Morgunblaðið - 12.12.1996, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 39
Villta lífið
íHöfn
BOKMENNTIR
Gndurminningar
GÖTUSTRÁKUR
Á SPARISKÓM
eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur.
Þættir úr lífi Þorsteins Viggóssonar.
206 bls. Útg. Skjaldborg.
Prentun Grafík hf. Reykjavík, 1996.
Verð kr. 3.480.
GÓÐUR matreiðslumaður gerir
krás úr hveiju sem er. Góður rithöf-
undur gerir texta úr hverju sem er.
Þetta eru endurminn-
ingar veitingamanns,
skráðar af rithöfundi.
Upphaf sögunnar er á
engan hátt óvenjulegt;
dæmigerð lífsbarátta
með ívafi af gelgju-
skeiðsórum og ungæðis-
hætti í litlu sjávarþorpi
fyrir austan. Síðar segir
frá lífinu í Kaupmanna-
höfn þar sem sögumað-
ur kynntist flestum blæ-
brigðum borgarlífsins.
Loks er svo kapítuli um
undirheimalífið í Höfn
sem sögumaður hlaut
að hafa veður af vegna
starfsemi sinnar. Að
ógleymdu ástalífi sögu-
manns í borginni við
sundið, en það varð tals-
vert fjölskrúðugra en
gengur og gerist. Þetta
kann að vísu að sýnast
allnokkurt söguefni. Hitt
vegur samt þyngra að
skrásetjaranum hefur
tekist að gera úr þessu
spennandi frásögn. En
jafnframt umhugsunar-
verða.
Þorsteinn ólst upp á
Eskifirði, bytjaði ungur
að vinna fyrir sér, fór á
sjóinn, sigldi um heims-
höfin, kannaði lífið í er-
lendum hafnarborgum,
gaf kvenfólkinu auga en
lét áfengið eiga sig. Vel-
gengni sína síðar á ævinni þakkar
hann, meðal annars, að hann hafi
alltaf verið bindindismaður á áfengi
og tóbak. Eftir margan barninginn
á lífsins ólgusjó hélt hann til Kaup-
mannahafnar og hóf nám í mat-
reiðslu. Að námi loknu reyndi hann
veitingarekstur í Reykjavík en gekk
illa. Rekstrarumhverfið hér heima
reyndist ékki vera sérlega hagstætt.
Eitt sinn skall á verkfall. Veitinga-
maðurinn fékk ekki vörurnar sínar.
Hann arkaði þá á fund forystunnar
og upplýsti að faðir sinn væri rót-
tækur og þar að auki virkur í verka-
lýðsbaráttunni austur á Eskifirði.
Eftir það stóðu allar dyr opnar! Á
samyrkjubúinu lifum við vel. Þor-
steinn hvarf aftur til Hafnar og varð
þar »athafna- og ævintýramaður«
eins og stendur á titilsíðu. Villta líf-
ið í Höfn stundaði hann af kappi og
spilaði óspart það sem Eiríkur frá
Brúnum segir að dönsku stúlkurnar
hafi kallað tveggja manna alkort.
íslendingar vissu af hon-
um og sóttu stundum
staðina hans. »Ég þekki
íslendinga úr hvar sem
ég er staddur í heimin-
um,« segir hann. »Það
er eitthvað svo drýldið
við yfirbragðið.« Örugg-
lega rétt!
Sá er einn höfuðkost-
ur þessara endurminn-
inga að málalengingar
eru hvergi á dagskrá.
Höfundurinn kann þá
list að segja allt en halda
sig samt við þolanlega
hófstilling. Enda þótt
hann segi í lokakafla að
þetta sé hálfgerð klám-
bók, verður það að telj-
ast stórlega ýkt.
Kaupmannahöfn eft-
irstríðsáranna var tíðast
upphafs- og endastöð
íslendinga sem brugðu
sér út fyrir pollinn.
Næturlítið í Höfn var
þá afar fjörugt, en til-
tölulega öruggt miðað
við það sem síðar varð.
í þá daga einkenndist
lífið fyrst og fremst af
ósvikinni glaðværð.
Lagið Wonderful Co-
penhagen var þá sungið
um allar jarðir. Svo kom
klámbygjan með meiru,
og maður finnur hvernig
tónninn í bókinni þyng-
ist þegar það skellur
allt yfir. »Mér finnst vanta gleðina
í lífið í dag,« segir Þorsteinn.
Margur miðaldra íslendingur mun
án efa minnast þeirra skemmtistaða
sem við sögu koma í frásögn Þor-
steins. Andblærinn hverfur með
breyttum tímum. En endurminning-
in iifir.
Erlendur Jónsson.
Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir
Þorsteinn
Viggósson
Nýjar bækur
Kona verður til
UM skáldsögur Ragnheið-
ar fyrir fullorðna eftir
Dagnýju Kristjánsdóttur er
komin út.
Ragnheiður Jónsdóttir
(1895-1967) samdi níu
skáldsögur fyrir fullorðna á
árunum 1941-1967. Þær
fjalla um konur í innri og
ytri átökum á miklu breyt-
ingatímabili í sögu þjóðar-
innar.
í bókinni fjallar Dagný
Kristjánsdóttir um þessar sögur í
ljósi nýrra kenninga um bókmennt-
ir, sálgreiningu og femínisma.
Dagný fjallar einnig um viðtökurnar
við skáldsögum Ragnheiðar og
menningarumræðu eftir-
stríðsáranna.
Kona verður til er fyrsta
doktorsritgerðin sem skrif-
uð er um íslenskar kvenna-
bókmenntir. „Þetta er vel
skrifað og spennandi verk
fyrir alla áhugamenn um
bókmenntir,“ segir í kynn-
ingu.
