Morgunblaðið - 25.01.1997, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Hallgerður
Ragna Helga-
dóttir fæddist á
Litla Búrfelli í
Austur-Húnavatns-
sýslu 25. febrúar
1926. Hún lést á
Héraðssjúkrahús-
inu Blönduósi 19.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Hansína
Guðný Guðmunds-
dóttir, d. 18. desem-
ber 1972 og Helgi
Þorsteinn Björns-
son, d. 7. nóvember
1930. Systkini Hallgerðar voru
þijú, Hildur Helga, f. 25. maí
1920, d. 22. janúar 1988, Krist-
ín, f. 20. nóvember 1921, og
Guðmundur Jón-
bjöm, f. 26. júlí
1927, d. 14. desem-
ber 1951.
Hinn 29. júní
1947 giftist Hall-
gerður eftirlifandi
manni sinum Sva-
vari Pálssyni. Böm
Hallgerðar Rögnu
og Svavars em:
Særún Bryiya, f. 4.
október 1947, Páll,
f. 7. júní 1950, og
Guðmundur Helgi,
f. 14. janúar 1962.
Bamabörnin em
sex og eitt barnabarnabam.
Útför Hallgerðar fer fram
frá Blönduóskirkju i dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Elsku amma mín.
Nú ert þú búin að kveðja þetta líf
og farin á einhvem góðan stað þar
sem þér líður vel. Samt ert þú enn
hér í huga mínum því ég mun geyma
allar þær góðu minningar sem ég á
um þig. Mér þótti alltaf mjög gaman
að heimsækja þig og afa á Blöndu-
ósi. Oftast þegar við komum beiðst
þú í eldhúskróknum og afi var búinn
að baka pönnukökur handa okkur.
Um leið og við vorum sest vildir þú
fá að vita um allt sem við höfðum
verið að gera og alltaf varst þú búin
að senda afa út í Vísi að kaupa ís.
Oft sátum við einar í eldhúskrókn-
um að spjalla meðan hinir voru inni
að horfa á sjónvarpið. Þessi samtöl
vom mér mikils virði og margt fór
okkar á milli sem enginn annar fékk
að vita. í öllum heimsóknum mínum
svaf ég hjá þér, annað hefði ég ekki
tekið í mál. Þegar ég var fimm ára
kom ég í fyrsta skipti ein til ykkar
og það var æðislegt því þú og afí
dekruðuð við mig allan tímann. Eftir
þá ferð fór ég að koma af og til ein
og dvelja í einhvem tíma til að vera
hjá ykkur. Gerði ég það í mörg ár.
Eitt atvik er mér mjög minnis-
stætt, en þetta gerðist í einni af mín-
um sumarferðum til ykkar. Þetta var
þegar ungamir í tijánum í garðinum
vom rétt skriðnir úr eggjunum og
auðvitað fylgdist þú vel með þeim.
Eina nóttina hrekk ég upp við ein-
hver læti og þú ert horfín úr rúminu.
Þegar ég lít svo út um gluggann sé
ég þig hlaupandi, æpandi um í nátt-
kjólnum með kúst á eftir einhveijum
ketti sem hafði reynt að veiða ftigl-
ana. Þá hló ég líka enda em nú ekki
allir sem hafa séð ömmu sína svona
útlítandi.
Þetta er aðeins lítið brot af öllum
þeim minningum sem ég á um þig
og þrátt fyrir þennan missi get ég
huggað mig með öllum þessum minn-
ingum. Elsku amma, nú kveð ég þig
og takk fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir mig. Ég met það mjög mikils.
Guð geymi þig, elsku amma mín.
Rakel Jónasdóttir.
Nú er komið hátt á fimmta áratug-
inn frá því ég kynntist vinkonu minni,
HaUgerði Helgadóttur, eða Gerði eins
og hún var nefnd í daglegu tali, sem
þá var lagleg ung kona í blóma lífs-
ins með blik í augum. Hún átti þá
eiginleika í ríkum mæU að laða fram
hlátur, gleði og gaman hjá því fólki
sem hún umgekkst daglega. Ég
þakka þessari vinkonu minni fyrir
aUar eftirminnilegu sólskinsstundim-
ar sem aldrei bar skugga á. Á ævi-
braut hennar skiptust á skin og skúr-
ir eins og hjá svo mörgum í þessu
jarðlífí en frá Gerði stafaði alltaf hlýju
og glaðværð á hveiju sem gekk.
