Morgunblaðið - 12.12.1996, Page 80

Morgunblaðið - 12.12.1996, Page 80
<o> AS/400 Mikið úrval viðskiptahugbúnadar <Ö> NÝHERJI OPIN KERFI HF. Sími: 567 1000 ^pVectn MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181, PÓSTHÖLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Sljórnarflokkar afgreiða frumvarp um samningsveð Óheimilt að veðsetja aflahlutdeild skips ÞINGFLOKKAR stjórnarflokk- anna hafa afgreitt frumvarp um samningsveð með ákvæði um að óheimilt sé að veðsetja nýtingar- réttindi í atvinnurekstri sem stjórnvöld úthluta, svo sem afla- heimild skips og greiðslumark bújarðar. En jafnframt er í frumvarpinu tekið fram, að hafi fjárverðmæti .það, sem umrædd réttindi eru skráð á, (t.d. skip eða bújörð), verið veðsett sé eiganda þess óheimilt að skilja réttindin.frá fjár- verðmætinu nema með þinglýstu samþykki þeirra sem eiga veðrétt- inn. í greinargerð með frumvarpinu er tekið fram að úthlutun afla- heimilda samkvæmt lögum myndi ekki eignarrétt eða óafturkallan- legt forræði einstakra aðila yfir veiðiréttindum heldur sé fyrst og fremst um takmarkaðan og tíma- bundinn nýtingarrétt að ræða. Þá er í greinargerðinni lögð áhersla á að sá sem tekur veðrétt í veiðiskipi eða bújörð taki með sama hætti og eigandi skipsins eða bújarðarinnar þá áhættu, að nýt- ingarréttindin verði skert eða af- numin vegna almennra ráðstafana ríkisvaldsins. Afgreitt án fyrirvara Frumvarpið var endanlega af- greitt af Framsóknarflokknum í gær án fyrirvara en frumvarpstext- inn tók nokkrum breytingum í meðförum flokksins. Þannig var m.a. að kröfu Sivjar Friðleifsdóttur tekið fram að þau réttindi sem ekki mætti veðsetja, væru t.d. afla- heimild og greiðslumark en áður var vísað til þess í greinargerð. „Það er skýrt að það er ekki heimilt að veðsetja aflahlutdeild fískiskipa eða greiðslumark bú- jarða en um leið næst það fram að ekki er hægt að færa þetta á milli manna án heimildar veð- hafa,“ sagði Valgerður Sverris- dóttir, þingflokksformaður Fram- sóknarflokksins. Breytingarnar voru kynntar í þingflokki Sjálfstæðisflokks í gær en ekki afgreiddar sérstaklega, að sögn Geirs H. Haarde, formanns þingflokksins, þar sem ekki var um efnislegar breytingar að ræða á frumvarpinu. Þingflokkurinn af- greiddi frumvarpið í síðustu viku og lýstu þrír þingmenn, þeir Krist- ján Pálsson, Guðjón Guðmundsson og Guðmundur Hallvarðsson, þá fyrirvara við frumvarpið. Endanlegi frumvarpstextinn er eftirfarandi: „Eigi er heimilt að veðsetja réttindi til nýtingar í at- vinnurekstri, sem skráð eru opin- berri skráningu á tiltekið fjárverð- mæti og stjórnvöld úthluta lögum samkvæmt, t.d. aflahlutdeild físki- skips og greiðslumark bújarðar. Hafi fjárverðmæti það sem rétt- indin eru skráð á, verið veðsett, er eiganda þess óheimilt að skilja réttindin frá fjárverðmætinu, nema með þinglýstu samþykki þeirra, sem veðréttindin eiga í við- komandi fjárverðmæti.“ Fullorðnir algengir smitberar kíghósta FLEIRI tilfelli kíghósta hafa greinst undanfama mánuði en í mörg ár og segir settur aðstoðarlandlæknir, Haraldur Briem, um vægan faraldur að ræða. Á hveiju ári greinast tilvik kíghósta hér á landi en síðasti stóri faraldurinn geisaði um 1960 en þá voru skráð um 3.500 tilfelli, ein- göngu börn. Haraldur áætlar tilvikin frá í haust vera á bilinu 200-300. Komið hefur í ljós að fullorðnir smitast jafnt sem börn af sjúkdómn- um. „Læknar hafa veitt því athygli í auknum mæli að fullorðnir smitast einnig. Jafnframt eru þeir algengir smitberar þar sem sjúkdómseinkenni þeirra eru oft mjög væg en sumir geta borið bakteríuna án þess að vita af því.