Morgunblaðið - 25.01.1997, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Persónulegir
hagir þroskaheftra
Gög’num
eyttog
könnun
endurskoðuð
PALL Pétursson félagsmálaráðherra
segir að aðeins örfáir sérfræðingar
hafí séð svör úr könnun sem gerð
var á vegum Greiningar- og ráðgjaf-
arstöðvarinnar um hagi tvö hundruð
þroskaheftra einstaklinga. í könnun-
inni var safnað viðkvæmum persónu-
upplýsingum og hefur Tölvunefnd
úrskurðað að þeim skuli eytt. Páll
segir að gerð verði ný könnun með
endurskoðuðum spumingum. „Ég
geri ráð fyrir því að þeim spumingum
sem menn hafa fett fíngur út í verði
breytt. Ég mun beita mér fyrir því,
en það er verkefni fagmannanna.
Spurningamar verða síðan lagðar
fyrir Tölvunefnd áður en þær verða
notaðar," segir Páll.
Upprunalegu spumingamar voru
ekki lagðar fyrir nefndina fyrirfram,
enda hafði Greiningar- og ráðgjafar-
stöðin sérstaka heimild Tölvunefndar
frá árinu 1989 til skráningar upplýs-
inga varðandi verkefni stöðvarinnar.
„Það var ekkert sem fór úrskeiðis í
eftirlitinu. Þar var það mat manna
að stofnuninni væri heimilt að gera
þessa könnun í tilraunaskyni." Páll
segir að félagsmálaráðuneytinu hafi
borist gagnrýni á einstakar spum-
ingar í könnuninni og í framhaldi
af því hafi hún verið send Tölvunefnd
til umsagnar. Aðspurður hvort þetta
atvik muni hafa áhrif á starfshætti
við slíkar kannanir í framtíðinni, seg-
ir hann að Tölvunefnd verði spurð
ráða í öllum vafatilfellum.
Spurt um svitalykt og
sjálfsfróun
í könnuninni var meðal annars
spurt hvort viðkomandi tyggði mat
með opinn munn eða talaði með full-
an munn, hvort magi hans væri út-
stæður vegna líkamsstellingar eða
hvort hann væri útskeifur eða inn-
skeifur og hvort svitalykt legði úr
handarkrikum. Spurt var hvort við-
komandi færi með slúður um aðra,
hvort hann kenndi öðrum um eigin
mistök eða hagræddi sannleikanum
sér í hag. Einnig var spurt hvort
hann væri yfirmáta eggjandi í útliti
eða fasi og spurt var um sjálfsfróun.
Það var starfshópur, skipaður
þremur sérfræðingum af Greining-
arstöðinni og einum framkvæmda-
stjóra svæðisskrifstofu sem valdi
þjónustulykilinn, en hann er banda-
rískur að uppruna.
FRÉTTIR
Samskip hf. hætta beinum siglingum til N orður-Ameríku
Semja við Eimskip hf.
um fiutninga á leiðinni
Hvassviðri
áfram
HIN djúpa sunnanátt sem lét
til sín taka í fyrradag gekk
að mestu niður í fyrrinótt en
útlit er fyrir áframhaldandi
hvassviðri og éljagang á vest-
anverðu landinu í dag og á
morgun suðvestanátt. Búist
er við allt að 8 vindstigum og
vægu frosti.
Flugsamgöngur voru nokk-
uð stopular í gær en ekkert
var flogið í fyrradag sökum
óveðurs. Þó var flogið sam-
kvæmt áætlun milli Reykjavík-
ur og Akureyrar og tókst að
flytja alla þá sem biðu flugs.
Á hinn bóginn þurfti enn að
fresta flugi til Vestfjarða og
Vestmannaeyja í gær og ann-
arri af tveimur flugferðum til
Egilsstaða.
Mjög slæmt ferðaveður var
víða á þjóðvegum samkvæmt
upplýsingum Vegagerðarinn-
ar í gær, snjókoma og skaf-
renningur var á öilu vestan-
og norðvestanverðu landinu
og stórhríð og hvassviðri á
Holtavörðuheiði. Allar heiðar
á Vestfjörðum voru ófærar.
SAMSKIP hf. hafa hætt beinum
siglingum eigin skips til og frá
Bandaríkjunum og hafa samið við
Eimskip um gámaflutninga á þess-
ari leið. Eftir sem áður munu Sam-
skip þó flytja vörur til Bandaríkj-
anna í gegnum Evrópu í sam-
starfi við danska skipafélagið
Maersk. Með samningi Eimskips
við Samskip og nýgerðum flutn-
ingssamningi við Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna fækkar skipum
íslensku skipafélaganna í beinum
siglingum milli íslands og Amer-
íku úr fjórum í tvö.
