Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 69 ________BREF TIL BLAÐSIIMS___ Opið bréf til Svanfríðar Jónasdóttur alþingismanns Frá Jóni Þór Helgasyni og Guðmundi Ómari Helgasyni: VIÐ teljum okkur tilneydda til að svara ummælum þínum í garð bænda. í hádegisfréttum í ríkisút- varpinu 4. desember léstu í veðri vaka að það væru 2.636 bændur í landinu sem fengju svokallaðar „beingreiðslur“ fyrir að gera ekki neitt. Það er skrítið að þú sem átt að heita menntuð manneskja, skulir ekki leita að ástæðum, áður en þú myndar þér skoðanir. Okkur langar að vita hvað þú átt við þegar þú segir að bændur séu ekki ein stétt? Við ætlumst til að þú gerir frekari grein fyrir þessum yfirlýsingum. I þessari grein ætlum við í stuttu máli að fræða þig um tilurð „bein- greiðslnanna". Eins og þú veist, þá voru laun einu sinni miðuð við framfærsluvísi- töluna, þannig þegar mjólkin hækk- aði vegna sífeldra gengisfellinga, sem var leið stjórnmálamanna til að bjarga sjávarútveginum, þurfti þá að hækka launinn hjá launþegum. Þetta kallaði þá aftur á gengisfell- ingu, vegna hækkandi launakostn- aðar sjávarútvegsins. En leið stjórn- málamanna út úr þessu var að niður- greiða þær landbúnaðarvörur sem þyngst vógu í framfærsluvísitölunni, þ.e. kindakjöt og mjólk. Þannig héldu þeir laununum niðri. Eins og allir vita var þetta ekki nóg, gengið var fellt aftur og aftur fram til tí- unda áratugarins, alltaf til þess að bjarga sjávarútveginum. Þetta varð til þess að greiðslurnar til að lækka verður mjólk og kindakjöts til neyt- enda jukust alltaf. Fram til ársins 1992 var formið á þessum greiðslum þannig að bændur fengju greitt fyrir vöru sína frá mjólkurbúum en ríkið greiddi síðan niður þann hluta vinnslu- kostnaðarins sem bændur greiddu ekki. Þetta kerfi var óhagkvæmt, því að hagræðing í afurðastöðvun- um var engin. Þær voru litlar og dreifðar um allt land. Núna koma þessar greiðslur beint til mjólkurframleiðenda eftir nýttum framleiðslurétti hvers bónda. Þeir bændur sem nýta ekki framleiðsluréttinn fá engar greiðsl- ur frá ríkinu. í dag er það þannig að bændur fá afurðir sínar greiddar að 47% sem beingreiðslur, en 53% frá afurðastöðvum. Bóndinn fær 54,76 krónur fyrir mjólkurlítrann. í raun kaupa afurðastöðvarnar framleiðslu bænda á lægra verði, en í staðinn bera þær allan kostnað af vinnslu. Framleiðslukostnaður á hvern framleiddan lítra er ca. 33-35 krón- ur. Þetta þýðir að bóndinn hefur 20-22 krónur fyrir lítrann. Þeir peningar eru síðan laun búaliðsins og auk þess sá peningur sem bónd- inn þarf að nota til að kaupa vélar og bæta húsakost. Meðalbúið á ís- landi er með 80 þúsund lítra fram- leiðslurétt og við það bú er miðað við 2,5 ársverk og er vinnuvikan alltaf 7 dagar. Reiknaðu launinn, Svanfríður. Þá skilurðu væntanlega að það bregður einn sunnlenskur kúabóndi búi að meðaltali á mán- uði, og þannig hefur þáð verið síð- ustu 10 árin. Einu styrkirnir sem bændur eiga rétt á skv. lögum, eru jarðarbóta- styrkir en ríkið hefur svikist um að borga þá í 5 ár. En það er ann- að en bændur í Evrópu. Vissirðu, Svanfríður, að á Spáni eru 60% bænda með færri en 10 kýr? Meðal- búið á íslandi er með 20-22 kýr. Þar eru niðurgreiðslur til bænda svo sannarlega lægri en á íslandi, en í staðinn eru aðföng niðurgreidd og síðan fá þeir styrk vegna fjarlægðar frá markaði. Hversu miklu af fram- leiðslu bænda í Evrópu er hent á hveiju ári, framleiðslu sem ESB er búið að ábyrgjast niðurgreiðslu á en má ekki fara á markaðinn vegna þess að þá fellur verðið til bænda? Hversu mörg fjós í Þýskalandi, Frakklandi og jafnvel í Danmörku fengju starfsleyfi, ef þessi lönd fylgdu sömu heilbrigðiskröfum og eru hér á íslandi? Mjög fá. Kröfur okkar eru margfalt meiri. En því miður hafa Þjóðvaki og Alþýðu- flokkurinn alveg gleymt að minnast á þetta þegar þeir tala um miklar „niðurgreiðslur" og óhagræði í landbúnaði á íslandi. Afurðaverð bænda hefur lítið sem ekkert hækkað síðustu 5 árin. Núna er staðan þannig að það vant- ar 10 krónur á afurðaverðið til að laun bænda væru jafn há og 1992. En það kemur á móti að núna eru störfin orðin vélrænni og léttari, þannig að launakostnaður hefur lækkað en það er samt ekki nóg til að vinna upp launamissinn. Kæra Svanfríður, af þessu máttu sjá að gagnrýni þín á landbúnað er byggð á mikilli vanþekkingu. Niðurgreiðslur til bænda eru komn- ar til vegna þess að í meira en tvo áratugi þurfti ekki að hagræða í sjávarútvegi, heldur fóru sægreif- arnir i stjórnarráðið og báðu um niðurgreiðslu í formi