Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 13 FRÉTTIR Stefnumótim um notkun upplýsinga- tækni í heilbrigðisþjónustu Gæði þjónustu aukin með hjálp upplýsingatækni Á VEGUM heilbrigðisráðuneytisins er nú unnið að stefnumótun um samræmingu og notkun upplýs- ingatækni í heilbrigðisþjónustunni. Gert er ráð fyrir að stefnumótun- 'inni verði lokið snemma á næsta ári. Þessi vinna er í beinu fram- haldi af stefnumótun ríkisstjórnar- innar um upplýsingasamfélagið, sem birt var fyrr á þessu hausti, og er nánari útfærsla á henni af hálfu heilbrigðisþjónustunnar. Guðbjörg Sigurðardóttir, for- maður verkefnisstjórnar í stefnu- mótun í upplýsingamálum heil- brigðiskerfisins, segir markmiðið vera að nýta upplýsingatæknina til þess að auka gæði heilbrigðisþjón- ustunnar. Hún segir það flókið og yfirgripsmikið verkefni, en jafn- framt bráðnauðsynlegt. „Við eigum í rauninni engra annarra kosta völ ef við ætlum ekki að dragast aftur úr í heilbrigðismálum.“ Starfshópur heilbrigðisþjón- ustunnar hefur á undanförnum dög- um átt fundi með tveimur erlendum sérfræðingum á sviði upplýsinga- tækni. Þeir eru Peter Waegemann, forstjóri Medical Records Institute í Bandaríkjunum, sem er þekktur fyrirlesari og lykilmaður í alþjóðleg- um og bandarískum staðlastofnun- um, og Ilias Iakovidis, vísindalegur ráðgjafi á sviði upplýsingatækni hjá Evrópusambandinu. Guðbjörg segir að starfshópurinn hafi haft mikið gagn af ráðgjöf þeirra. Fyrsti vísir að fjarlækningum Peter Waegemann ræddi meðal annars um aðgang almennings að sjúkraskrám og öðrum upplýsing- um um heilbrigðismál og hvernig geyma ætti slíkar upplýsingar. Einnig var mikið rætt um fjarlækn- ingar. Nú þegar má sjá fyrsta vís- inn að fjarlækningum hér á landi, sem felst í því að senda röntgen- myndir milli spítala til greiningar, t.d. frá sjúkrahúsum á landsbyggð- inni til sérfræðinga á stóru sjúkra- húsunum í Reykjavík, í stað þess að senda sjúklinginn. Þetta á að þróa áfram þannig að einnig verði hægt að senda upplýsingar á öðru formi, t.d. með sjónvarpsmynda- tækni. „Þetta gerir heilbrigðisþjón- ustunni kleift að notfæra sér bestu þekkingu hveiju sinni, sama hvar maður er staddur. Þó að sjúklingur- inn liggi á litlu sjúkrahúsi í litlum og afskekktum bæ á hann að geta notið sérþekkingar færustu sér- fræðinga við bestu háskóla og sjúkrahús í heiminum," segir Ilias Iakovidis. Jólakveðjur til Islendinga sem búsettir eru á Suður-Skáni ÚTVARP ÍMON verður með kvöid- útsendingar á Þorláksmessukvöld frá kl. 10-3 (frá kl. 21-2 eftir mið- nætti að íslenskum tíma). Þar verða lesnar jólakveðjur til þeirra sem búsettur eru í Málmey, Lundi, Landskróna, Trelleborg og annarra er búsettir eru á Suður- Skáni. Útvarpið vill gefa íslendingum kost á að senda ættingjum og vinum sem búsettir eru á umræddu svæði jólakveðjur sínar í gegnum útvarpið. Hægt er að senda kveðjurnar í bréfi, í bréfsíma eða tölvupósti. Þá eru heimilisföngin eftirfarandi: Útvarp ÍMON. Box 283. 201-201 Malmö, Svíþjóð. Bréfsími: +46-40-90-93 32 77. Tölvupóstur: georg.frankl- ins.