Morgunblaðið - 12.12.1996, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Ekkert frekan út-
gáfu til fyrirstöðu
I SAMTALI við Morgunblaðið sl.
laugardag sagðist Robert von Bahr,
eigandi BIS útgáfunnar sænsku,
áhyggjufullur yfir framhaldi heildar-
útgáfu fyrirtækisins á verkum Jóns
Leifs, meðal annars vegna takmark-
aðs áhuga Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands. Runólfur Birgir Leifsson,
framkvæmdastjóri Sinfóníunnar,
svaraði því til í blaðinu á sunnudag
að Sinfónían væri að bíða eftir BIS,
búið væri að ryðja ýmsum hindrunum
úr vegi, meðal annars væri búið að
semja við hljómsveitina um að hafa
mætti tvær upptökulotur á dag.
í samtali við Morgunblaðið segist
Robert von Bahr himinlifandi yfir
þeim fréttum að breyttir samningar
við hljómsveitina þýði að hægt sé að
hafa tvær upptökulotur á dag, enda
hafi hitt kallað á ýmis vandkvæði,
bæði sé erfitt að fá viðeigandi hús-
næði og svo sé erfitt að fá aðgang
að Hallgrímskirkju til að taka upp.
„Tónlist Jóns Leifs er þess eðlis að
erfitt er að taka hana upp og því
hefur verið dýrt að geta aðeins tekið
upp hálfan þriðja tíma á dag. Þegar
við bætist að erfitt er að fá inni í
Hallgrímskirkju til að taka upp sér
hver í hendi sér að kostnaður verður
fljótt mikill við að hafa menn frá fyrir-
tækinu á íslandi langtímum saman.
Ef það er rétt að búið sé að breyta
þessu sé ég ekkert því til fyrirstöðu
að við höldum áfram að taka upp.“
Bahr segist ekki vilja tala fyrir
hönd Osmos Vanskás, hann verði
sjálfur að segja til um það hvort
hann hafí áhuga á að halda áfram.
„Ég veit það þó að meðal annars það
sem nú hefur verið leyst úr var Osmo
þyrnir í auga við framhaldið og
reyndar hefur hann sagt mér að
hann hafi fundið fyrir takmörkuðum
áhuga á íslandi. „Ég vona að Osmo
eigi eftir að vilja vinna þetta verk
áfram, að mínu mati er hann besti
stjómandi sem við getum fengið til
verksins.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tomas Franck leikur
á Jómfrúnni
TENÓR-saxófónleikarinn, Svíinn
Tomas Franck, leikur á tónleikum
á Jómfrúnni í Lækjargötu
í kvöld, fimmtudagskvöld,
kl. 20.30.
Franck hefur um margra
ára skeið verið búsettur í
Kaupmannahöfn þar sem
hann leikur m.a. með Stór-
sveit danska útvarpsins.
Hann hefur einnig Ieikið
með mörgum smærri
hljómsveitium, m.a. kvint- Tomas Franck
ett trompetleikarans Jens Winthers.
Tomas Franck leiðir eigin kvartett
og hefur gefið út þrjá
geisladiska. Hann kemur
hingað á vegum Nord-Jazz
og Tónlistarskóla FÍH þar
sem hann mun kenna á
föstudag og laugardag.
Með Tomasi leika Kjart-
an Valdimarsson á píanó,
Þórður Högnason á kontra-
bassa og Einar Scheving á
trommur.
Fagra veröld
ÆFINGAR á leikritinu
„Fagraveröld" sem Karl
Ágxist Úlfsson byggir á ljóð-
um Tómasar Guðmundssonar
eru nú vel á veg komnar, en
verkið verður frumsýnt í
Borgarleikhúsinu 11. janúar
n.k. á 100 ára afmæli Leikfé-
lags Reykjavíkur. I gær komu
leikstjóri og leikarar úr æf-
ingabúðum á Laugarvatni,
mættu í búningunum í bæinn
og þá var myndin tekin við
Borgarleikhúsið.
Tónlist í leikritinu er eftir
Gunnar Reyni Sveinsson og
söngstjóri Jóhanna V. Þór-
hallsdóttir söngkona. Leik-
mynd og búninga sér Sigur-
jón Jóhannsson um og leik-
stjóri er Brynja Benedikts-
dóttir. Lýsing er í höndum
Lárusar Björnssonar. Meðal
leikara eru Ásta Arnardóttir,
Árni Pétur Guðjónsson, Björn
Ingi Hilmarsson, Ellert A.
Ingimundarson, Guðlaug El-
ísabet Ólafsdóttir, Helga
Braga Jónsdóttir, Hinrík Ól-
afsson, Jóhanna Jónas, Jón
Hjartarson, Kjartan Guðjóns-
son, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, María Ellingsen, Pétur
Einarsson, Sóley Elíasdóttir,
Theódór Júlíusson og Þór-
hallur Gunnarsson.
KYNNINGARMIÐSTÖÐ EYRÓPURANNSÖKNA
Dagur Fjarvirkni og Margmiölunar verður haldinn
í Þjóðarbókhlöðunni þann 13. desember kl. 9.00-15.00.
Kynntar verða tvær rannsóknaráætlanir Evrópusambandsins,
Fjarvirkniáætlunin (Telematics) og Upplýsingatækniáætlunin
(Esprit) og fyrirhugaðir umsóknarfrestir.
