Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
VMA fær
góðargjafir
VERKMENNTASKÓLANUM á
Akureyri hafa borist góðar gjaf-
ir síðustu daga. Fyrirtækið
Skipavarahlutir hf. færði raf-
iðnadeild VMA þrjá 3ja fasa rið-
straumsmótora nýlega sem von-
ast er til að nýtist til kennslu í
skólanum.
Stjórn Vélstjórafélags Islands
heimsótti skólann í vikunni og
færði vélstjórnadeild 300.000
króna peningagjöf til tækja-
kaupa og 1. og 2. bindi Vél-
sljóratals. Eins og komið hefur
fram er hafin kennsla á 4. stigi
í VMA og verða fyrstu vélfræð-
ingarnir útskrifaðir frá skólan-
u mnæsta vor.
Á stærri myndinni er Helgi
Laxdal, formaður Vélstjórafé-
lags íslands að afhenda Bern-
harð Haraldssyni, skólameistara
VMA gjafirnar en hjá þeim
stendur Árni Árnason, deildar-
stjóri vélstjórnardeildar. Á
minni myndinni stendur Svavar
Guðni Gunnarsson, deildarstjóri
rafiðnadeildar við mótorana frá
Skipavarahlutum.
------------
Tónlistarskóli
Eyjafjarðar
Þrennirjóla-
tónleikar
HALDNIR verða þrennir jólatón-
leikar á starfssvæði Tónlistarskóla
Eyjafjarðar í ár.
Fyrstu tónleikarnir verða í Þela-
merkurskóla næstkomandi laugar-
dag, 14. desember kl. 14, þeir
næstu í Freyvangi sunnudaginn
15. desember kl. 14 og þriðju og
síðustu tónleikarnir verða í gamla
skólahúsinu á Grenivík mánudag-
inn_ 16. desember kl. 20.30.
Á tónleikunum koma fram nem-
endur og kennarar skólans og
flytja fjölbreytta tónlist, sem á
flestan hátt tengist jólum. Skólinn
hvetur fólk til að líta upp úr amstri
aðventunnar og eiga notalega
stund við hljóðfæraleik og söng.
Aðventu-
samkoma
eldri borgara
AÐVENTUSAMKOMA eldri
borgara verður í Glerárkirkju
á morgun, föstudaginn 13.
desember, og hefst kl. 15.
Barnakór kirkjunnar syng-
ur nokkur lög, Valgerður Val-
garðsdóttir djákni kemur í
heimsókn og lesin verður jóla-
saga. Boðið verður upp á kaffi-
veitingar á aðventusamkom-
unni.
Morgunblaðið/Kristján
Kærkomin viðbót
við atvinnulífið
Grýtubakkahreppur. Morgunblaðið.
LOKIÐ hefur verið frágangi hús-
næðis og uppsetningu véla á Greni-
vík en þar er fyrirhugað að hefja
innan tíðar vinnslu harðfisks.
Framkvæmdir hafa staðið frá því
í haust á vegum Sæness ehf. á Greni-
vík, en fyrirtækið hefur fest kaup á
vélbúnaði og vörumerkinu Eyjabitum
sem sá um harðfiskverkun í Vest-
mannaeyjum. Sænes hefur leigt
reksturmn ásamt húsnæðinu þeim
Heimi Ásgeirssyni og Friðbirni Pét-
urssyni á Grenivík sem stofnað hafa
félagið Darra ehf. Félagarnir hyggj-
ast framleiða harðfisk og selja undir
merki Eyjabita.
Skapar fjögur störf
Vonir standa til að þessi nýja
starfsemi á Grenivík skapi fjögur
störf í upphafi, sem er kærkomin
viðbót við atvinnulífið í sveitarfélag-
inu. Þeir Heimir og Friðbjörn hafa
hug á að stækka markaðssvæðið í
framtíðinni og sinna þá öllu landinu.
Hráefni til vinnslunnar verður afl-
að að mestu á fiskmörkuðum, en
einnig eru vilyrði um hráefni frá
Útgerðarfélagi Akureyringa. Frysti-
hús félagsins á Grenivík mun sjá um
flökun.
_
Morgunblaðið/Kristján
ÞRÖSTUR Pálmason, starfsmaður Skógræktarfélags Eyfirðinga, pakkar jólatré í endurbættri sölu-
aðstöðu félagsins í Kjarnaskógi. Að baki honum spjalla þeir Vignir Sveinsson, formaður Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga, og Sigurður Blöndal, fyrrverandi formaður Skógræktarfélags íslands.
Skógræktarfélag Eyfirðinga selur jólatré í fertugasta sinn
Nýr og endurbættur
sölustaður í Kjarnaskógi
JÖLATRÉSALA Skógræktarfélags
Eyfirðinga er nú að hefjast, en þetta
er í fertugasta sinn sem félagið sel-
ur Akureyringum og nærsveitar-
mönnum jólatré.
Hallgrímur Indriðason, fram-
kvæmdastjóri félagsins, segir að fá-
einir tugir trjáa hafi verið seldir
fyrstu árin en salan farið vaxandi
ár frá ári. „Félagið byijaði að selja
jólatré árið 1956, fékk þá 20 tré,
danskt rauðgreni, enda lítið til af
íslenskum tijám,“ segir Hallgrímur.
