Morgunblaðið - 24.11.1996, Síða 11

Morgunblaðið - 24.11.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 B 11 Aldrei aftur til Bosníu Aðeins tveimur dögum efbir að músliminn Miralem Haseta kom til Islands til að spila knattspymu með íslensku liði braust stríð út í Júgóslavíu fyrrverandi og þurfti hann að beita klókindum til þess að ná serb- neskri eiginkonu sinni og ársgömlum syni þeirra úr stríðshqáðu landinu. Sigríður Ingvarsdóttir heimsótti fjölskylduna í ný heimkynni á Siglufírði. FJÖLSKYLDAN í snjónum í Siglufirði. MÆÐGININ Milina og Alen urðu nærri innlyksa á hinum YNGSTI fjöskyldumeðlimurinn stríðshrjáðu svæðum gömlu Júgóslavíu. María Selma fæddist hér á íslandi fyrir tæpum tveimur árum. MITZA, eins og hann er gjarnan kallaður, kom upphaflega til íslands til að leika knatt- spyrnu, en hann hafði um nokk- urra ára skeið verið atvinnumaður í knattspyrnu úti í Júgóslavíu. Það vildi þannig til að kunningi hans, er lék með Víkingi í Reykjavík sumarið 1991, hafði samband við hann og spurði hvort hann vildi koma og spila fótbolta á íslandi. í fyrstu leist honum ekki á hug- myndina en er umboðsmaður hér á íslandi hafði samband við hann og lýsti aðstæðum fyrir honum ákvað hann að slá til. En þær upplýsingar sem Mitza fékk frá umboðsmanninum voru þær að hann kæmist á samning hjá liði sem væri í fimmtíuþúsund manna smáborg um 80 km frá höfuðborg- inni Reykjavík. Er Mitza lenti á Keflavíkurflug- velli þann 4. apríl 1992 beið um- boðsmaðurinn, sem er frá Serbíu, eftir honum og Mitza sagðist strax hafa gert sér grein fyrir að ekki var allt eins og það átti að vera. Umboðsmaðurinn sagði honum þá að upp væri komið „smá“ vanda- mál og það var að hann færi víst ekki í þessa fimmtíuþúsund manna smáborg í 80 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík því hún væri alls ekki til. Hinsvegar væri til tvö hundruð íbúa sveitaþorp norður í landi, sem héti Hofsós. Það væri í um 400 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík og þangað væri búið að ráða hann. Skelfingu lostinn yfir fréttum af stríði Mitza segist hafa fyllst svart- sýni við þessar fréttir og spurt hvenær næsta vél færi aftur heim. Umboðsmaðurinn sagði að þetta yrði ekkert mál, hann skyldi bara redda honum fljótlega einhveiju betra í Reykjavík. Er Mitza íhug- aði málið ákvað hann að úr því hann væri á annað borð kominn til landsins skyldi hann fara beint norður á Hofsós og líta á aðstæð- ur. Þótt honum hafi ekki litist vel á í fyrstu ákvað hann að vera þar í þá fimm mánuði sem samið hafði verið um en snúa þá aftur alfarinn heim. En að sjálfsögðu grunaði hann ekki þá skelfilegu atburði sem í vændum voru og öli heims- byggðin fylgdist með nánast í beinni útsendingu næstu árin. Þann 6. apríl, nánar tiltekið tveimur dögum eftir að Mitza kom til landsins, sat hann í rólegheitum í íbúð er hann hafði á Hofsósi og reyndi að fylgjast með átta-frétt- unum. Þá heyrði hann að skollið væri á stríð í Bosníu. Hann sagð- ist hafa setið skelfingu lostinn yfir fréttunum vitandi af konunni sinni, eins árs görnlum syni þeirra, foreldrum sínum, ættingjum og vinum þarna úti. Strax að loknum fréttum komu strákarnir úr fótbol- taliði Hofsóss til hans og spurðu einfaldlega hvað þeir gætu gert til hjálpar. Mitza segir það hafa verið ómetanlegan stuðning að finna að þeir vildu allt fyrir hann gera og hann segist jafnframt hafa verið mjög undrandi á þeim hlýhug og góðvilja sem þeir, ásamt öllum íbúum Hofsóss, sýndu hon- um. Leyniskyttur skutu á allt sem hreyfðist Milina, kona Mitza, var stödd í íbúð sem þau hjónin áttu í Sarajevo í Bosníu ásamt nokkrum ættingj- um, er þau fóru að heyra skothríð. Síðan fóru að falla sprengjur. „Við vorum að sjálfsögðu öll alveg dauð- skelkuð en jafnframt vorum við mjög undrandi. Við skildum ekki hvað var að gerast og skiljum reyndar ekki enn, hvers vegna stríðið braust út. Næstu tíu daga þurftum við að vera niðri í loftvam- arbyrgjum án rafmagns og fólk komst ekki upp til að ná í föt eða aðrar nauðsynjar því leyniskyttur skutu á allt sem hreyfðist." Er stríðið hafði staðið í tvo mánuði fór alvarlegur matar- og vatnsskortur að gera vart við sig. Mitza er múslimi en Milena er Serbi. Þau segja að fyrir stríðið hafí enginn verið að velta því fyr- ir sér og yfirleitt hafi fólk alls ekki hugsað út í það hvað hver væri, en eftir að stríðið braust út þá hafí Serbum ekki verið óhætt á vissum svæðum, múslimum ekki óhætt á öðrum svæðum og Króat- ar áttu sín griða- og óvinasvæði. Þar sem Milina var Serbi þá var henni