Morgunblaðið - 24.11.1996, Side 12
12 B SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
Pönskveit Q4U haustið 1982.
Heildarsafn
Q4U - Q2
íslensk
poppsaga
ÁTTUNDI áratug-urinn var tími mikilla andstæðna í
íslenskri dægurtónlist, framan af einkenndist hann
af hverri stórsveitinni af annarri og landsliði tónlistar-
manna sem flæktist úr einni sveitinni í aðra. í lokin
kom svo pönkið og endurnýjaði tónmál og áherslur
og bylti gömlu sveitunum af stalli. Fyrir hluti áratugar-
ins er viðfangsefni safnara og rokkáhugamanna víða
um heim og fenguj' að því fyrir þá að fá í hendurnar
safndisk eins og íslenska poppsögu, sem Pétur W.
Kristjánsson gaf út fyrir skemmstu.
Pétur segir að hugmyndin sé Jóhanns Helgasonar,
hann hafi sett saman lagalista en Pétur síðan
komið að verkinu fyrir hönd þeirra hljómsveita sem
hann var í. Pétur segir að á sínum tíma hafi hljóm-
sveitirnar yfirleitt gefið út plöturnar sjálfar sem geri
þeim auðveit um vik að gefa tónlistina út í dag. „Við
reyndum að taka þau lög sem voru hvað vinsæiust
og líka að bæra inn lögum sem voru b-hliðar en hafa
verið ófáanleg, við vildum að þetta væri líka plata
fyrir safnara," segir hann, en lög á plötunni eru með
Pelican, Change, Magnus Thor, Jóhanni G. Jóhans-
syni, Pal Brothers, Paradís, Magnúsi og Jóhanni,
Svanfríði, Celsíus og Poker.
Pétur segir að platan gefi góða mynd af þessum
áratug, ekki síst fyrir þá sök að á plötunni eru lög
með tveim einna vinsælustu hljómsveitum áranna
1976 og 77, Celcius og Poker, sem ekki hafa áður
komið út. „Geoff Calver kom upphaflega hingað að
stýra upptökun á vísnaplötu en heyrði í Poker og
varð svo hrifinn að hann kom aftur á eigin kostnað
til að taka upp lög með henni. Hann fór síðan með
þau út og hljóðblandaði, bætti inn strengjasveit og
álíka og reyndi síðan að koma sveitinni á framfæri,"
segir Pétur. Þegar samningstilboðin komu aftur á
móti að utan, var hljómsveitin löngu hætt, því menn
höfðu ekki nennu til að bíða.
Pétur segir áberandi þegar hlustað sé á plötuna
að fyrri hluti áratugarins hafi einkennst af góðum
lagasmiðum, „en seinni hlutann var lítil endurnýjun
og menn orðnir þreyttir, enda náði diskóið yfirhönd-
inni. Það var ekki fyrr en með pönkinu að það kom
sú endurnýjun sem þurfti, en ég hætti meðal annars
í tónlistinni um tíma, þótti þetta ekki spennandi leng-
ur.“
Q4U VAR ein helsta pönksveit
landsins á sinni tíð. Á síðastliðnu
ári tók Q4U upp þráðinn að nýju
og var þá meðal annars ákveðið
að gefa út heildarsafn af lögum
frá níunda áratugnum, sem kom
út fyrir skemmstu og kallast Q2
1980-1983.
Q4U var stofnuð af Steinþóri
Stefánssyni, Gunnþóri Sig-
urðssyni, Helga og Ellý. Þannig
skipuð starfaði sveitin í tvö ár, frá
1980 til 1982. Þá urðu ýmsar
mannabreytingar, meðal annars
gekk Kormákur Geirharðsson til
liðs við hana og önnur söngkona,
Lina slóst í hópinn, en sú útgáfa
Q4U er sennilega kunnust í dag,
því þannig kom hún fram í Rokki
í Reykjavík og tók upp alls 30
lög. Af þeim eru 18 á Q2.
Skömmu síðar leystist Q4U upp
og nafnið var lagt niður en tekið
upp aftur eftir stutt hié undir nýj-
um formerkjum, en þá voru í sveit-
inni Ellý og Gunnþór líkt og forð-
um, en einnig Árni Daníel. Stuttu
síðar bættist svo gítarleikarinn
Oðinn við og þannig skipuð tók
sveitin upp átta lög í æfingarhús-
næði sínu með aðstoð trommu-
heila. Fjögur þeirra laga eru á
disknum. Oðinn hætti við svo búið
og Danny Pollock gekk til iiðs við
sveitina. Þannig skipuð tók hún
upp sex laga skífuna Q1 sem
Grammið gaf út. Öll þau lög eru
á disknum. Enn urðu breytingar
á liðsskipan og Kormákur Geir-
harðsson gekk til liðs við hana
aftur. Sú gerð Q4U brá sér enn í
hljóðver og tók upp fjögur lög í
stúdíói Glóru og koma þau lög í
fyrsta sinn út á disknum.
