursöluvara með háa álagn-
ingu. Þetta gæti verið einstakt tækifæri fyrir
einn til þrjá einstaklinga, sem vilja stofna
eigin rekstur með lítilli yfirbyggingu.
Rétt er að geta þess, að vörulínan gæti auð-
veldlega komið sem viðbót hjá fyrirtæki, sem
þegar er í rekstri.
Væntanlegur kaupandi fær leiðsögn og þjálf-
un sem tryggir honum hraðari aðgang að
markaðnum. Verðhugmynd kr. 2.5 - 3.0 millj.
með lager.
Áhugasamir leggi inn nafn sitt á afgreiðslu
Mbl., merkt: „V - 2000“.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Útibússtjórar
Stöður útibússtjóra við eftirtalin útibú
Landsbankans eru lausar til umsóknar:
Útibúið á Húsavík
Útibúið á Egilsstöðum og Seyðisfirði.
Menntunar- og hæfniskröfur umsækjenda:
- Háskólamenntun æskileg, t.d. viðskipta-
fræði- eða sambærileg menntun.
- Frumkvæði og stjórnunarhæfileikar.
- Áhugi á að efla og leita leiða til bættra
og aukinna viðskipta og sparnaðar, með
hagsmuni bankans og viðskiptamanna að
leiðarljósi.
- Víðsýni og þægilegt viðmót.
- Hæfni til þess að miðla upplýsingum og
beita hvatningu.
Gert er ráð fyrir tímabundinni ráðningu og
möguleika á tilfærslu í starfi síðar.
Ráðning er frá 1. janúar 1997.
Umsóknarfrestur er til 5. desember nk.
Umsóknir sendist til Kristínar Rafnar, starfs-
mannastjóra Landsbankans, Laugavegi 7,
Reykjavík, er gefur nánari upplýsingar.
FJÓROUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREVRI
Deildarlæknir á
geðdeild
Deildarlæknir eða reyndur aðstoðarlæknir
óskast til starfa á geðdeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri frá 1. febrúar 1997. Stað-
an veitist til 6 mánaða, með möguleika á
framlengingu.
Geðdeild FSA þjónar fyrst og fremst íbúum
Norður- og Austurlands, og viðfangsefni
hennar eru fjölbreytt. Á deildinni eru 10 sól-
arhringsrými og 8 dagvistarrými. Umfangs-
mikil þjónusta er veitt utan deildar, bæði
meðferð sjúklinga og ráðgjöf á öðrum deild-
um sjúkrahússins og gagnvart hjálparaðilum
á þjónustusvæðinu. Ahersla er lögð á gott
samstarf fagmenntaðs starfsfólks við grein-
ingu, meðferð og endurhæfingu vegna geð-
sjúkdóma af öllu tagi. Veitt er bráðahjálp við
áföllum og kreppum þegar við á.
Deildarlæknir nýtur í starfi sínu kennslu og
leiðsagnar þriggja geðlækna deildarinnar,
auk stuttra námsferða til Reykjavíkur og sam-
eiginlegrar fræðslu með öðrum læknum
sjúkrahússins.
Umsókn um starfið með upplýsingum um
menntun og fyrri störf óskast sendar yfir-
lækni geðdeildar FSA Sigmundi Sigfússyni,
sem gefur nánari upplýsingar í síma
463 0100.
Umsóknarfrestur er til 20. desember 1996.
FjórðungssjúkrahúsiðáAkureyri.
SJÁLFSBJÖRG
FÉLAG FATLAÐRA I REYKJAVlK OG NÁGRENNI
Hátúni 12. pósthótf 5183, sfmi 17868
Hópstjóri
Sjálfsbjargarheimilið
óskar eftir hópstjóra til starfa nú þegar.
Um er að ræða 100% starf, unnið er aðra
hverja helgi og ein kvöldvakt í viku. Ekki er
um næturvaktir að ræða. Æskileg menntun
til starfans er á sviði uppeldisfræði. Þær
starfstéttir sem til greina kæmu eru kennar-
ar með reynslu af aðhlynningarstörfum,
hjúkrunarfræðingar, þroskaþjálfar og sjúkra-
liðar. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember
1996. Skal umsóknum skilað skriflega til
Guðrúnar Erlu Gunnarsdóttur, hjúkrunarfor-
stjóra, þar sem nánari upplýsingar fást.
Sjálfsbjargarheimilið er aetlað hreyfihömluðu fólki, er þarfnast aðstoð-
ar og umönnunar allan sólarhringinn. (búar eru 45 og starfsmenn
um 50. Hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, sjúkraliðar,
læknar, Sóknarstarfsmenn og aörir starfsmenn vinna við heimiliö.
Við vinnum nú sérstaklega að þvi að auka lífsgæði íbúa heimilisins.
Boðin eru góð starfskjör og gott starfsumhverfi á vinnustað í hjarta
borgarinnar.
Þekkt veitingahús í Reykjavík óskar eftir
aðstoðar-
framkvæmdastjóra
frá og með 1. janúar 1997.
Helstu starfssvið:
• Stefnumótun.
• Kostnaðareftirlit.
• Arðsemisútreikningar.
