Morgunblaðið - 24.11.1996, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 24.11.1996, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 B 7 með að geta dottað af og til meðan á því verki stóð. Ég flýtti mér hvað ég mátti því formaðurinn var mjög reiður og hótaði veiðiþjófum öllu illu. Sýslumaður tók okkur af ljúf- mennsku eins og hans var vandi og bar klæði á vopnin eftir föngum. Hann kallaði til skrifara sinn og setti rétt. Ég var látinn setja at- burði næturinnar á svið en sleppti að mestu orðaskiptunum. Ég var spurður hvort ég gæti nafngreint mennina. Ég gat það, en nú þótti sýslumanni nóg komið, hann nærri hrópaði upp: „Nei þetta getur ekki staðist, þetta eru fínustu borgarar, þeim hefði aldrei látið slíkt brot sér til hugar koma.“ Ég vildi ekki gefa mig því að ég hafði þekkt mennina og ég greindi frá nafni og nr. á bátnum sem ég hafði fest mér í minni. Sýslumaður gekk að skáp, tók þar fram nokkur skjöl og gluggaði í þau nokkra stund. Hann lét brúnir síga og ég sá ekki nema í annað augað en hann sagði: „Hver ijandinn, þetta passar allt. Þessi mannfífl eru skráð fyrir bátnum." Nú færðist formaður veiðimanna allur í aukana, honum bauð í grun að sýslumaður væri mildur dómari þegna sinna og talaði tæpitungu- laust við hann. Sagðist hann krefj- ast tafarlausra aðgerða í máli þessu, annars yrði þetta gert að blaðamáli og ég vissi ekki hvað. Sýslumaður reyndi að róa manninn, kvað þetta fyrsta brot og ekki þung viðurlög við því. Að loknum réttar- höldum kvaddi sýslumaður mig al- úðlega en formaðurinn og hann skildust fullir tortryggni hvor í ann- ars garð. Þetta sumar og næstu tvö féllu ýmsir fyrir þeirri freistingu að fá sér þarna auðsóttan feng og þar við sögu komu fleiri en bara sjó- menn, en að því kom að menn sáu að þessar veiðar var ekki hægt að stunda og sáu sitt óvænna. Fjórða sumarið lét enginn sjá sig og eina nóttina fór ég heim á leið með þá hugsun að nú væri þessari aðgerð lokið af minni hálfu. Aðrir myndu taka við. Ég gekk upp Syðstaklif er liggur meðfram Háa- fossi og upp að Mjósundi, og ofan við Háafoss léku strengirnir sér og skvettu vatni og mér heyrðust þeir segja: „Þér tókst það, þér tókst það,“ og svo létu þeir sig falla áhyggjulaust fram af fossbrúninni. Ég tók hólinu með blendnum tilfinn- ingum, því ég var búinn að átta mig á því, að i barnaskap mínum hafði ég tekist á hendur hættulegt starf, að standa menn að verki. Eg hafði haustið áður sótt mannamót á Húsavík. Umtalaðir aðilar voru þar nokkrir. Ég fékk strax hrind- ingar og pústra, og orð í eyra: „Fífl- ið á Laxamýri, njósnarinn," o.s.frv. Það þurfti ekki meira til. Ég sá að ég hafði dæmt sjálfan mig i nokk- urra ára umgengnisbann á þessum slóðum sem var nokkuð strangur dómur fyrir ungan pilt. Seinna á ævinni hefi ég séð fullorðna hörku- menn, lögregluþjóna og reynda menn lenda í útistöðum við veiði- þjófa og þeir hafa oft mátt taka á öllu sínu. En ég barnið, þegar ég rifja þetta upp sitjandi á bakkanum við Mjósund, finn að innifyrir býr djúpur sársauki, tárin taka að streyma úr augunum og ég fæ verk fyrir bijóstið. Ég seilist niður í bijóstvasann og tek töflu í rökkr- inu, en missi aðra niður. Það gerir ekkert til, glasið er nærri fullt. Tárin vilja halda áfram að renna en verkurinn hverfur. Og ég segi við sjálfan mig: „Heimski Björn, alltaf jafn heimskur, tekur öll skít- verk að þér án þess að hugsa hvað það muni kosta þig.