Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNIIMGAR FIMMTUDAGUR 12. DESEMBBR 1996 45 + Helga Ágústs- dóttir fæddist á Osi á Borgarfirði eystra 15. maí 1912. Hún lést á Akureyri 28. nóvember síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Akureyrarkirkju 6. desember. Helga í Háteigi er látin. Þegar andlátsfregn Helgu frænku barst leituðu á hugann þær góðu minningar sem hún skilur eftir hjá okkur systkin- unum frá Litla Garði. Frá fyrstu tíð og allt fram á þennan dag hef- ur verið mikil og góð samkennd með fjölskyldum okkar, skyldleik- inn og góð vinátta batt okkur sam- an þegar í æsku og hefur það hald- ist æ síðan. Þegar Helga og Ágúst hófu bú- skap á Þórshöfn á Langanesi voru foreldrar okkar, Karl Ásgrímur bróðir Helgu og Þórhalla þar einn- ig en bæði voru þau fædd í Borgar- firði eystri. Pabbi og Gústi unnu hjá Kaupfélaginu og þar fæddumst við flest systkinin og synir Helgu og Gústa þeir Baldur, Vilhelm Ágúst, Birgir og Skúli, en Eyjólfur fæddist á Akureyri. Á Þórshafnar- árunum var vinna oft stopul og héldu fjölskyldur okkar úti nokkr- um kindum og kúm til heimilis- halds. Haustið 1946 taka báðar fjölskyldurnar sig upp og flytja til Ákureyrar. Farið var á þremur pallbílum með „boddíi“ og öll bú- slóðin tekin með. Karl og Þórhalla settust að í Litla Garði og Helga og Ágúst búa fyrst að Vökuvöllum en síðar byggja þau upp Háteig. Það þótti tryggara að hafa jarð- næði og geta verið með smá bú- +Þórey Jóninna Stefánsdótt- ir fæddist á Brandsstöðum í Reykhólasveit 25. nóvember 1916. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 3. desember síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá kapellu Fossvogskirkju 11. desember. Þórey ólst upp á Brandsstöðum til 12 ára aldurs en flutti þá með móðurfjölskyldu sinni að Múlakoti í sömu sveit og síðar að Hallsteins- stöðum í Gufudalssveit. í æsku vann Þórey þau störf sem til féllu í sveitum á þessum árum, við heyskap, skepnuhirðingu og sjó- sókn. Þetta var tími gerjandi breyt- inga til sjávar og sveita hér á landi. Hún kynntist hinni hefðbundnu arf- leifð fornra samfélagashátta og þar með þeirri mál- og siðmenningu sem einkenndi þetta samfélag. Þórey naut þeirrar gæfu að alast upp með móður sinni og móðurforeldrum en amma hennar Guðrún Snæbjöms- dóttir var kunn sagnakona og kunni mikið af fornum stemmum og ljóð- um og kvæðum. Jón Leifs leitaði meðal annars til hennar um fomar stemmur og viðlög. Snemma kom í Ijós nærfærni Þóreyjar við skepnur, hún skildi og mat nærveru húsdýra sem ýmsir ágætir höfundar telja hveijum manni til sálrænnar nauðsynjar. Þegar hún eltist stundaði hún tamningar og hafði mjög mikinn áhuga á sauðfjár- og hrossarækt. Geitfé var einnig henanr eftirlæti, hún kunni vel að meta þær skemmtilega gáfuðu skepnur. Við- horf Þóreyjar til búsmalans og nán- ari húsdýra, hunda og katta, lýsti um leið hlýhug hennar til allrar lif- andi skepnu. Þessi hlýhugur og stofn til að auka tekj- urnar og renna fleiri stoðum undir fram- færslu fjölskyldunnar. Háteigur var reistur af miklum myndar- skap. Það var auðséð að þar voru samhent hjón sem vildu veg sinn og sinna sem mestan. Helga var glæsileg kona eins og hún átti kyn til. Hún unni fögr- um hlutum sem valdir voru af smekkvísi og bar heimili og allt um- hverfi þeirra ætíð merki þess. Þegar íjölskyldurnar hittust á jólum