9.00-9.15 Á Fiarvirkni erindi á íslandi: Þorgeir Pásson, Landspítalanum og fulltrúi
íslands í Fjarvirkniáætlun Evrópusambandsns.
9.15- 10.00 Fjarvirkniáætlun Evrópusambandsins nelematicsi: Barry O’Shea,
framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
10.00-10.15 Kaffihlé.
10.15- 10.45 Fjarvirkniverkefni á írlandi: Dr. John O’Flaherty, The National
Micoreloctronics Applications Centre -
Erindið fer fram í gegnum myndsímakerfi.
10.45-11.00 Matsferlið innan 4 rammaáætlunar Evrópusambandsins:
Stefanía Júlíusdóttir, Háskóla íslands og matsmaður hjá
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
11.00-11.20 Tunaumálaverkfræði: markaðstækifæri, Þorgeir Sigurðsson, Skýrr hf.
11.20- 11.45 Fvrirspurnir.
Hádeaisverðarhlé
13.00-13.15 Maramiðlun oa menntamál: Ágúst Ingþórsson,
Rannóknaþjónustu Háskóla íslands.
13.15- 14.20 Maramiðlun: kynnt verður fyrirhugað útboð á sviði margmiðlunar á sviði
mennta- og kennslumála innan 4. rammaáætlunar Evrópusambandsins,
hr. Philippe Aigrain, frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
upplýsingatæknisviði.
14.20- 14.40 Huabúnaður fyrir kennara til nota við aaanvirka fjarkennslu:
Adam Óskarsson, Verkmenntaskólanum á Akureyri.
14.40-15.00 Fvrirspurnir.
Aðilar, sem hafa áhugaverð verkefni, hafa möguleika á að ræða
við fulltrúa Framkvæmdastjórnarinnar.
Skráning er hjá Rannsóknarráði íslands í síma 562 1320.
Ástin er
harðlynd - og
unaðsleg
TONLIST
Hljómdiskar
MUSICA ANTIQUA:
Amor
Marta G. Halldórsdóttir, sópran:
Sverrir Guðjónsson, kontratenór:
Camilla Söderberg, blokkflauta:
Snorri Örn Snorrason, lúta: Ólöf
Sesselja Óskarsdóttir, viola da
gamba, Steef van Oosterhout, slag-
verk. Upptökustaður: Oddstofa,
Skálholti júni og september 1996.
Upptaka: Sveinn Kjartansson,
Stafræna hljóðupptökufélagið ehf.
Hljóðblöndun: Sveinn Kjartansson,
Sverrir Guðjónsson, Camilla Söd-
erberg og Snorri Örn Snorrason.
Umsjón með útgáfu: Camilla Söd-
erberg og Snorri Óm Snorrason.
Útgefandi: ísdiskar — Klassís.
Dreifing: Japis Klassís 102 1996.
„ÁSTIN er harðlynd / þann
sem stendur ekki gegn
henni / nístir hún inn að
beini / og særir hjarta hans“
(fyrra erindi úr retórómönsku
ástarljóði í þýðingu Reynis Ax-
elssonar). A þessum „tónleik-
um“ er blandað „fjörugum döns-
um og annarri hljóðfæratónlist
saman við tregafull ástar- og
drykkjuljóð". Hér höfum við í
upphafi dæmi um miðaldatón-
list, tvo dansa úr ítölsku 14.
aldar handriti, en tónlist endur-
reisnartímans er hér í fyrirrúmi;
einnig er hér að finna dæmi um
snemmbarokk verk.
Þetta eru m.ö.o. dæmigerð
verk fyrir sinn tíma, og ekki
verri fyrir það, þau eru hugsuð
sem skemmtitónlist og dægra-
stytting hvort heldur við grímu-
dansleiki við ensku hirðina í
byijun 17. aldar eða í stórveisl-
um höfðingja og fína fólksins,
bæði fyrr og síðar. Ástarljóðin
eru hugnæm, þrátt fyrir raus
og barlóm. í In love, away er
vínið tekið fram yfir ástina, það
er jú miklu sætara en varir og
augu stúlkunnar, og á öðrum
stað er spurt hvað ástin færi
okkur annað en sorg og tár uns
hún er endurgoldin, þá hverfur
öll þjáning og hjartað fyllist
gleði. Og enn um stúlkuna sem
svíkur elskhuga sinn, sem í ang-
ist hrópar að um síðir muni hún
iðrast gjörða sinna. (Lögin eru
frá 16. öld eða byijun 17.). En
ástin er líka lofsungin: Njótum
lífsins og ástarinnar á meðan
við erum ung. Margt er hér fal-
lega samið fyrir hljóðfæri og
raddir, jafnvel með virtúósatil-
brigðum fyrir blokkflautuna.
Hér leika þau Camilla Söder-
berg, Snorri Örn Snorrason,
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og
Steef van Oosterhout á gömlu
hljóðfærin af mikilli list og allt
við hæfí. Söngur Mörtu G. Hall-
dórsdóttur og Sverris Guðjóns-
sonar er bæði fallegur og viðeig-
andi.
Þetta er áhugaverður hljóm-
diskur og mjög vandaður (textar
á frummáli), ómissandi fyrir
tónlistarunnendur og alvöru
safnara. Upptaka og hljóðblönd-
un fyrsta flokks.