Nú eru seld vel á þriðja þúsund jóla-
tré á vegum félagsins og er þessi
sala mikilvæg tekjulind fyrir félagið
en allur ágóði af henni rennur til
skógræktar og fegrunar útivistar-
svæða félagsins sem eru víða í Eyja-
firði.
Félagið selur þrjár íslenskar teg-
undir, rauðgreni, blágreni og stafa-
furu, en einnig er norðmansþinur
til sölu. Hlutfall heimafenginna
trjáa, sem höggvin eru í reitum fé-
lagsins í Eyjafírði, hefur aldrei verið
hærra en nú.
Vignir Sveinsson, formaður
Skógræktarfélags Eyfirðinga, segir
að Akureyringar séu duglegir að
kaupa íslensk tré, komið hafi í ljós
í könnun að 2/3 hlutar þeirra jól-
atrjáa sem landsmenn kaupi séu
innflutt, en bæjarbúar velji í allt að
60% tilvika að hafa íslensk jólatré
í stofum sínum.
Skógræktarfélag Eyfirðinga hef-
ur tekið i notkun nýjan og endur-
bættan sölustað fyrir jólatré í
Kjarnaskógi og vænta forsvarsmenn
félagsins þess að bæjarbúar geri sér
ferð í skóginn til að kaupa jólatré.
Um næstu helgi verður hand-
verksfólks á svæðinu og sýnir gerð
ýmiss konar útiskreytinga, m.a.
hurðarkransa og þá gefst börnunum
kostur á að skoða kanínur um leið
og jólatrén.
Kanínur og
handverksfólk
„Hér eru mjög góðar aðstæður
og við viljum endilega að fólk komi
hingað til að kaupa jólatré," sagði
Hallgrímur, en jólatré verða einnig
seld á vegum félagsins í göngugöt-
unni við Hafnarstræti og við stór-
markaðinn KEA-Nettó.
Gamaldags
jólaundir-
búningur
í Laufási
STARFSDAGUR verður í
Gamla bænum í Laufási næst-
komandi sunnudag, 15. desem-
ber, og verður þá sérstakur
jólaundirbúningur.
Bærinn verður opnaður gest-
um kl. 13.30 en frá þeirri
stundu og til 15.30 verður
„heimilisfólkið" önnum kafið í
gamaldags jólaundirbúningi.
Steypt verða tólgarkerti, kveikt
upp í gömlu hlóðunum og jóla-
hangikjötið soðið. Börnin á
heimilinu sitja við jólaföndur
og skreyta síðan jólatréð. Uppi
í baðstofunni verður setið við
tóvinnu og fólk sker út laufa-
brauð sem steikt verður í eld-
húsinu.
Sérstakir gestir í Laufás-
bænum verða Rósa Kristín
Baldursdóttir og Þórarinn
Hjartarson en þau ætla að
gleðja eyru viðstaddra með
söng á íslenskum jólalögum,
en þau byija að syngja kl. 14.
Heyrst hefur að íslenskir
jólasveinar, sem búa í Kaldbak,
muni líta inn um kl. 15 og ef
veður leyfir verður gengið í
kringum jólatré sem stendur í
garðinum á prestssetrinu. Það
er því gott fyrir gesti að vera
í skjólgóðum fatnaði þennan
dag.
Aðgangseyrir er 200 krónur
fyrir þá sem eru eldri en 12 ára.
Bletta-
skoðun
BLETTASKOÐUN fer fram á
Heilsugæslustöðinni á Akur-
eyri, 5. hæð, á morgun, föstu-
dag. Skoðunin er fólki að
kostnaðarlausu, en nauðsyn-
legt er að panta tíma.
Krabbameinsfélag Akur-
eyrar og nágrennis, Félag ís-
lenskra húðlækna og Heilsu-
gæslustöðin á Akureyri sam-
einast um þjónustuna, sem felst
í að bjóða almenningi upp á
ókeypis skoðun á blettum á húð
sem fólk hefur áhyggjur af.
Tíðni húðkrabbameins hefur
aukist síðustu áratugi, en ár
hvert eru skráð meira en þijá-
tíu ný tilfelli af húðkrabbameini
hér á landi. Mikilvægt er að
fara til læknis ef fram koma
breytingar á húð, eins og blett-
ir sem stækka, eru óvenjulega
litlir eða breytast og sár sem
ekki gróa.
Lúsíuhátíð
LÚSÍUHÁTÍÐ er orðin fastur
liður á aðventunni hjá mörgum
Akureyringum, en fyrir um 40
árum innleiddi Karlakór Akur-
eyrar þennan sænska sið og
Karlakór Akureyrar-Geysir
hélt hefðinni við þegar hann
var stofnaður. Hvergi á land-
inu hefur þessi siður átt jafn
fastar rætur og á Akureyri.
Kórinn heldur að þessu sinni
Lúsíuhátíð í Glerárkirkju í
kvöld, fimmtudagskvöldið 12.
desember, kl. 20.30 og á sama
tíma annaðkvöld, föstudags-
kvöld, í Akureyrarkirkju. Auk
flutnings á Lúsíulaginu Santa
Lúsía flytur kórinn lög sem
tengjast jólahátíðinni, eftir
innlenda og erlenda höfunda.
Sigríður Elliðadóttir mezzó-
sópran syngur einsöng í
nokkrum lögum en er auk þess
í hlutverki Lúsíu. Hlutverk
þerna hennar eru í höndum
stúlkna úr kór Menntaskólans
á Akureyri. Jósavin Arason
tenór syngur einsöng í tveimur
lögum.