Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Nýtt félagslegt
íbúðakerfi
Á UNDANFÖRNUM tveimur
árum hefur félagslega íbúðakerfið
verið til mikillar umræðu hjá hús-
næðisnefnd Alþýðusambandsins.
Eftir ítarlega umræðu kom nefndin
niður á ákveðnar hugmyndir sem
hún var sammála um.
Þessar hugmyndir fólu
í sér breytingar á
nokkrum grundvallar-
atriðum sem lögð hef-
ur verið mikil áhersla
á að væru til staðar í
kerfinu. Það var engu
að síður mat nefndar-
innar að svo margt
hefði breyst frá því að
grunnurinn var lagður
að núverandi kerfí að
full ástæða væri til að
breyta því í meginatr-
iðum.
Þó svo að nefndin
hafí ekki lagt þessar
nýju hugmyndir sínar
fram fyrr en á Alþýðusambands-
þingi nú í vor þá höfðu þær spurst
og hafa víðar verið til umræðu.
Skiptar skoðanir urðu um tillögurn-
ar á þinginu og var málinu frestað
og samþykkt að vinna málið frekar
og skila tillögum fyrir næsta sam-
bandsstjórnarfund ASÍ.
Á sambandsstjórnarfundi nú í
nóvember voru tillögurnar frá því
í vor samþykktar lítt breyttar og
að auki var samþykkt að lögð yrði
veruleg áhersla á fjölgun félags-
legra leiguíbúða.
Forsendur úreltar
Á undanförnum árum hafa for-
sendur félagslega íbúðakerfísins
breyst verulega og eru orðnar allt
aðrar en áður. Verkamannabústað-
ir, sem nú eru nefndir félagslegar
eignaríbúðir, hafa á
undanförnum áratug-
um greitt úr húsnæðis-
vanda _ mikils fjölda
fólks. Áður var brýn-
asta verkefni Bygging-
arsjóðs verkamanna að
leysa mikla húsnæði-
seklu lágtekjufólks. Af
þeim sökum lagði sjóð-
urinn höfuðáherslu á
lán til nýbygginga. Nú
er húsnæðisekla ekki
eins mikil og áður.
Sums staðar standa
félagslegar íbúðir auð-
ar. Víða má rekja
ástæðu þess til ofmats
sveitarfélaganna á
þörf fyrir félagslegar íbúðir. Þar
af leiðir að nýbyggingar eru ekki
lengur brýnasta viðfangsefni bygg-
ingarsjóðsins heldur að leysa sér-
tækan vanda efnalítilla einstakl-
inga. Framboð á lánsfé hefur auk-
ist verulega og vaxtabætur eru
komnar ásamt húsaleigubótum.
Tilkoma vaxtabóta og húsleigu-
bóta eru ný atriði sem hafa bætt
verulega stöðu fjölda fjölskyldna í
almennum eignaríbúðum og á leigu-
markaði. Þessi breyting gerir það
að verkum að hjá mörgum fjölskyld-
um sem eiga rétt á félagslegri eign-
aríbúð er það svipaður ef ekki betri
kostur að eiga almenna eignaríbúð
og njóta vaxtabóta en að búa í fé-
lagslegri eignaribúð. Á landsbyggð-
inni þar sem markaðsverð er undir
framreiknuðum byggingarkostnaði
viðkomandi íbúða er hópurinn
stærri sem kæmi betur út í almenna
kerfínu. Samkvæmt athugun á veg-
um Alþýðusambandsins eru það
einkum tekjulágir einstæðir foreldr-
ar sem fá betri kjör í félagslegum
íbúðum en á almennum markaði.
Kaupskylda sveitarfélaga á fé-
lagslegum eignaríbúðum er víða ill-
Félagslegum leiguíbúð-
um þarf að fjölga, segir
Guðmundur Gylfi
Guðmundsson, í þágu
hinna eigna- og tekju-
minni.
framkvæmanleg. Með kaupskyld-
unni var á sínum tíma verið að
koma í veg fyrir viðskipti með íbúð-
ir á niðurgreiddum lánum auk þess
sem verið var að tryggja að góðar
íbúðir héldust inni í félags- lega
kerfínu. Þá er mjög umhent að
hafa fastar reiknireglur við mat á
söluverðmæti íbúðanna því efnis-
legar afskriftir og markaðsverð-
mæti eru mjög breytileg á milli
eigna. I þessu sambandi verður að
benda á að umdeilanlegt er hvert
réttmætt verðmat sé við eigenda-
skipti enda er ágreiningur um þau
mál ekki óalgengur.
Úthlutun félagslegra íbúða hefur
verið gagnrýnd út frá þeirri for-
Guðmundur Gylfi
Guðmundsson
Hja okkur e
Visa- og
Euroraö-
m
samnmgar
ávísun á
staögreiöslu
SímL 581-22
( Valhúsqöqn
Ármúla8-108Reykjavík
sendu að þar ráði forsjárhyggja.
Verið sé að skikka fólk í íbúðir í
öðrum hverfum en það vill búa og
í íbúðir sem henta því ekki af öðrum
ástæðum. Auk þess séu félagslegu
íbúðirnar í sérgreindum blokkum
eða á sérgreindum svæðum og þá
gjarnan í úthverfum þar sem aðrir
aðilar hafa ekki viljað byggja. Þessi
háttur leiðir af sér að umhverfi og
félagslegar aðstæður verði ekki
heppilegar. Með því að láta það í
hendur viðkomandi fjölskyldu að
finna sér sjálf þá íbúð sem hún
óskar á almennum markaði, megi
bæta þessa þætti.
