Morgunblaðið - 25.01.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 49
I DAG
BRIPS
llmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
„ÉG ER með blaðaspil
handa þér.“ Rétt áður en
spilamennska hófst hjá
Bridsfélagi Reykjavíkur á
miðvikudagskvöldið, kom
kunningi dálkahöfundar að-
vífandi og dró upp úr vasa
sínum útkrotað umslag með
kunnuglegum táknum: „Þú
spilar fjóra spaða og færð
út tígulníu.":
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ Á85
y K9
♦ 54
♦ Á107632
Vestur
♦ D102
▼ ÁG87
♦ 93
♦ K985
Austur
♦ G3
▼ 642
♦ ÁDG1086
♦ D4
Suður
♦ K9764
y D1053
♦ K72
♦ G
Vestur Norður Austur Suður
Pass
Pass 1 lauf 3 tíglar Dobl*
Pass 4 lauf Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
úttekt
„Austur tekur á ásinn og
spilar drottningunni til
baka. Þú átt slaginn á kóng
og spilar strax hjarta á
níuna. Hún heldur. Þá hjar-
takóng, sem vestur tekur
og spilar laufi. Ásinn upp
og lauf trompað. Og nú er
stóra stundin runnin upp:
Þú spilar tígli.“
Norður
♦ Á85
y -
♦ -
♦ 10763
Vestur
♦ D102
y gs
♦ -
♦ K9
Austur
♦ G3
y 6
♦ G1086
♦ -
Suður
♦ K976
¥ D10
♦ 7
♦ -
„Til að spara tíma lagði
ég upp í þessari stöðu. Hvað
heitir þessi kastþröng?“
„Fáðið ykkur sæti,“
sagði keppnisstjórinn og
umslagið fór í vasann. Þeg-
ar færi gafst var staðan
skoðuð betur.
Ef vestur hendir laufí í
tígulsjöuna, trompar sagn-
hafi, tekur spaðakóng og
ás, trompar lauf og spilar
spaða. Vestur er inni og
verður að spila hjarta frá
gosanum upp í DÍO.
Ef vestur hendir hjarta,
fellur gosinn undir drottn-
inguna, en hvað gerist ef
hann stingur með spaðatíu?
Þá er tvennt til í dæminu:
(1) Tían er yfirtrompuð með
ás, spaða spilað á kóng,
hjartadrottning tekin og
hjarta trompað með áttu
Vestur fær aðeins einn slag
á tromp. (2) Laufi hent.
Vestur gerir best í því að
spila litlu laufi, sem austur
trompar með gosa. Suður
yfirtrompar, svínar spaða-
áttu, trompar lauf og spilar
spaða. Borðið stendur.
. aðbíða.
™ R«fl. U 8 Pat. OH. — aN ritfits roservod
(c) 1096 Los Angeles Times Sytidicale
Arnað heilla
O/ÁÁRA afmæli. í dag,
OUlaugardaginn 25.
janúar, er áttræður Björg-
vin Ingimundarson, Há-
teigi, Garði. Eiginkona
hans er Bergþóra Ólafs-
dóttir. Þau eru að heiman
á afmælisdaginn.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót o.fl. lesend-
um sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast
með tveggja daga
fyrirvara virka daga
og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og eða
nafn ábyrgðar-
manns og símanúm-
er. Fólk getur hringt
í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329
eða sent á netfangið:
gusta@mbl.is. Einn-
ig er hægt að skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
^fiÁRA afmæli. í dag,
J Uföstudaginn 24. jan-
úar, er sjötugur Bjarni
Hólm Bjarnason, fyrrver-
andi lögreglumaður í
Reykjavík. Hann tekur á
móti gestum um borð í
skemmtiskipinu Árnesi sem
liggur við Ægisgarð á
morgun laugardaginn 25.
janúar milli kl. 20 til 22.
A /VÁRA afmæli. Svava
flUBjörk Benedikts-
dóttir, aðalbókari á Hótel
Sögu, Bjarkargötu 10,
Reykjavík, er fertug í dag,
laugardaginn 25. janúar.
Farsi
Q1903F»rou«Cjrtoon«/DWitiu>»dt^U*»fMlPnM$)fmfati
. 11-22
e/skctn. -frétttr-fNá hofunj
u/'<f efni á, ab Jaxupa, nýjan ó/6.v
COSPER
NÚ heldur Jón Árnason fyrirlestur um reynslu sína
af liausaveiðurum í S-Ameríku
STJÖRNUSPA
eftir Frantes Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt auðvelt með að
tjá þig, bæði íræðu
og riti.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl)
Þú gætir keypt þér eitthvað
í dag, sem þú hefur gaman
af, án þess að það þurfi að
kosta mikið. Þú nýtur þess.