ekki óhætt í Sarajevo eftir að striðið braust út. Eftir fyrstu tíu daga stríðsins sem hún eyddi í loftvarnarbyrgi ásamt fleirum, þá kom smáhlé. Þá fengu þau mæðginin far með herflugvél til Serbíu, þar sem móðir hennar bjó. Milina segist ekki hafa getað tek- ið neitt með sér nema örfáar flíkur á son sinn Alen, og tróð hún þeim ofan í litla handtösku. Annað sem þau áttu hafi hún skilið eftir og þau hafa ekki séð neitt af sínum persónulegu munum og dóti síðan, utan örfáar brúðkaupsmyndir sem móðir hennar sendi þeim. Mútaði ráðamönnum fyrir vegabréf Mitza segist strax hafa farið að reyna að gera það sem í hans valdi stóð til að ná þeim Milinu og Alen úr Júgóslavíu og til ís- lands. Hann segir þetta hafa verið hrikalega tíma; stöðugt að reyna að hringja, fá fréttir af ástandinu og fylgjast með framvindu mála. Milina þurfti að bíða færis í sex mánuði í Serbíu hjá móður sinni. En móðir hennar var logandi hrædd allan þann tíma vegna veru dóttur sinnar þar því hún hafði komið frá Bosníu og átti mú- slimskan eiginmann. Aðalvandamálið var að fá vega- bréf fyrir mæðginin. En að lokum tókst Mitza að múta ráðamönnum til að fá vegabréf fyrir þau og til íslands komu þau 2. október 1992. Milina segir það hafa verið ólýsan- legan létti að hitta eiginmanninn í flugstöðinni í Keflavík og litla fjölskyldan var sameinuð á ný í öruggu landi. Þau héldu beint norður til Hofsóss og voru róleg- heitunum og umhverfinu öllu feg- in. Mitza segist aldrei gleyma þessum drengjum á Hofsósi sem lögðu fram ómetanlega hjálp og stuðning, og sáu þeir m.a. um all- an undirbúning að komu þeirra Milinu og Alens. Innlyksa í þrjú ár í sumarhúsi Þrátt fyrir að miklu fargi væri af þeim létt við komu Milinu og Alens til íslands, þá hélt tauga- stríðið þó áfram meðan fylgst var með ættingjum og vinum. Daginn sem stríðið braust út, öllum að óvörum, voru foreldrar Mitza staddir í sumarhúsi í um hundrað km fjarlægð frá heimili sínu í Sarajevo og urðu þau innlyksa þar í rúmlega 3 ár. Milena og Mitza þekktu bæði talsvert af fólki sem slasaðist og lést í stríðinu. Og Mitza segir að ef hann hefði ekki komið til ís- lands hefði hann verið kvaddur í herinn og væri alveg örugglega ekki lengur í lifenda tölu. Þau eru sammála um að þau múni aldrei aftur fara út til Bosn- íu þrátt fyrir að eiga þar foreldra og systkini. „Fólk sem upplifði þessar hörmungar er ekki samt og áður og verður það aldrei, það er fullt vantrausts og heiftin ólgar innra með því. Það treystir ekki fólki af öðru þjóðerni og þrátt fyr- ir að stríðið sé hvorki því né öðru að kenna, þá er einhver rígur þarna á milli sem erfitt verður að eyða. Álitinn stórundarlegur að vilja ekki fé í apríl 1994 fluttu þau Milena og Mitza frá Hofsósi til Siglufjarð- ar. Þjálfari KS hafði samband við Mitza og spurði hann hvað hann vildi fá fyrir að koma til Siglufjarð- ar og spila með KS. „Ég sagðist vilja vinnu fyrir mig og konuna mína, á Hofsósi vann ég við smíð- ar og hún í fiski, og ef þeir gætu fundið fyrir okkur íbúð þá væri það mjög gott. En þjálfarinn sagð- ist vera að athuga hversu mikla peninga ég vildi fá, er ég sagðist enga peninga vilja, ég gæti bjarg- að mér ef ég fengi vinnu. Þá áleit hann mig stórundarlegan. Og til Siglufjarðar fórum við og hér ætl- um við okkur að búa áfram. Okk- ur líður mjög vel á Siglufirði og við erum nú að leita okkur að íbúð til kaups.“ Þau eru búin að sækja um ís- lenskan ríkisborgararétt og vonast til að það mál gangi í gegn næsta vor. Fjölskyldan hefur stækkað eftir komuna til Siglufjarðar. Fyr- ir einu og hálfu ári fæddist hjónun- um dóttir er hlaut nafnið María Selma. Alen, sem er orðin 5 ára er á leikskóla og talar lýtalausa íslensku, en Milena móðir hans sagði að er hún kom fyrst til lands- ins hefði henni ekki dottið í hug að hún ætti eftir að tala þetta hrognamál. Milena og Mitza segjast óneit- anlega stundum hugsa með sökn- uði um tímann úti í gömlu Júgó- slavíu áður en stríðið braust út. Þau höfðu það fjárhagslega mjög gott. Hann vann eingöngu við að leika knattspyrnu, en hún er lærð hárgreiðslukona og starfaði við þá iðn. En þau eru sammála um að fólkið hérna sé öðruvísi en þau hafi átt að venjast. Hér vill fólk virkilega hjálpa ef náunginn þarf á aðstoð að halda, það bankar jafn- vel upp á og er óhrætt við að bjóða aðstoð. Úti er fólk ekki að velta fyrir sér raunum náungans, því fínnst það eiga nóg með sjálft sig og er nákvæmlega sama um aðra. Höfundur er fréttaritari Mbl. á Siglufiröi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.