Árni Daníei segir að þegar farið
hafí verið að smaia þessu öllu sam-
an og endurvinna fyrir geisiadisks-
útgáfuna hafi fundist upptökur frá
fyrstu gerð Q4U sem gengið hafi
undir nafninu Skaf, en einnig upp-
tökur frá 1982, svonefndar Rauða-
vatnstökur. Alls eru 34 lög á
disknum, en viðbótarlög eru eitt
lag með hvorri sveit, T42 og Þetta
er bara kraftaverk, sem Árni seg-
ir að hafi verið skipaðar sömu liðs-
mönnum og Q4U að mestu og
verið að spá í álíka tónlist.
Árni segir að að sínu mati sýni
diskurinn að Q4U hafi sífellt ver-
ið að endurnýja sig „og ólíkt
mörgum pönksveitum öðrum, sem
brunnu tiltölulega hratt út, var
Q4U sífellt að bæta sig; var aldr-
ei betri en um það leyti sem hún
hætti.“
Árni segir að Q4U sé í dag
skipuð líkt og forðum, í henni séu
auk hans Ellý og Gunnþór, en
einnig séu með Guðmundur Þór
Gunnarsson trommuleikari og
Arnar Davíðsson gítarleikari.
Þannig skipuð hyggst Q4U kynna
Q2, en á næsta ári verður hafist
handa við að taka upp nýja tónlist.
Iáttað dnfaldleikanum
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Bubba
Morthens í Borgarleikhúsinu fyrir
skemmstu voru um margt merki-
legir, ekki síst vegna þess að á
þeim kynnti Bubbi í raun tvær
útgáfur sínar á árinu, breiðskíf-
una Allar áttir og ljóðadiskinn
Hvíta hliðin á svörtu. Á milli þess
sem Bubbi lék gömul lög og ný í
bland las hann ijóð af disknum
sem gaf tónleikunum óneitanlega
sérstakan svip.
saman ljóðakver, eða fara þá leið
sem liggur vel við tónlistarmannin-
um og gefa út ljóðadisk. Á tónleik-
unum í Borgarleikhúsinu vantaði
snillarundirleik Guðna Franzsonar
og félaga sem fara á kostum í ein-
földum en hnitmiðuðum undirleik
á ljóðadisknum. Þannig virkuðu
sum ljóðin sem í lausu lofti á sviði
Borgarleikhússins, en eru aftur á
móti sterk og grípandi á disknum.
Bubbi kallar breiðskífu sína Ali-
ar áttir og víst er diskurinn allra
átta; á honum bregður fyrir flest-
um tónlistarstefnum sem Bubbi
hefur fengist við um dagana, allt
frá New Orleans jarðarfaraijass í
gúanórokk. Á tónleikunum í Borg-
arleikhúsin hnýtti Bubbi alla þessa
ólíku þræði aftur á móti í samfelld-
an þráð og sýndi á plötunni nýja
hlið, sýndi fram á samhengið í
henni.
Þó iðulega sé gaman að sjá
Bubba Morthens með hljómsveit
er hann bestur einn með gítarinn
því allt samband við áheyerendur
verður persónulegra og hann á
hægara með að fara krókaleiðir í
lagavali eftir því sem andinn blæs
honum í bijóst. Athugasemdir hans
á milli laga gera líka sitt til að
skapa rétta stemmningu, þó hann
hafi farið yfir strikið á köflum í
Borgarleikhúsinu.
Gaman var og að heyra gamla
perlur úr safninu, þar á meðal
Svartan Afgan, sem hefur sterka
sögulega tilvísun, og Rómeó og
Júlía er með helstu lögum Bubba.
Kona var Bubba ofarlega í huga,
þ.e. breiðskífan Kona, sem undir-
strikar kannski hvað hún var mik-
111 vendipunktur á ferli hans, en
auk Rómeó og Júlíu söng hann
einnig Talað við gluggann, við
mikinn fögnuð áheyrenda.
Fróðlegt verður að sjá hvaða
stefnu tónlist Bubba tekur á næst-
unni, hvort hann snýr sé að frek-
ari ljóðaútgáfu og framúrstefnu-
tónlist, eða hvort hann taki stefn-
una á þá tónlist sem hæst ber um
þessar mundir, hátæknivædda
takttónlist með tilheyrandi tölvu-
tólum. Kannski hann leiti bara í
átt að einfaldleikanum líkt og í
Borgarleikhúsinu, en ljóst að hann
stendur á tímamótum í tónlist og
textagerð.