“ Börn til sjö ára aldurs eru bólu- sett við kíghósta. Ef bólusetja ætti eldri aldurshópa þyrfti að sögn Har- aldar að skipta um tegund bóluefnis þar sem fullorðnir eru mun við- kvæmari fyrir eftirköstum af notkun þess efnis sem notað er. Morgunblaðið/Ásdís 1.300 tonn áland NÝJA Hólmaborgin, stærsta loðnuskip íslenska flotans, land- aði rúmum 1.300 tonnum af loðnu á Eskifirði um hádegisbil- ið í gær. Þetta var fyrsta veiði- ferð Hólmaborgarinnar eftir gagngerar endurbætur sem gerðar voru á henni í Póllandi nýlega, en þá var skipið m.a. lengt um tæpa fjórtán metra. Loðnan veiddist á Reyðar- fjarðardýpi og var ekki annað á skipverjum að heyra en að vel hefði til tekist. Þeir voru sex daga í túrnum en í gærmorgun var komin bræla. Flutninga- bíll fauk FLUTNINGABÍLL og tengivagn af öðrum flutningabíl fuku út af þjóð- veginum skammt vestan og austan við Höfn í Hornafirði í gær. Að sögn lögreglu var mikil hálka á vegum og gekk á með hvössu norðanroki. Um hádegið fauk tengivagn aftan af flutningabíl út af veginum á Mýrum skammt vestan við Höfn. Að sögn lögreglunnar náðist vagn- inn upp á veginn á ný, lítið skemmd- ur. Þá fauk flutningabíll af þjóðveg- inum austan við Almannaskarð og hafnaði hann á hliðinni utan vegar. Ökumaður slasaðist lítillega. Lýsingskvóti skorinn umtalsvert niður í Namibíu á næsta fiskveiðiári Seaflower Whitefish selur tvö skip af fjórum Ráðherrar hafna gagnrýni ASI Ekki tilefni til uppnáms DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segist ekki sjá að frumvarp ríkis- stjórnarinnar um breytingar á lífeyr- ismálum opinberra starfsmanna sé tilefni til þess að setja kjarasamninga á almennum markaði í uppnám. Davíð sagðist hafa rætt þetta mál við forystu ASÍ fyrir nokkrum dögum og í kjölfarið hefði hann haft frum- kvæði að því efnt var til samráðs- fundar milli embættismanna í fjár- málaráðuneytinu, tryggingafræð- inga og starfsmanna Alþýðusam- bandsins. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra segir að framlög ríkisins í hina nýju deild sem stofnuð verður hjá LSR, standi undir jafnverðmætum lífeyrisréttindum og í gamla lífeyris- kerfinu. Ríkið sem launagreiðandi sé ekki að taka á sig nýjan kostnað vegna fyrirhugaðra breytinga. ■ Kostnaður ríkisins/41 UMT ALS VERÐUR samdráttur blasir við á komandi fiskveiðiári hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tækinu Seaflower Whitefish Corp- oration Ltd. í Liideritz í Namibíu. íslenskar sjávarafurðir hf. (ÍS) eiga 20% hlut í fyrirtækinu á móti 80% hlut eignarhaldsfélags- ins FISHCOR, sem er eign nam- ibíska ríkisins. Kvóti minnkar um 5.500 tonn Að sögn Benedikts Sveinssonar, framkvæmdastjóra ÍS, er nú þegar orðið Ijóst að úthlutaður kvóti lýs- ings verður dreginn saman á næsta fiskveiðiári, sem hefst um áramót. Hefur fyrirtækið þegar gripið til þess ráðs að selja tvo togara. Seaflower Whitefísh hefur rekið þijá ísfisktogara og einn frystitog- ara ásamt fullkomnu frystihúsi. „Við vitum að kvótinn verður dreg- inn saman og menn eru að gera ráðstafanir með hliðsjón af því. Það er búið að selja tvo togara. Þá eru tveir togarar eftir, og veltur það á endanlegri niðurstöðu við kvótaút- hlutunina hvort einum togara verð- ur bætt aftur við,“ segir Benedikt Sveinsson. Á síðasta ári hafði Seaflower yfir að ráða 9.700 tonna kvóta og var hann svo hækkaður í tæplega 13 þúsund tonn á þessu ári. Nú blasir við að kvótinn verði skorinn niður í um 8.500 tonn á næsta ári. „Fiskifræðingar segja þó að útlit í hafinu sé mjög gott og nýlið- un hafi tekist mjög vel, þannig að vonandi er framhaldið álitlegt en það þarf að endurskipuleggja starfsemina miðað við þessar stað- reyndir,“ segir Benedikt. Færri íslendingar Um 30 íslendingar hafa verið við störf hjá Seaflower í yfir- manns- og stjórnunarstöðum á öllum skipum félagsins og í vinnsluhúsum í landi en ljóst er að þeim fækkar nokkuð vegna sölu togaranna. „Menn bíða eftir endanlegum kvóta fyrir næsta ár til að geta gert sínar ráðstafanir. Það virðist þurfa að breyta þessu nokkuð hratt,“ sagði Benedikt. Framkvæmdastjórinn hættur Magnús Guðjónsson sem verið hefur framkvæmdastjóri Seaflow- er í eitt og hálft ár er nú hættur störfum og er á heimleið. Ekki er búið að ráða nýjan framkvæmda- stjóra í hans stað en Benedikt sagðist vonast til að Islendingur yrði fljótlega ráðinn í stöðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.