Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Á VAGNINUM voru krakkar klæddir í snjókarlagervi með sjálfum jólasveininum.
Jólapakkar og krakkar
í skrúðgöngu í Norfolk
Flórída. Morgunblaðið.
ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ í Nor-
Morgunblaðið/Ransy Morr
GYLFI Aron Gylfason, Kristín Fenton og Brynja Guðjónsdóttir
voru jólapakkarnir.
Guðjón Guðmundsson um kvótabrask
Alján milljóna
lottóvinningur
folk í Bandaríkjunum hefur á
undanf örnum árum tekið þátt í
mikilli skrautsýningu, þar sem
skreyttir vagnar aka um götur
borgarinnar. Er þetta gert í sam-
bandi við hátíðahöld er nefnast
„Festival of lights parade“ eða
lj ósaskrú ðgangan.
Helgina eftir þakkargjörðar-
daginn, sem haldinn er hátíðlegur
í Bandaríkjunum fjórða fimmtu-
daginn í nóvember, hefst jóla-
kauptíðin. Þá er byrjað að setja
upp Ijósaskreytingar á hús og í
húsagörðum og er sú ljósadýrð
oft ótrúleg. Borgin Norfolk
gengst árlega fyrir því að stór-
hýsi miðborgarinnar eru öll ljós-
um prýdd um þessa helgi og er
skrúðgangan haldin af því tilefni.
íslendingafélagið í Norfolk,
undir stjórn Sesselju Seifert og
manns hennar Roberts, á mikinn
vagn sem notaður er í slíkar
skrúðgöngur. Vagninn er skreytt-
ur í samræmi við árstíðina. Á
ljósahátíðinni situr Vetur konung-
ur þar gjarnan í öndvegi, snjó-
karlar og kerlingar eiga þar ör-
uggan sess, litlir krakkar klæddir
„ÉG VIL ekkert fullyrða um mögu-
legan árangur aðgerðarinnar. Hann
kemur í ljós á löngum tíma og ef
til vill ættum við að ræða málið frek-
ar um aldamótin," sagði Auður Guð-
jónsdóttir í samtali við Morgunblaðið
í gær. Þá var nýlokið á Landspítalan-
um fimm klukkustunda aðgerð á 23
ára dóttur hennar, Hrafnhildi Thor-
oddsen, sem slasaðist í bílslysi fyrir
sjö árum og lamaðist. Þetta var síð-
ari aðgerð af tveimur sem kínversk-
ur taugaskurðlæknir, dr. Zhang
Shaocheng, gerði á Hrafnhildi.
í bílslysinu þríbrotnaði fjórði
lendarliður Hrafnhildar og færðist
til um 1 sm. Mænan skaddaðist
mikið neðst og er sködduð á fleiri
stöðum. í fyrri aðgerðinni, sem dr.
Zhang gerði í desember i fyrra, var
örtækni notuð til að mynda rými
fyrir taugar og gefa þeim tækifæri
til að virka betur.
Getur hreyft báða fætur
„Eftir fyrri aðgerðina getur
Hrafnhildur hreyft báða fætur, að
vísu eftir ómælda æfingu,“ sagði
Auður. „Hún hefur fengið dálítinn
kraft í báða fætur og nær til dæm-
is að rétta úr hnjám þrátt fyrir að
haldið sé á móti. Þá hafði hún allt-
af verið mjög köld á hægri fæti
eins og jólapakkar ásamt ýmsu
öðru skemmtilegu sem skreyt-
ingafólkið finnur upp á. íslend-
ingafélagið hefur oft fengið
fyrstu verðlaun fyrir haganlega
skreyttan vagn.
Á vorin er þessi sami vagn
notaður á svokallaðri Azeleuhá-
eftir slysið, en eftir að hún fór að
geta hreyft fótinn hefur blóðrennsl-
ið greinilega batnað, svo nú er fót-
urinn eðlilega heitur. Þessi hreyfi-
geta hennar, þótt takmörkuð sé,
hefur því mikið að segja og kemur
sér til dæmis vel í baráttu gegn
legusárum.“
Auður er skurðhjúkrunarfræð-
ingur og var sjálf viðstödd aðgerð-
ina í gær, líkt og þá fyrri. Dr. Zhang
til aðstoðar voru skurðlæknarnir
Halldór Jónsson, Rafn Ragnarsson
og Bogi Jónsson og Oddur Fjalldal
svæfingarlæknir, auk hjúkrunar-
fræðinganna Erlu Hjaltested, Krist-
ínar Pétursdóttur og Hrafnhildar
Kristjánsdóttur.
