Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 20
20 E SUNNUDAGUR ‘24. ■ NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUA UGL YSINGA R
Leikskólar Reykjavíkurborgar
óska að ráða eftirtalið starfsfólk í neðan-
greinda leikskóla:
Hof/Gullteig
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 75% stöðu frá kl. 11-17.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Sigrún Sig-
urðardóttir, í síma 553 9995.
Gullborg/Rekagranda
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 50% stöðu eftir hádegi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Hjördís
Hjaltadóttir, í síma 562 2455.
Laugaborg/Leirulæk
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 50% stöðu eftir hádegi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Helga Alex-
andersdóttir, í síma 553 1325.
Rauðaborg/Viðarás
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 100% stöðu og 50% stöðu eftir
hádegi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Ásta Birna
Stefánsdóttir, í síma 567 2185.
Staðarborg/Mosgerði
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 50% stöðu eftir hádegi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Sæunn E.
Karlsdóttir, í síma 553 0345.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552 7277.
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðingur óskast í 90% stöðu á
hjúkrunarvakt vistheimilis. Einnig er laus
staða hjúkrunarfræðings á næturvakt, 52%
vinna (grunnröðun í lfl.213). Þessar stöður
eru lausar frá áramótum.
Sjúkraliði óskast í 100% vaktavinnu frá
áramótum.
Upplýsingar veita ída Atladóttir, hjúkrunar-
forstjóri, og Þórunn A. Sveinbjarnar, hjúkrun-
arframkvæmdastjóri, í símum 553 5262 og
568 9500.
Laust embætti
lögreglumanns
Embætti lögreglumanns í lögreglunni á Akra-
nesi er laust til umsóknar, en það verður
veitt frá 1. febrúar 1997.
Umsækjendur skulu hafa lokið námi við Lög-
regluskóla ríkisins og þurfa umsóknir að
berast sýslumanninum á Akranesi, Stillholti
16-18, Akranesi, fyrir 1. janúar 1997
Nánari upplýsingar veitir Svanur Geirdal, yfir-
lögregluþjónn.
Sýslumaðurinn á Akranesi.
20. nóvember 1996.
Kristrún Kristinsdóttir fulltrúi.
Vélvirkjar
Traust iðnfyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
vill ráða:
1. Tig suðumann.
2. Vélvirkja eða vélstjóra.
Um er að ræða verkefni úti á landi.
Flogið frá Rvíkur-flugvelli á sunnudagskvöld-
um og til baka á fimmtudagskvöldum.
Mjög góð laun í boði.
Nánari upplýsingar veitir Þór Þorsteinsson.
mm RÁÐNINGARÞJÓNUSTAN
Jón Baldvínsson, Háaleitlsbraut 58-60
Sími 588 3309, fax 588 3659
Verkstjóri
Loönufrysting
Grandi hf. óskar eftir að ráða verkstjóra
til að sjá um loðnufrystingu á komandi
vertíð. Um er að ræða tímabundið starf
frá byrjun janúar til loka mars.
Við leitum að duglegum og ábyrgðar-
mikium verkstjóra sem hefur reynslu af
verkstjórn í fiskiðnaði og hefur metnað
til að skila af sérfyrsta flokks framleiðslu.
Öllum fyrirspurnum ber að beina til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Dalmann.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar „Verkstjóri 579" fyrir
4. desember n.k.
ORKUSTOFNUN
GRENSÁSVEGI 9 - 108 REYKJAVÍK
Lausar stöður
Framundan er skipulagsbreyting á Orku-
stofnun og verður stofnunin í meginatriðum
skipt í orkumálasvið og orkurannsóknasvið.
Eftirtalin störf hjá stofnuninni eru laus til
umsóknar og verður ráðið í þau frá og með
1. janúar nk., nema um annað semjist.
í öllum þremur tilvikum miðast ráðningin við
sérfræðingsstarf, en viðkomandi mun falið
að gegna hinu auglýsta yfirmannshlutverki í
5 ár í senn.
Yfirmenn þessir starfa undir stjórn og í nánu
samstarfi við orkumálastjóra.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi störf
og er lögð rík áhersla á frumkvæði og sjálf-
stæði.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins
við það stéttarfélag opinberra starfsmanna
sem við á og aðilar sammælast um.
Framkvæmdastjóri
orkurannsóknasviðs
Verksvið orkurannsóknasviðs
er m.a.:
• Orku- og auðlindarannsóknir á grundvelli
verksamninga aðallega á sviði jarðvísinda.