“ Ég dreg klút uppúr vasanum og þurrka betur af mér tárin. Ég er víst bara orðinn svona meyr eftir að heilsan fór. Þetta voru líka allt ljótar minning- ar, því fátt er óskemmtilegra en að standa fólk að verki. En látum þessar minningar hverfa ofan í sandinn. Enginn vissi hve hár her- kostnaðurinn varð mér, enda ekki verið tíundaður til þessa. Þakklæti? Ég er lítið fyrir þakklæti, það snýst svo oft upp í andhverfu sína. 0Bókitrlwiti: Rennt ihylinn — Björn á Laxamýrí á tali við ána sína, ‘204 bls. Útgefandi: Fjölvi. Lcidbcinnndi verð 3480 kr. SMÁATRIÐIN skipta máli; bandaríski spennusöguhöfundurinn Patricia Cornwell. AF öllum þeim kvenrithöf- undum sem fást við að semja sakamálasögur austan hafs og vestan er bandaríski sakamáiahöfundur- inn Patricia Cornwell ein sú skemmtilegasta. Fyrsta bókin hennar kom út árið 1990 og nú þegar liggja eftir hana sjö bækur um krufningar- og réttarlækninn Kay Scarpetta frá Virginíu. Með þeim hefur Cornwell markað sér bás sem vandaður sakamálahöf- undur, natin við smáatriði og bæk- urnar hennar fara undantekning- arlaust á metsölulistana vestra. Hér heima selst hún einnig mjög vel samkvæmt upplýsingum frá bókabúð Máls og menningar og bókabúð Eymundssonar en þær hafa á boðstólunum tvær nýjustu spennusögur hennar „From Pott- er’s Field“, eða Af Pottersvöllum sem komin er fyrir nokkru út í vasabroti, og „Cause of Death", eða Banamein er fæst aðeins inn- bundin enn sem komið er. Er óhætt að fullyrða að Cornwell hafi verið einn af söluhæstu höf- undunum í spennubókageiranum hér á landi á undanförnum árum. Hún varð fertug á þessu ári og starfaði eitt sinn sem glæpafrétta- ritari en fyrsta sakamálasaga hennar hét „Post Mortem“. Sjö bókaforlög höfnuðu henni áður en Scribner forlagið tók áhættuna og gaf hana út. Það varð fyrsta met- sölubók Cornwell. í kjölfarið sigldu bækurnar „Body of Evidence“, „All That Remains“, „Cruel and Unusual“, „The Body Farm“ og loks „From Potter’s Field“ og „Cause of Death". „Glæparann- sóknir hafa, af ástæðum sem jafn- vel ég sjálf skil ekki fullkomlega, orðið að ástríðu hjá mér,“ sagði Cornwell einu sinni. Til þess að skapa trúverðuga persónu úr lækninum Scarpetta, sem oftlega er ráðgjafi FBI, kynnti hún sér mjög til hlítar starfsaðferðir og þankagang krufningalækna og starfaði m.a. í líkhúsi til að koma sér upp nauðsynlegum orðaforða og kynnast umhverfinu. Hefur henni enda oftlega verið hrósað fyrir staðgóða þekkingu og áherslu á upplýsandi smáatriði. Kaldur dauðinn Bandaríski spennusöguhöfundurinn Patricia Comwell hefur skapað kvenhetjuna Kay Scarpetta sem eltist við flöldamorðingja að sögn Arnalds Indriðasonar og er ekki þessi skothelda ofurhetja sem við eigum að venj- ast úr afþreyingarbókmenntunum. Nýjasta sagan hennar, „Cause of Death“, hefur fengið blendna dóma en hún segir af biluðum leiðtoga sértrúarsafnaðar í slagtogi við hryðju- verkamenn frá arabalöndunum og Norður-Kóreu. Hyggst hann ráð- ast til inngöngu í kjarnorkuverk nokkurt og hafa á brott með sér plútóníum. Þykir söguþráðurinn fremur ólíkindalegur