Morgunblaðið - 25.01.1997, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C
20. TBL. 85. ÁRG.
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Forseti Alsírs fordæmir hermdarverk skæruliða
Kennir „erlendum
öflum“ um drápin
Lofar að brjóta skæruliðana á bak aftur
París. Reuter.
Zaire
Stefnir í hernaðar-
íhlutun þriggja
nágrannaríkja
Kisangani. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN kvaðst í gær
hafa miklar áhyggjur af fréttum um
að átök hefðu hafist að nýju í Mið-
Afríkuríkinu Zaire og sagði hættu á
að þau leiddu til stríðs milli Zaire
og þriggja nágrannaríkja, Búrúndí,
Uganda og Rúanda.
Fregnir hermdu að bardagar hefðu
blossað upp nálægt borginni Kisang-
ani í austurhluta Zaire, þar sem
stjórnarherinn býr sig undir stórsókn
til að endurheimta svæði sem Tútsar
náðu á sitt vald í uppreisn sem hófst
í október.
Hermt er að herinn hafi fengið
um 300 evrópska málaliða til liðs við
sig, m.a. frá Frakklandi og Belgíu,
en flestir þeirra eru sagðir frá ríkjum
gömlu Júgóslavíu. Stjómin í París
sagði frönsku málaliðana ekki á veg-
um hennar.
Leggi her Zaire til atlögu við upp-
reisnarmennina þykir líklegt að
stjórnvöld í Úganda, Rúanda og
Búrúndí sendi hersveitir þeim til að-
stoðar. Hundruð þúsunda rúandískra
flóttamanna eru á svæðinu og tals-
menn Flóttamannahjálpar Samein-
uðu þjóðanna sögðu að ekki hefði
verið hægt að koma nægum hjálpar-
gögnum til þeirra vegna bardaganna.
Hætta væri á að fólkið hryndi niður
af völdum hungurs og sjúkdóma.
Blóðsúthellingar í Rúanda
Alþjóða Rauði krossinn kvaðst
einnig hafa miklar áhyggjur af
ástandinu í Rúanda þar sem rúmlega
80 manns hafa verið vegnir síðustu
daga. Fregnir herma að Tútsar í
stjómarhernum hafi drepið 50
óbreytta borgara í árásum sem hóf-
ust eftir að þrír spænskir starfsmenn
hjálparstofnana voru myrtir á laug-
ardag.
Reuter
Kveiktu í ráðhúsinu
ELDUR var lagður í ráðhúsið í
albönsku borginni Lushqje í gær
þegar þúsundir manna söfnuðust
þar saman til að láta í ljós reiði
sína vegna gjaldþrots ávöxtunar-
fyrirtækisins Sude. Fólkið gekk
einnig berserksgang um kvik-
myndahús í grenndinni og kveikti
i lögreghibíl. Tólf lögreglumenn
særðust í átökunum.
Sude er eitt af „píramíta-fyrir-
tækjunum" sem hafa skotið upp
kollinum á Balkanskaga og geta
skilað mikilli ávöxtun á skömmum
tíma eða meðan nýjum fjárfestum
fjölgar dag frá degi.
Hættaá
stríði í
LIAMINE Zeroual, forseti Alsírs,
lofaði alsírsku þjóðinni í gær-
kvöldi að gengið yrði milli bols
og höfuðs á íslömskum skærulið-
um, sem hafa orðið rúmlega 200
manns að bana með hermdarverk-
um á hálfum mánuði. Hann lýsti
manndrápunum sem samsæri og
sagði erlend öfl standa á bak við
það.
„Ég fullvissa hina ástkæru als-
írsku þjóð um að Alsírstjórn er
staðráðin í að beijast gegn
hermdarverkahreyfingunum
þar til þeim hefur verið út-
rýmt,“ sagði Zeroual í 20
mínútna sjónvarpsávarpi.
„Þetta eru hópar glæpa-
manna, þjóðníðinga og mála-
liða, handbendi erlendra afla
sem notfæra sér villi-
mennsku þeirra í þágu er-
lendra hagsmuna," bætti
hann við. Hann nefndi þó
engin ríki eða samtök í
þessu sambandi.
Lýðræði boðað
Zeroual sagði að her-
foringjastjómin stefndi
að því að koma á lýð-
ræði en nefndi ekki hve-
nær efnt yrði til þing-
kosninga. Áður hafði
Liamine hann lofað að kosið yrði
Zeroual á fyrri helmingi ársins.
Blóðsúthellingarnar hófust árið
1992 eftir að herforingjastjórnin
aflýsti kosningum til að koma í
veg fyrir að flokkur heittrúaðra
múslima kæmist til valda. Síðan
hafa um 60.000 manns fallið.
