Morgunblaðið - 24.11.1996, Page 32
32 B SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HAG
L 0 K S I \ S
\ í S L \ \ I) I
EG Skrifstofubúnaður ehf.
Ármúla 20 sími 533 5900 fax 533 5901
HAG er stærsti framleiðandi skrifborðsstóla á Norðurlöndum og er
leiðandi í hönnun og gerð þeirra. Stólarnir hafa farið sigurför um
kröfuhörðustu markaði heimsins og unnið til verðlauna á stæstu
sýningum á skrifstofubúnaði t.d. Neocon USA og Orgatec Pýskalandi.
EG Skrifstofubúnaður
heíúr bæst í hóp þeirra sem
selja alvöru skrifborðsstóla
Gaddafi
nýr og betri
maður
París, Róm. Reuter.
MUAMMAR Gaddafi, leiðtogi
Líbýu, er nýr og betri maður að
sögn Hosni Mubaraks, forseta
Egyptalands, og sjálfur lofar
Gaddafi þá Bill Clinton, forseta
Bandaríkjanna, og Jacques
Chirac, forseta Frakklands. Seg-
ir hann Clinton „góðan mann“
og lofar Chirac fyrir „hug-
rekki“.
„Gaddafi er nú allt annar mað-
ur en áður var og unnt að vinna
með honum,“ sagði Mubarak í
viðtali við ítalska dagblaðið La
Repubblica og hvatti til, að látið
yrði af efnahagslegum refsiað-
gerðum gegn Líbýu. Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna samþykkti
þær 1992 í því skyni að neyða
Líbýustjóm til að framselja tvo
menn, sem grunaðir eru um að
hafa komið sprengju fyrir í Pan
Am-þotunni, sem hrapaði yfir
Lockerbie í Skotlandi 1988. Þá
fórust 270 manns. Þá var einnig
lagt að Gaddafi að hafa samstarf
við frönsku stjórnina vegna
sprengingar í franskri flugvél
1989 en þá fómst 170.
Tími Clintons kominn
Gaddafi sagði í viðtali við
franska blaðið Le Figaro, að
Clinton væri „góður rnaður", sem
hefði átt dálítið erfitt um vik á
fyrra kjörtímabilinu vegna arf-
leifðar repúblikana en nú væri
það sem betur fer að baki. Hann
væri líka laus við kverkatak síon-
ista og nú myndi heimsbyggðin
loksins komast að því hvaða
mann hann hefði að geyma.
Chirac hrósaði Gaddafi fyrir
hugrekki og sagði hann ekki
dansa eftir pípu Bandaríkja-
manna eins og Francois heitinn
Mitterrand hefði gert.
Félag vell-
ríkra bókaorma
afhjúpað
London. The Daily Telegraph.
HULUNNI hefur verið svipt af
„fínasta bókaklúbbi heims“, en
hann er aðeins ætlaður fáum
útvöldum aðalsmönnum, virtum
stjórnmálamönnum og auðkýf-
ingum.
Mikil leynd hefur hvílt yfir
Roxburghe-klúbbnum, sem her-
toginn af Roxburghe stofnaði
árið 1812. Klúbburinn hefur allt-
af lagt áherslu á að forðast um-
fjöllun fjölmiðla en breska tíma-
ritið Country Life hefur nú birt
Iista yfir félaga klúbbsins.
Alls eiga 44 menn aðild að
klúbbnum, þeirra á meðal
auðkýfingurinn John Paul Getty,
bandaríski iðnjöfurinn Paul Mell-
on, William Waldegrave, fjár-
lagaráðherra Bretlands, nokkrir
breskir hertogar og lávarðar,
auk jarla og greifa.
Markgreifinn af Salisbury er
formaður klúbbsins. Aðeins tvær
konur eru í klúbbnum og þær
eru báðar breskar aðalskonur.
Skiptastá dýrum bókum
Hópurinn kemur saman reglu-
lega í bókasöfnum félaganna,
snæðir kvöldverð, skiptist á upp-
lýsingum um bókband og skoðar
fágætar skinnbækur.
Félagarnir ræða þó ekki að-
eins bækur og bókmenntir og
marga grunar að klúbburinn
snúist ekki síður um völd og
áhrif.
Félagarnir verða allir að taka
að sér endurútgáfu á einhverri
fágætri bók til að gefa öðrum í
klúbbnum. Slíkar einkaútgáfur
geta verið mjög dýrar, t.a.m. gaf
hertoginn af Buccleuch út bók
með myndum af skjaldarmerkj-
um fjölskvldu sinnar frá 15. öld
og hvert eintak kostaði jafnvirði
75.000 króna.