Tillögur um breytingar
Hér á eftir er gerð grein fyrir
þeim helstu atriðum sem Alþýðu-
sambandið leggur áherslu á að verði
meginstoðir í nýju félagslegu eign-
aríbúðakerfi. Þtjú fyrstu atriðin eru
nær óbreytt frá því sem nú er að
því undanskildu að nú eru aðeins
heimildir til hækkunar vaxta en
ekki til lækkunar.
• Lánin verði með jöfnum af-
borgunum eða jafngreiðslu til allt
að 43 ára.
• Lánin verði að hámarki 90%
af kaupverði.
• Að vextir hækki og lækki eft-
ir tekjum en verði að öðru leyti
svipaðir og verið hefur.
• Lántaki velji sér íbúð sem
uppfyllir lágmarksskilyrði lánveit-
anda um gæði íbúðar.
• Ekki verði gert út um kaup
nema lánveitandi samþykki veðhæfí.
• Lántaki beri sömu ábyrgð og
skyldur og sá sem er á almennum
markaði.
• Eins og lántaki velur sér íbúð
velur hann sér kaupanda þegar
hann selur fasteignina enda er ekki
kaupskylda sveitarfélags.
• Lántaki flytji lán sitt á aðra
HVAÐ ER
Hornitex?
ÞÝSKAR ÞILPLÖTUR
GÆÐAVARA í STÍL
Fyrirliggjandi
fc>. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVlK
SÍMI553 8640 / 568 6100
viðurkennda íbúð eða greiði það upp
við sölu fasteignar.
Félagslegar leiguíbúðir
Á undanförnum árum koma sí-
fellt greinilegar í ljós þeir annmark-
ar sem eru á félagslega eignar-
íbúðakerfinu sem lausn fýrir þá
tekju- og eignaminnstu í samfélag-
inu. Félagslega íbúðakerfíð hefur
ekki þær lausnir sem duga. Fjölda
fólks tekst ekki að halda sínum
félagslegu eignaríbúðum þrátt fyrir
verulega hagstæð kjör og aðrir fá
ekki félagslegar eignaríbúðir keypt-
ar af íjárhagsástæðum. Þetta fólk
hefur í fá hús að venda.
Af þessum ástæðum leggur Al-
þýðusambandið til að félagslegum
leiguíbúðum verði fjölgað verulega
til ráðstöfunar fyrir þá eigna- og
tekjuminnstu. Þá verða allir lands-
menn að eiga kost á húsaleigubót-
um án tillits til þess hver eigi leigu-
íbúðina.
Með þessum hætti verður hægt
að aðstoða þá sem fá ekki inni í
félagslegum eignaríbúðum vegna
lágra tekna og lítilla eigna. Fyrir
þá er leiguíbúð á viðráðanlegum
kjörum eina lausnin.
Sá vandi sem er víða vegna ónot-
aðra félagslegra eignaríbúða ætti
að minnka með því að breyta við-
komandi íbúðum í félagslegar leigu-
íbúðir til þeirra sem þess þurfa.
Þeim íbúðum sem koma til inn-
lausnar verði breytt í félagslegar
leiguíbúðir.
Lokaorð
Að undanförnu hafa ofannefndar
hugmyndir sem eru ættaðar úr
húsnæðisnefnd Alþýðusambandsins
verið til umræðu hjá nefnd sem er
að skoða félagslega íbúðakerfið. Þá
hafa sveitarstjórnarmenn rætt
þessar tillögur allítarlega en þá út
frá öðrum forsendum en Alþýðu-
sambandið. Sveitarstjórnarmenn
hafa áhyggjur af skuldbindingum
sveitarfélaganna og kostnaði sem á
þau falla. Aftur á móti hefur um-
ræðan innan Alþýðusambandsins
einkum snúið að hagsmunum fólks-
ins sem býr í félagslegum eignar-
íbúðum. Hér er nokkur munur á,
en ef lausnin á vanda félagslegra
eignaríbúða er sameiginleg fyrir
íbúana/eigendurna, sveitarfélög,
Byggingarsjóð verkamanna og þar
með ríki, hljóta að vera góðar for-
sendur til sameiginlegra ákvarðana.
Höfundur er hagfræðingur ASI.
kuidajakkí
8.980-
\ vatnsheldur moð útondun
íít,. - : ■■
óbrjótanlegír
hitabrúsar 2.900
bakbokar frá 2.200-
Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 5112200
SEXTAN SANNI
Líf fyrir líf - Spilað um líf og dauða í Las Vegas - Dauði ráðherra
Taugastríð tveggja sterkra kvenna - Týndi mormóninn - Morð
illskeytti Bundy - Höfuðlausa eiginkonan - Það hefur orðið slj
- Forarpyttssamsærið - Dauðinn og megrunarlæknirinn - Rot
Meðal frásagnanna er frægasta sakamál í Bretlandi - mál auð
MichaelsTelling, frásögn af nöturlegum örlögum læknisins Herr
Tarnower, höfundar Scarsdale megrunarkúranna, þáttur um h
ísraelsmanna fyrir morðin í ólympíuþorpinu í Míinchen og um
sérstæðasta sakamál seinni tíma er ástsjúk kona rændi mormónapresti.
og nauðgaði honum.