Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 70
70 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ'
Meö gleði í huga fœri ég þakkir öllum þeim,
sem sýndu mér og fjölskyldu minni vinarhug
á áttrœðisafmœli mínu 23. nóvember sl.
Lifið heil!
Margeir Jónsson,
Heiðarbrún 9,
Keflavik.
Ókeypis lögfræðiaðstofc
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
í síma 551 1012.
Orator, féiag laganema.
r
Toppskórinn
Austurstræti 20 • Sími 552 2727
TopptHboð é
Tegund: 1453
Litur: Brúnn
Stærðir: 28-38 Verð:
Til kuldafóðraðir og leðurfóðraðir Verð áður: A-A95,
1.995,-
V
Ath: Barnaspariskór á verði frá 495,-
Upplestrarkvöld
Fimmtudagskvöld • 12. desember
á Súfistanum bókakafFinu í
bókabúð Máls og menningar
Þar les Gyrðir Elíasson úr bók sinni Indíánasumar,
ísak Harðarson les úr bók sinni Þú sem ert á himnum, þú ert hér!
Lesið verður úr ljóðabók Rögnvaldar Finnbogasonar
Að heilsa og kveðja,
Þorsteinn Gylfason kynnir ritgerðasafn sitt Að hugsa á íslenzku
og Árni Björnsson fjallar um bók sína
Merkisdagar á mannsævinni.
Upplesturinn hefst kl. 20.30
Aðgangur ókeypis og öllum heimill
Laugavegi 18 • 101 Reykjavík • Sími: 5524242
Síðumúla 7-9 • 108 Reykjavík • Sími: 568 8577
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Ágengir
sölumenn
SESSELJA Hrönn Guð-
mundsdóttir hringdi og
vildi vara við ágengum
sölumönnum. Hún segist
vita af því að sölufólk hafi
notfært sér lélega heilsu
eða jafnvel andlegt ástand
fólks og gabbað það til að
kaupa eitt og annað.
Einnig var hún uggandi
yfir nýjum EES-reglum
um umbúðamerkingar.
Þegar og ef þær verða
samþykktar má búast við
að þekkt bandarísk vöru-
merki muni hverfa af
markaðnum. Hún sagði
virkilega eftirsjá í ýmsum
vörutegundum sem hún er
vön að kaupa og vill að
ráðamenn hugsi þetta mál
til enda áður en þeir negla
niður þessar reglur.
Holtarar hittast
ÍBÚAR í Stórholti, Stang-
arholti, Meðalholti, Ein-
holti, Háteigsvegi, Skip-
holti og Nóatúni á árunum
1940 til 1960 ætla að hitt-
ast á vordögum og rifja
upp gamlar minningar.
Ætlunin er að hittast laug-
ardaginn 3. maí 1997 í
Gullhömrum, Hallveigar-
stíg 1.
Til að auðvelda undir-
búning er óskað eftir að
fólk hafi samband við eftir-
farandi aðila sem allra
fyrst: Stórholt: við Þórleif
(Tolla) í s. 552-9293 eða
Olöfu (Ollý) í s. 554-4588.
Stangarholt: við Sigrúnu
s. 553-0852 eða Þórð í s.
557-6960. Meðalholt: við
Þuru í s. 554-4947. Ein-
holt: við Guðrúnu ínu í s.
561-4712 eða Möggu í s.
551-3976 og Háteigsveg-
ur: við Rúnu í s. 555-2353
eða Sólrúnu í s. 551-2353.
Tapað/fundið
Gleraugu
töpuðust
LÍTIL barnagleraugu með
lit í gleijum og í bleiku
hulstri töpuðust sl. mánu-
dag, líklega á Mýrunum
eða í Ásbúð í Garðabæ.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 562-4582.
Jakki tapaðist
SVARTUR leðuijakki tap-
aðist í námunda við Bíó-
barinn sl. helgi. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
555-4585.
Kvenkápa og karl-
mannsfrakki víxl-
uðust í sepember
DÖKKBLÁ fremur þykk
terelyn/ullarkvenkápa
tapaðist í húsi Stangveiði-
félags Hafnar§arðar eftir
erfidrykkju í september.
Eftir var skilinn herra-
frakki sem er með merkinu
„Terra fyrir herra“. Ef ein-
hver kannast við að hafa
tekið kápuna í misgripum
fyrir frakkann er hann vin-
samlega beðinn að hringja
í síma 554-1023 eða
554-2515.
Gleraugu töpuðust
GLERAUGU í gráu
smelltu hulstri töpuðust
fyrir u.þ.b. tveimur vikum,
líklega á leiðinni frá Háa-
leitisbraut að Austurveri.
Hafi einhver fundið gler-
augun er hann beðinn að
hringja í síma 553-6999.
Hanski tapaðist
DÖKKBRÚNN kven-
hanski með hvítu fóðri á
hægri hönd tapaðist fyrir
u.þ.b. tveim mánuðum, lík-
lega í miðbæ Reykjavíkur.
Finnandi er beðinn að
hringja í síma 552-4116.
Hringur fannst
GULLHRINGUR fannst á
Óðinsgötu sl. sunnudag og
má eigandinn vitja hans í
síma 552-4116.
Kettlingur
HÁLFSTÁLPUÐ u.þ.b.
eins árs marglit læða fæst
gefins á gott heimili. Hún
er geðgóð og þrifin og
henni getur fylgt karfa,
sandkassi og matardallar.
Upplýsingar í síma
551-4650. Ásta.