og mun meira í ætt við sögur Tom Clancys en nokkurtíman Patriciu Cornwell. Hins vegar er bókin sem kom út á undan henni, „From Potter’s Field“, dæmigerð Cornwellsaga, spennandi og óhugnanleg lesning og það sem meira er, í henni mætir Kay Scarpetta í síðasta sinn erkióvini sínum í gegnum nokkur skelfilegustu glæpamál hennar, fjöldamorðingjanum Temple Bro- oks Gault. (Annars er aldrei að vita með Gault; hafa ber í huga að morðingi þessi virðist eiga níu líf.) Gault virkar á Scarpetta með svipuðum hætti og óþokkinn Moriarty virkar á Sherlock Holmes. Hún þarf að beita ýtrustu leikni sinni og þekkingu í elting- arleiknum við hann og átökin þeirra á milli eru á persónu- legum nótum. Helsti aðstoðarmaður Scarp- etta, sem má þá kalla dr. Watson, er rannsóknarmaðurinn Pete Mar- ino í Richmondborg. Hann er hluti af persónusafninu í bókum Cornw- ell en sömu aðalpersónurnar koma fram í þeim öllum. Líta má á sög- urnar sem sjálfstætt framhald svo kannski er nokkurrar þekkingar krafist við lestur „From Potter’s Field“ ef hún á að nýtist til fulls. í þremur síðustu bókunum hefur Scarpetta t.d. átt í ástarsambandi við FBI-manninn Benton Wesley, sem er kvæntur, og systurdóttir hennar, Lucy, kæmur ætíð að gagni við glæparannsóknirnar en hún er lesbía og algjört séní hjá FBI. í „From Potter’s Field“ finnst illa leikið lík af ungri stúlku í Miðgarði í New York og ýmis ummerki benda til þess að Gault sé enn á ferðinni en hann hefur nokkrum sinnum sloppið naum- lega úr höndum Scarpetta; henni tókst að snerta hann í einni sög- unni áður en hann stökk út um glugga og hvarf. Ekki er hægt að bera kennsl á stúlkuna en brátt finnast önnur lík og svo virðist sem Gault, sem ofan á allt annað er krakkfíkill, geti komist inn í innsta kjarna tölvukerfis FBI þegar hon- um sýnist. Scarpetta er ekki þessi skot- helda ofurhetja sem við eigum að venjast í afþreyingarbókmenntun- um þótt oft virðist sem hún sé ofurmannlega greind. Á einum stað í sögunni hefur eltingarleikur- inn við Temple Brooks Gault geng- ið svo nærri henni að hún er lögð inn á spítala. Hún lendir einatt í átökum við rótgróið karlaveldi löggæslustofnananna og segist löngu orðin þreytt á strákaveröld- inni, kjaftæði um heiðursmanna- samkomulag og óijúfanlega sam- stöðu karla. Það er einmitt kven- legt innsæi hennar sem eykur skilning á morðingjanum og dríf- ur rannsóknina áfram í óvæntar áttir. Átök hennar og Gault eru persónuleg og Cornwell sér til þess að hvert einasta smáatriði skiptir máli í eltingarleiknum við morðingjann. Höfundurinn veltir sér ekki upp úr óhugnaði ofbeldisverkanna þótt tilefni gefist til þess heldur ein- kennast skrifin af hógværð, skyn- senii og kunnáttu. Cornwell er ekki sérlega skáldmælt eða andrík eins og t.d. Thomas Harris, annar fjöldamorðingjahöfundur, getur verið en hún er sögumaður góður vopnuð mikilli þekkingu á starfs- aðferðum söguhetju sinnar og kann að drífa frásögnina áfram svo hún verður spennandi og áhugaverð. Líkhúsið er starfsvett- vangur Scarpetta. „Dauðinn getur verið afar raunverulegur þegar hann hefur verið kældur niður,“ var einhverntíman haft eftir Cornwell. Kaldur dauðinn er í smásjárgleri hennar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.