og um áramótin var oft glatt á hjalla, sungið og dansað í kring- um jólatréð eða farið í leiki. í minn- ingunni voru þetta ógleymanlegar sfundir. Þegar svo mikill samgang- ur var á milli heimila eins og hér, hafa eflaust komið upp einhveijar erjur þegar börnin voru mörg, full af orku og með hugmyndaflugið í lagi. En einhvern veginn virðist það gleymt og hið skemmtilega og góða situr eftir. Það var gott að eiga heima í inn- bænum, eða öllu heldur innan við innbæinn, á þessum árum. Vissu- lega gat verið langt í skólann svona við og við þegar annað sótti á hug- ann, en það var lítilfjörlegt miðað við alla þá möguleika sem skógurinn í Gróðrastöðinni, svellið á ánni og skíðabrekkurnar við bæjardymar gáfu okkur krökkunum. Við áttum góða æsku og í minn- ingunni voru þetta dýrlegir dagar. Þegar Helga og Ágúst fluttu frá Háteigi að Ránargötu 10 gaf það auga leið að dagleg samskipti rofn- uðu nokkuð og mikið vorkenndum við strákunum að flytja alla leið lengst niður á eyri. velvilji til manna og dýra var auðr- akinn til móður hennar, sem verður öllum minnisstæð, sem henni kynntust og má í því sambandi vitna til eftirmæla um móður henn- ar Sigríði Hjálmarsdóttur, sem eru jafneftirminnileg og Sigríður, skrif- uð af Játvarði Jökli Júlíussyni ná- granna fjölskyldu Þóreyjar — birt í Þjóðviljanum 19. október 1979. Þórey giftist ung Þórði Andrés- syni og bjuggu þau á Hjöllum í Þorskafirði til 1947. Þau eignuðust þijár dætur. Árið 1950 gerðist Þórey ráðs- kona á Sámsstöðum í Fljótshlíð hjá Klemensi Kristjánssyni tilrauna- stjóra. Þau giftust síðar og eignuð- ust einn son. Sámsstaðir voru um þetta leyti eitt merkasta tilraunabú Að Helgu stóðu sterkir stofnar. Faðir hennar var Vilhelm Ágúst Ásgrímsson bóndi og hreppsnefnd- armaður á Ásgrímsstöðum, sonur Ásgríms Guðmundssonar bónda á Grund í Borgarfirði eystri, afkom- anda Hafnarbræðra, Guðmundar í Klausturhólum austur og Jóns Ein- arssonar forföður Reykjahlíðarætt- ar yngri og konu hans Vilhelmínu Þórðardóttur frá Sævarenda í Loð- mundarfirði, dóttur Þórðar Jóns- sonar af Pamfílsætt og Maríu Gutt- ormsdóttur af Skúlaætt. Móðir Helgu var Guðbjörg Alex- andersdóttir, húsfreyja á Ásgríms- stöðum, en fædd á Minna Mosfelli í Grímsnesi, dóttir Alexanders Arn- órssonar frá Minna Mosfelli afkom- anda Laga-Nóra og Jóns Sturlu- sonar hreppsstjóra á Apavatni í Grímsnesi. Móðir hennar var Helga Tómasdóttir frá Seli í Grímsnesi afkomanda Bergsveins Þorkelsson- ar í Gröf og Halldórs og Ingunnar á Galtalæk. Guðbjörg og Ágúst, foreldrar Helgu, kynntust í Kennaraskólan- um veturinn 1908-9 er þau voru þar við nám. Þá var Guðbjörg flutt til Reykjavíkur, nánar tiltekið á Framnesveginn. Helga Ágústsdóttir bar nafn ömmu sinnar og var ætíð kært með þeim nöfnum. Systkinin á Ásgrímsstöðum nutu í uppvextin- um veru foreldranna í Kennara- skólanum og oft tók Guðbjörg amma börn til lengri eða skemmri dvalar til að kenna þeim vísdóm- inn. Allt þetta kom fram í uppeldi okkar frændsystkinanna, virðing fyrir bókum og nauðsyn menntun- ar. Helga var þar engin undan- tekning, því þegar afmælis- og jólagjafir voru gefnar, sem venja var milli fjölskyldna okkar, voru bækur ætið fyrsta val. Við systkinin í Litla Garði kveðj- um góða frænku sem ætíð lét okk- ur fínna að við stæðum henni nær. Ágústi, sonum þeirra og fjölskyld- um þeirra vottum við djúpa