• Markaðsfærsla á þekkingu Orkustofnunar.
• Þróun aðferða og tækja til rannsókna á
orkulindum landsins.
Starf framkvæmdastjórans er
einkum fólgið í
• stjórnun og rekstri orkurannsóknasviðs
sem sjálfstæðrar rekstrareiningar,
• gerð verksamninga við orkumálasvið og
aðra verkkaupa um orku- og auðlinda-
rannsóknir og
• faglegri yfirstjórn á starfi sviðsins.
Krafist er menntunar á sviði náttúruvísinda
eða verkfræði og reynslu af rannsóknum á
ofangreindu sviði. Ennfremur reynslu af verk-
efnastjórnun í rannsóknum eða annarri hlið-
stæðri stjórnunarreynslu.
Deildarstjóri auðlindamála
á orkumálasviði
Verksvið auðlindadeildar er m.a.:
• Umsjá gagnasafna um orkulindir.
• Áætlanir um nýtingu orkulindanna.
• Skilgreining á rannsóknaverkefnum.
• Gerð verksamninga um slíkar rannsóknir.
• Eftirlit með framvindu rannsóknanna og
mat og túlkun á niðurstöðum.
• Ráðgjöf til stjórnvalda.
Deildarstjórinn hefur umsjón með og ber
ábyrgð á starfi deildarinnar, einkum þó sam-
ingsgerð um rannsóknir.
Æskileg menntun er á sviði náttúruvísinda
eða verkfræði, en þekking eða reynsla á
sviði tölvufræða, tölfræði eða annarra reikni-
fræða er gagnleg. Krafist er reynslu af rann-
sóknum.
Deildarstjóri orkubúskaparmála
á orkumálasviði
Verksvið orkubúskapardeildar er m.a.:
• Yfirsýn yfir orkubúskap landsmanna, þ.m.t.
orkuspár og áætlanir um orkunýtingu.
• Ráðgjöf til stjórnvalda og almenn miðlun
upplýsinga um orkubúskaparmál og út-
gáfustarfsemi í því sambandi.
Deildarstjóranum er ætlað að leiða starf
deildarinnar og móta nýjar áherslur.
Æskileg menntun er á sviði náttúruvísinda,
verkfræði eða auðlindahagfræði, en þekking
eða reynsla á sviði tölvufræða, tölfræði eða
annarra reiknifræða er gagnleg.
Umsóknir
í umsóknum um stöðurnar þurfa að koma
fram nákvæmar upplýsingar um menntun og
fyrri störf.
Frekari upplýsingar veitir orkumálastjóri
í síma 569 6000 eða á tölvupóstfangi
thh@os.is.
Umsóknir berist til starfsmannastjóra Orku-
stofnunar, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík,
í síðasta lagi 9. desember 1996.
Öllum umsóknum verður svarað.
Orkumálastjóri.
Hagvangur hf
Ske'rfan 19
108 Reykjavík
Sfmi: 581 3666
Bréfsimi: 568 8618
Netfang
hagvang@tir.skyrr.is
Heimasíöa
http://www.apple.is
/hagvangur
HAGVANGUR W»USm
Réttþekking á réttum tíma
-fyrír rétt fyrirtæki
Fjármálastjóri
Við erum áræðinn 60 manna hópur kvenna
og karla á öllum aldri. Markmið okkar er að
byggja upp öflugt, íslenskt matvælafyrir-
tæki, sem hefur sterka stöðu á heimamark-
aði og stundar útflutning. Við framleiðum,
seljum og dreifum ýmiskonar feitivörum og
drykkjarvörum.
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur dugmik-
inn og ákveðinn fjármálastjóra.
Umsækjendur þurfa að hafa brennandi
áhuga á öllu, er viðkemur fjármálastjórn, og
búa yfir reynslu og þekkingu, sem gerir þeim
kleift að bera ábyrgð á og stjórna fjármálum
ört vaxandi fyrirtækis.
Um er að ræða krefjandi starf, þar sem
áhersla er lögð á skipuleg vinnubrögð og
árangur í starfi. Nauðsynlegt er að umsækj-
endur geti hafið störf eigi síðar en eftir tvo
til þrjá mánuði.
í umsóknum þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og verður öllum umsóknum svarað.
Umsóknum, merktum: „Sól hf. - Gagn og
gaman“, ber að skila til afgreiðslu Mbl.
fyrir 5. desember nk.