Morgunblaðið - 25.01.1997, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 15
25 milljarðar í verkleg-
ar framkvæmdir 1997
Áætlað er að heildarfjárfesting
Landsvirkjunar á árunum 1996-2000
nemi 24 milljörðum króna ef fyrirhugað-
ar stóriðjuáætlanir ganga eftir
Pepsico
stofnar
fyrirtæki
New York. Reuter.
PEPSICO hyggst aðskilja 11
milljarða dollara veitingahúsa-
starfsemi sína og koma á fót
nýju fyrirtæki sem getur ein-
beitt sér að drykkjarvöru- og
skyndibitaumsvifum.
Deildirnar sem verða að-
skildar eru Taco Bell, Pizza
Hut og KFC, eða Kentucky
Fried Chicken. Pepsico í heild
fékk þriðjung tekna sinna frá
þessum þremur deildum í fyrra
að sögn sérfræðinga.
Eurotunnel
slapp
án skaða
London. Reuter.
EUROTUNNEL hefur full-
vissað fjárfesta um að kostn-
aðurinn vegna eldsvoðans í
Ermarsundsgöngunum í nóv-
ember muni ekki bitna á end-
urfjármögnun fyrirtækisins og
vöxt þess í framtíðinni.
„Stjómin telur að eldsvoðinn
muni ekki hafa veruleg áhrif á
afkomu fyrirtækisins þegar til
lengri tíma er litið og að ekki
verði nauðsynlegt að endur-
skoða áætlunina um að endur-
skipuleggja fjármál þess,“ segir
í yfirlýsingu Eurotunnel.
Eurotunnel sýndi fram á að
þrátt fyrir eldsvoðann hefði
farþegum fjölgað verulega og
að útlitið í ár væri uppörvandi.
Forvextir á
Italíu ekki
lægri í 20 ár
Róm. Reuter.
ÍTALÍUBANKI hefur lækkað
forvexti í 6,75% úr 7,50%
vegna nokkurrar verðbólgu og
hafa þeir ekki verið lægri í 20
ár.
Lækkunarinnar hafði verið
beðið með eftirvæntingu á
fjármálamörkuðum og er ríkis-
stjórn Romanos Prodis forsæt-
isráðherra léttir vegna mikillar
vaxtabyrði.
Um leið hafa seðlabanka-
vextir í skiptum við aðra banka
verið lækkaðir í 8,25% úr 9%.
Þetta er þriðja vaxtalækkun
á sex mánuðum og hafa for-
vextir ekki verið lægri síðan í
september 1975. Síðasta
lækkun varð 23. október sl.
4.000 sagt
upp hjá
Kodak
New York. Rcuter.
EASTMAN KODAK mun
leggja niður 4.000 störf í ýms-
um löndum á næstu 12 til 18
mánuðum að sögn talsmanns
fyrirtækisins.
Kodak hefur nýlega skýrt
frá því að fyrirtækið hafí orðið
að veija 256 milljónum dollara
til endurskipulagningar á síð-
asta ársfjórðungi.
Talsmaðurinn sagði að aðal-
lega yrði sagt upp starfsfólki
utan Bandaríkjanna. Að hans
sögn munu nýráðningar á þeim
sviðum fyrirtækisins, sem eru
í vexti, líklega vega á móti
uppsögnunum og ríflega það.
Starfsmannafjöldi fyrirtæk-
isins ætti því ékki að breytast
að sögn talsmannsins. Starfs-
menn Kodaks voru 96.000 í
árslok 1995.
EF FYRIRHUGAÐAR stóriðju-
áætlanir ganga eftir er áætlað
að heildarfjárfesting Landsvirkj-
unar á árunum 1996-2000 verði
um 24 milljarðar. Þar af yrði
framkvæmt fyrir 8,5 milljarða á
árinu 1997. Á næstu dögum verða
auglýst útboð á vegum Lands-
virkjunar vegna framkvæmda við
Sultartangavirkjun og Há-
göngumiðlun. Þetta kom meðal
annars fram í erindi Agnars Olsen
hjá Landsvirkjun á ráðstefnu um
verklegar framkvæmdir 1997
sem Samtök iðnaðarins og Félag
vinnuvélaeigenda stóðu fyrir í
gær.
