Morgunblaðið - 25.01.1997, Side 13

Morgunblaðið - 25.01.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 13 FRÉTTIR Endurskoðun á leiðakerfi Strætisvagna Reykjavíkur Byggt á ábendingum farþega AÐ SÖGN Lilju Ólafsdóttur forstjóra Strætisvagna Reykjavíkur, byggja tillögur vinnuhóps SVR að breyting- um á leiðakerfi vagnanna á ábend- ingum sem borist hafa frá því nýja kerfið var tekið upp. Meðal nýjunga í tillögunum er ný leið, leið 9, sem aka mun frá Ártúns- holti um Skútuvog, Vatnagarða að Laugarnesi og til baka um Sund- laugaveg, Sæbraut og að Ártúns- holti. Þá er gert ráð fyrir að leið 1 flytji endastöðina frá Lækjartorgi að Hlemmi og aki þaðan um Bergþóru- götu að Skóiavörðustíg, Bergstaða- stræti, Barónsstíg og að Egilsgötu. Ekki miklar breytingar „Breytingatillögurnar eru byggð- ar á grundvelli ábendinga, sem safn- að hefur verið saman,“ sagði Lilja. „Mér líst vel á þessar tillögur en það kann að vera að við gerum einhverj- ar tilfærslur á þeim.“ Tiliögurnar hafa verið lagðar fyrir stjórn SVR og er gert ráð fyrir að þær verði þar til umfjöllunar fram eftir febr- úar. Sagði Lilja að gert væri ráð fyrir að breytingarnar tækju gildi í apríl eða maí næstkomandi. „Þetta eru ekki miklar breytingar," sagði hún. „Þær eru svipaðar og gerðar hafa verið öðru hverju á leiðakerfinu á undanförnum árum og verða þær rækilega kynntar áður en þær koma til framkvæmda án þess þó að boðað verði til borgarafunda." Að sögn Baldurs Guðmundssonar varðstjóra SVR, en hann er einn þeirra sem starfað hafa í leiðakerfis- hópnum, tóku strætisvagnabílstjórar tillögunum almennt vel á kynningar- fundunum. „Vagnstjórar á einstaka leiðum mölduðu aðeins í móinn og voru óánægðir með breytingar á sín- um leiðum, en yfirleitt var vel tekið í tillögurnar," sagði hann. Baldur sagði að ekki væri gert ráð fyrir miklum breytingum á leiðum en lagt væri til að ný leið, leið 9, færi úr Ártúni niður í Vogahverfi og Sunda- höfn á morgnana og aftur síðdegis, neðan að og uppeftir. Á leið 6 og á leið 14 væri samkvæmt tillögunum gert ráð fyrir að bæta við einum vagni. „Það datt engum í hug að ekki yrðu hnökrar á kerfinu sem nú er ekið eftir,“ sagði Baldur, þegar hann var spurður hvort tillögurnar sýndu ekki að núverandi kerfi væri gallað. „Það er ýmislegt, sem þarf að laga og þá aðallega tímasetningar. Við eigum við þetta vandamál að stríða að láta vagnana hittast á skiptistöðv- unum. Því er hægt að ná á annarri leiðinni en verra að ná því á báðum leiðum þegar annar vagninn ekur lengri leið. Það hefur gengið erfið- lega hjá okkur að stilla þetta saman en ef það tekst þá verða ferðir á 10 mínútna fresti úr austustu hverf- unum,“ sagði hann. Leið 3 hættir að aka um N eðra-Breiðholt Meðal breytinga, sem leiðakerfis- hópurinn leggur til að komi til fram- kvæmda má nefna að leið 3 hættir akstri um Neðra-Breiðholt. Ekið verður um Sléttuveg í báðum ferðum en íbúar þar hafa óskað eftir að leið 3 aki þar um og er gert ráð fyrir að ekið verði að Sjúkrahúsi Reykja- víkur þegar farið er frá Sléttuvegi. Leið 3 mun ekki aka um Hvassaleiti samkvæmt ósk íbúanna, sem lagt hafa fram undirskriftalista með ósk um að vagninn hætti að aka þar um. Til að koma til móts við íbúa í Ból- staðarhlíð mun leið 3 aka um Ból- staðarhlíð-Stakkahlíð í báðum ferð- um. Tillagan gerir einnig ráð fyrir að leið 3 aki um Túngötu-Hofsvalla- götu í stað Suðurgötu-Hringbraut en