Morgunblaðið - 25.01.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 45
FRÉTTIR
Leikja-
búðin
Míþríl
flytur
VERSLUNIN Míþríl flutti um
áramótin frá Laugavegi yfir á
Skólavörðustíg 5. Míþríl er
verslun spilamannsins þar sem
fæst allt það nýjasta í spuna,
borð- og skiptikortaspilum sem
völ er á í dag.
Fjölbreytt úrval er af leikj-
um í ýmsum styrkleikaflokk-
um. Sem dæmi má nefna spil
sem hlotið hafa titilinn bestu
spil ársins svo sem Roborally
1994, Dragon Dice 1995 og
einnig Magic The Gathering
sem kemur út á átta tungumál-
um. Eining eru seld í verslun-
inni blöð, bækur og tímarit svo
FRÁ versluninni Míþríl á Skólavörðustíg.
og teningar í öllum litum,
stærðum og gerðum.
Eigendur Míþríl eru Edward
Örn Jóhannesson og Sonja Ir-
ena Waltersdóttir. Verslunin
er opin alla virka daga frá kl.
10-18 og laugardaga kl.
12-15.
Kvenréttindafélag
Islands 90 ára
KVENRÉTTINDAFÉLAG íslands
verður 90 ára mánudaginn 27. jan-
úar. Af því tilefni stendur félagið
fyrir morgunverðarfundi á afmælis-
daginn og í eftirmiðdaginn verður
hátðíðardagskrá í Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavíkur.
„Morgunverðarfundurinn sem
haldinn verður í Skála, Hótel Sögu,
kl. 8.15-9.30 ber yfirskriftina:
Kosningar og lýðræði. Dr. Ólafur
H. Harðarson flytuir erindi þar sem
hann veltir því m.a. fyrir sér hvort
kjördæmaskipan okkar íslendinga
sé til þess fallin að styrkja lýðræð-
ið, hvort jafna eigi atkvæðisréttinn
á milli dreifbýlis og þéttbýlis, hvort
kjósandinn eigi að raða upp sínum
lista í kjörklefanum eða hvort eðli-
legra sé að stjórnmálaflokkarnir
hafi veg og vanda af uppröðun á
lista. Þá leitast Ólafur við að svara
því hvort það geti verið að kosn-
ingakerfið sé konum þrándur í
götu. Að loknu erindi Ólafs verða
umræður. Fundarstjóri verður
Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar. Að-
gangseyrir er 900 kr., morgun-
verður innifalinn. Fundurinn er öll-
um opinn.
Síðar um daginn eða kl. 17-18
verður haldin afmælishátíð félags-
ins í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir og Inga
Jóna Þórðardóttir flytja ávörp. Sýnd
verða atriði úr dagskrá Listaklúbbs
Þjóðleikhússins „Konur með
penna“. Sophie Schoonjans leikur á
hörpu og Arnbjörg Sigurðardóttir
og Berglind María Tómasdóttir,
nemendur Tónlistarskólans í
Reykjavík. flytja flautu-dúetta.
Þijár konur verða að þessu sinni
tilnefndar heiðursfélagar, þær Vig-
dís Finnbogadóttir, Sigríður Th.
Erlendsdóttir og Björg Einarsdóttir.
Félagar í Kvenréttindafélagi Is-
lands eru velkomnir á afmælishátíð-
ina,“ segir í fréttatilkynningu fé-
lagsins.
Gengið á reka
frá Bæjar-
skerjum að
Stafnesi
ÚTIVIST heldur áfram að ganga
á reka á vesturströnd Reykjanes-
skagans sunnudaginn 26. janúar.
í þessum áfanga verður gengið
með ströndinni frá Bæjarskeijum
að Stafnesi.
Á leiðinni verður minnt á hið
mikla landbrot af völdum sjávar
í gegnum aldirnar og hina hörðu
baráttu við náttúruöflin, þeirra
sem sóttu lífsbjörg sína til hans
á þessum slóðum.
Farið verður frá Umferðarmið-
stöðinni með rútu kl. 10.30, kom-
ið við á Kópavogshálsi, Bitabæ í
Garðabæ, Sjóminjasafninu í Hafn-
arfirði og kl. 11.15 Fitjanesti í
Reykjanesbæ.
Gangan hefst kl. 11.45 á Bæj-
arskeijum við Kirkjuklett og
gengið með strönd Bæjarskers-
hverfis, Fuglavíkurhverfis, eftir
Lindarsandi og strönd Hvalsnes-
hverfis að Stafnesi. Gefinn verður
kostur á að fara út í Eyktarhólma
og Másbúðahólma og komið verð-
ur við í Hvalneskirkju. Staðfróðir
heimamenn verða fylgdarmenn.
Suðurnesjamönnum verður ekið
til baka að Bæjarskeijum og Fitja-
nesti að göngu lokinni.
Minnsta tröll
í heimi
SÖGUSVUNTAN verður með
brúðuleiksýninguna Minnsta tröll
í heimi í dag, laugardag, kl. 14.30,
í Ævintýra-Kringlunni. Það er
Hallveig Thorlacius sem samdi
þáttinn og stjórnar brúðunum.
