Morgunblaðið - 25.01.1997, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Mótmæli í Serbíu
Samið um
svæðissj ónvarp
Belgfrad. Reuter.
Reuter
„Matsu“ heimsækir Taiwan
YFIRMAÐUR ríkissjónvarps
Serbíu, sem sósíalistar stýra, og
leiðtogar stjórnarandstöðunnar í
bænum Kragujevac náðu í gær
samkomulagi um stjórn svæðis-
sjónvarpsstöðvarinnar þar. „Við
náðum málamiðlun á fundi okkar
í dag, en hún miðar að því að
draga úr spennu og bæta ástandið
í Kragujevac," sagði talsmaður
stjórnarandstöðunnar, Aca Ra-
dosavljevic.
Geysileg spenna hefur verið í
borginni og náði hún hámarki á
fimmtudag þegar flokkur sósíal-
ista neitaði að láta af hendi stjórn
svæðissjónvarps og -útvarps í kjöl-
far sigurs stjórnarandstöðunnar í
bæjar- og sveitarstjórnarkosning-
um í nóvember.
JESSE Helms, þingmaður á
Bandaríkjaþingi og formaður ut-
anríkismálanefndar öidungadeild-
arinnar, líkti heimsókn utanríkis-
ráðherra Kanada, Lloyds Axwort-
hys, tii Kúbu í þessari viku við
friðþægingarför Nevilles Cham-
berlains, forsætisráðherra Bret-
lands, á fund Adolfs Hitlers, kansl-
ara Þýskalands, árið 1938.
Helms gagnrýndi Kanadamenn
harkalega eftir að hann hafði ver-
Varað við
bjartsýni
vegna lyfja-
blöndu við
alnæmi
BANDARÍSKI vísindamaður-
inn David Ho, sem hafa verið
eignaðar helstu framfarir í
meðferð alnæmisveirunnar,
sagði á fimmtudag að of
snemmt væri að segja til um
hvenær eða hvort lækning
fyndist við alnæmi.
Þessi ummæli Hos, sem
hann lét falla á ráðstefnu um
alnæmi í Washington, ganga
þvert á þá bjartsýni, sem
vaknaði á liðnu ári þegar hann
gerði tilraunir með lyfjablöndu
til meðferðar við alnæmisveir-
unni.
Með því að nota lyfin AZT
og 3TC og lyf, sem nefnist
próteasa-hindri, sýndi Ho að
hægt væri að hægt var að
ganga það nærri alnæmisveir-
unni að hún mældist ekki í
blóði.
Áður en þessar niðurstöður
voru birtar var talið að það
hefði enga kosti að hefja lyíja-
meðferð rétt eftir að maður
hefði smitast af alnæmisveir-
unni. Ho sagði að rannsóknir
sýndu nú hins vegar að þótt
hægt væri að fækka mjög al-
næmisveirum í líkama virtist
ekki hægt að útrýma þeim
alveg með lyfjablöndunni.
Þess í stað færðu sósíalistar
svæðissjónvarp og -útvarp undir
ríkissjónvarpið en serbneskur
dómstóll hefur dæmt þann gjörn-
ing ólöglegan. Áfrýjaði ríkissjón-
varpið til hæstaréttar og lét kalla
til um 200 lögreglumenn til að
koma í veg fyrir að stjórnarand-
staðan næði sjónvarpsstöðinni á
sitt vald.
Búist er við því að hæstiréttur
úrskurði í málinu 3. febrúar. Sam-
komulagið felur í sér að þangað
til muni útvarpið einungis útvarpa
auglýsingum og skemmtiefni. Sjón-
varpið svo og ríkisdagblaðið í bæn-
um munu leggja niður starfsemi,
nýr framkvæmdastjóri stjórnar-
andstöðunnar tekur til starfa og
lögreglan verður kölluð á brott.
ið viðstaddur þegar Madeleine Al-
bright sór embættiseið utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna í Hvíta
húsinu í gær.
Ummæli hans stönguðust alveg
á við orð Bills Clintons forseta,
sem lýsti yfir ánægju með að
Kanadamenn skyldu gera tilraun
til að fá stjórn Fidels Castro á
Kúbu til að breyta stefnu sinni í
mannréttindamálum en kvaðst ef-
ins um að það mundi hafa áhrif.
Sjálf var hún
sýknuð af allri sök
Mannheim. Reuter.
PETER Graf, faðir tennisstjörn-
unnar Steffi Graf, var fundinn
sekur í gær um stórkostleg skatt-
svik og dæmur í fangelsi í þijú
ár og níu mánuði. Dóttir hans var
hins vegar sýknuð af öllum ákær-
um en hún er í Tókýó í Japan þar
sem hún tekur þátt í móti á þriðju-
dag.
Það var dómstóll í Mannheim,
sem kvað upp dóminn yfir Peter,
sem er 58 ára að aldri, og einnig
var Joachim Eckardt, fyrrverandi
skattaráðgjafi fjölskyldunnar,
dæmdur í tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir að hafa hjálpað til
við skattsvikin. Voru þeir fundnir
sekir um að hafa haft af ríkinu
506 milljónir ísl. kr. í skatta. Rann-
sóknin beindist einnig að Steffi
sjálfri en dómarinn sagði, að eng-
ar sannanir hefðu fundist fyrir
aðild hennar að svikunum.
