Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 23
ERLEMT
Grænland
þokast
nærþví
að verða
olíuríki
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
GRÆNLAND er nú einu skrefi
nær en áður að verða olíuríki, eft-
ir að samningar um olíuleit, olíu-
og gasvinnslu voru undirritaðir í
Kaupmannahöfn í síðustu viku.
Samningur heimastjómarinnar við
nokkur olíufyrirtæki tekur til leitar
á svokölluðu Fylla-svæði, 120 kíló-
metra suðvestur af Nuuk. Miklar
vonir eru bundnar við svæðið og
búist við að það muni gefa marg-
falt meira af sér en gjöfulustu
svæði Dana og Norðmanna. Samn-
ingurinn kveður á um hvernig
samstarfi heimastjórnarinnar og
olíufyrirtækjanna skuli háttað og
eins hvernig arðinum verði skipt,
ef til olíuvinnslu kemur. Undirbún-
ingur hefst á næsta ári, en til-
raunaboranir hefjast væntanlega
1998.
Það voru olíufélög frá Banda-
ríkjunum og Evrópu sem kepptu
um einkarétt á svæðinu, en á end-
anum voru það hið norska Statoil,
hollenska Phillips og danska DOP-
AS sem í samvinnu við grænlenska
olíufélagið Nunaoil náðu samning-
um við heimastjórnina. Statoil
mun sjá um sjálfar rannsóknirnar.
Á áttunda áratugnum voru
gerðar ýmsar rannsóknir við og á
Grænlandi, meðal annars af
bandarískum olíufélögum, en án
þess að horfur á vinnslu þættu
vænlegar. Síðan hafa orðið miklar
framfarir á sviði olíuleitar og
-vinnslu og svæði sem áður þóttu
óvænleg til að gefa af sér olíu
hafa nú reynst vera hin gjöfu-
lustu. Að sögn Gert Vigh fram-
kvæmdastjóra grænlensku hrá-
efnastofnunarinnar, „Rástoffor-
valtningen", er ekki á döfinni frek-
ari leit annars staðar við Græn-
land, til dæmis á eða út frá austur-
ströndinni þar sem áður hefur
verið leitað. Hins vegar eru vonir
um að fyrirhugaðar reynsluboranir
nú veki áhuga á frekari athugun-
um á hafsvæðunum við Vestur-
Grænland.
Samið um greiðslur
Samningur heimastjórnarinnar
við olíufyrirtækin kveður á um að
fyrirtækin greiði 2 prósent af
vinnsluverðmætum upp að 500
milljónum olíutunna, en 5 prósent
af því sem fer þar um fram, en 2
prósent fyrir gasframleiðslu.
Þegar er til samningur heima-
stjórnarinnar og dönsku stjórnar-
innar um að hugsanlegur olíuágóði
skiptist jafnt milli landanna
tveggja. Eftir þetta skref hafa
vaknað góðar vonir Grænlendinga
um að þeir verði í framtíðinni olíu-
þjóð á borð við Dani og Norðmenn
og hugsanlega Færeyinga.
MM verslanimar eru kærkomin nýbreytni fyrir vandláta neytendur
, sem kjósa afbragðs hráefni á hagstæðu verði.
Persónuleg þjónusta, gæðavörur, hlýlegt umhverfi og lágt verð.
Fagmaður veitir ráðgjöf um meðhöndlun hráefnis.
Við eigum til það sem við auglýsum - ekki bara sýnishorn fyrir verðkannanir
Afgreiðslutími: Mánudaga til föstudaga frá kl. 12 til 19, laugardaga frá kl. 10 til 18 og sunnudaga frá kl. 13 til 18
MM í Hafnarfirði MM í Reykjavík
Reykjavíkurvegi 68, sími 555 4737 Fákafeni 9, simi 588 3226
LAND
SðkSiQRrnsi
Heimsfrægir gönguskór!
VERSLANIR
SKÚLAGÖTU 51 SÍMI 552 7425,
FAXAFEN112 SÍMI 588 6600