Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C/D
irr#iimWaií>lli
STOFNAÐ 1913
285. TBL. 84. ARG.
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Deilt um samning Statoil við Indónesa
Portúgalir taka
málið upp hjá SÞ
Ósló. Morgunblaðið.
PORTUGOLSK stjórnvöld eru æf
vegna fyrirhugaðrar olíuleitar
norska ríkisolíufélagsins Statoil
undan strönd Austur-Tímor og
hyggjast taka málið upp innan
Sameinuðu þjóðanna. Norsk
stjórnvöld telja ekkert athugavert
við olíuleitina en norskir þjóðrétt-
arfræðingar hafa hins vegar sagt
að þó að samningur Statoil við
stjórnvöld í Indónesíu um olíuleit-
ina standist líklega lög, kunni hann
að skapa pólitísk og siðferðileg
vandamál.
Antonio Guterres, forsætisráð-
herra Portúgals, bar fram mótmæli
stjómar sinnar á fundi með
Torbjorn Jagland, forsætisráðherra
Noregs. Jagland lýsti því yfir eftir
fundinn að hann teldi samning
Statoil við Indónesa vera viðskipta-
legs eðlis og teldist ekki á nokkurn
hátt vera viðurkenning norskra
stjórnvalda á yfirráðumlndónesa á
Austur-Tímor.
Deilurnar hófust eftir að Indó-
nesar og Ástralir gerðu með sér
samkomulag um hafsvæðið undan
strönd Austur-Tímor. Statoil
hyggst eiga samstarf við ástralska
fyrirtækið Mobil á svæði sem er
fyrir innan 200 mílna lögsögu Aust-
ur-Tímor. Portúgalir telja samning
Indónesa og Ástrala ólöglegan.
Ekki er hægt að taka málið upp
fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag en
Portúgalir hyggjast bera það upp á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna. Munu þeir tengja það tilraun-
um til að tryggja mannréttindi á
Austur-Tímor. Þá hefur friðarverð-
launaþegi Nóbels, Jose Ramos
Horta, lagt til að Statoil stofni sjóð
til stuðnings íbúum Austur-Tímor
og mun eiga viðræður við fyrirtæk-
ið um það í dag, fimmtudag.
Tekist á um
hamborgara
LÖGREGLU- og sérsveitarmenn
voru kallaðir út til að stilla til
friðar í Minsk, höfuðborg Hvíta-
Rússlands, í vikunni, en geysileg
örtröð hafði myndast við fyrsta
McDonalds-veitingastaðinn þar í
landi. Ástæðan var sögusagnir um
að fyrstu gestirnir fengju frían
hamborgara.
Um 4.000 manns hugðust fá sér
hamborgara en mikil fagnað-
arlæti fólksins breyttust fljótt í
skelfingaróp er löggæslumenn
vopnaðir kylfum reyndu að draga
úr troðningnum. Voru sumir
þeirra úr OMON-sérsveitum inn-
anríkisráðuneytisins.
Hamborgarinn í Minsk kostar
um 67 kr. en mánaðarlaunin í
Hvíta-Rússlandi nema að jafnaði
rétt rúmum 3.000 kr. islenskum.
Reuter
Reuter
VEL fór á með Jevgení Prímakov, utanríkisráðherra Rússlands, og Javier Solana, framkvæmda-
sljóra NATO, í gær. Lá vel á Prímakov, sem sagði gott að eiga samskipti við Solana.
Rússar reiðubúnir til
viðræðna við NATO
Brussel. Reuter.
JEVGENÍ Prímakov, utanríkisráð-
herra Rússlands, vék í gær frá fyrri
stefnu rússneskra stjórnvalda er
hann sagði þau reiðubúin að ganga
til viðræðna við Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) um nánari samvinnu.
Prímakov ítrekaði hins vegar harða
andstöðu Rússa við stækkun NATO
í austur. í gær ræddu utanríkisráð-
herrar NATO hvernig koma ætti til
móts við þau ríki sem ekki verður
boðin aðild á næsta ári og lagði
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, til að stofnað
verði nýtt Atlantshafssamvinnuráð,
sem í eigi sæti nokkrar af Mið- og
Austur-Evrópuþjóðum sem taka
þátt í Friðarsamstarfi NATO.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði yfirlýsingu Prímakovs
ekki hafa komið á óvart, Rússar
hefðu sýnt áhuga á samvinnu við
NATO á fundum sem þeir hefðu átt
við aðildarríki bandalagsins, þar á
meðal á fundi Halldórs og Prím-
akovs í nóvember sl. „Enn er hins
vegar óljóst í hveiju þetta samkomu-
lag mun felast en það er ekkert
nýtt, í þessu ferli hafa metjn sjaldn-
ast vitað hvað er handán hornsins.
