Morgunblaðið - 12.12.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 37
LISTIR
BÓKMENNTIR
Ljóðasafn
TREASURES OF
ICELANDIC VERSE
ljóð eftir 32 skáld. Ami Sigurjónsson
valdi. Ljósmyndir og hönnun: Lárus
Karl Ingason. Prentun: Prentsmiðjan
Oddi. Mál og menning, 1996
136 siður. Verð kr. 2.490.
í ÞESSARI laglegu bók er 61 ljóð
eða Ijóðabrot eftir 32 íslensk skáld;
hvert ljóð og ensk þýðing þess - valin
af Áma Siguijónssyni - em saman í
opnu ásamt ljósmyndaskreytingum
eftir Láras Karl Ingason. Elsta skáld-
ið er Jónas Hallgrímsson en þau
yngstu Gyrðir Elíasson og Sjón. Sum
kvæðin era allþekkt og góð sýnishom
af ljóðlist viðkomandi skálda en önnur
era síður kunn, og fer valið greinilega
að einhveiju leyti eftir því hvað hefur
verið til af þýðingum.
Þýðendumir sem koma að ljóðunum
era fimmtán talsins, íslenskir og er-
lendir, og æði ólíkir. Meðan sumir
Laglegt ljóðasafn
Lárus Karl Ingason Ámi Sigurjónsson
kappkosta við að heimfæra ljóð-
in frá orði til orðs, þannig að
línumar líti sem líkast út í báð-
um tungunum, reyna aðrir frek-
ar að fanga anda og heim ljóð-
anna og ná þeir gjaman betra
flugi í þýðingunum. Þannig nær
Jakobína Johnson á athyglis-
verðan og leikandi hátt að yfir-
færa andann í kvæðum Jónasar
og Steingríms Thorsteinssonar,
á meðan þýðendur samtímans
reyna frekar að heimfæra text-
ann frá orði til orðs, oftast með
ágætum árangri, en stirðlega á
stundum. Náttúrakvæði era
áberandi, um landið og dýr, og
er það meginþema Ijósmynda
Lárasar Karls í bókinni, en auk þess
að eiga allar myndimar sá hann um
hönnun bókarinnar. Þetta er þriðja bók
Lárasar Karls, sem starfar sem aug-
lýsingaljósmyndari, en fyrri bækumar
vora Straumar (1992) og A Taste of
Iceland (1995). Lárus stillirýmist einni
eða tveimur litlum myndum á hveija
opnu, myndum sem kallast á við efni
viðkomandi ljóðs og era þetta ákaflega
fjölbreytileg myndbrot. Svart-
hvítar og kontrastmiklar mynd-
ir; landslagsmyndir í panórama-
formi; blóm og fuglar sem skor-
in era út, og er oftast byggt á
einfaldleika, formum í landi eða
stökum dýram. Við Storm
Hannesar Hafstein er þannig
annarsvegar stillt upp bláleitri
litmynd af öldu sem lemur á
kletti og hinsvegar svarthvítri
mynd af hestum sem híma í
snjókófi undir dimmbrenndum
himni. Margar síður bókarinnar
era sérlega hreinlegar, einsog
sú með Haustmyndum Snorra
Hjartarsonar, þar sem útklippt
mynd er af haustlaufum en
Láras Karl er óhræddur við að láta
lofta vel um orð og myndir. Stundum
jaðrar við að myndimar séu of sætleg-
ar og vinna þá frekar á móti kvæðun-
um, einsog þar sem blásin er biðu-
kolla við Tímann og vatnið Steins
Steinarr og tengist myndin hughrifum
ljóðsins ekkert. En eins og náttúra-
myndimar fara oft vel við ljóðin, þá
virkar oft tvímælis að myndskreyta
með mannamyndum; hokinn dorg-
veiðimaður á lítið sameiginlegt við
andann í Vetrardegi Stefáns Harðar
Grímssonar þar sem „Á mjóum fót-
leggjum sínum/ koma mennimir eftir
hjaminu/ með fjöll á herðum sér“, og
brosandi piltur hefur lítið að gera með
Maímorgunljóði Gyrðis.