37 drepnir á
tveimur dögum
Lýðræðis-
sinnar mót-
mælaí
Hong Kong
HÓPUR lýðræðissinna í Hong
Kong efndi í gær til mótmæla
vegna áforma kínversku stjórn-
arinnar um að skerða mannrétt-
indi íbúanna þegar breska ný-
lendan verður aftur hluti af Kína
1. júlí. Lýðræðissinnarnir líktu
þessum áformum við hreinsan-
irnar í kínversku menningarbylt-
ingunni 1966-76. Þeir voru með
tossahatta og spjöld um hálsinn
eins og fólkið sem ofsótt var í
menningarbyltingunni neyddist
til að bera þegar það var rekið
í hlekkjum um göturnar.
Kínverjar hafa ákveðið að láta
afnema nokkrar lagagreinar um
þegnréttindi og lög sem heimila
starfsemi stjórnmálaflokka og
friðsamleg mótmæli.
Reuter
Hreyfing bókstafstrúarmanna,
Vopnaði íslamski hópurinn (GIA),
hótaði að herða árásir sínar í föstu-
mánuði múslima, Ramadan, sem
hófst 10. janúar, og síðan hafa
rúmlega 200 manns beðið bana í
sprengjutilræðum í Algeirsborg og
grimmdarlegum árásum á þorp í
grenndinni.
Heimildarmenn í Alsír sögðu í
gær að skæruliðarnir hefðu drepið
15 óbreytta borgara, þeirra á
meðal tíu konur, í árás á bóndabæ
í fyrrinótt. Fórnarlömbin voru öll
úr einni fjölskyldu og skorin á
háls. íbúar í grenndinni sögðu að
tveir karlmenn hefðu sloppið en
særst alvarlega.
Óstaðfestar fréttir hermdu
einnig að 22 menn hefðu verið
drepnir með sama hætti í Blida-
héraði nóttina áður.
Konur komast að hjá Vínarfílharmómunni
Karlrembuvígið fallíð
r.nnHnn. Thp Dailv Tplpcrranh.
London. The Daily Telegraph.
EITT síðasta vígi karlrembunnar í Evrópu er fallið.
Stjórn Vínarfílharmóníunnar hefur neyðst til að láta
undan þrýstingi stjórnmálamanna og kvenréttinda-
hreyfinga og nema úr gildi 155 ára gamla reglu sem
bannar að konur leiki með hljómsveitinni.
Þessi stefna Vínarfílharmóníunnar hefur gert
mörgum gramt í geði, sérstaklega síðustu ár. Var
málið raunar orðið svo viðkvæmt að tilkynnt var um
breytinguna á austurríska þinginu en fráfarandi
menningarmálaráðherra landsins, Rudolf Scholten,
hefur átt í löngum samningaviðræðum við fulltrúa
hljómsveitarinnar, sem virðist að lokum hafa látið
undan vegna alþjóðlegs þrýstings. M.a. höfðu borist
hótanir frá kvennasamtökum í Bandaríkjunum um
að efna til mótmælaaðgerða er hljómsveitin hæfi
tónleikaferð sína þar í landi í mars.
Tákngervingur germanskrar karlmennsku
Þeir sem staðið hafa gegn breytingum hafa borið
því við að hljómsveitin sé tákngervingur germ-
anskrar karlmennsku. Hún var stofnuð árið 1844
og er síðust sinfóníuhljómsveita i Evrópu til að ráða
konur til starfa. Stjórnendur Berlínarfilharmóníunnar
þráuðust við fram á síðasta áratug.
Einn tónlistargagnrýnandi sá ástæðu til að lýsa
því yfir að tilkoma kvenna í hljómsveitina myndi
ekki breyta flutningi hennar hið minnsta, konur lékju
ekki öðruvísi á hljóðfæri en karlar. Konur hafa reynd-
ar komið fram með Vínarfílharmóníunni í örfá skipti,
þegar stjórnendur ríkisóperunnar í Vín, þar sem
hljómsveitin heldur oftast tónleika sína, hafa þrýst
á. Þegar Vínarfílharmónían, sem er rekin af einkaað-
ilum, boðar sjálf til tónleika hefur hún komið í veg
fyrir að konur komi fram.
Allnokkrir hljóðfæraleikarar Vínarfílharmóníunnar
hafa viðurkennt að konur séu ekki síðri hljóðfæraleik-
arar en karlar, en að tilkoma þeirra í hljómsveitina
muni eyðileggja bræðralag og vináttu hljóðfæraleik-
ara og sá fræjum vantrausts. Hljóðfæraleikararnir
eiga eftir að greiða atkvæði um málið og þrátt fyrir
að búist sé við að konurnar verði samþykktar, segj-
ast nokkrir ætla að beijast fram í rauðan dauðann.