Farsi
n-6
01903 Farcus Cwtoont/tMnbuled by Univarul Presa SyndKau C^A/S6t^-gS/CðOC.TK/»A-T
j, l/i& h&fum nttíren rxfg afkerf-ishölluivl
fepbu ■fram beiéríL um f/eirtK fojk.
■tíL C*& kort/ia, vandamáliA."
BRIDS
llmsjón (iuómundiir l’áll
Arnarson
ÞETTA var í sveitakeppni.
Þtjú grönd voru spiluð á
báðum borðum, en ekki í
sömu hendi.
Norður hættu. gefur; NS á Norður ♦ ÁD V Á106 ♦ DG1082 ♦ ÁD3
Vestur Austur
♦ 82 ♦ KG953
T D9872 llllll T 54
♦ Á54 111111 ♦ K6
* 1087 ♦ G542 Suður ♦ 10764 V KG3 ♦ 973 4 K96
Þar sem norður spilaði
samninginn kom út spaði
upp í gaffalinn. Sagnhafi
fór inn í borð á lauf og spil-
aði tígulníu úr blindum. En
vestur var vel vakandi;
hann stakk upp ás og spil-
aði spaða. Þar með var litur
varnarinnar brotinn og aust-
ur átti enn tígulkónginn sem
innkomu. Einn niður.
A hinu borðinu gengu
sagnir þannig:
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 1 spaði Pass
Pass Dobl Pass 1 grand
Pass 2 grönd Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Vestur kom út með spaða-
áttu, drottning úr blindum,
og . . . austur drap á kóng.
Nema hvað!? Eftir þessa
byijun er engin vörn til.
Austur spilaði meiri spaða,
en vestur gat nú ekki nýtt
innkomu sína á tígul til að
fría spaðann, svo sagnhafi
átti auðvelt verk fyrir hönd-
um. Spaðatían flórða var
önnur fyrirstaða í litnum og
spilið vannst með yfirslag.
Austur missti af fágætu
tækifæri - að gefa slaginn
á spaðadrottningu! En það
verður að segjast eins og er,
að vömin var auðveldari á
hinu borðinu.
Víkveiji skrifar...
ALLTAF finnst Víkverja jafn
hátíðlegt að fylgjast með
þegar ljósin eru kveikt á Oslóar-
jólatrénu á Austurvelli. Síðasti
sunnudagur var þar engin undan-
tekning og mjöllin sem féll þessa
stund gerði daginn enn jólalegri.
Söngur dómkórsins kemur fólki í
sérstakt skap og fyrir unga fólkið
eru Askasleikir og félagar hans
ómissandi.
xxx
EIM félagasamtökum og hóp-
um sem gefa út jólakort
starfsemi sinni til framdráttar
virðist stöðugt fjölga. Framboðið
virðist vera orðið meira en eftir-
spurnin og undir þá skoðun tóku
kuldalegir sölumenn af yngri kyn-
slóðinni sem hringdu dyrabjöllunni
hjá skrifara um síðustu helgi.
Góðar hugmyndir til fjáröflunar
liggja hins vegar ekki á lausu og
ef einn kemur með góða hugmynd
eru aðrir fljótlega búnir að fá hana
lánaða. Útgáfa almanaka er ein
tegund fjáröflunar sem færst hef-
ur í vöxt á síðustu árum eins og
kom fram í tilkynningu frá félagi
sem gefið hefur út almanak í all-
mörg ár. Þar sagði að miklu máli
skipti að vel tækist til með söluna
„í sífellt harðnandi samkeppni á
almanaksmarkaðnum."
Unglingastarf í íþrótta- og
æskulýðsfélögum hefur í mörg ár
verið rekið að hluta með sölu á
alls konar vöru. Nefna má rækjur
og annan fisk, plastpoka, jóla-
pappír og -merki, eldhúsrúllur,
salernispappír og penna. Auðvitað
eru ömmur og afar vinsælustu
fórnarlömbin og eiga eflaust
margra ára birgðir af þessu. Eitt
árið fékk unglingurinn á heimili
skrifara tug jólarósa til að selja
og annað árið þurfti að vakna eld-
snemma á sunnudagsmorgnum til
að keyra út rúnnstykki til við-
skiptavina, sem yfirleitt voru
frændur og frænkur og þurftu þau
þá sjálf að vakna miklu fyrr en
ella til að taka við morgunmatn-
um.
En það er með þetta eins og
annað; þeir fiska sem róa. Fram-
undan er flugeldasala fyrir ára-
mótin og þar er baráttan kannski
hvað hörðust. Ótrúlegustu aðilar
eru farnir að selja flugelda og
annað sprengiefni og greinilega
er þar einhver ágóðavon miðað við
hversu margir sækja á þessi mið.
XXX
VÍGSLA Grensáskirkju á
sunnudaginn leiddi hugann
að því frumbýlingsstarfi, sem séra
Felix Ólafsson vann í Grensássókn
á árunum upp úr 1960. Þá var
Breiðagerðisskóli, sem reyndar er
í Bústaðasókn, miðstöð starfsem-
innar og þar var yfirleitt messað
á sunnudögum. Fermingarbörn
voru undirbúin þar, en síðan varð
að fá lánaða kirkju fyrir sjálfa
ferminguna.
Þetta tímabil hefur örugglega
verið erfitt fyrir þá sem stóðu í
forystu fyrir söfnuðinn á þessum
árum. Gleði þeirra hefur að sama
skapi verið fölskvalaus er hið
glæsilega mannvirki var vígt nú
annan sunnudag í aðventu.