Morgunblaðið - 30.01.1997, Síða 18

Morgunblaðið - 30.01.1997, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ _____________ÚRVERINU____________ Sæunii Axels á Olafs- firði færir út kvíamar Hraðfrystihús Ólafsfjarðar leigt til fimm ára HRAÐFRYSTIHÚS Ólafsfjarðar hf. hefur leigt frystihús sitt til fimm ára og er leigutaki Sæunn Axels ehf. á Ólafsfirði, sem rekur saltfískverkanir bæði á Ólafsfirði og Reykjavík. Að sögn Ásgeirs Loga Asgeirssonar hjá Sæunni Axels hyggst fyrirtækið færa út kvíamar með rekstri frysti- hússins, en það hefur verið lokað frá því nokkru fyrir jól og var öllum starfsmönnum þá sagt upp störfum, um 60 manns. Leigutakinn hefur þegar hafið undirbúning að því að koma rekstrin- um í gang aftur í breyttri mynd. Gert er ráð fyrir að ráða starfsmenn að húsinu að nýju á næstu vikum og að starfsemi^i komist í gang svo fljótt sem kostur er. j „Við höfum áhuga á því að víkka út þá starfsemi, sem við erum nú með, og renna frekatii stoðum und- ir þann rekstur, sem við höfum staðið í til þessa á Ólafsfirði. Þetta ferli hef- ur gerst tiltölulega hratt eftir að frystihúsinu var lokað, en við biðum ekkert í röð eftir því að fá að taka við þessum rekstri. Það urðu bara óformlegar viðræður í byijun enda allir sammála um að ófremdarástand væri ríkjandi í at- vinnumálum bæjarins og því ljóst að eitthvað þyrfti að koma til. Eigum eftir að fínpússa áætlunina I kjölfarið fórum við bræðumir að spá og spekúlera með hvaða hætti við gætum komið að rekstrinum. Við erum að þessu fyrst og fremst vegna þess að við trúum því að við getum rekið þama arðbæra vinnslu," sagði Ásgeir Logi, en segist ekki geta svarað því hvers vegna þeir ættu að ná betri rekstrarárangri en núverandi eigendur, sem tóku ákvörðun um lokun frystihússins. „Það hefur kannski eitthvað að segja að við emm allir ungir menn og förum ef til vill ótroðnari slóðir en þeir, sem búnir eru að vera í sama farveginum mjög lengi.“ Ásgeir segist ekki geta nákvæm- lega sagt til um hvenær starfsemi heflist í frystihúsinu á ný. Þar verði að einhveiju leyti rekið frystihús áfram þó meginlínumar liggi í bland- aðri vinnslu. „Það er gott fólk þama sem maður vill í lengstu lög halda í áður en það fer að hugsa sér til hreyf- ings og leita til annarra byggðarlaga eftir vinnu. Það verða breytingar á rekstri frystihússins frá því sem áður var, en nákvæmlega með hvaða hætti, get ég ekki farið út í hér og nú.“ Fiskvinnslufyrirtækið Sæunn Ax- eis ehf. var stofnað í Ólafsfirði árið 1980 með kaupum á iítilli trillu og eru eigendur þess Sæunn Axelsdóttir og synir hennar fjórir, þeir Ásgeir Logi sem er framkvæmdastjóri, Frí- mann sem sér um útflutninginn, Axel sem er búsettur í Barcelona og sér um að selja saltfiskinn og Krist- ján Ragpar sem er nemi í Verslunar- skóla íslands. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Ásgeir Ásgeirsson, faðir drengjanna og eiginmaður Sæ- unnar. Synirnir fjórir eru minna og meira aldir upp við sjósókn þar sem Sæunn hefur sjálf í áraraðir róið með færi yfir sumartímann ásamt sonum sínum. í febrúar á þessu ári færði fyrir- tækið út kvíarnar og setti upp útibú í Reykjavík, nánar tiltekið að Hólma- slóð 6, þar sem um fimmtán manns hafa atvinnu af saltfískverkun. „Þrátt fyrir þetta höfum við ekkert slakað á fyrir norðan þar sem að staðaldri vinna 15-20 manns við saltfiskverkun og fiskþurrkun. Aftur á móti má segja að útibúið í Reykjavík hafi komið til vegna þess að mikið af þeim aðdráttum, sem við