Morgunblaðið - 12.12.1996, Síða 65

Morgunblaðið - 12.12.1996, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 65 MAMMA með okkur bræðurna. UNGUR matreiðslunemi á veitingahúsinu Frascati. jafnfábrotinn og lífið í þorpinu en ekki stórbrotinn eins og náttúran allt um kring. Árátta þorpsbúa var að vilja vita allt um annarra hagi en trúa samt í hrekklausri ein- feldni að enginn vissi neitt um þá sjálfa. Mannlífsflóran samanstóð mestmegnis af smágerðum en harðgerðum jurtum, rótföstum og dreifðum um allar jarðir. Sumarið sem ég varð tólf ára Um sumarið opnaði ég sjoppuna hans pabba á morgnana þegar ég vaknaði. Hún stóð niðri við sjó og var kölluð Viggóssjoppa. Þegar farskipin komu í land var hátíð. Þá voru seld smygluð ilmvötn frá Bandaríkjunum, nælonsokkar og tyggigúmmí. Það liðu einungis tveir eða þrír tímar eftir að slíkir farmar komu þar til allt var selt upp og ég stóð eftir með skókassa í höndunum fullan af peningum. Það var enginn að amast við þessu. Kraftakarlinn Úrsus kom til bæjarins með sýningu um sumarið. Hún var auglýst í kaupfélaginu og Markúsarbúð og á öllum síma- staurum. Hann hélt mikla sýningu á yfirburðum sínum, tætti sundur símaskrár og rak nagla í gegnum tré með berum höndum. Einn helsti íþróttakappi bæjarins var þá orð- inn sýslufulltrúi. Hann og Úrsus urðu mestu mátar og gengu saman að skrifstofu sýslufulltrúans með þanið bijóstið til að setjast þar að drykkju. Eitthvað hefur orðið til þess að kærleikskeðjan slitnaði og þeim varð sundurorða því heljar- mennið gerði sér lítið fyrir og lú- barði kappann. Þetta tengdist víst ósætti í kvennamálum því krafta- karlinn lét í veðri vaka að hinn hefði gerst fjölþreifinn við konu sína. Pabbi missti af sýningunni en hann var á sjó þegar hetjan mætti til bæjarins. Þeir Úrsus voru kunn- ugir frá ísafirði og pabbi hafði sagt mér margar sögur af aflsmun- um hans. Sýslufulltrúinn mætti hins vegar illa timbraður morgun- inn eftir, með himinblátt glóðar- auga og keypti sér kalt kók en við feðgarnir höfðum afrekað það að færa Eskfirðingum þá guðaveig. Það sem stóð eftir af menningar- ferð Úrsusar var því glóðarauga sýslufulltrúans og hrifning okkar krakkanna sem reyndum í margar vikur að líkja eftir kappanum, hvernig hann útfærði þetta og hitt. Mörgum árum seinna fann ég út að ég gat rifið símaskrár á sama hátt. Þetta er raunverulega brella en það vissum við ekki þá heldur streittumst við að afhjúpa leyndar- dóminn með nær engum árangri. Of nálægt náttúrunni Ég hélt að konur hefðu tvö göt, annað til að pissa með og hitt til að fæða með börn. Seinna bættust ný púsl við myndina, ást- in og unaðurinn. Þorpið var of nálægt náttúrunni til að við gæt- um alist upp algerlega fáfróð um kynferðismál. Allt sem foreldrar okkar þögðu um svo varðveita mætti sakleysi okkar barnanna afhjúpuðu dýrin í sakleysi sínu. Hestarnir elskuðust í haganum án þess að leiða nokkurn tímann hug- ann að því að það væri dónalegt. Kýrnar dilluðu rössunum og þegar leitt var undir lyftu þær halanum með sveiflu og hleyptu graðnaut- inu að. Hanar hoppuðu á hænur. Kettir breimuðu sárt um nætur og hundarnir hnýttu sig saman á rössunum í trylltum unaði. Við gengum ekki fáfróð um þorpsgöt- una með þvílíkar skrautsýningar á annarri hverri þúfu. Sagður vera hommi Ungur maður í þoipinu var sagður vera hommi. Hann var reyndar fluttur suður til Reykjavík- ur en dvaldi stundum langdvölum hjá fjölskyldu sinni í þorpinu. Hann tilheyrði virðulegri ætt, norska aðlinum, og af honum stafaði ljómi ríkidæmis. Hann var ljós yfirlitum, með liðað hár, vel klæddur og starfaði sem ljósmyndari en stund- um brá honum fyrir með mynda- vélina á götunum. Hann var þægi- legur í umgengni en yfir honum var einmanaleiki, hann blandaði lítið geði við fólk en drakk ótæpi- lega. Þegar það var uppi á teningn- um snerist hann upp í andhverfu sína. Hann kom einn daginn inn í sjoppuna en ég stóð fyrir aftan búðarborðið. Enginn annar við- skiptavinur var inni. Hann var nokkuð við skál og horfði stíft á mig. Ég vissi hvað hann hafði í hyggju, án þess að hafa nokkurn tímann heyrt á skotspónum, eða leitt að því hugann, að hann ætti slíkt til. Ég fraus í sporunum en hann fór inn fyrir borðið, greip í mig með báðum höndum og dró mig inn í herbergið fyrir innan. Þar var bekkur sem hann lagði mig á. Hann þuklaði á mér, og var lagstur ofan á mig, þegar maður kom aðvífandi inn í sjoppuna, heyrði átökin og bjargaði mér frá honum. Nístandi einmana Eftir að allt var um garð gengið fann ég engar tilfinningar gagn- vart þessum