Ljósmyndir bókarinnar koma úr
ýmsum áttum, einhverskonar einkenn-
isstíl er ekki fyrir að fara; þær era
flestar ágætar, en einstaka virðast þó
á einhvem hátt gamaldags, einsog
þokufilter á ijöramyndum og yfirlýst
mynd af reiðmönnum.
Þetta er lagleg bók og ágætt lítið
sýnishom íslenskrar ljóðlistar. Hönn-
unin er gerð af ríkri formrænni tilfinn-
ingu og kunnáttu þar sem kappkostað
er við að ljóð og myndir njóti sín og
vinni saman og prentunin er einnig
ágætlega af hendi leyst.
Einar Falur Ingólfsson
Ekkert beinlínis eins
og hún hafði ætlað
BOKMENNTIR
Skáldsaga
DAGBÓK STEINSINS
eftir Carol Shields, Ólöf Eldjám
þýddi. Utg. Mál og menning 1996.
286 bls.
HÉR er sagt frá lífshlaupi kan-
adískrar konu, Daisy Goodwill, sem
var fædd iaust eftir siðustu alda-
mót. Fyrsti kaflinn er magnaður
þegar lýst er aðförum móður henn-
ar, hinnar akfeitu Mercy, við að
gera búðing handa manninum sín-
um, ala telpuna og gefa upp öndina.
Föðurnum hafði ekki verið kunn-
ugt um að konan átti von á barni
og verður hálf gramur út í látna
eiginkonu sína, hann getur ekki
tekið á sig uppeldi telpunnar —
enda lýst í fyrstu sem hálfgerðum
kjána, og nágrannakonan Clarent-
ine Flett tekur barnið. Hún skilur
við mann sinn með einu kveðjuorði
og fer í burtu með barnið og sest
að hjá syni sínum. Þar elst Daisy
upp næstu ellefu árin. Þá er faðir
hennar orðinn frægur fyrir minnis-
varða sem hann gerði í sektarkennd
og trega vegna konu sinnar og
afræður að taka dótturina til sín.
Hann er kominn í góð efni og kjána-
bragurinn sem var á honum í fyrstu
af honum strokinn eða kannski
virkjaður þannig að honum gengur
nú flest í haginn.
Daisy er liðlega tvítug þegar hún
giftist óreglupésa og dekurdreng
og þau fara í brúðkaupsferð til
Evrópu. Ekki tekst betur til en svo
að brúðguminn dettur fullur út um
hóteglugga og deyr. Brúðurinn snýr
heim, enn hrein mey.
Allmörgum árum síðan ákveður
Daisy að heimsækja son fósturmóð-
ur sinnar. Þau giftast í einum hvelli
og eignast þijú börn og segir svo
frá samlífi þeirra hin næstu ár og
Daisy eftir að hún er orðin ekkja.
Sagan ætti að vekja forvitni
meðal annars vegna þess að aðal-
persónan hefur lifað alla þessa öld
með þeim breytingum sem hafa
orðið. Hvað varðar lífsháttu, lífsvið-
horf, stöðu kvenna, almennar þjóð-
félagsbreytingar, að ekki sé nú
minnst á tæknibyltingar. Hvaðeina.
Carol Shields er ekki umfram um
það. Hún gerir lítil skil umhverfinu
öðru en því sem Daisy hrærist í og
þær skírskotanir til þjóðfélagsmála
sem vikið er að fannst mér afar
laustengdar og oft yfirborðslegar.
Þetta á kannski einmitt að vera
það; saga Daisy og hennar fólks
en maður skyldi ætla að það ætti
að vera hægt að lesa margt fleira
út úr því sem þau hrærast í.