@malmo.mail.telia.com Kveðjurnar þurfa að berst fyrir 21. desember. Kveðjur sem berast of seint, verða lesnar í útvarpinu laugardaginn 28. desember. Þeir sem vilja lesa kveðjur sínar sjálfir hringi í síma: 00-46-40-97-00- 98. Sunnudaginn 22. desember frá kl. 12-18 að íslenskum tíma. Þá verða kveðjurnar teknar upp á segul- band. GUÐMUNDUR Júlíusson og Bragi Björnsson afhentu Ólafi Tóm- assyni póst- og símamálastjóra og Guðmundi Björnssyni aðstoð- arpóst- og símamálastjóra mótmæli íbúa í Fella- og Hólahverfi. Lokun pósthúss mótmælt Borgin semur við leikskólann Mýri Rúmar 12 milljónir í rekstrarstyrk Borgarráð um líf- eyrisfrumvarpið Sveitarfé- lögin þurfa meiri tíma BORGARRÁÐ telur afar mikilvægt að sveitarfélögunum gefist meiri tími til að móta afstöðu til frumvarps rík- isstjórnarinnar um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins. Verði frum- varpið að lögum þurfi mörg sveitarfé- lög að greiða háar upphæðir í Lífeyris- sjóð starfsmanna ríkisins á næsta ári og fæst þeirra hafi reiknað með því í fjárhagsáætlunum fyrir næsta ár. í umsögn borgarráðs til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis er gagnrýnt að ekki skyldi vera haft samráð við Samband íslenskra sveit- arfélaga um þetta mál fyrr en sam- komulag um breytingar á lífeyrisrétt- indum lá fyrir. Borgarráð telur mjög gagnrýnis- vert að frumvarpið skuli gera ráð fyrir að ábyrgð vinnuveitanda á i greiðslu lífeyris verði viðhaldið. Eðli- . legra hafi verið að stjórn sjóðsins væri gerð ábyrg fyrir ávöxtun á sama hátt og í almennu sjóðunum. Borgar- ráð fagnar hins vegar breytingu á svokallaðri eftirmannsreglu, breyt- ingum á endurgreiðslu launagreið- anda vegna lífeyrishækkana og af- námi 32 ára reglunnar og 95 ára reglunnar. PÓST- og símamálastjóri veitti á þriðjudag viðtöku mótmælum íbúa í Efra-Breiðholti við áform- um um að loka póstútibúinu að Lóuhólum 2-6, en það þjónar póst- númeravæði 111. Undirskriftirn- ar eru á milli 2.000 og 2.500 tals- ins. Bragi Björnsson verslunarmað- ur og talsmaður þeirra sem and- vígir eru lokun póstútibúsins, seg- ir að í hverfinu búi á tólfta þús- und manns og sé ríkjandi óánægja með fyrirætlanir P&S. Frekar að minnka umsvif „Okkur finnst súrt í broti að hafa svo fjölmennt hverfi og þurfa samt að senda allan þennan fjölda niður í Mjódd sem á eftir- leiðis að þjóna honum. Bæði teng- ist, það því að hverfið er orðið rótgróið og því fleiri íbúar að eld- ast og eiga erfiðara um vik að fara alla þessa leið til að fá póst- þjónustu, og svo því að samgöng- um almenningsvagna hefur frek- ar hrakað en hitt. Við teljum heppilegra að hafa pósthúsið opið, en til að ná fram sparnaði sé hægt að minnka umsvif þess,“ segir hann. Við afhendingu mótmælanna gat póst- og símamálastjóri þess að fyrirhugaðar breytingar, sem eiga að ganga í gildi 1. febrúar, samhliða því að stofnunin verður að hlutafélagi um áramót, séu hugsaðar til að ráða bót á tap- rekstri pósthúsa með því að leggja niður útibú og sameina önnur. „Við vonum að þessi mótmæli íbúa leiði til endurskoðunar á þessari ákvörðun og helst að hún verði dregin til baka, en að minnsta kosti verði útibúið haft opið þótt einingin verði minni,“ segir Bragi. 