Áhrif Skeiðarárshlaupsins á
framkvæmdir
Að sögn Helga Hallgrímssonar
vegamálastjóra er áætlað að verja
7,5 milljörðum til vegamála á ár-
inu. Kostnaðarsömustu fram-
kvæmdirnar verða á Skeiðarár-
EKKERT lát hefur verið á hækkun
hlutabréfa í mörgum félögum á
Verðbréfaþingi og Opna tilboðs-
markaðnum það sem af er þessu
ári og nemur hækkun þingvísitölu
hlutabréfa nú um 5,1% frá áramót-
um.
Áhugi fjárfesta hefur að undan-
förnu mjög beinst að samgöngu-
fyrirtækjum, fyrirtækjum í verslun
og þjónustu, en síður að sjávarút-
vegsfyrirtækjum,^ Þannig hafði
vísitala verslunar og þjónustu
hækkað í gær um tæp 16% frá
áramótum og vísitala flutninga um
tæp 8%. Á sama tíma hafði vísi-
tala sjávarútvegs hækkað um lið-
lega 2%, en þessar upplýsingar er
jafnan að finna í viðskiptayfirliti
Verðbréfaþings sem birtist í Pen-
ingamarkaði Morgunblaðsins.
Umtalsverðar hækkanir hafa
orðið á bréfum stóru félaganna á
sandi, 750 milljónir, og í Hval-
fírði, 600 milljónir.
Áhrifa frá hlaupinu á Skeiðarár-
sandi gætir á fleiri stöðum því
Póstur og sími hf. ætlar að leggja
nýjan ljósleiðara um sandinn síðar
á þessu ári, því að ljósleiðarinn sem
þar er slitnaði í hlaupinu á síðasta
ári. Nýi ljósleiðarinn verður bæði
sterkari og lagður það djúpt að
hann myndi þola flóð af sömu
stærð og flóðið í fyrra. Bergþór
Halldórsson hjá Pósti og síma hf.
sagði að að öllum líkindum yrðu
færri verkefni boðin út hjá Pósti
og síma í ár vegna lagningar ljós-
leiðara um landið heldur en undan-
5,1% hækkun á hluta-
bréfavísitölu frá því í
byrjun ársins
þinginu, íslandsbanka, Flugleiða
og Eimskips. Hlutabréf í bankan-
um voru lengi vel á síðari hluta
sl. árs seld miðað við gengið 1,80,
en tóku skyndilega kipp í byijun
ársins og voru seld miðað við 2,15
í gær, sem er um 17,5% hækkun
frá áramótum. Þá hafa Flugleiða-
bréfin náð sér á strik á ný því
viðskipti áttu sér stað á genginu
3,22 í gær og hefur það hækkað
um 5,2% frá áramótum. Á sama
hátt voru bréf í Eimskip seld í gær
á genginu 7,90 og hafa því hækk-
að um 7,9% á tímabilinu.
Gengi hlutabréfa í fjárfest-
ingarsjóðum eins og Eignarhalds-
farin ár. „Ekki hefur verið gengið
endanlega frá fjárfestingarheim-
ildum og framkvæmdaáætlunum
hjá fyrirtækinu fyrir 1997 en síð-
ustu ár hefur 1-2 milljörðum ver-
ið varið til verklegra framkvæmda
á ári hveiju og búast má við að
um svipaða tölu verði að ræða í
ár.“
1,1 miHjarður
í skólabyggingar
Á vegum byggingardeildar
Borgarverkfræðings er áætlað að
veita rúmum tveimur milljörðum
í nýbyggingar og tæplega 500
þúsundum í viðhald og viðgerðir á
félagi Alþýðubankans, Samvinnu-
sjóðnum og Þróunarfélagi íslands
hefur ennfremur tekið verulegan
kipp á þessu ári. Hefur gengi
Samvinnusjóðsins t.d. hækkað í
viðskiptum um 23% frá áramót-
um.