lítill fjöldi farþega hefur verið á þeirri leið sem nú er ekin eða um Hringbraut-Suðurgötu. Bein ferð á Kringlusvæðið Lagt er til að leið 5 hætti að aka um Hjarðarhaga-Dunhaga-Birkimel og Hringbraut en aki þess í stað eftir Suðurgötu í Skeijafjörð. Auk þess er lagt til að leið 5 hætti að aka Sléttuveg en þess í stað verði komið til móts við íbúa í Norðurbæn- um og ekið um Bústaðaveg-Kringlu- mýrarbraut-Listabraut-Háa- leitisbraut-Bústaðaveg. Þar með verður komin bein ferð á Kringlu- svæðið um Grensás. Lagt er til að leið 6 aki Flókagötu í stað Háteigsvegar og komi þannig á betri þjónustu við Kjarvalsstaði en íbúar við Háteigsveg hafa lýst óánægju vegna aukinnar umferðar um götuna. Tekið er fram að tillag- an sé háð því að hægt verði að koma fyrir viðkomustað á leiðinni að Hlemmtorgi. Auk þess er lagt til að leið 6 þjóni Bakkahverfi í Neðra- Breiðholti á leið sinni að Mjódd. Leið 7 að Fossvogskapellu Lagt er til að leið 7 aki að Foss- vogskapellu á austurleið en nokkuð hefur verið um að óskað hafi verið eftir þessari breytingu vegna þeirra sem eiga leið í kirkjugarðinn, segir í tillögu nefndarinnar. Fyrirvari er gerður um að ekki verði sett hraða- hindrun á Suðurhlíð eins og ráðgert er. Ef haldið verður fast við þá ákvörðun er lagt til að vagnarnir aki Bústaðaveg í báðum ferðum án þess að fara í Suðurhlíðar. Tillögurn- ar gera einnig ráð fyrir að leið 7 aki um Streng-Straum og Breið- höfða í Árbæjarhverfi í stað Höfða- bakka-Bíldshöfða. Jafnframt er gert ráð fyrir að akstur á leið 14 breytist þannig að ekið verði um Strandveg- Vættarborg-Mosaveg að Gullengi í stað Borgarvegs. Auk þess er lagt til að leið 14 aki um Hallsveg og Fjallkonuveg í stað Hallsvegs og Strandvegs. Islenskir söfnunar- kassar ekki skilað árs- reikningum ÍSLENSKIR söfnunarkassar sf., sem er í eigu Rauða kross Ís- lands, Slysavarnafélags íslands, SÁÁ og Landsbjargar, hafa ekki skilað ársreikningum til dóms- málaráðuneytisins, en sex mánuðir eru liðnir frá lokum reikningsárs- ins. Dómsmálaráðuneytið hyggst skrifa félaginu bréf og ganga eft- ir reikningunum á næstunni. Ekki upplýsingar um veltu Forráðamenn íslenskra söfnun- arkassa eru í útlöndum og fengust því ekki upplýsingar um veltu þeirra á síðasta ári. íslenskir söfn- unarkassar starfa samkvæmt leyfl frá dómsmálaráðuneytinu. Ráðu- neytið hefur ekki skipað endur- skoðanda með fyrirtækinu. Tekjur af Gullnámu Happdrætt- is Háskóla íslands eru ekki sér- staklega sundurliðaðar í ríkis- reikningi. Forsvarsmenn Happ- drættisins eru einnig í útlöndum, á ráðstefnu um happdrættismál í Svíþjóð. Hagnaður Happdrættis Háskóla íslands á árinu 1995 var 342 milljónir króna. Bann ekki á dagskrá Spilakassar hafa verið bannaðir í Svíþjóð á þeirri forsendu að þeir séu undirrót margvíslegra félags- legra vandamála. Þegar Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra var spurður hvort slíkt gæti komið til greina hér á landi, sagði hann að tiltölulega skammt væri síðan Al- þingi samþykkti sérstök lög um slíka starfsemi eftir mikið fiaðra- fok. „Það hefur því ekki verið á dag- skrá að endurskoða þau lög. En við erum alltaf til viðræðna um þessi álitaefni sem ég held að menn geri sér alveg grein fyrir hver eru,“ sagði Þorsteinn. / Sigurgeir Jónasson SÖNGBRÆÐURNIR Hallgrímur Þórðarson, til vinstri, og Ing- var Sigurjónsson, sem hafa sungið saman í kórum í yfir 50 ár. Miðstjórnarmaður í