Leikstjóri er Helga Arnalds.
Þetta er saga um afar smáa
tröllastelpu. Hún er reyndar svo
smávaxin að hún sést vart með
berum augum. Hún lendir í alls-
konar vandræðum og jafnvel al-
varlegum lífsháska svo áhorfend-
ur verða oft að koma henni til
aðstoðar. Hallveig hefur ferðast
víða með þessa sýningu jafnt inn-
an lands sem utan. Sýningartími
er rúmar 30 mínútur og er miða-
verð 500 kr.
Ævintýra-Kringlan er barna-
gæsla og listasmiðja fyrir börn á
aldrinum 2-8 ára. Hún er stað-
sett á 3. hæð í Kringlunni og þar
geta viðskiptavinir Kringlunnar
skilið börnin eftir á meðan þeir
versla. Ævintýra-Kringlan er opin
14-18.30 virkadagaogkl. 10-16
laugardaga.
Lokapredikun í
guðfræðideild
BJARNI Randver Sigurvinsson
guðfræðinemi flytur í dag, laugar-
daginn 25. janúar, lokapredikun í
Háskólakapellunni. Athöfnin hefst
kl. 14 og eru allir velkomnir.
Sónata yfir
vatninu í
bíósal MÍR
KVIKMYNDIN Sónata yfir vatninu
verður sýnd sunnudaginn 26. jan-
úar kl. 16 í bíósal MIR, Vatnsstíg
10. Mynd þessi var gerð í Lettlandi
á áttunda áratugnum og voru leik-
stjórar Varis Brasla og Gunars
Tsilinskí en sá síðamefndi fer einn-
ig rneð eitt af aðalhlutverkunum.
í myndinni segir frá skurðlækn-
inum Rúdólf sem hyggst eyða leyfi
sínu í þorpi einu í Lettlandi þar sem
náttúrufegurð er mikil. Hann er
einn á ferð því að kona hans hafði
skömmu áður hafið sambúð með
öðrum manni og tekið son þeirra
með sér. Eina nóttina er læknirinn
vakinn af svefni og beðinn að vitja
sjúkrar dóttur kennarans í þorpinu,
Láru. Rúdólf skoðar telpuna og
telur nauðsynlegt að skera hana
upp þegar í stað. En í þorpsspítalan-
um er enginn skurðlæknir starfandi
svo að Rúdólf ákveður að fram-
kvæma aðgerðina sjálfur. Og þann-
ig bjargar hann lífi telpunnar. Á
heimleið frá sjúkrahúsinu segir
Lára lækninum að eiginmaður sinn
hafí orðið manni að bana í veiðiferð
og afpláni nú refsingu í fangelsi.
Tilfínningar þeirra hvort til annars
breytist.
Áðgangur að kvikmyndasýning-
unni er ókeypis og öllum heimill.
Lögin og hag-
fræðin í tengsl-
um við alnetið
ELSA á íslandi (European Law
Student’s Association), félag evr-
ópskra laganema, tekur á móti
Charles Evans frá Bandaríkjunum
þriðjudaginn 28. janúar, sem mun
halda fyrirlestur um lagasetningu
og hagfræðina í víðu samhengi við
alnetið.
Fyrirlesari verður Charles Evans,
yfírmaður upplýsingaþjónustu Atl-
as, hagrannsóknarstofnunar í
Bandaríkjunum (http://www.atlas-
fdn.org/), og forstöðumaður Chyd-
en.Net (http://www.chyden.net/).
Fyrirlestur Charles mun fjalla um
lögfræði og hagfræði í tengslum
við vilja almennings í alþjóðlegum
samskiptum. Hann mun fjalla um
hvernig hugverkaréttur á alnetinu
sé eingöngu mögulegur að hluta,
hvers vegna ekki sé hægt að stjóma
dreifingu á klámi og að hvaða marki
einkalíf sé fyrir borð borið á verald-
arvefnum.
Fundurinn verður frá kl.
12.10—13 í stofu 101 í Lögbergi,
Háskóla íslands, og er öllum opinn.
Fyrirlesturinn verður á ensku.
Brúðuleikhús
í Norræna
húsinu
DAGSKRA fyrir böm verður að
venju sunnudaginn 26. janúar kl.
14 í fundarsal Norræna hússins.
Að þessu sinni verður sýning á
brúðuleikhúsi undir stjóm Evu
Ljungar frá Helsingborg í Svíþjóð.
Sýningin er ætluð börnum á aldr-
inum 3-6 ára og er hún byggð upp
á einfaldan og leikrænan hátt. Leik-
ritið sem flutt verður heitir Hampus
og eggið og hefur Eva Ljungar sam-
ið það og gerir hún einnig allar leik-
brúðurnar. Eva Ljungar blandar
saman íslensku og sænsku í sýning-
unni og ætti að vera auðvelt fyrir
áhorfendur að fýlgjast með fram-
vindu sögunnar.
Tvær sýningar fyrir leikskóla
verða í Norræna húsinu föstudaginn
24. janúar og er þegar fullbókað á
þær sýningar. Aðgangur að sýning-
unni á sunnudag er ókeypis.