Naut
(20. apríl - 20. maí) (tfö
Einhver ágreiningur getur
komið upp milli ættingja og
spillt samkomulagi innan
fjölskyldunnar. Reyndu að
miðla málum.
Tvíburar
(21. mai- 20. júní)
Ruglaðu ekki saman vináttu
og fjármálum. Haltu þessum
málum vel aðskildum ef þú
vilt eignast trausta vini.
Krabbi
(21. júni - 22. júlí) >“18
Varastu náunga, sem segir
ekki allan sannleikann, en
reynir að notfæra sér góðvild
þína í vafasömum tilgangi í
dag.
Ljón
(23. júlf — 22. ágúst)
Reyndu að koma fjármálun-
um í betra horf og eyddu
ekki peningum í óþarfa.
Mundu einnig að greiða
gamlar skuldir..
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Láttu það ekki á þig fá þótt
erfiðlega gangi að leysa smá
vandamál í bili. Láttu það
bíða betri tíma og njóttu frí-
stundanna.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú hefur farið hljótt með
fyrirætlanir þínar, en nú er
árangur kominn í ijós og þér
er óhætt að ræða gang mála
við ástvin.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Góð sambönd skila þér mikil-
vægum árangri í viðskiptum,
og nú væri vel við hæfi að
halda upp á daginn með ást-
vini.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú lýkur störfum snemma
og nýtur svo frístundanna
með vinum. Einhver gerir
þér tilboð, sem erfitt er að
neita.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Þú hefur í mörgu að snúast
í dag, og félagslífið lofar
góðu. Gættu þess að skilja
ekki góða skapið eftir heima
í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) dk
Þú gætir keypt fallegan hlut
til heimilisins í innkaupum
dagsins. Láttu ekki ágrein-
ing útaf smámunum spilla
vinagleði.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) £
Þú ættir ekki að tefla vinn-
unni í tvýsýnu með því að
fara í ótímabært ferðalag.
Reyndu fyrst að ljúka áríð-
andi skyldustörfum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Útsala
Opið í dag frá kl. 10-16
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561-5077
ARIÐANDI
TILKYNNING
Vegna námsstefnu á vegum
Félags fasteignasala er
hugsanlegt að fasteignasölur
verði almennt lokaðar í dag,
þrátt fyrir áður auglýstan
opnunartíma.
Viðskiptavinir fasteignasala eru
beðnir velvirðingar á
óþægindum sem kunna að
hljótast af þessu.
(r
Félag Fasteignasala
Það verður líf og fjör á kompudögum í Kolaportinu um helgina.
Geiri kominn með nýjan skóburstunarstól:
Skautasvell og kompu-
dagar í Kolaportinu
Um helgina opnar 200 fm inniskautasvell úr plasti við hliðina á mark-
aðstorgi Kolaportsins. Það eru líka kompudagar um helgina og því
mikið úrval af hinu sívinsæla kompudóti. Matvælamarkaðurinn verður
sífellt vinsælli og stór hópur fólks sem verslar þar um hverja helgi.
Pálmi með úrval af fiski og
Sigrún nýja gulrótartertu
Pálmi í Fiskbúðinni okkar er með
úrval af fiski og Sigrún kökukona
er með formkökur, kökur, snúða og
kynnir nýja gulrótartertu og amer-
íska sæluköku um helgina.
Það er hægt að fara á skauta
á plastsvelli í Kolaportinu
Hver tími kostar 200 kr. og upp-
lagt að mæta um helgina og prófa
óvenjulegt plastsvell. Svellið verður
opið laugardaga og sunnudaga kl.
11-17 og virkadaga kl. 16-21.
Kompudagar um helgina
Það eru kompudagar um helgina
og þar gefst öllum sönnum kolaport-
urum kærkomið tækifæri til að
gramsa í hinu sívinsæla kompudóti.
Dóri skóari smíðar lykla og
Geiri burstar skó
Dóri skóari kemur með lykla-
smfðavélina og Geiri er kominn með
nýja skóburstunarstólinn.
Skart Bára í Liljunni er
komin aftur í Kolaportið
Hin eina sanna Bára í Liljunni er
mætt með alla sína fínu kvennvöru
á ótrúlega hagstæðu verði.
Láttu sjá þig og upplifðu hina
einu sönnu Kolaports markaðs-
stemmningu um helgina. Markaðs-
torgið er opið laugardag og
sunnu-dag kl. 11:00-17:00.