ASÍ í sexmannanefnd ASI sver af sér störf fulltrúans Hafa sung- ið saman í 50 ár Vestmannacyjum. Morgunblaðið. SÖNGBRÆÐURNIR Hallgrím- ur Þórðarson og Ingvar Sigur- jónsson, 71 árs jafnaldrar og fermingarbræður, sem syngja bassaraddir í Kór Landakirkju í Vestmannaeyjum hafa sungið saman í kórum í yfir 50 ár. „Við Ingvar erum búnir að syngja í kórum samtals í rúm 100 ár,“ sagði Hallgrímur hlæj- andi er Morgunblaðið hafði samband við hann. Hann sagð- ist hafa byrjað að syngja með Karlakór Vestmannaeyja árið 1945 og ári seinna hefði Ingvar gengið til liðs við Karlakórinn. Upp frá þeim tíma hefðu þeir verið saman í kórsöng og væru enn að. Úr karlakórnum lá leið þeirra söngfélaganna í Samkór Vestmannaeyja og sungu þeir þar um árabil en eftir eldgosið á Heimaey fóru þeir að syngja með Kór Landakirkju og hafa gert síðan. Hallgrímur sagði að söngurinn væri áhugamál sem þeir hefðu átt sammeigin- legt og kórstarfið væri ákaf- lega skemmtilegt þó svo að það væri mjög krefjandi og mikil vinna að syngja í kirkjukór. „Það hlýtur nú að fara að síga á seinnihlutann í þessu hjá okkur úr þessu en meðan við höfum röddina í lagi og gaman af því sem við erum að gera þá höldum við trúlega eitthvað áfram,“ sagði Hallgrímur. FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð- herra hefur skipað Björn Snæbjörns- son, formann verkalýðsfélagsins Einingar og miðstjórnarmann og sambandsstjórnarmann í ASÍ í sex- mannanefnd landbúnaðarins. Mið- stjórn ASÍ sendi á fimmtudag frá sér yfirlýsingu þar sem segir að Björn sé ekki talsmaður sambands- ins í landbúnaðarmálum og störf hans í nefndinni séu á ábyrgð hans sjálfs og þess ráðherra sem skipaði hann. Björn Snæbjörnsson segist sjálfur hafa setið á fundinum og greitt þessari tillögu atkvæði sitt. Sambandsstjórn ASÍ samþykkti í nóvember sl. að draga fulltrúa sína úr öllum nefndum landbúnaðarins vegna óánægju með störf nefnd- anna. Þar á meðal var sexmanna- nefnd og nú hefur viðskiptaráðherra skipað Björn Snæbjörnsson sem full- trúa neytenda í nefndina í það sæti sem ASÍ dró sinn fulltrúa úr. „Eg var á þessum fundi, greiddi tillögunni atkvæði og fagnaði því að hún skyldi koma fram því að ég hef alltaf sagt að ég væri óháður öllum sem neytandi þarna inni þann- ig að það fer ekki á milli mála,“ sagði Björn Snæbjörnsson í samtali við Morgunblaðið. Björn sagði að yfirlýsingin mundi ekki hafa áhrif á störf sín í sexmannanefnd. „Þar er ég inni sem neytandi og óháður Al- þýðusambandinu eða nokkru því sem ég er að starfa við. Það var leitað til mín sem einstaklings og ég mun vinna eftir minni samvisku þarna inni.“ Björn var spurður hvort seta mið- stjórnar- og sambandsstjórnarmanns í sexmannanefndinni drægi ekki úr áhrifamætti þeirrar aðgerðar ASI að draga fulltrúa sinn úr nefndinni. Hann sagði að í ASÍ væru mörg þúsund manns. „Eg hef ekki trú á að allir séu sammála þar inni en það hefur ekki borið mikið á milli manna innan miðstjórnarinnar.“ Um það hvort hann hefði verið ósammála þeirri ákvörðun sem sam- bandsstjórn ASI tók í nóvember sagði Björn að hann hefði setið þann fund og hann hefði lagt til að málinu yrði frestað í eitt ár. „Hin tillagan gekk lengra og var tekin fyrir áður. Eg vildi sjá hvernig málin þróuðust og fresta þessu í eitt ár en aðrir félagar mínir voru ekki sammála mér um það. Þetta var lýðræðisleg ákvörðun."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.