Það er afar mikilvægt fyrir Evrópu
að Rússar verði með í því þróunar-
starfi sem þar á sér stað.“
Utanríkisráðherrar NATO fögn-
uðu yfirlýsingu Prímakovs, Klaus
Kinkel, utanríkisráðherra Þýska-
lands, sagðist „hissa og glaður yfir
uppbyggilegri afstöðu Rússa“ og
Warren Christopher tók í sama
streng.
Rætt hefur verið um að Rússar
og NATO geri einhvers konar sátt-
mála eða stofnskrá. Búist er við að
viðræður NATO og Rússa hefjist í
janúar og að þær muni vart ganga
þrautalaust fýrir sig. Telja heimild-
armenn Reuter að Rússar muni grípa
hvert tækifæri til að reka fleyg á
milii aðildarþjóða bandalagsins en
þær vilja ganga mislangt til að slá á
andstöðu og ótta Rússa við stækkun.
Rússneski herínn fer
undir borgaralega stj órn
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
greiddi í gær fyrir róttækum breyt-
ingum á yfírstjórn rússneska hersins
með því _að gefa út tilskipun þess
efnis að Igor Rodíonov varnarmála-
ráðherra bæri að draga sig í hlé sem
hershöfðingi. Þar með hefur forset-
inn rofið þá áratuga gömlu hefð að
hershöfðingjar fari fyrir varnar-
málaráðuneytinu í Moskvu.
í tilskipuninni sagði að Rodíonov
ætti að draga sig í hlé innan hersins
þar sem hann væri kominn á eftir-
launaaldur. Ráðherrann varð sex-
tugur 1. desember.
Jeltsín sagði síðar að varnar-
málaráðuneytið yrði í framtíðinni
undir stjórn embættismanna utan
hersins. „Reynsla lýðræðisríkja
sýnir að borgaralegir embættis-
menn, sem stjórna varnarmála-
ráðuneytunum, geta með góðum
árangri tekist á við það flókna við-
fangsefni að efla landvarnirnar,"
sagði forsetinn.
Allir hermenn undir stjórn
herráðsins
Rússneskir sérfræðingar í málefn-
um hersins sögðu líklegt að forsetinn
myndi fylgja tilskipuninni eftir með
nýrri og skýrri skilgreiningu á vald-
sviðum varnarmálaráðherrans ann-
ars vegar og formanns herráðsins
hins_ vegar.
„Ákvörðun forsetans á eftir að
leiða til róttækra breytinga á allri
yfirstjórn hersins," sagði Alexander
Zhilin, sérfræðingur vikublaðsins
Moskvufrétta í varnarmálum.
„Varnarmálaráðherrann á að gegna
pólitísku hlutverki, verður stjórn-
málamaður eða borgaralegur emb-
ættismaður fremur en hershöfðingi.
Formaður herráðsins á ekki að
skipta sér af stjórnmálum og fer
með mál sem varða aðeins herinn."
Gert er ráð fyrir að Rodíonov
beri ábyrgð á fjárhag hersins, móti
stefnuna og taki pólitískar ákvarð-
anir, komi á umbótum innan herafl-
ans og sjái um tengslin við þingið
og stjórnina.
Ennfremur er stefnt að því að
allar hersveitir landsins verði undir
beinni stjórn Viktors Samsonovs
hershöfðingja, formanns herráðsins.
Hingað til hafa varnarmálaráðu-
neytið og innanrikisráðuneytið
stjórnað eigin hersveitum.
„Hugmyndin er að formaður her-
ráðsins taki við stjórn allra hersveit-
anna, sagði Andrej Píontkowskí, for-
stöðumaður Herfræðimiðstöðvarinn-
ar í Moskvu. „Þetta er mjög mikil-
vægt til að geta samhæft starfsem-
ina.“
Júrí Batúrín, yfirmaður Varnar-
málaráðs Rússlands, sagði að völd
varnarmálaráðherrans myndu ekki
minnka, hins vegar ætti „pólitískt
svigrúm hans að aukast verulega".
Ofurleið-
andi duft
Lyon. Reuter.
HÓPUR franskra vísindamanna
tilkynnti í gær, að hann hefði
fundið efni, sem væri ofurleið-
andi við stofuhita. Ef rétt reyn-
ist er um byltingarkennda upp-
götvun að ræða.
Efnið, sem er í duftformi, er
ofurleiðandi við 25 stiga hita á
celsíus eða við 100 gráða hærri
hita en áður hefur þekkst. Er
um að ræða blöndu af liþín,
beryllín og vatnsefni.
Vísindamennirnir starfa við
frönsku vísindamiðstöðina,
kjarnorkuráðið í París og
Claude Bernard-háskólann í
Lyon. Sagði einn þeirra, að lík-
lega yrði ekki hægt að nota
efnið í raflínur þar sem það
væri í duftformi en aftur á
móti í alls konar raftæki og
tölvukubba.