Gengið var í gær frá samkomu-
lagi þess efnis að Eimskip tæki
að sér gámaflutninga fyrir Sam-
skip á milli íslands og Norður-
Ameríku, bæði frystar afurðir og
almenna vöru. í fréttatilkynningu
frá Samskipum hf. segir að með
þessum hætti sé rekstrarhag-
kvæmni á leiðinni aukin og þjón-
usta við farmflytjendur bætt því
ferðum félagsins milli íslands og
Ameríku sé fjölgað. Auk þess er
samstarfssamningur í gildi milli
Samskipa og hollenska skipafé-
lagsins Van Ommeren um flutn-
inga á sömu siglingaleið.
Aukin hagræðing
Eimskip er með tvö skip, Goða-
foss og Áltona, í hálfsmánaðar-
legum siglingum til Norður-
Ameríku. Þórður Sverrisson, for-
stöðumaður flutningasviðs Eim-
skips, segir að með samkomulagi
félaganna náist það markmið að
auka hagkvæmni í flutningum
með fækkun skipa og betri nýt-
ingu þeirra. Einnig efli þetta sam-
komulag áætlunarsiglingar milli
íslands og Bandaríkjanna og
muni styrkja samkeppnisstöðu
íslendinga vestan hafs en rétt sé
að hafa í huga að aðeins eitt ann-
að skipafélag á Norðurlöndum
haldi nú uppi beinum áætlunar-
siglingum milli heimalandsins og
Ameríku.
Við gerð samnings af þeim toga,
sem hér um ræðir, vaknar sú
spuming hvort ekki sé hætta á
minnkandi samkeppni og hækkun
farmgjalda á skipaleiðinni. Þórður
segir að svo þurfi alls ekki að vera.
Ekki stefnt að hækkun
farmgjalda
„Þegar þessi mál eru rædd er
rétt að hafa í huga að dregið hef-
ur úr flutningum til Bandaríkjanna
að undanfömu og nýting skipanna
hefur verið léleg. Það er því rök-
rétt að íslensku skipafélögin reyni
að hagræða á þessari leið eins og
nú er að gerast. í þessu felst ha-
græðing og þannig tekst okkur
vonandi að komast hjá því að
hækka farmgjöldin. Með því að
gera slíkan samning um gáma-
flutninga við Samskip er verið að
tryggja að samkeppni verði áfram
fyrir hendi á þessari skipaleið."
Ekki náðist í Ólaf Ólafsson, for- I
stjóra Samskipa hf., í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Golli
FARÞEGAR á leið frá Akureyri komust leiðar sinnar í gær til Reykjavíkur með flugi.
Póstur og sími hf.
Vinni ekki
hjá keppi- |
nautumíár 1
NOKKRIR starfsmenn Pósts og síma
hf., hafa skuldbundið sig í ráðningar-
samningi, sem gerður var vegna
rekstrarbreytingar Pósts og síma, til
að hefla ekki störf hjá keppinautum
í a.m.k. eitt ár.
Guðmundur Bjömsson, forstjóri
Pósts og síma hf., segir að ekki sé j
um marga einstaklinga að raeða.
Slíkir samningar hafi einkum verið ,
gerðir við stjómendur og háskóla- |
menntaða starfsmenn.
Guðmundur sagði starfsmennina
ekki hljóta sérstaka umbun í launum
fyrir ákvæðið enda sé það aðeins
hluti af ráðningarsamningum þeirra.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvemig tekið verði á því ef starfs-
menn gerast brotlegir við ákvæðið-
Guðmundur segir að enginn hafi
hætt störfum enn, enda ekki nema
rúmar þijár vinnuvikur liðnar síðan 1
samningar tóku gildi. |
Hæstiréttur fellir dóm í máli þar sem deilt var um embættísverk yfirlögráðanda
Sýkna vegna glataðs
eignarhlutar í íbúð
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað ís-
lenska ríkið af kröfu pilts, sem
krafðist skaðabóta á þeirri for-
sendu að mistök starfsmanna bæj-
arfógetaembættanna í Kópavogi
og á Seltjamamesi hefðu leitt til
þess að hann glataði helmings
eignarhlut sínum í íbúð. Héraðs-
dómur hafði dæmt manninum bæt-
ur, en ríkið áfrýjaði þeirri niður-
stöðu.