Mér fannst galli að háskólanámi
söguhetjunnar á sínum tíma, þegar
ekki var sjálfsagt að stúlkur mennt-
uðu sig, eru ekki gerð skil. Þetta
er því afleitara að oft má sjá og
skilja að Daisy er litrík persóna sem
vill fara sínar leiðir og ekki láta
ráðska með sig. En gerir það samt
þegar allt kemur til alls.
Víst er þessi saga fjörlega skrifuð
en þetta kynduga tilgangsleysi sem
einkennir hana gerir að verkum að
hana skortir dýpt. Ég á ekki við
að það sé endilega galli að höfund-
urinn sé ekki með boðskap. Jafnvel
umhverfisleysi og þjóðmálaþróun
get ég svo sem sætt mig við. En
höfundurinn er í einhverri fjarlægð
frá sögupersónunni Daisy. Skrifar
hana utan frá hvað svo sem líður
lýsingum sums staðar á sálarlífi
hennar.
Ég hef ekki lesið bók eftir Carol
Shields áður en á bókarkápu eru
taldar upp nokkrar viðurkenningar
sem Shields hefur hlotið. Jafnframt
er lesanda sagt að sagan bijóti flest
lögmál skáldsögunnar nema það að
vera skemmtileg og spennandi. Um
margt get ég tekið undir að bókin
sé skemmtileg í lestri, einkum í
fyrrihlutanum, og það er margt
frumlega gert í henni. Samt þurfti
ég nokkrar atlögur á seinni kaf-
lana, þar var stundum eins og höf-
undur væri að verða hálflúinn.
Hann tekur svo flugið í lokaköflun-
um sem verða í senn dramatískir
og fyndnir og uppátektarsemi höf-
undar tekst vel. Þar er eins og fjar-
lægðin hafi líka minnkað milli höf-
undar og Daisy.
Ólöf Eldjárn þýddi bókina og
virðist það vera vel af hendi leyst
og ber vitni góðum tökum á ís-
lensku.
Jóhanna Kristjónsdóttir
„Gefin fyrir drama
þessi dama“
Ein sýning
eftir fyrir jól
SÍÐASTA sýning fyrir jól á leikritinu
„Gefin fyrir drama þessi dama“ eftir
Megas í Höfðaborginni í Hafnarhús-
inu verður fimmtudaginn 12. desem-
ber kl. 20.30.
„Upphaflega var áætlað að sýna
hámark 20 sýningar en nú eru komn-
ar 23 sýningar á verkinu og viðtökur
verið svo góðar að ákveðið hefur
verið að halda sýningum áfram eftir
áramót," segir í kynningu.
Sigrún Sól leikur öll hluverkin í
sýningunni og Hörður Bragason org-
anisti hannaði hljóðmynd og tekur
þátt í sýningunni.
Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdótt-
ir, leikmynd og lýsingu hannaði Eg-
ill Ingibergsson og búninga gerði
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.
Aðrar sýningar í Höfðaborginni
eru „Safnarinn" eftir John Fowles
og barnaleikritið „Rúi og Stúi“. Þess-
ar sýningar halda einnig áfram eftir
áramót.
Afmælisútgáfa
í takmörkuðu
upplagi,
aðeins 100 stk
í boði
5.000
afmælisafsláttur
Nilfisk
Silverf
Jubil
M
Nilfisk
Silver
/rúnix
HÁTÚNI6A REYKJAVlK SlMI 552 4420
MODEL I
LÚXUS-
ÚTFÆRSLU,
FRAMLEIDD í
TILEFNI
90ÁRA
AFMÆLIS
NILFISK
Nilfisk
Silver
FYRIRLIGGJANDI: GÚLFSLÍPiVÉLAR • RIPPER ÞJÖPPUR - DJELUR
- STEYPUSAGIR - HRJERIVÉLAR - SAGARBLÖD - Vönduö tramleiðsla.
STEINAR WAAGE
Mikið úrval af töskum og veskjum.
Hanskar, spariskór, stígvél og
gjafakort
SKOVERSLUN
Domus Medica og Kringlunni
BRUNO MAGLI
andiamo.