Taug úr fæti tengd við
mænutagl
í þessari síðari aðgerð var tekin
skyntaug, suralis, úr fæti og hún
tengd annars vegar við áttundu og
níundu millirifjataug og hins vegar
við mænutagl. Milliriíjataugarnar
tvær var losað um í fyrri aðgerð-
inni. „Með þessu móti var tengt
framhjá áverkanum á mænunni.
Það kom okkur verulega á óvart
hve margir þræðir eru eftir af
mænutaglinu, miklu fleiri en við
áttum von á. Hins vegar er ekkert
tíð, en þá er hann blómum
skrýddur með prinsessur og
drottningar í öndvegi, þar sem
sitja ungar og fallegar blómarós-
ir. Þá er drottning valin og prins-
essutitlum útdeilt. ísland hefur
einnig unnið til verðlauna í þeirri
skrúðgöngu.
hægt að spá um hver árangur þess-
arar tengingar verður. Við sjáum
bara til hvað verður þegar taugarn-
ar vaxa,“ sagði Auður.
Kínverski skurðlæknirinn kom
hingað til lands í fyrra í boði heil-
brigðisráðuneytisins, en Auður
sagði að nú hefði sá kostur verið
tekinn að Hrafnhildur greiddi för
hans hingað og dvöl sjálf. „Hrafn-
hildur hefur fengið hluta skaðabóta
greiddan og þess vegna var hægt
að gera þessa síðari aðgerð. íslensk
heilbrigðisyfirvöld hafa ekki trú á
aðferðum dr. Zhangs og því sóttum
við ekki um styrk til Trygginga-
stofnunar eða heilbrigðisráðuneyt-
í RÆÐU á Alþingi sl. mánudag
sagði Guðjón Guðmundsson alþing-
ismaður frá því m.a. að hann þekkti
nýlegt dæmi um að eftir afnám línu-
tvöföldunarinnar í sumar hefði báts-
eigandi, sem löngu var hættur út-
gerð, fengið úthlutað eins og „lottó-
vinningi“ seljanlegum veiðiheimild-
um að verðmæti 18 milljóna króna.
Guðjón sagði frá því að sjómaður
nokkur honum kunnugur hefði orðið
atvinnulaus sl. vor, þegar skipið sem
hann var á var selt. Rakti Guðjón
sögu sjómannsins. Hann og skip-
stjórinn ákváðu að eignast bát sem
þeir gætu stundað sjó á og gert út
saman. Þeir ákváðu að skoða báta
sem voru til sölu „og þá helzt með
einhveijum kvóta, en það fór jafnan
svo, að þegar þeir fundu bát sem
þeim leizt á, þá buðu einhverjir
stórkvótaeigendur betur og ekkert
gekk eða rak,“ sagði Guðjón.
„Þá fóru þeir að huga að því að
kaupa kvótalausan bát og ætluðu
þá að reyna að eignast kvóta eftir
öðrum leiðum. Á meðal þeirra báta
sem þeir skoðuðu síðastliðið vor var
gamall trébátur sem átti að seljast
á 22 milljónir kr. Bátnum fylgdi
ekki eitt einasta kíló af veiðiheimild-
um; eigandinn hafði fyrir löngu selt
þær allar og kvótinn var núll.“
„Það varð ekkert úr þessum báts-
kaupum í vor og tvímenningarnir
ÁSGEIR Friðgeirsson sagði upp
starfi sínu sem ritstjóri Iceland Revi-
ew nú í vikunni vegna þess sem
hann kallar ágreining um verkaskipt-
ingu við Harald J. Hamar, útgefanda.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá útgáfufyrirtækinu að mynduð
hafi verið ritnefnd vegna útgáfu Ice-
isins að þessu sinni. Við heyrðum
hvernig landið lá. Hann var hins
vegar boðinn og búinn að koma
hingað aftur.“
Hennar val að fara þessa leið
Fyrir fyrri aðgerðina sagði dr.
Zhang að litlar líkur væru á bata,
þar sem svo langt væri liðið frá
slysinu og engin von um fullkominn
bata. „Hrafnhildur hefur alltaf ver-
ið ákveðin í að reyna allt og verið
ótrúlega hugrökk. Hún varð fyrir
þessu slysi og hefur alltaf horfst í
augu við afieiðingar þess. Það er
hennar val að fara þessa leið á
enda,“ sagði Auður Guðjónsdóttir.
fóru að róa á trillu en hófu aftur
leit að stærri bát þegar leið á sumar-
ið og meðal þeirra báta sem þá voru
í boði, núna í haust, var sami gamli
trébáturinn. En nú kostaði hann
ekki lengur 22 milljónir, heldur 40,“
sagði Guðjón, og velti því fyrir sér,
hvað hefði breytzt.