Gerður var leiðtogi í saumakíúbbn-
um okkar hér á Blönduósi. Þegar svo
bar undir að hún mætti ekki til leiks
vantaði aðal gleðigjafann í samkvæm-
ið. Sama gilti um þau ferðalög sem
klúbburinn eftidi til. Þá var Gerður
ómissandi foringi.
Síðustu æviárin var Gerður heilsu-
tæp og dvaldi langtímum á sjúkra-
stofnunum. Á þeim ámm heyrðist hún
aldrei kvarta yfír örlögum sínum en
sló þess í stað á léttari strengi eins
og henni var svo tamt. Við sem eftir
lifum söknum góðrar konu.
Gerður átti indælan eiginmann,
böm og bamaböm sem bám hana á
höndum sér. Sendi ég Svavari og
þeim öllum mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Megi vinkona mín Gerður hvfla í
friði.
Jóninna Steingrímsdóttir.
HALLGERÐUR
RAGNA
HELGADÓTTIR
RAÐAUGi YSINGAR
Námsaðstoð
Framhaldsskólanemi á 1. ári óskar eftir að-
stoð við heimanám í stærðfræði og við-
skiptagreinum einu sinni til tvisvar í viku.
Vinsamlegast sendið umsóknir til afgreiðslu
Mbl. merktar „Námsaðstoð" fyrir 1. feb. nk.
w
Endurhæfingarmiðstöð
Hjúkrunarfræðingur
óskast til starfa. Um er að ræða hlutastöðu
á miðtaugakerfissviði og stöðu á geðsviði.
Þroskaþjálfi
óskast í hlutastöðu á sambýli fatlaðra, Hlein.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri og deild-
arstjórarnir Svava á miðtaugakerfissviði og
Helga á geðsviði í síma 566 6200.
Samkeppni um leikhúsverk
í tilefni hundrað ára afmælis Leikfélags
Reykjavíkur 11. janúar 1997 var efnt til sam-
keppni um leikhúsverk.
Dómnefnd hefur nú lokið störfum. Úrslit
hafa verið tilkynnt og viðkomandi höfundum
veitt verðlaun.
Dómnefnd biður aðra þátttakendur í sam-
keppninni um að vitja handrita sinna til Leik-
félags Reykjavíkur, Borgarleikhúsinu við
Listabraut í Reykjavík fyrir 15. febrúar 1997.
Þarverða þau afhent gegn dulnefni höfundar.
Leikfélag Reykjavíkur þakkar góða þátttöku
og óskar höfundum gæfu og gengis.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins, Ólafsvegi 3, Ólafsfirði,
fimmtudaginn 30. janúar nk. kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Aðalgata 32, Ólafsfirði, þinglýst eign Konráðs Þ. Sigurðssonar, eftir
kröfu Byggingarsjóðs ríkisins.
Kirkjuvegur 4, efri hæð, Ólafsfirði, þinglýst eign Svans Jóhannsson-
ar, eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins og íslandsbanka hf.
Kirkjuvegur 13, Ólafsfirði, þinglýst eign Ragnars Þórs Björnssonar
og Kamillu Ragnarsdóttur eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins.
Kirkjuvegur 18, efri hæð, Ólafsfirði, þinglýst eign Grétars Hólm Gísla-
sonar eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins.
Ólafsvegur 36, Ólafsfiröi, þinglýst eign Davíðs Gígja, eftir kröfu
Byggingarsjóðs ríkisins.
Ólafsfirði, 22. janúar 1997.
Sýslumaðurinn í Ólafsfirði,
Björn Rögnvaldsson.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf-
um, sem hér segir:
Engihlíð 18, 3. hæð t.h., Snæfellsbæ, þingl. eig. Jökull Smári Barkar-
son, geröarbeiðandi Byggingarsjóður verkmanna, föstudaginn 31.
janúar 1997 kl. 11.30.
Engihlíð 22,1. hæð t.v., Snæfellsbæ, þingl. eig. Snæfellsbær, gerðar-
beiðandi Ingvar Helgason hf., föstudaginn 31. janúar 1997 kl. 11.00.
Fiskimjölsverksmiðja, (Hausthús), ásamt tilh. vélum, tækjum og
áhöldum, Snæfellsbæ, þingl. eig. Bjarni Magnússon, þrotabú, gerðar-
beiðendur Fiskveiöasjóöur Islands og Landsbanki Isiands, föstudag-
inn 31. janúar 1997 kl. 13.00.