gengisfelling- ar, en um þær niðurgreiðslur talar enginn. Að lokum viljum við hvetja þig til að afia þér betri upplýsinga um landbúnað. JÓN ÞÓR HELGASON, GUÐMUNDUR ÓMAR.HELGASON, Lambhaga á Rangárvöllum. Aburður úr Gufunesi - sóun eða sjálfbæri? Frá Bjarna Guðmundssyni: ÞAÐ er fátt jólalegt við áburð. Á þessari jólaföstu hafa þó málefni Áburðarverksmiðjunnar hf. komið til umræðu. Eigendurnir hyggjast selja hana. Óvissa ríkir um frekara framhald áburðarframleiðslu hér í landi. Vera má að einhver sjái pen- inga í fyrirtækinu og haldi fram- leiðslunni áfram. Sé svo þarf þessi grein ekki að verða lengri. Hins vegar óttast ég að með þeirri einföldu hagfræði, sem nú stýrir athöfnum samfélaganna, sé takmörkuð von um að vandalausir aðilar sjái hag í framleiðslu fáeinna poka af köfnunarefnisáburði uppi á Islandi með „gamaldags" aðferð. Ég kem betur að henni en gætum að öðru. Frá Sveini Björnssyni: UNDIRSTÖÐUATRIÐI í umferðar- skipulagi er notkun stefnuljósa. Sé þetta atriði virt að vettugi, er ekki við því að búast, að aðrar umferðar- reglur séu í heiðri hafðar. Af ein- hveijum ástæðum; kæruleysi, hroka, skorti á sjálfsaga, heimsku eða öllu þessu virðist meirihluti ís- lenskra ökumanna ekki vita til hvers stefnuljós eru á farartækjum eða hvenær og hvernig þau skulu notuð. Vægt til orða tekið er þetta blett- ur á þjóð okkar. Undirritaður hefur ekið víða um lönd, en hvergi upplif- að þá reynslu af fáfræði og sofanda- Um þessar mundir er títt efnt til málþinga um sjálfbæri og aðra umhverfishyggju. Ráðamenn ferð- ast líka víða um heim til undirritun- ar ýmissa yfirlýsinga og sáttmála um betri hegðan þjóðanna gagnvart umhverfinu. Allt eru þetta mikilvæg mál og þakkarverðar athafnir. Löngum hefur þó listin verið sú að koma góðum áformum í fram- kvæmd, ekki síst ef þau brjóta í bág við hinn þunga straum tímans. Nú er langmest af köfnunarefn- isáburði heimsins framleitt sem hliðargrein olíuvinnslu. í Gufunesi er hins vegar notuð eldri aðferð sem byggist á rafgreiningu. Ég þreyti ekki lesandann með faglegum smá- atriðum; læt það nægja að í Gufu- nesi er endurnýjanleg orka fall- hætti í umgengni við þetta mikil- væga öryggistæki, sem stefnuljós eru, eins og hér. Hérlendir öku- menn, margir hveijir, virðast halda, að stefnuljós skuli aðeins notuð á erlendri grund þegar skipta skal um akrein eða beygja. Hér þekkist allir og geti lesið hugsanir hver annars. Þess vegna sé notkun stefnuljósa óþörf. Haldbesta skýringin á þessari hegðun landans er sennilega, að við eigum svo margt eftir ólært í um- gengnisvenjum siðaðra þjóða. SVEINN BJÖRNSSON verkfræðingur, Fiskakvísl 13, Reykjavík. vatna notuð til þess að vinna köfn- unarefni úr loftinu. Obbinn af öðr- um köfnunarefnisáburði verður hins vegar til við notkun olíuforða sem sóttur er í takmarkaða auðlind. Það er talað um að gera íslenskan landbúnað vistvænni en hann þó hefur verið. Stjómvöld hafa meira að segja komið á lagabálki í þá veru og þingmenn allra flokka hafa ný- verið sameinast um þingsályktunart- illögu sem m.a. gengur í þessa átt. Af þessum sökum bíð ég dálítið spenntur eftir því að sjá hvort ráða- menn greina samhengið á milli orða hér og athafna þar: hvort góssið í Gufunesi verður bara selt til ein- hvers sem gjalda vill á annan millj- arð fyrir án frekari kvaða ellegar hvort þeir meti þann þátt sem Gufu- nesverksmiðjan hefur átt í því að gera matvælaframleiðslu landsins lífrænni en annarra og stuðli að þróun verksmiðjunnar sem sjálf- bærs áburðargjafa, t.d. við hlið smárans og lúpínunnar? Hitt er svo annað mál að vitan- lega borga íslenskir bændur ekki hvaða verð sem er fyrir tilbúinn áburð. Það munu neytendur afurða þeirra ekki líða. En það kostar að vera til og það kostar að ganga þannig um umhverfið að sjálfbæris sé gætt. Það vita þeir líka vel sem undirrita þjóðasamninga er snerta umhverfisdagfar okkar. Væri ekki rétt að kanna þennan þátt áður en ríkið sleppir með öllu hendi af áburðarframleiðslu í Gufu- nesi? Jafnvel kann hann að gera málið fýsilegra en ella í höndum manna sem vel kunna til fram- leiðslu og markaða? BJARNIGUÐMUNDSSON, kennari við Hvanneyrarskóla. „Hvers vegna ekki stefnuljós?“ 'SÓenumtafuióið Handsmíðaðir 14kt gullhringar KYNNING STYKKISHÓLWIS APÓTEK Stykkishólmi og Grundarfirði Sendum í póstkröfu * s. 551-0888 og 568-8890. hERVUNIR Kringlunni - Austurstræti Mrikíð úrval af útijökkum *ur ull «3 kasmír. Stærðir 46-58. Góðir litir. Verð fráí6.980 til 18.980.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.