Einhlítar skýringar fást ekki á
þessum hækkununum hjá verð-
bréfafyrirtækjunum. Ljóst er að
þá eftirspurn sem þrýst hefur verði
bréfanna upp má að einhveiju leyti
rekja til hlutabréfasjóðanna sem
hafa mikið fé umleikis vegna gríð-
arlegrar sölu bréfa í desember-
mánuði. Þá er bent á að vænting-
ar séu á markaðnum um góða
útkomu í ársuppgjörum fyrirtækj-
anna eftir síðastliðið ár. Á móti
er hins vegar bent á að áhrifa af
væntanlegum kjarasamningum
virðist enn ekki farið að gæta á
markaðnum.
eldra húsnæði borgarinnar. Þar
af verður 1,1 milljarði varið til
fræðslumála, aðallega vegna fyrir-
hugaðrar einsetningar grunn-
skóla.
Holræsaframkvæmdir verða
stærsti útgjaldaliðurinn í verkleg-
um framkvæmdum 1997 hjá emb-
ætti gatnamálastjóra en áætlaður
kostnaður vegna verklegra fram-
kvæmda á vegum Gatnamála-
stjóra verður um tveir milljarðar
í ár.
Hjá Framkvæmdasýslu ríkisins
verður 1,6 milljörðum varið til
verklegra framkvæmda árið 1997
en auk þess eru skuldbindingar
Framkvæmdasýslunnar vegna
verka sem þegar eru hafin um 1,2
milljarðar.
Á vegum Siglingamálastofnun-
ar verða hafnarframkvæmdir í 39
höfnum á árinu og er áætlaður
framkvæmdakostnaður vegna
þeirra 760 milljónir króna í ár.
Sony og
Murdoch í
bandalag?
Tókýó. Reuter.
SONY hyggst reyna fyrir sér sjón-
varpsmálum og kaupa hlut í sam-
eignarfyrirtæki News Corp fyrirtæk-
is fjölmiðlakóngsins Rupert
Murdochs og japanskra aðila að sögn
fremsta fjármálablaðs Japans.
Sérfræðingar segja að viðræður
Sonys við Murdoch um aðild að jap-
önsku sjónvarpsbandalagi hans geti
orðið til þess að japanski rafeinda
risinn breytist í samþætt margmiðl-
unarfyrirtæki.
Þeir segja að með hjálp Sony
muni hið nýja gervihnattafyrirtæki
Murdochs standa betur að vígi en
tveir keppinautar þess og að fram-
undan sé hörð barátta á japönskum
fjölmiðlamarkaði.
------*—*—*-----
Raytheon
sigrarítil-
boðsstríði
New York. Reuter.
GENERAL MOTORS hefur skýrt frá
þeirri ætlun sinni að selja flugvéla-
deild sína, Hughes Aircraft, Ray-
theon Co. fyrir 9.5 milljarða dollara.
Þar með er lokið hörðu tilboðs-
stríði, sem er mikið áfall fyrir keppi-
naut Raytheon Co., Northrop Grum-
man Corp. Með samruna Raytheon
og Hughes Aircraft verður til nýtt
risafyrirtæki á sviði eldflauga og
rafeindatækni með árlegar tekjur
upp á 21 milljarð dollara og 127.000
starfsmenn.
EMU enn á
réttri leið
London. Reuter.
LÍKUR á að myntbandalagi Evrópu,
EMU, verði komið á fót á tilsettum
tíma eru enn góðar, þótt þær hafi
minnkað nokkuð á einum mánuði
samkvæmt könnun Reuters á áliti
sérfræðinga.
Þijátíu hagfræðingar banka, há-
skólamenn og pólitískir sérfræðingar
tóku þátt í könnuninni og töldu að
jafnaði 83% líkur á því að EMU
tæki til starfa 1. janúar 1999 eins
og að er stefnt. í desember voru lík-
urnar taldar 86% að meðaltali, en
82% í nóvember og 80% í október.
Morgunblaðið/Þorkell
STEINDÓR Guðmundsson hjá Framkvæmdasýslu ríkisins og Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri fluttu
erindi á ráðstefnu um verklegar framkvæmdir 1997 sem Samtök iðnaðarins og Félag vinnuvélaeigenda
stóðu fyrir í gær. Þar voru kynntar áætlanir um framkvæmdir hjá ríki, borg og Pósti og síma hf.
Ekkert lát á gengis-
hækkun hlutabréfa