Jú, línutvöföldunin hafði verið
afnumin og kvóti settur á steinbít.
Við þessar breytingar fékk út-
gerðarmaður gamla trébátsins, sem
var með allt á hælunum og hafði
selt allan kvótann af bátnum fyrir
löngu, afhentan kvóta að verðmæti
18 milljónir kr. til að braska með.
Hálfum mánuði síðar var verðið á
bátnum aftur komið niður í 22 millj-
ónir. Eigandinn var þá að sjálfsögðu
búinn að selja kvótann," sagði Guð-
jón.
Síðan sagði hann að það þætti
jafnan fréttnæmt ef einhver ynni
10-12 milljónir í lottóinu. „En það
er lítið minnzt á alla þá lottóvinn-
inga sem kvótabraskarar fá og ég
nefndi hér dæmi um,“ sagði Guðjón.
„Venjulegt fólk skilur þetta ekki og
sættir sig ekki við að breyting á
kerfinu geti fært mönnum tugmillj-
óna hagnað þrátt fyrir að þeir hafí
ekki stundað sjóinn né gert út í háa
herrans tíð en orðið stórríkir af að
selja aðgang að sameign lands-
manna, fískinum í sjónum.“
land Review undir stjóm Jóns Kal-
dais. Jón tók einnig fyrr í mánuðinum
við ritstjórn tímaritsins Atlantica og
var fyrir ritstjóri Upphátt en þau
tímarit bæði eru gefin út fyrir Flug-
leiðir handa farþegum félagsins á
innanlands- og alþjóðaleiðum.
í tilkynningunni segir að frá því
Jón tók við ritstjórn tímaritsins Upp-
hátt hafí hann unnið að miklum
breytingum á efnisvali og framsetn-
ingu sem allar hafi verið til bóta.
Það sé stefna útgáfunnar að svipuð
þróun verði á tímaritinu Atiantica.
Þá kemur fram að Haraldur J.
Hamar, eigandi útgáfufyrirtækisins,
gerist stjómarformaður frá áramót-
um og sinni ýmsum sérstökum verk-
efnum í þágu fyrirtækisins.
Endurskoðun
Ásgeir sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann og Haraldur hefðu
komist að samkomulagi um að hann
lyki störfum nú, en hann segir að
útgáfufyrirtækið hafi á undanförn-
um mánuðum verið í endurskoðun
með aðstoð ráðgjafa.
Ásgeir hefur verið ritstjóri Iceland
Review undanfarin sjö ár. Hann seg-
ir að í ágreiningi um verkaskiptingu
felist það að valdsvið útgefanda hafí
ekki verið nægjanlega skýrt í sínum
huga, en á mörgum útgáfum hefði
Haraldur J. Hamar verið titlaður
bæði sem útgefandi og ritstjóri þótt
hann hefði kannski lítið sinnt starfi
ritstjóra á undanförnum árum. „Ég
var ráðinn fyrir sjö árum með það í
huga að taka ritstjómina yfír jafnt
og þétt sem ég og var að gera allt
fram á þetta ár,“ sagði Ásgeir. „Okk-
ar leiðir skildi, en við sáum að það
væri fyrir bestu."
Ásgeir sagði ekki ljóst hvað hann
tæki sér fyrir hendur en hann hefði
átt í viðræðum við menn um ákveðin
verkefni sem tengjast márgmiðlun.
„Ég lít svo á að það sé komið að því
núna að fara að búa til öflugan mið-
il inn á netið og það hefur verið
mitt helsta áhugamál þarna undan-
farin tvö ár að byggja upp alnets-
þjónustu. Það hefur gefið góða raun
og það er sá starfsvettvangur sem
ég hef mestan áhuga á,“
Kínverskur taugaskurðlæknir sker Hrafnhildi Thoroddsen öðru sinni
Tengt framhjá
áverka á mænu
Morgunblaðið/Golli
AUÐUR Guðjónsdóttir við sjúkrarúm Hrafnhildar dóttur sinnar
á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. Erla Hjaltested hjúkrunar-
fræðingur hugar að Hrafnhildi.
Jón Kaldal tekur við Iceland Review
Asgeir Friðgeirsson
hættur sem ritstjóri
I
I
i
I
i