samúð. Megi guð blessa ykkur öll. Systkinin frá Litla Garði. landisns um margvíslega jarðyrkju og kornrækt og þar kenndi natni Þóreyjar og frumkvæðis. Hún átti heiðurinn af því að hefja lúpínu- rækt á Geitasandi og starfaði að tilraunum Klemensar með lifandi áhuga og einstökum dugnaði. Hún var ekki síðri sem ræktunarkona en tamningakona. Auk þess stóð hún fyrir stóru heimili með miklum myndarbrag á Sámsstöðum. Eftir að Klemens Kristjánsson lét af störfum sem tilraunastjóri á Sámsstöðum, ræktuðu þau hjónin upp nýbýlið Kornvelli vestán Hvols- vallar. Þar tók gróður við sér og naut hinna grænu handa þeirra beggja og skepnurnar undu vel hag sínum og kornræktin var stunduð áfram. Klemens lést 9. maí 1977. Það er þakkarvert að hafa kynnst Þóreyju, hún var skemmti- leg, húmorinn brást henni aldrei og hún var fordildarlaus og heil- lynd. Við þökkum vináttu hennar. Siglaugur Brynleifsson. + Móðir mín, ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR SÖRENSEN hjúkrunarfræðingur, lést á hjartadeild Borgarspítalans að morgni þriðjudagsins 10. desember. Jórunn Sörensen. Eiginmaður minn, GUNNAR KRAGH fyrrv. bifreiðastjóri, Árskógum 8, verður jarðsunginn frá Seljakirkju föstu- daginn 13. desember kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurlín Gunnarsdóttir. HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR ÞOREY JONINNA STEFÁNSDÓTTIR + Faðir okkar, sonur og bróðir, ÁGÚST SIGURVIN EYJÓLFSSON fró Hvammi í Landsveit, sem lést 7. desember sl. á sjúkrahúsi í Stokkhólmi, verður jarðsunginn frá Skarðskirkju, Landsveit, laugardaginn 14. desember kl. 14.00. Guðrún S. Ágústsdóttir, Krister Ágústsson, Stefán Steinar Ágústsson Eyjólfur Ágústsson, Guðrún S. Kristinsdóttir, systkini og aðrir vandamenn. + Fósturfaðir minn, NÍELS BJARNASON frá Gervidal, Markholti 20, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju föstudaginn 13. desember kl. 14.00 Bjarni Jónsson og aðstandendur. + Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, PÁLÍNA LILJA GUÐNADÓTTIR, Austurbergi 36, Reykjavík, verður jarðsungin frá Seljakirkju föstu- daginn 13. desember kl. 13.30 Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Mæðrastyrksnefnd. Steinunn A. Bjarnarson, Bjarni Njólsson, Kristin Lilja, Berglind, Baldvin, Njáll, og langömmubörn. + Kær frændi og vinur, EINAR KALMAN, Nýja-Sjálandi, lést á Kairangi sjúkrahúsinu, Nýja-Sjá- landi, 23. maí 1996. Einar var jarðsettur 27. maí sl. í Taita Lawn kirkjugarðinum, rétt við sjóinn, sem var hans líf og yndi. Þar hvílir hann í ró og friði. Fyrir hönd ættingja, Áslaug G. Harðardóttir. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HANNES PÁLSSON, sem lést miðvikudaginn 4. desember, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 16. desember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Guðlaug Ágústa Hannesdóttir, Sigurður Jónsson, Bragi Hannesson, Ragnheiður Gunnarsdóttir, John Benedikz og barnabörn. Elskuleg dóttir okkar, systir og mágkona, SVEINDÍS ÓSK GUÐMUNDSDÓTTIR, Engihjalla 11, Kópavogi, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju á morgun, föstudaginn 13. desember, kl. 15.00. Kristin Sveinsdóttir, Guðmundur Unnarsson, Unnar Þór Guðmundsson, Bergiind Gísladóttir, Brynjar Már Guðmundsson, Kristján Geir Guðmundsson, Sólborg Þórisdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.