Pilturinn eignaðist árið 1975
helmingshlut í íbúð í Kópavogi á
móti móður sjnni við skiínað for-
eldra sinna. Árið 1982 seldu þau
mæðgin íbúðina og fest vom kaup
á húsi á Seltjamamesi. Móðirin
og þáverandi eiginmaður hennar
óskuðu heimildar bæjarfógeta svo
pilturinn, sem var ekki fjárráða,
mætti selja sinn hlut og var tekið
fram að hlutur hans í nýju fast-
eigninni yrði hlutfallslega hinn
sami og í þeirri gömlu. Dómsmála-
ráðuneytið kvittaði upp á leyfið og
setti það skilyrði að eignarhlutur
piltsins yrði skýrt afmarkaður við
afsalsgerð í hinni nýju eign.
Piltsins var getið sem seljanda
íbúðarinnar í Kópavogi í maka-
skiptasamningi, en hans var hins
vegar ekki getið sem kaupanda
nýju eignarinnar í afsali. Síðar
skildu móðir hans og stjúpi og
móðirin keypti minni íbúð. Þar var
piltsins heldur ekki getið sem eig-
anda. Móðirin varð að selja þá íbúð
og dugði andvirði hennar ekki fyr-
ir skuldum. Pilturinn hafði með
þessum hætti misst eignarhlut
sinn.
Sýnt af sér vanrækslu
Pilturinn byggði bótakröfu sína
á því, að starfsmenn viðkomandi
bæjarfógetaembætta hafi sýnt af
sér vanrækslu með því að þinglýsa
athugasemdalaust makaskiptaaf-
sali, án þess að gæta þess að báð-
ir eigendur eldri eignarinnar yrðu
skráðir fyrir hinni nýju. Þinglýs-
ingardómari hefði átt að sjá mis-
ræmið milli afsalsins og leyfis
ráðuneytisins. Þá hefði einnig átt
að ganga eftir því, að skilyrði
dómsmálaráðuneytisins væri upp-
fyllt.
Héraðsdómur taldi að röð mis-
taka hefði orðið til þess að piltur-
inn glataði að fullu andvirði eignar-
hluta síns í íbúðinni í Kópavogi.
Frumorsök þess lægi hjá móður
hans, fyrrverandi eiginmanni
hennar og lögmanni sem liðsinnti
þeim. Hins vegar hefði mátt koma
í veg fyrir tjónið ef þeir starfs-
menn, sem fjölluðu um málið og
störfuðu á ábyrgð ríkisins, hefðu
sýnt eðlilega aðgæslu. Vildi hér-
aðsdómur bæta piltinum tjónið.
Hæstiréttur féllst ekki á þetta
sjónarmið. í niðurstöðum hans er
bent á, að fram til 1. júlí 1992
hafí þinglýsingarstörf verið
dómsathafnir og samkvæmt þá-
gildandi lögum ekki hægt að höfða
skaðabótamál fyrir héraðsdómi
gegn þinglýsingardómurum. Því
bæri að vísa málinu frá og kæmu
málsástæður piltsins, um meinta
saknæma háttsemi þinglýsingar-
dómaranna, ekki til álita.
Þinglýsingu haldið leyndri
Hæstiréttur tók hins vegar af-
stöðu til meintra saknæmra mis-
taka yfirlögráðandans á Seltjamar-
nesi. Bent er á að leitað hafi verið
samþykkis yfirlögráðandans á Sel-
tjamamesi með bréfí 15. júní 1984.
Beiðninni hafi fylgt makaskipta-
samningur frá 5. janúar 1982, þar
sem réttur piltsins hafi verið
tryggður og kveðið á um samþykki
dómsmálaráðuneytisins. „Því var
aftur á móti haldið leyndu, að 2-
maí 1983 hafði verið þinglýst á
Seltjamamesi afsali, sem hafði aðra
skilmála en samningurinn," sagði '
Hæstiréttur og taldi samþykki yfir-
lögráðanda hafa verið gefið í trausti 1
þess, að réttur piltsins væri tryggð-
ur og að staðið yrði við þau skil-
yrði, sem hann og dómsmálaráðu-
neytið settu. „Yfirlögráðanda bar
ekki við svo búið að hafa frum-
kvæði að því, að skilyrðunum yrði
framfylgt, og verður ekki talið, að
hann hafi sýnt af sér háttsemi, sem
baki áfrýjanda bótaskyldu,“ sagði
Hæstiréttur og sýknaði ríkið.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar- i
dómaramir Haraldur Henrysson,
Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur
Torfason, Hrafn Bragason og Pét-
ur Kr. Hafstein. Hjörtur skilaði
sératkvæði og vildi gera ríkinu að
bæta piltinum skaðann, á þeirri
forsendu að mistök hafi orðið við
þinglýsingu afsala, sem vörðuðu
hagsmuni piltsins og brestur hafi
orðið á þvi trausti, sem yfirlögráð-
andi á Seltjarnarnesi virtist hafa ;
lagt á rétta framkvæmd þinglýs- 1
ingar vegna þeirra hagsmuna. J