• Rekstraráætlanir.
• Almenn rekstrarstörf og rekstrarstjórnun.
Við leitum að starfsmanni, sem hefur frum-
kvæði, dugnað og góða framkomu. Viðkom-
andi þarf að eiga auðvelt með mannleg sam-
skipti, vera fljótur að setja sig inn í hlutina
og vinna vel og skipulega.
Æskilegt er að viðkomandi hafi viðskipta-
fræðimenntun eða sambærilega menntun.
Umsóknarfrestur er til 25. nóvember og skal
umsóknum skilað til afgreiðslu Mbl., merkt-
um: „K - 4358“.
Öllum umsóknum verður svarað og fyllsta
trúnaðar verður gætt.
Erfðafræði
Laust er til umsóknar starf deildarstjóra við
matvæla- og heilbrigðissvið Hollustuverndar
ríkisins. Starfið felst í framkvæmd laga nr.
18/1996 um erfðabreyttar lífverur. Óskað er
eftir háskólamenntuðum manni og er sér-
þekking eða starfsreynsla á sviði erfðafræði
æskileg. Starfsmaður mun vinna með ráð-
gjafanefnd, sem hefur sérfræðiþekkingu á
þessu sviði, að gerð leiðbeininga, reglugerða
og eftirliti með notkun, sleppingu, dreifingu
og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera.
Einnig markaðssetningu matvæla sem eru
framleidd með notkun erfðabreyttra lífvera
eða sem innihalda afurðir þeirra.
Rannsóknastarf
Laust er til umsóknar starf rannsóknamanns
við rannsóknastofu Hollustuverndar ríkisins.
Starfið felst í undirbúningi og framkvæmd
örverurannsókna á umhverfis- og matvæla-
sýnum. Æskilegt er að umsækjendur hafi
menntun eða reynslu á sviði örverurann-
sókna.
Umsóknir skulu berast fyrir 1. desember nk.
Nánari upplýsingar veita Jón Gíslason og
Franklín Georgsson, s. 568 8848.
Hollustuvernd ríkisins, Ármúli 1a,
pósthólf8080, 128 Reykjavík.
Ráðgjöf, þjónusta, eftirlit og rannsóknir á
sviði matvæla, mengunarvarna og eiturefna.
Viðskiptafræðingur
Til umsóknar eru lausar stöður tveggja við-
skiptafræðinga hjá Pósti og síma.
Staða í Hagdeild. Um er að ræða starf er
lítur að innra uppgjöri og úrvinnslu tölfræði-
legra upplýsinga.
Staða í Starfsmannadeild. Starfið felst í úr-
vinnslu tölfræðilegra upplýsinga og sér-
hæfðri verkefnavinnslu.
Leitað er eftir viðskiptafræðingum sem eiga
auðvelt með að taka að sér verkefni sem
krefjast agaðra vinnubragða og sjálfstæðis.
Nánari upplýsingar um störfin má fá hjá
Andrési Magnússyni í síma 550 6474.
Umsóknum skal skilað fyrir 2. desember
1996 til Starfsmannadeildar, Landssímahús-
inu við Austurvöll, 150 Reykjavík.
PÓSTUR OG SÍMI
Verðbréfaviðskipti
Verðbréfafyrirtœki óskar eftir að
róða ráðgjafa til starfa.
Stafssviö: Veröbréfamiðlun. Samskipti
og samningagerð við seljendur og
kaupendur. Ráðgjöf til fyrirtækja og
einstaklinga í vali á fjárfestinga-
möguleikum.
Óskað er eftir manni með reynslu í
verðbréfaviðskiptum.
Háskólamenntun æskileg. Laust strax.
Nánari uppfýsingar veitir
Þórir Þorvarðarson.
Vinsamiega sendið skriflegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar "Verðbréf 571" fyrir 23.
nóvember n.k.
Hagvangurhf
Skeifan 19
108Reykjavík
Sími: 5813666
Brófsími: 568 8618
Netfang
hagvang@tirÆkyrr.is
Heimasi'öa
http://www.apple.is
/hagvangur
HAGVANGUR RADNINGAHÞtK^NUSIA
Rétt þekking á róttum tlma
-fyrir rétt fyrirtæki
Rennismiðir
Marel hf. óskar að ráða rennismiði í fram-
leiðsludeild.
Undanfarin ár hefur Marel hf. verið í örum
vexti. Nú starfa rúmlega 160 manns hjá fyrir-
tækinu, þar af rúmlega 80 í framleiðsludeildinni.
Vegna aukinna umsvifa og uppbyggingar á
renni- og fræsiverkstæði fyrirtækisins hefur
verið ákveðið að fjölga starfsmönnum þar.
Um er að ræða framtíðarvinnu á góðum
vinnustað með m.a. fullkomnum CNC-stýrð-
um vélum.
Eldri umsóknir skulu endurnýjaðar. Hægt er
að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu
Marel hf.
Umsóknum skal skilað til Marel hf., Höfða-
bakka 9, 112 Reykjavík fyrir mánudaginn 25.
nóvember nk.
Marel hf.,
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík,
sími 563 8000 - fax 563 8001.