Fiskimjölsverksmiðja, mjölgeymsla og lifrarbræðsla, ásamt tilh. vél-
um, tækjum og áhöldum, Snæfellsbæ, þingl. eig. Bjarni Magnússon,
þrotabú, gerðarbeiðendur Fiskveiðasjóður íslands og Landsbanki
Islands, föstudaginn 31. janúar 1997 kl. 13.30.
Háarif 13, 2. hæð, Snæfellsbæ, þingl. eig. Jón Bjarni Andrésson,
gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, föstudaginn 31. jan-
úar 1997 kl. 15.30.
Hjallabrekka 4, Snæfellsbæ, þingl. eig. Snæfellsbær, gerðarbeiðend-
ur Byggingarsjóður verkamanna og Vátryggingafélag íslands hf.,
föstudaginn 31. janúar 1997 kl. 12.00.
Skólabraut 9, Snæfellsbæ, þingl. eig. Bjargey Magnúsdóttir, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins, innheimtumaður ríkissjóðs,
Landsbanki (slands og Lífeyrissjóður Vesturlands, föstudaginn
31. janúar 1997 kl. 14.30.
Snæfellsás 9, Snæfellsbæ, þingl. eig. Davíð Óli Axelsson, gerðarbeið-
endur Byggingarsjóður ríkisins og Samvinnusjóður Islands hf., föstu-
daginn 31. janúar 1997 kl. 15.00.
Sýslumaðurinn i Stykkishóimi,
24. janúar 1997.
Viljið þið styrkja sambúð
ykkar?
Námskeið um hjónaband og sambúð í Hafn-
arfjarðarkirkju. Leiðbeinendur séra Þórhallur
Heimisson og Halla Jónsdóttir.
Skráning og upplýsingar í síma 555 1295.
Framsóknarvist
Verður haldin á morgun, sunnudaginn 26.
janúar kl. 14.00 í Templarahöllinni við
Eiríksgötu. Verðlaun verða veitt.
Aðgangseyrir kr. 500. Kaffiveitingar
innifaldar.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Sjálfstæðismenn
í Hlíða- og Holtahverfi
Hittumst í veitingasal nýja Sundanestis við
Sæbraut kl. 17.30 f dag, laugardag. Björn
Bjarnason, menntamálaráöherra spjallar
við gesti. Síðan verður haldið á þorrablót
sjálfstæðisfélaganna í Valhöll uppúr kl.
19.00.
Stjórnin.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
[• i
itáfi i=
Hallveigarstíg 1 • sími 561 4330
Dagsferð 25. janúar
Skiðagöngunámskeið fellur
nlður
Dagsferð26. janúar
kl. 10.30 Raðganga Útivistar.
2. áfangi, Bæjarsker-Stafnnes.
GPS námskeið
27. og 28. janúar kl. 20.00.
Loksins GPS námskeiö. Kennt á
tækin, rétt notkun korta við leið-
arval. Komiö með eigin GPS
tæki. Námskeiöið er haldið í
samvinnu við Björgunarskóla
Landsbjargar. Verð kr. 2000, öll
námsgögn innifalin.
Skráning á skrifstofu Útivistar.
Allir velkomnir.
Netslóð:
http://www.centrum.is/utivist
Hvítasunnukirkjan
Ffíadelfía
Sameiginlegri bænaviku krist-
inna safnaða lýkur í Fíladelfíu-
kirkjunni í kvöld kl. 20.30. Ræðu-
maður sr. Hjalti Guðmundsson
dómkirkjuprestur.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiöir
söng.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÓRKINNI6 - SlMI 568-2533
Öðruvfsi sunnudagsferðir
26. janúar 1997 kl. 10.30.
1. Skíðaganga út íbláinn. Farið
verður á hagstætt skíðagöngu-
svæði í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins. Fararstj. Bolli Kjart-
ansson.
2. Óvissufjallganga Fararstjóri
velur gott fjall til að ganga á.
Mætið vel búin. Fararstjóri: Jón-
as Haraldsson. Brottför frá BSl,
austanmegin og Mörkinni 6.
Heimkoma um kl. 16.00. Verð
1.000 kr.
Þorraferð og þorrablót f Freys-
nesi 8.-9. febrúar. Fá pláss
laus. Miðar á skrifstofu.
Ferðafélag íslands.