Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Viðræður strandríkjanna og ESB um síldveiðar í Ósló Síðustu forvöð að ná samningum STRANDRÍKIN fjögur, sem hags- muna eiga að gæta varðandi nýt- ingu norsk-íslenzka síldarstofnsins, ásamt Evrópusambandinu, munu leitast við að ná samkomulagi um skiptingu síldarkvótans á næsta ári á fundi, sem hefst í Ósló í dag. Að mati viðmælenda Morgunblaðsins eru nú síðustu forvöð að ná samn- ingum áður en síldarvertíðin hefst í Noregi og Rússlandi 2. janúar. Langt var á milli strandríkjanna og Evrópusambandsins á síðasta samningafundi í London í nóvem- ber. Þá krafðist ESB yfir 200.000 tonna af heildarkvóta, sem gæti orð- ið á bilinu 1,3 til 1,5 milljónir tonna. Samstaða var um það meðal strandríkjanna fjögurra, íslands, Noregs, Rússlands og Færeyja, að reyna að framlengja samkomulag ríkjanna frá í maí og reyna auk þess að fá ESB til að virða það. Samkomulagið kveður á um stjórn- un veiðanna, vísindasamstarf og fleira til lengri tíma litið, en sjálf- stæða ákvörðun um kvótaskiptingu verður að taka ár hvert. Einhliða yfirlýsingar um kvóta ef ekki næst samkomulag Ekki eru allir, bjartsýnir á að strandríkin nái samkomulagi um kvótaskiptingu á fundinum í Ósló. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru í Noregi taldar tak- markaðar líkur á að saman gangi í viðræðunum. Rússar og Norð- menn hafa skýrt frá því að náist ekki samkomulag muni ríkin tvö ákveða sér einhliða síldarkvóta. Fari svo er ekki ólíklegt, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, að sagan frá í fyrra endurtaki sig og ísland og Færeyjar lýsi jafn- framt yfir einhliða kvóta í samein- ingu. Slíkt þarf þó ekki að útiloka að samkomulag geti náðst síðar, eins og gerðist í síðustu samninga- lotu. Jóhann Siguijónsson, aðalsamn- ingamaður Islands í fiskveiðimál- um, segir að Norðmenn hafi í allt haust lagt mikla áherzlu á að sam- komulag náist i þessum mánuði vegna þess að nýtt kvótaúthlutun- artímabil hefjist í byrjun janúar. Þetta hafi þeir líka sagt í fyrra. „Við komum þess vegna til við- ræðna um daginn og komum aftur núna af því að við teljum sjálfsagt að mæta þessum óskum Norð- manna," segir Jóhann. Morgunblaðið/Golli GUÐNÝ Guðlaugsdóttir afhendir Birni Bjarnasyni undirskrifta- lista í gær. Fyrir aftan standa Arnheiður Ösp Hjálmarsdóttir, Skúli Freyr Brynjólfsson, Trausti Hafsteinsson og Hálfdán Þor- steinsson stjórnarmenn í Nemendafélagi KHÍ. Vilja lengra kennaranám FULLTRÚAR nemenda Kennara- háskóla íslands afhentu Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra í gær undirskriftalista þar sem farið er fram á að ekki verði sleg- ið lengur á frest að lengja kenn- aranám úr 3 árum í 4. Guðný Guðlaugsdóttir formað- ur Nemendafélags KHI sagði að undirskriftasöfnunin hefði staðið yfir frá því í september og stór hópur nemenda ásamt rektor og öðrum stjómendum skólans skrif- að undir. Framkvæmd lagaákvæðis um að Jengja kennaranám hefur verið frestað ítrekað á síðustu áram en ætti að óbreyttu að koma til fram- kvæmda 1998. Guðný sagði að það væri undir haustþinginu nú komið hvort af þessu yrði. Fram kom hjá Birni Bjarnasyni á fundi um menntamál á þriðju- dag að hann teldi að huga þurfi að lengingu kennaranáms, enda sé það styttra hér en í nágranna- löndunum. Skattstjórar fá reglulega upp- lýsingar xun kvótaviðskipti kynna allt til Fiskistofu, sem er beintengd við vigtunarkerfið úti um allt land, þannig að ef einhver bátur fer að landa einhverju sem hann hefur ekki kvóta fyrir þá er hann strax kominn á svartan lista. Menn verða að tilkynna kvótaviðskiptin, þannig að við teljum þessar upplýsingar vera öruggari en margt annað. Við höfum fylgst með þessu og mun- um halda áfram að gera það,“ sagði Ragnar. SKATTAYFIRVÖLD hafa safnað upplýsingum um kvótaviðskipti allt frá árinu 1992 og hafa þær upplýs- ingar reglulega verið sendar skatt- stjórum um land allt. Að sögn Ragnars Gunnarssonar, forstöðu- manns eftirlitsskrifstofu ríkisskatt- stjóra, eiga öll kvótaviðskipti milli aðila að vera færð á lögleg bók- haldsfylgiskjöl, en hann segir að það hafi hins vegar komið fyrir