Tónlistarmessa
í Vídalínskirkju
EFNT verður til tónlistarmessu
með léttu ívafí í Vídalínskirkju í
Garðabæ sunnudagskvöldið 26.
janúar kl. 20.30.
Hljómsveit skipuð fjórum valin-
kunnum hljóðfæraleikurum sér um
allan undirleik: Gunnar Gunnars-
son, píanó, Sigurður Flosason,
saxafónn, Tómas R. Einarsson,
kontrabassi og Matthías M.D.
Hemstock, trommari.
Þorvaldur Halldórsson syngur
einsöng. Sr. Bjarni Þór Bjamason,
héraðsprestur, þjónar fyrir altari
og hugleiðingu flytur Lilja Hall-
grímsdóttir. Kór Laugarneskirkju
syngur. Hljómsveitin leikur létt lög
frá kl. 20. Athöfn fyrir alla fjöl-
skylduna og að henni lokinni verður
boðið upp á léttar veitingar.
Poppmessa í
Hjallakirkju
POPPMESSA verður haldin í
Hjallakirkju sunnudaginn 26. jan-
úar kl. 17. Þessi nýbreytni í helgi-
haldi í Hjallakirkju var tekin upp
nú síðasta haust og hafa þrjár
poppmessur verið síðan. Tónlistin
skipar þar stóran sess en í popp-
messum gefst fólki kostur á að
lofa Drottin í söng á óhefðbundin
hátt með hljómsveitarundirleik.
Markmiðið er að ná til sem flestra
með nýjungum í tónlistarflutningi
og söngvavali.
Allir velkomnir.
Bænavikan
Samkoma í
Fíladelfíu
SAMKIRKJULEGU bænavikunni
lýkur í kvöld að þessu sinni með
samkomu í Fíladelfíukirkjunni og
hefst hún kl. 20.30.
Ræðumaður kvöldsins er sr.
Hjalti Guðmundsson. Mikil og fjöl-
breytt lofgjörðartónlist verður flutt
eins og venja er í Fíladelfíu. Full-
trúar hinna ýmsu safnaða lesa ritn-
ingarorð.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Lýst eftir bíl
og vitni
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir bifreiðinni VF-126 sem er af
gerðinni Volkswagen-golf árgerð
Skautasvell innanhúss
í FRÉTT Morgunblaðsins í gær þar
sem sagt var frá nýju inniskauta-
svelli í Kolaportinu er sagt að þarna
sé í fyrsta skipti hægt að skauta
innanhúss. Þetta er ekki rétt heldur
var t.a.m. inniskautasvell starfrækt
í Skeifunni í kringum 1970. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Súlurit vantaði
í GREIN Ögmundar Jónassonar,
formanns BSRB, sem birtist í blað-
inu í gær, er vísað til súlurits sem
1994, ljósgræn að lit. Bifreiðinni
var stolið frá bifreiðastæði við
Borgarkringluna að kvöldi þriðju-
dagsins 21. janúars síðastliðins.
Einnig er lýst eftir sjónarvottum
að skemmdarverkum sem unnin
voru á bifreiðinni KR-495 á Sölv-
hólsgötu miðvikudaginn 8. janúar
sl. Vegfarandi sparkaði í bifreiðina
og hélt síðan leiðar sinnar. Atburð-
ur þessi gerðist um klukkan 13.
Rannsóknadeild lögreglunnar
hefur málin til rannsóknar.
Hallgrímskirkj a
Guðsþjónusta
á ensku
GUÐSÞJÓNUSTA á ensku verður
haldin í Hallgrímskirkju sunnudag-
inn 26. janúar kl. 14. Er hún ætl-
uð enskumælandi íbúum höf-
uðborgarsvæðisins sem og ferða-
fólki.
Sr. Karl Sigurbjörnsson annast
guðsþjónustuna, sr. Toshiki Toma
predikar og Hörður Áskelsson org-
anisti leikur á orgelið og stýrir
safnaðarsöng. Að guðsþjónustu
lokinni eru veitingar á boðstólum
í safnaðarheimili kirkjunnar.
fylgja átti. Vegna mistaka við
vinnslu greinarinnar féll það brott
og er því birt hér. Hlutaðeigendur
eru beðnir velvirðingar á mistökun-
um.
Reykingar 12-16 ára barna
í FRÉTT Morgunblaðsins í gær kom
fram að samkvæmt síðustu könnun
sem gerð hafi verið reyki 23,5%
barna á aldrinum 12-16 ára. Hið
rétta er að 8,1% bama á þessum
aldrei reykja, en reykingar meðal
þeirra sem eru að ljúka grunnskóla-
prófi hefur mælst um 20%.
Greidd dagvinnulaun á mánuði
Þús. 1. ársfjórðung 1996
160|-----------:---------------------—
20
Kjaraf. viðsk. og hagfr.,
Skrifstofu- Félag ísl. félagsvis.m., Skrifstofukarla Skrifstofukonur
hópur Stéttarf. lögfr. i rikisþj., alm. markaði alm. markaði
Félag háskólamanna
LEIÐRÉTT