Bókin Kona verður til
hlaut tilnefningu í flokki
fræðibóka til íslensku bók-
menntaverðlaunanna 1996.
Útgefandi er Bókmenntafræði-
stofnun Háskóla íslands og Há-
skólaútgáfan. Bókin er 464 blaðsíð-
ur að lengd og kostar kr. 3.500.
Dagný
Kristjánsdóttir
Sögustund hjá Ömmu
„AMMA í Réttarholti“ sem er stað-
sett í handverkshúsinu, Þingholts-
stræti 5, býður á laugardag börnum
í sögustund milli kl. 14 og 15.
Höfundar sem lesa úr verkum
sínum eru þau Guðrún Helgadóttir,
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
Helga Möller og Úlfar Harri Elías-
son. Að auki kemur Ragnar Tómas
Hallgrímsson og les úr nýjustu
Ragga-bókinni eftir afa sinn, Har-
ald S. Magnússon.
Allir eru velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Áhrif og völd - áhrifa
og valda vegna?
BÓKMENNTIR
Ævif c ri11
HERRAFORSETI -
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
eftir Pálma Jónasson.
Útg. bókaforlagið Una Reykjavik
1996. 215 bls.
ÞAÐ ER ekki ofmælt að nýr
forseti íslands fær mikla athygli
strax í upphafi starfs síns þótt
bækurnar tvær sem ég hef lesið,
Bessastaðabækurnar og svo þessi
sem hér er skrifuð, Herra forseti
— Ólafur Ragnar Grímsson, séu
vitanlega afar ólíkar og bæði
skráðar og gefnar út af mjög mis-
munandi ástæðum. Höfundur
Herra forseta, Pálmi Jónasson,
segir í formálsorðum að markmið-
ið sé að bregða ljósi á það helsta
sem Ólafur Ragnar hefur fengist
við á opinberum vettvangi og hér
sé ekki um sagnfræðilega ævisögu
að ræða né heldur sé reynt að
túlka þá atburði sem Ólafur Ragn-
ar hefur tengst.
í stuttum formálsorðum Pálma
er einnig tekið fram að hann taki
ekki afstöðu til umfjöllunarefnis-
ins, þ.e. ætlun hans er að gæta
hlutleysis í hvívetna. Það má byija
á að segja að mér fannst það tak-
ast og það getur verið bæði kostur
og galli. Kostur vegna þess að þar
með verður frásögn höfundar trú-
verðugri en ella, en mínushliðin
gæti þó verið sú að hún verði þurr
og vanti í hana safa.
Bókin er um margt afar skipu-
lega skrifuð og skiptist í fjölmarga
kafla með undirköflum eins og
Af átakavettvangi á friðarstól,
venjulegur strákur að vestan,
Möðruvallahreyfingin, til áhrifa í
Alþýðubandalaginu, formennskan
í Alþýðubandalaginu, brotist til
áhrifa, umdeild embættisverk,
formannsferill á enda og forseta-
kosningar. Langminnstur hluti
fjallar um persónuna Ólaf Ragnar
utan sviðsljóssins, enda leggur
höfundur beinlínis upp með að
vera ekki að hnýsast í einkalíf
hans, eins og það er orðað í áður-
nefndum formála.
Auðvitað er ég ekki að halda
því fram að persóna Ólafs Ragn-
ars komi ekki allskýr fram í gegn-
um þessa framvindu starfa hans.
Það er að segja sá metnaðarfulli
og á stundum harðskeytti stjórn-
málamaður sem menn töldu Ólaf
Ragnar vera. Að því leyti birtast
fá ný sannindi í bókinni sem menn
sem hafa fylgst með þjóðmálum
og pólitík vissu ekki fyrir lestur-
inn. En kostur er að hafa þennan
fróðleik á einum stað þó að þetta
sé ekki unnið út frá sagnfræðilegu
sjónarmiði.
Kannski kom mér einna mest á
óvart að uppgötva að ég var búin
að steingleyma hvað Ólafur Ragnar
sat i reynd tiltölulega skamman
tíma á Alþingi sem kjörinn þing-
maður og ég var líka farin að ryðga
í því hvað hin endalausu sameining-
armál flokka sem skilgreina sig á
svokölluðum vinstri væng stjórn-
mála hafa verið lengi í gangi.
Eiginlega aftur úr öllu og alltaf
meira og minna í sömu tóntegund-
inni og sömu einlægni eða í plati.
Það má lesa úr frásögninni að
Ólafur Ragnar hafi ungur fengið
mikinn metnað til áhrifa og valda.
Aftur á móti er ekki ljóst í þess-
ari bók hvað knýr hann áfram,
nema þá að hafa áhrif áhrifanna
vegna. Hafi hann farið út í pólitík
af hugsjón og eldmóður rekið hann
áfram verður það ekki lesið úr
þessari bók.
Pálmi er lipur penni og sam-
viskusamur í skrifum sínum hér.
Hann er ekki tilþrifamikill í fram-
setningu en gætinn og vandvirk-
ur. Það getur verið að þetta sé
gagnleg bók upp á seinni tímann.
En umfram allt virkaði hún eins
og samantekt á fremur sjálfsögð-
um hlutum, svona þegar á heildina
er litið.
Allmargar myndir eru í bók-
inni, nafnaskrá og tilvísunarskrá.
Eykur það vitanlega gildi hennar
og hún er vel og kurteislega úr
garði gerð.
Jóhanna Kristjónsdóttir
SKOVERSLUN
Domus Medica og Kringlunni
LIOYII
SKOR FYRIR KARLMENN!
Mikið og gott úrval af glæsilegum
og vönduðum skóm frá Lloyd
Athugið að við höfum margar tegundir af breiðum Lloyd skóm
STEINAR WAAGE