atburði, hvorki reiði né ótta. Mér fannst þessi maður vera sjúklingur og slíkur atburður var eins og fjarlægar náttúruhamf- arir, sjálfum var mér borgið. Mamma og pabbi áttu erfitt með að trúa mér en mamma átti sér- lega erfitt með að trúa öllu því sem að einhveiju leyti var óvenjulegt. Slíkir hlutir voru þagðir í hel. Þeg- ar maðurinn birtist aftur fullur í sjoppunni hjá mér skömmu seinna tók ég járnrör undan afgreiðslu- borðinu og sagðist myndi mölva á honum höfuðkúpuna ef hann kæmi sér ekki burtu eins og skot. Hann fór en áður leit hann við og horfði í augun á mér með nístandi ein- mana augnaráði, og í senn tóm- legu. í hjónabandi Næsta kaflabrot er úr fyrri hluta bókarinnar og greinir frá því hvernig Þorsteinn kynnist ástinni með ínu Thomsen en upp úr slitn- ar þegar hún fær vinnu utan Kaup- mannahafnar. Þá verður hann ást- fanginn af Krúsu, íslenskri læknis- dóttur áður en ína Thomsen verður aftur á vegi hans og verður fyrri eiginkona hans: Við Krúsa fórum í skógarferðir með nesti, gönguferðir um götur borgarinnar og stundum fórum við út að dansa. En þó að ég ætti ást Krúsu gegndi ekki sama máli um móður hennar. Hún hafði göfugt og þóttafullt yfirbragð arnarins og var eins og gefur að skilja haldin þeirri grillu að fjölskyldan stæði öðru fólki framar. Henni var ekki gefið um það að dóttir sín væri að slá sér upp með óbrotnum mat- reiðslunema. Þær mæðgurnar fengu allt upp í hendurnar sem var falt fyrir peninga og ég, sem vann mér inn sjötíu og sex krónur á mánuði á Frascati, velti mikið vöngum yfir því þegar Krúsa sagði mér að mamma hennar hefði ætlað að kaupa pels fyrir tólf þúsund krónur en pabbi hennar hefði ekki fengið yfirfærða næga peninga og móðirin hefði þurft að sætta sig við herðaslá sem kostaði fjögur þúsund og fimm hundruð krónur. Faðirinn stóð í bakgrunni þessarar fjölskyldumyndar. Hann virkaði traustur og virðingarverður en það sópaði ekki að honum eins og kven- kosti fjölskyldunnar. Þær mæð- gurnar höfðu fyrir sið að fara á sólskinsdögum út á ströndina í Charlottenlund. Þær óku þá saman í Bentley með blæjuna niðri en ég vildi ekki sjá af Krúsu og elti þær á reiðhjóli, móður og másandi. Eftir að hafa lagt bílnum gengu þær út á bryggjuna sem var byggð utan um sjólaug. Á sína hvora hlið almenningslaugarinnar voru svo nektarlaugar fyrir karla á hægri hönd og fyrir konur á vinstri hönd. Mæðgurnar settust í baðfötunum undir sólhlífar við almenningslaug- ina og létu geislana gæla við sig meðan þær flettu vikublöðum. Þeg- ar ég komst kófsveittur á leiðar- enda leitaði ég þær uppi, setti upp tilgerðarlegan undrunarsvip og sagði: „Eruð þið hér?“ Því næst leitaði ég uppi annan stól, blandaði mér í selskapinn og skeytti engu um hvort mamman hleypti brúnum. Ósjaldan ákváðum við Krúsa stefnumót um kvöld við þessar aðstæður en þegar Bentley- inn brunaði aftur inn til Kaup- mannahafnar með þóttafullt reyk- ský aftan úr sér hunskaðist ég á reiðhjólinu á eftir þeim til að ná að skipta um föt í tæka tíð fyrir dansinn. Það kom að því að fjöl- skyldan sneri heim til Islands. Við aðskilnaðinn fór ég að fá grillur um ínu sem má sjálfsagt rekja beint til kynhvatarinnar. 011 ástin sem ég hafði uppgötvað og ætlað Krúsu sat nú eins og klumpur í bijóstinu á mér og leitaði út. Ég greip til þess ráðs að færa hana yfir á ínu. Þrátt fyrir að við Krúsa héldum uppi bréfaskriftum urðu þær æ stopulli. Krúsa gat ekki lif- að án þess að baða sig í ljóma karlmannlegrar aðdáunar og ég gat ekki lifað án kvenna. Ég hélt samt ótrauður áfram að setja sam- an ástarbréf til Krúsu þó að hún ætti orðið annan kærasta á ís- landi. Þegar ástarvíman fór að renna af mér nokkru eftir brottför hennar, tilveran hætti að vera ljós- rauð og göturnar fengu aftur á sig gráleitan lit fóru að setjast að mér undarlegar grunsemdir um að bréfin mín sem voru orðin full af sársauka væru lesin í saumaklúbb- um Krúsu og mínum einlægustu hugrenningum væri jafnvel mætt með hlátrasköllum og lófataki þakklátra áheyrenda. Ég fann svo til þess að vera bara sveitadrengur frá Eskifirði að smæð mín varð mér nærri því ofviða gagnvart heldra fólkinu að sunnan. Ég held að varla hafi gengið drengur fyrr né síðar um götur Kaupmanna- hafnar sem liðið hefur aðrar eins ástarraunir og ég. • Bókarheiti er Götustrákur & spariskóm - Þættir úr lífi Þorsteins Viggóssonar athafna- og ævintýramanns, 250 bls. Höfundur er Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Útgefandi Skjaldborg. Leiðb. verð 3.480 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.