Morgunblaðið - 25.01.1997, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
IMEYTENDUR
Samkvæmiskjólaleigur
Einfaldir svartir
kjólar vinsælastir
Tími árshátíða er runninn upp og margar
konur eru famar að hafa áhyggjur af í hvaða
kjól þær eigi að vera. Guðbjörg R. Guð-
mundsdóttir kannaði verð og úrval
á nokkmm samkvæmiskjólaleigum.
Á UNDANFÖRNUM árum hefur
það færst í vöxt að konur leigi sér
kjól fyrir árshátíð og jafnvel auka-
hlutina við hann líka. Öllum þeim
sem rætt var við á kjólaleigum bar
saman um að vinsælustu kjólamir
væru svartir og einfaldir. Þar fyrir
utan eru það vínrauðir, flöskugrænir
og kóngabláir kjólar sem eiga upp á
pallborðið.
Katrín Óskarsdóttir hjá Brúðar-
kjólaleigu Katrínar segir að konum
þyki það ekki tiltökumál lengur að
leigja sér kjól. „Fyrir nokkrum árum
þótti það ekki við hæfí að vera í leigð-
um kjól en núna verð ég ekki lengur
vör við þetta viðhorf," segir hún.
Mest leigt af kjólum
I stærðum 16 og 18
Katrín er með kjóla í öllum stærð-
um og stórum stærðum líka en hún
segist sauma þá sjálf því þeir kjólar
sem bjóðast erlendis í yfirstærðum
eru yfirleitt of gamaldags fyrir ís-
lenskar konur. „Mér fínnst algeng-
ustu númerin sem ég er að leigja í
kjólum hækka með hveiju árinu.
Eins og málum er háttað núna leigi
ég mest af kjólum í stærðum 16 og
18. Auðvitað er ég með kjóla í minni
númerum og stærri en þetta eru
algengustu númerin," segir hún.
Katrín hefur verið með kjólaleig-
una heima hjá sér en ætlar í mars
að fiytja hana um set í Álfabakka
í Mjódd.
Konur á öllum aldri
leigja sér kjól
„Það þarfnast ekki umhugsunar,
svartir einfaldir kjólar eru lang vin-
sælastir,“ segir Guðbjörg Birna
Gunniaugsdóttir hjá Rómó í Keflavík
þegar hún er spurð hvernig kjóla
konur velji sér. „Hinsvegar eru
margar konur farnar að leigja kjóla
í öðrum litum eins og græna eða
rauða kjóla.“ Guðbjörg segir að við-
skiptavinirnir séu á öllum aldri, frá
undir tvítugu og fram á sextugs-
Hvað kostar að leigja samkvæmisfatnað? ML Hátíðar- ífS \ /L*. Samkvæmis- búningur fyrir / \ J kjólar Smóking herra Aukahlutir
Brúðarkjóialeiga Dóru Faxafeni 9, Rvk. 4.000-7.000,- 3.200.- ekki til skaitgripir 1.000-3.000 kr.y-'L/ hanskar 500 kr. /
Brúðarkjólaieiga Efnalaugarinnar g^j tj| Nóatúni 17, Rvk. 3.700,- 6.800
Brúðarkj.leiga Katrínar Óskarsd. 4 qoo-5 000 - Griótasel 16. Rvk. 3.500,- 6.500 hanskar lánaðir með m I 9
Fataleiga Garðabæjar Garðatorgi 3, Garðabæ 5.000.- 3.200.- 6.500 lánað með / ' í
Brúðarbær Hjallabrekku 37, Kópavogi 3.500-4.500,- 3.500.- 6.500
Rómó Hafnargötu 54, Keflavík 3.500-5.000.- 3.500.- ekki til hanskar frá —■£ & 500 kr.
Saumakúnst Möðrusíðu 10, Akureyri 4.000-6.000.- 3.900.- ekki til hanskar frá 500 j skartgripir 500-5.000 kr7''-~^®-—^íSKm
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
KONUR á öllum aldri leigja sér samkvæmiskjóla og úrvalið á leigun-
um er töluvert. Flestar leigurnar eru einnig með úrval af kjólum
í yfirstærðum.
eða sjötugsaldur. „Við leigjum tölu-
vert út á land og þá gjarnan nokkr-
um vinkonum í einu.“
Hjónin koma saman
Hún segir algengt að hjón komi
saman og leigi sér föt fyrir árshátíð,
hann til dæmis smóking og hún kjól
og yfirleitt kemur fólk með nokkrum
fyrirvara.
„Við leigjum mest einfalda kjóla
sem við höfum sjálfar saumað," seg-
ir Birgitte Bengtsson klæðskeri, en
hún ásamt Þórunni Sigurðardóttur
kjólameistara reka fyrirtækið Saum-
akúnst á Akureyri.
Birgitte segir eins og allir aðrir
viðmælendur að svart sé liturinn sem
flestar konur spyiji um þegar þær
koma á kjólaleiguna til þeirra. „Þær
skipta oft um skoðun og við leigjum
töluvert af kjólum í öðrum litum eins
og bláum og vínrauðum. „Semalíu-
skartgripir eru síðan vinsælustu
skartgripirnir með svörtu kjólun-
um.“
Viðamiklir kjólar
fyrir fínu böliin
Þegar Frímúrarar eða Oddfellow-
ar halda böll er mikið að gera hjá
Saumakúnst. „Þá er virkilega gam-
an, því við þessi tækifæri bregða þær
útaf vananum og eru til í að fara í
viðamikla og litskrúðuga „gala-
kjóla“, segir Birgitte.
Að sögn Birgitte þjóna þær fleir-
um en Akureyringum, fólk úr næstu
byggðarlögum leigir gjarnan hjá
þeim fatnað. „Það er ekkert óalgengt
að konur hafi ekki tök á að koma
til okkar og þá fáum við bara málin
og senuum þeim ferðatösku af kjólum
sem þær geta síðan valið um.“
Alttað
iqo/o afg
CBplð um lasllgina
Fisléttir raðgreiðslusamningar
Suðurlandsbraut 16 • 108 Rvk • Sími 588 0500 • fax 588 0504
Rýmum fyrir nýjum tækjum
Morgunblaðið/Ásdís
Lesendur spyrja
Vínber helm-
ingi dýrari ?
LESANDI hringdi og vildi gjarnan
fá útskýringar á því hversvegna
steinlaus vínber væru á helmingi
hærra verði þessa dagana en venju-
lega, kílóið kostar á bilinu sex til
sjö hundruð krónur?
Svar: Engir tollar eru á vínbeij-
um nema 14% virðisaukaskattur og
því er útskýringuna ekki þar að
finna. Að sögn Gunnars Gíslasonar
framkvæmdastjóra hjá innflutn-
ingsfyrirtækinu MaTa er ástæðan
sú að verið er að skipta um upp-
skerusvæði á þessum árstíma,
hverfa frá Kaliforníu og fara til
Suður-Afríku. „Allra fyrstu vínber-
in frá Suður-Afríku eru frekar dýr
og ekkert til af vínbeijum í Kalifor-
níu. Þar að auki eru allir að beijast
um þessi sömu vínber sem eru að
koma á markaðinn bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum." Hann segir
hinsvegar umdeilanlegt hvað sé
eðlilegt verð á vínbeijum. „Er dýrt
að kaupa kíló af vínbeijum á 600
krónur miðað við kíló af einhveiju
sælgæti til dæmis? Gunnar segir
að vínberin séu að lækka í verði
þessa vikuna og þau koma til með
að lækka eitthvað meira á næstu
vikum.