að kvittanir og nótur fyrir viðskiptun- um hafi vantað og hafa þá verið gerðar athugasemdir við það af hálfu viðkomandi skattstjóra. „Ég hef heyrt það hjá skattstjór- um að það hafa komið upp dæmi um að það hafi einungis verið bankainnlegg en ekki reikningur fyrir kvótaviðskiptum, en það kem- ur svo sem fyrir í öðrum viðskiptum líka og ekkert óvenjulegt að við rekumst á það í bókhaldi að það sé ekki reikningur fyrir öllu. Þá eru að sjálfsögðu gerðar athugasemdir við það,“ sagði Ragnar. Tilkynna ber allar tilfærslur á kvóta til Fiskistofu þar sem þær eru skráðar og þangað sækir emb- ætti ríkisskattstjóra upplýsingar um kvótaviðskiptin. Allar kvótatilfærslur skráðar lyá Fiskistofu „Eftir þeirri kortlagningu sem við gerðum á þessu á sínum tíma og höfum haldið áfram liggur það fyrir að það er nokkuð gott kerfi almennt í þessu. Það þarf að til- MEÐ Morgunblaðinu í dag fylgir fjögurra síðna auglýs- ingablað frá IKEA. Sjúkrahús Reykjavíkur Öryggis- hnappar á slysadeild VERIÐ er að koma fyrir öryggis- hnöppum fyrir starfsmenn á slysa- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að sögn Pálínu Ásgeirsdóttur, deildar- stjóra á slysadeild, hefur verið rætt um það í nokkur ár að koma upp slíku öryggiskerfí, en hafist var handa í haust og verður uppsetn- ingu lokið innan skamms. „Þessa hnappa verður hægt að nota bæði til dæmis þegar hjartastopp eða annað neyðartilfelii kemur upp hjá sjúklingi og i ofbeldistilfellum," seg- ir Pálína. Hnappar verða í flestum herbergjum og fleiri en einn í hveiju. Hringingin heyrist á allri deildinni en vegvísar munu sýna hvaðan hún kemur. Angantýr Sig- urðsson, tæknifræðingur á spítalan- um, segir að að kostnaður af örygg- ishnöppunum sé um 3-400 þúsund krónur. Nú er einnig í undirbúningi að- gangskortakerfi sem líklega verður tekið í notkun á næsta ári. Það verð- ur notað í öllum spítalanum og mun að sögn Angantýs kosta nokkra tugi milljóna. Með kerfínu verður hægt að takmarka aðgang að ákveðnum herbergjum. „Eins og er getur fólk vaðið inn um allan spítalann. Það er ýmislegt héma sem ókunnugir mega ekki komast í, til dæmis lyfja- skápar. Þjófnaðir hafa komið upP öðru hveiju,“ segir Angantýr. Morgunblaðið/RAX Féll útbyrðis og" lést Ljósleiðari frá Múla að Miðbæjarstöð SKIPVERJI á Þorsteini EA frá Akureyri fórst eftir að hann féll útbyrðis af skipinu um klukkan 7.30 í gærmorgun. Þorsteinn EA var á veiðum um 65 mflur austsuðaustur af Reyðar- fírði þegar slysið varð. Um 7-8 vindstig voru á þessum slóðum um þetta leyti. Landhelgisgæslunni var gert viðvart um klukkan 7.30 og var áhöfn þyrlu hennar kölluð út. Um það bil sem þyrlan var til- búin til flugtaks, rétt fyrir klukkan 8, barst tilkynning um að maður- inn hefði fundist og örskömmu síðar að hann væri látinn. Skipið sigldi með hinn látna til Eskifjarðar, þar sem lögreglan rannsakaði tildrög óhappsins í gærkvöldi. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. STARFSMENN Pósts og síma unnu við að leggja leiðara með 32 yósleiðurum í, sex km leið frá útstöð við Engihlíð að Miðbæjar- stöð í gær. Að sögn Gunnars Júl- íussonar yfirverkstjóra, var Ijós- leiðarinn lagður í tveimur áföng- um frá Múlastöð að Engihlíð og þaðan að Miðbæjarstöð. „Þetta er gert á versta tíma ársins," sagði hann. „Það er komið frost og við erum að draga leiðarann í rör og í rörunum er frosið vatn sem tafði okkur.“ Grafnar voru milli tíu og fimmtán holur og þurfti fjóra menn við hveija holu til að taka á móti og fylgjast með þegar strengurinn var dreginn í gegn. Heimir Steinsson skipaður Þingvalla- prestur KIRKJUMÁLARÁÐHERRA, Þorsteinn Pálsson, skipaði í gærdag séra Heimi Steinsson útvarpsstjóra í stöðu sóknar- prests á Þingvöllum. Áður hafði Þingvallanefnd sam- þykkt að ráða séra Heimi í embætti staðarhaldara á Þing- völlum. Séra Heimir Steinsson mun hefja störf 15. desember næst- komandi. Hann hefur verið útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins undanfarin ár en áður, á árun- um 1982 til 1991, gegndi hann starfí sóknarprests og þjóð- garðsvarðar á Þingvöllum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.