700 milljóna tap á póstþjónustunni Hrefna Ingólfsdóttir upplýs- ingafulltrúi P&S segir ákvörðun um lokun pósthússins ekki verða haggað. „Á seinasta ári var tapið á póst- þjónustunni nálægt 700 milljónum króna og frammi fyrir slíku tapi verður að leita allra leiða til að hagræða í rekstri. Með því að loka pósthúsinu í Lóuhólum sparast um 9-10 milljónir króna, auk þess sem við teljum þjónustuna ekki minnka til muna, enda sami út- burður," segir hún. Hún minnir einnig á að hægt sé að greiða reikninga í bankan- um í Lóuhólum og hægt verði að kaupa frímerki í bókabúðum, bensínstöðum og víðar. BORGARRÁÐ hefur samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur samning milli Dagvistar barna og Foreldrafélags leikskól- ans Mýri við Skerplugötu um rekstur fyrir árið 1997. Gert er ráð fyrir að Dagvist barna greiði leikskólanum rúma 12,1 milljón í rekstrarstyrki á árinu. Samningurinn gerir ráð fyrir að Dagvist barna hafi með hönd- um innritun barna á leikskólann frá 1. janúar 1997 að telja og er gert ráð fyrir 40 börnum samtím- is í skólanum. Sömu reglur gilda gagnvart þjónustu og eru almennt í leikskólum borgarinnar. Samn- ingurinn miðar við að foreldrafé- lagið fái lágmarkstekjur vegna leikskólagjalda sem Dagvist barna innheimtir eða 6,5 millj. á ári. Gert er ráð fyrir að Dagvist barna greiði rúma 12,1 millj. í VIÐ FYRRI umræðu um fjárhags- áætlun Reykjavíkurborgar kom fram að forsvarsmenn sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu hafa lagt fram tillögu um að árleg fjár- veiting til nýbygginga þjóðvega verði um 1,3 milljarðar. Sagði borgarstjóri að gert væri ráð fyrir að á næsta ári yrði haldið áfram framkvæmdum við Vesturlands- veg, byggð brú yfir Sæbraut og gatan breikkuð inn að Miklubraut. Aætlaður kostnaður er um 413 milljónir. Borgarstjóri sagði að sú akbraut, Miklubrautar sem liggur í austur rekstrarstyrk til skólans á árinu og fyrir árið 1998 verður gerð ný fjárhagsáætlun sem tekur til launa- breytinga, samsetningar á aldri barna og almennra verðlagsbreyt- inga. Ef á samningstímanum verða veruiegar breytingar á launum starfsfólks verður rekstaráætlunin endurskoðuð í samræmi við það. Viðhald lóðar verður með sama hætti og hjá öðrum leikskólum borgarinnar. Það er í höndum hverfamiðstöðvar gatnamálastjóra sem sér um tilfallandi viðhald en leigusali annast méiriháttar við- hald eignarinnar á eigin kostnað. Gert er ráð fyrir að Dagvist barna veiti leikskólanum aðgang að þjónustu og fagsviði í þeim til- gangi að viðhalda gæðum skólans og hefur jafnframt með höndum faglegt eftirlit samkvæmt reglum Reykj avíkurborgar. yrði breikkuð um eina akrein frá Kringlumýrarbraut að Grensás- vegi. Áætlaður kostnaður er 23 millj. Ennfremur að lokið yrði við göngubrú við Rauðagerði og að fyrir lánsfé yrði byggð göngubrú við Sóltún. í fjárhagsáætluninni er lagt til að unnið verði við undirbúning Sundabrautar fyrir 40 millj. en hugsanlega kæmi til álita að borg- arsjóður lánaði hluta kostnaðar vegna undirbúningsins og að unn- ið yrði af fullum krafti á næsta ári. Þá er einnig gert ráð fyrir breikkun Ánanausta. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Brú yfir Sæbraut og gatan breikkuð að Miklubraut
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.