Ekki er hlaupið að því að semja
almennilega texta upp á ís-
lensku, eins og sannast kannski
einan best á því hve margir fara
ódýrustu leið og semja allt á ensku,
en Bubbi hefur
glímt við texta-
gerð frá því hann
hrinti af stað deil-
um um „guano-
texta“ snemma í
lok áttunda og
upphafi níunda
áratugarins. Það
má kannski segja
að eðlilegt framhald sé að setja
eftir Árna
Matthíasson
Fyrstu útgáfuskrefin
FJÖLMARGIR stíga fyrstu út-
gáfuskrefin fyrir hver jól, og
fyrir þessi jól er að vonum margt
ólíkra tónlistarmanna að þreyja
frumraunina á plasti. Það á
meðal er ungur maður, Valgeir
Sveinsson, sem hefur þrátt fyrr
ungan aidur starfað að tónlist í
áratug og samið grúa laga.
Valgeir segist ævinlega hafa
ætiað sér að taka upp plötu
en verkið hafi fyrst komist á
rekspöl þegar hann hitti að máli
Björgvin Gíslason og spilaði fyr-
ir hann prufuupptökur af nokkr-
um lögum. „Hann tók mér vel
og vildi fá með sér þá Ásgeir
Óskarsson og Harald Þorsteins-
son og þeirra vinna var svo góð að ég ákvað
að gefa plötuna út og gefa ágóðann af henni
ef einhver verður til styrktar krabbameins-
sjúkum börnum," segir Valgeir en leggur
áherslu á að hann vilji ekki gera of mikið
Ódeigur Valgeir
Sveinsson.
úr því, hann vilji að fólk kaupi
plötuna ef það kann að meta
tónlistina en ekki af einhverri
samúð. „Það er þvi miður allt
of mikið um það að menn séu
að gera út á samúð almennings,
en ég vil það alls ekki; ég vona
að einhver ágóði verði af útgáf-
unni sem runnið geti til barn-
anna, en það er fráleitt ástæðan
fyrir útgáfunni."
Vaigeir segist litið hafa feng-
ist við hljóðfæraslátt og laga-
smíðar síðan vinna hófst við
breiðskífuna, en hann sé að
snúa í gang til að fylgja plöt-
unni eftir og þannig standi fyr-
ir dyrum útgáfutónleikar á
Gauki á Stöng fjórða og fimmta
„Þar kem ég fram með hljóm-
desember.
sveit, með þeim Björgvin, Ásgeir og Har-
aldi, en ég verð líka duglegur í að koma
fram einn með kassagítarinn í haust,“ segir
hann ódeigur að lokum.
Rúnar Þór snýr aftur
RÚNAR Þór Pétursson hefur
ekkert sent frá sér alllengi, eða
frá því hann gaf út disk með
píanóútgáfum á lögum sínum
fyrir löngu. Fyrir skemmstu kom
síðan út ný plata frá honum sem
heitir einfaldlega Rúnar Þór.
Rúnar Þór segir ýmsar skýr-
ingar á því að hann hafi
ekki gefið út plötu þetta langan
tíma, en hann hefur þó verið á
fullu að spila víða um land, leik-
ur um hveija helgi. Rúnar segist
kominn í samstarf við Axel Ein-
arsson í Stöðinni sem byggist á
að vinna plötu fyrir Norðurlanda-
markað með meiru og það hafí
meðal annars tafið vinnuna.
Á plötunni eru ný lög utan eitt, sem var
fyrsta lagið sem Rúnar Þór samdi á ævinni,
þegar hann var í hljómsveit á fjórtánda ár-
inu. „Mér fannst það þyrfti að vera eitthvert
frumsamið lag á fyrsta skólaballinu og við
HRÁTT Rúna
Þór Pétursson.
sömdum þetta lag, ég og Örn
Jónsson. Það er á plötunni
óbreytt frá því sem var, einfalt
lag og einfaldur texti," segir
Rúnar Þór. Önnur lög á plötunni
eru eftir Rúnar Þór einan, en
texta alla á Heimir Már, utan
einn sem Jónas Friðgeir á og
annan á Ö.G.P.
Ýmsir leggja Rúnari Þór lið á
plötunni, þar á meðal Þorsteinn
Magnússon, Eiður Arnarson, Jó-
hann Hjörleifsson, Jóhann Birg-
isson og Þórir Úlfarsson, aukin-
heldur sem tríó Rúnars Þórs kem-
ur mjög við sögu, þeir félagar
hans Sigurður Árnason bassa-
leikari og Jónas Björnsson
trommuleikari. Rúnar segist munu bæta við
sig mannskap á útgáfutónleikum plötunnar,
en annars muni þeir kynna plötuna þrír. „Það
verður skemmtilega hrátt fyrir vikíð, en við
þekkjum þessi lög út og inn, höfum verið að
spila þau áður en við tókum þau upp.“