þurfum inn í vinnsluna fyrir norðan, var fiskur af suðursvæðinu og því ákváðum við að færa hluta af starfseminni suður til að vera nær því hráefni, sem við nýtum talsvert. Svo sendum við hráefni í gámum til vinnslu norður. Verðum að spila á fleiri borðum í raun erum við alls staðar að reyna að ná okkur í hráefni, á mörkuð- unum jafnt sem í beinum viðskiptum auk þess sem við komum til með að verða eftir sem áður í ágætu sambandi við útgerð- arfélagið Sæberg hfv sem gerir út tvo ísfisktogara frá Ólafsfirði og er meirihlutaeigandi í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar. Þau viðskipti fara eftir því hvað þykir hagkvæmt fyrir báða aðiia hveiju sinni. Á meðan að magn- ið er ekki meira á mörkuðunum en raun ber vitni, er erfitt að láta stjórn- ast alfarið af þeim. Það verður að spila á fleiri borðum en einu ef menn ætla sér að komast af í þessum bransa. Þetta er beinharður heimur og það er engin bein gróðaleið til í þessu sem öðru. Við verðum bara að standa okkur í samkeppninni,“ segir Ásgeir Logi. Morgunblaðið/Kristinn „ÞETTA er meinharður heimur og það er engin bein gróðaleið til í þessu sem öðru,“ segir Ásgeir Logi Ásgeirsson. SADDAM Hussein og fjölskylda. Fyrir miðju er sonurinn Uday. Fyrir framan silja foreldrarnir í sóffa. Saddam Hussein Iraksforseti óttast um líf sitt Eiginkonan sögð í stofufangelsi Washington, Bagdad. Reuter. SADDAM Hussein, forseti íraks, hefur sett konu sína í stofufangelsi og hugsanlegt er, að taka verði ann- an fótinn af Uday, syni hans, vegna dreps. Var þetta haft eftir háttsett- um embættismanni í bandaríska hermálaráðuneytinu. Embættismaðurinn, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði frétta- mönnum, að Saddam hefði aðseturs- skipti oftar en áður af ótta við til- ræði við sig. Þá kvaðst hann hafa það eftir góðum heimildum, að kona hans væri í stofufangelsi. Nefndi hann ekki hvenær eða hvers vegna hún væri í haldi en gaf í skyn, að skotárásin á Uday, son hans, i síð- asta mánuði hefði valdið því, að hann óttaðist meira en áður um líf sitt og sæi óvini í hveiju skoti. Hálflamaður með drep í fæti Uday, sem er 32 ára gamall, særð- ist alvarlega þegar skot.ið var á bíl hans á götu í Bagdad. Eru ýmsar getgátur um ástæðuna en einna helst talið, að árásarmennirnir hafi verið að hefna hershöfðingja, sem Saddam lét taka af iífi 1990. Banda- ríski embættismaðurinn sagði, að Uday hefði særst alvarlega. Væri ein eða tvær byssukúlur enn við mænuna og hann hálflamaður. Þá hefði komist drep í annan fótinn og hugsanlegt, að hann missti hann. Embættismaðurinn sagði einnig, að íraski herinn hefði aukið æfingar sínar að undanförnu og hann kvaðst hafa eftir heimildum, að Saddam væri viss um að geta náð Kúveit aftur með leiftursókn. Sagði emb- ættismaðurinn, að ef til vill væri það rétt hjá Saddam en minnti á, að í og við Persaflóa væru til taks 200 orrustuþotur, bandarískar og annars staðar frá, og öflugur herskipafioti. Vilja árásarmennina framselda Iraksstjórn hefur beðið Sarnein- uðu þjóðirnar að sjá til, að Irans- stjórn framseiji mennina, sem réðust á Uday, eða dragi þá fyrir dóm ella. Kemur þetta fram í bréfi, sem Mo- hammed Saeed al-Sahaf, utanríkis- ráðherra íraks, hefur sent Kofi Ann- an, framkvæmdastjóra SÞ. Tilræðis- mennirnir flýðu til Irans eftir árásina á Uday en íransstjórn en íranir neita að framselja þá. Uthlutun karfaveiðiheimilda á Reykjaneshrygg Byggt á veiðireynslu SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur gefíð út reglugerð um úthlutun veiðiheimilda í úthafskarfa á Reykja- neshrygg. Helstu ákvæði reglugerð- arinnar eru eftirfarandi: Á árinu 1997 er þeim íslensku skipum, sem hljóta leyfí Fiskistofu til veiða á úthafskarfa með flot- vörpu, heimilt að veiða samtals 45.000 lestir. Hveiju íslensku fískiskipi skal reiknuð aflahlutdeild í úthafskarfa, sem miðast við afla skipsins á þrem- ur bestu aflaárum þess á tímabilinu 1991-1996. Þó skal 5% heildarkvót- ans úthlutað til þeirra skipa sem stunduðu úthafskarfaveiðar á árun- um 1989, 1990 og 1991, miðað við heildarafla þeirra þessi ár. Úthlut- un aflahlutdeildar er bundin því skil- yrði, að útgerð viðkomandi skips af- sali sér aflahlutdeild í tegundum inn- an lögsögu íslands, sem nemi 8% af þeirri aflahlutdeild, sem viðkómandi skipi er úthlutað í úthafskarfa sam- kvæmt reglugerðinni. Miðað er við að verðmætastuðull fyrir úthafskarfa sé hinn sami og fyrir karfa sem veið- ist innan lögsögunnar. Verði skerð- ingu aflahlutdeildar ekki viðkomið þar sem skip hefur ekki aflahlutdeild í tegundum innan lögsögunnar, skerðist aflahlutdeild þess í úthafs- karfaveiðum um 8%. Veiðar á úthafskarfa eru háðar sérstöku leyfí Fiskistofu og aðeins eiga kost á leyfum þau skip, sem aflahlutdeild fá samkvæmt ofan- greindri reglu og ennfremur þau skip sem hafa flutt til sín aflamark eða aflahlutdeild i úthafskarfa. Við útreikning afla skal miðað við að nýting sé 55% miðað við hausskor- inn karfa en 30% miðað við flök með roði og beinum Fiskistofa mun fyrir 8. febrúar nk. senda útgerðum þeirra skipa sem aflahlutdeild fá samkvæmt of- angreindri reglu um bráðabirgðaút- hlutun og forsendum hennar. Út- gerðir skulu síðan fyrir 18. febrúar tilkynna til Fiskistofu hvort þær nýta sér rétt til aflahlutdeildar og í fram- haldi af því mun Fiskistofa úthluta endanlegri aflahlutdeild, aflamarki fyrir 1997 og veiðileyfi. Samskonar reglur hafa þegar ver- ið gefnar út fyrir úthlutun veiðiheim- ilda í rækju á Flæmingjagrunni. Clarke sagður vilja taka við af Major London. Reuter. KENNETH Clarke, fjár- málaráðherra Bretlands, hefur samkvæmt dagblað- inu The Daily Mail gefíð til kynna að hann mum sækj- ast eftir forustu í íhalds- flokknum tapi flokkurinn næstu kosningum og segi John Major forsætisráð- herra af sér. I blaðinu var því bætt við að Clarke hefði einnig fýst yfir áhuga á að verða forsætisráðherra. „Mér finnst forusta í flokki, sem hefur unnið kosningarnar, betri kostur en forusta í flokki, sem hefur tapað kosningunum," hafði blaðið eftir Clarke. Major verður að boða til kosninga innan fjögurra mánaða og sam- kvæmt skoðanakönnunum hefur Verkamannaflokkurinn enn allt að 20 prósentustiga for- skot á íhaldsflokkinn. Clarke fór einnig hörðum orðum um þá flokksfélaga sína, sem á laun legðu á ráðin um að sölsa undir sig forustu í flokknum, og sagði að slíkt gæti skaðað flokk- inn_ í kosningabaráttunni. Ýmsir þingmenn hafa látið að því liggja að deila Michaels Heseltines vara- forsætisráðherra og Michaels Portil- los varnarmálaráðherra um ákvörð- un stjórnarinnar um að smíða nýja snekkju handa drottningu fyrir 60 milljónir punda (rúmlega sex millj- arða króna) væri þáttur í baráttu þeirra um leiðtogahlutverkið. Kenneth Clarke. IITSALA Útsölu lýkur á laugardag, enn betri afsláttur af útsöluvörum. Langur laugardagur, opið kl. 10-17. PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 - Sími 562-3614 % ít %

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.