Óvíst um áfrýjun
Báðir sakborningamir yfirgáfu
réttarsalinn án þess að tala við
fréttamenn en þeir munu ekki taka
til við afplánunina strax og ekki
fyrr en áfrýjunarfrestur er runninn
út. Hafa lögfræðingar þeirra ekki
ákveðið hvort dómnum verður
TAIWAN-búar fögnuðu ákaft
komu líkneskis hinnar kín-
versku gyðju „Matsu“, er hún
var borin út úr flugvél á Taoyan-
flugvelli á norðurhluta eyjarinn-
ar i gær. Sjónvarpsstöðvar rufu
útsendingu til að sýna beint frá
komunni, sem er álitin vera
stærsta skrefið til batnaðar
fram að þessu á menningarsam-
skiptum Kina og Taiwan. Matsu
áfrýjað. Peter hefur þegar setið í
gæsluvarðhaldi í eitt ár og þremur
mánuðum betur en í Þýskalandi
geta fangar gert sér vonir um
lausn þegar þeir hafa lokið tveim-
ur þriðju refsivistarinnar. Standi
þessi dómur er því hugsanlegt að
hann verði að sitja inni í 15 mán-
uði. Lögfræðingar Peters höfðu
farið fram á, að hann fengi skil-
orðsbundinn dóm en saksóknarar
kröfðust sex ára fangelsis.
Sá einn um bókhaldið
Lögfræðingur Steffi Grafs,
hefur verið tilbeðin um aldarað-
ir í Kína, og margir álíta hið
skartgripum hlaðna líkneski,
sem að jafnaði er geymt í hofi
á eynni Meizhou undan strönd
Kína, vera gyðjuna sjálfa, „í eig-
in persónu". Samkvæmt fornri
þjóðsögn var Matsu ung stúlka,
sem breyttist í gyðju eftir að
henni hafði mistekizt að bjarga
föður sínum frá drukknun.
Franz Salditt, fagnaði því, að hún
var sýknuð, og sagði, að fyrir
misskilinn metnað hefði faðir
hennar viljað fara einn með öll
hennar fjármál. „Hann hleypti
engum í bókhaldið og taldi sér trú
um, að hann stæði klókustu
skattasérfræðingum fyllilega á
sporði," sagði Salditt og rakti
þessa bresti til ýmislegs, sem gerst
hefði í lífi Peters: Móðir hans svipti
sig lífi þegar hann var unglingur;
reynt hefur verið að kúga út úr
honum fé; hann hefur fengið
taugaáfall og drukkið ótæpilega.
Annan og Clinton
Clinton
heitir SÞ
borgun
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
lofaði Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna á fimmtudag að
borga upp vangoldin aðildar-
gjöld sem nema um milljarði
dollar, jafnvirði 70 milljörðum
króna. Boðaði forsetinn að
gjöldin yrðu greidd fyrir árið
2000. Repúblikanar, sem eru í
meirihluta á þingi, sögðust hins
vegar myndu setja það skilyrði
fyrir greiðslum, að þær yrðu
ekki inntar af hendi fyrr en
vissar umbætur á stofnuninni
hefðu átt sér stað. Hét Annan
því að gera róttækar umbætur
á starfsemi SÞ.
Friður í
Mið-Afríku
FYRIR tilstilli afrískra milli-
göngumanna tókst friður í gær
í Mið-Afríkulýðveldinu, þar
sem hluti hersins reis upp gegn
Ange-Felix Patasse forseta.
Uppreisnin hófst 15. nóvember
sl. og drógust franskar her-
sveitir í landinu inn í bardaga.
Sérstök eftirlitsnefnd skipuð
fulltrúum stjórnvalda í Malí,
Gabo, Chad og Burkína Fasó
mun fylgjast með framkvæmd
vopnahléssamkomulagsins.
Slys vegna
svartaþoku
ÞRÍR létu lífið og fimmtán
manns slösuðust alvarlega í
umferðarslysum sem urðu á
hraðbrautum víða í Hollandi í
gær vegna svartaþoku. Um 100
bílar lentu í stærsta árekstrin-
um sem varð á milli Haarlem
og Badhoevedorp.
Hungnr í
N-Kóreu
ALÞJÓÐA Rauði krossinn
sendi í gær út ákall til þjóða
heims um að leggja samtökun-
um til matvæli vegna neyðar-
hjálpar hennar í Norður-Kóreu.
Þar væri ástandið gegivænlegt
að milljónir landsmanna liðu
hungur vegna uppskerubrests.
Meint spilling
rannsökuð
BENJAMIN Netanyahu for-
sætisráðherra ísraels fór þess
á leit við lögreglu landsins í
gær, að hún rannsakaði ásak-
anir um spillingu á hendur
Roni Bar-On saksóknara. Sjón-
varpsstöð hélt því fram á mið-
vikudag, að hann hefði verið
skipaður í embætti fyrir orð
Arye Deri fyrrverandi ráð-
herra, sem sætir nú málssókn
vegna spillingar. Bar-On er
sagður hafa lofað Deri því að
sleppa honum við refsingu svo
hann gæti haldið áfram stjórn-
málaafskiptum í skiptum fyrir
stuðning við Hebron-sam-
komulagið.
Ferð Axworthys til Kúbu
Helms gagnrýnir
Kanadamenn
Washington. Reuter.
Faðir Steffi Graf í fang
elsi fyrir skattsvik
PETER Graf yfirgefur réttarsalinn ásamt tveimur lífvörðum.
Hann var fundinn sekur um að hafa svikið rúmlega hálfan
milljarð ísl. kr. undan skatti.