Morgunblaðið - 30.01.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.01.1997, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MYNPLIST Kjarvalsstadir/ Gallcrí Fold MÁLYERK Hringur Jóhannesson. Kjarvals- staðir: Opið kl. 10-18 alla daga til 16. febrúar; aðgangur kr. 300; sýningarskrá kr. 1200. Smákapítuli í íslenskri myndlist HRINGUR Jóhannesson: Sólmóða við mýrina. Gallerí Fold: Opið kl. 10-18 virka daga, kl. 10-17 laugard. og ld. 14-17 sunnud. til 2. febrúar; aðgangnr ókeypis. SKYNDILEGT fráfall Hrings Jóhannessonar á miðju sumri síð- asta árs, langt um aldur fram, var óvænt áfall fyrir íslenskan mynd- listarheim. Ekki aðeins fyrir að með honum hvarf af vettvangi góður myndlistarmaður, sem hafði með þolinmæði og árvekni náð að skapa afar sérstæðan myndheim sem þjóðin hafði hrifíst af, heldur einnig vegna þess að Hringur hafði verið nátengdur því jákvæði og umburð- arlyndi í garð nýjunga, sem eru forsenda þess að auka áhuga ann- arra á listinni. Hringur hafði stundaði sitt list- nám um miðja öldina, en gekk aldr- ei á hönd þeirri afstraklist, sem þá bar hæst í myndlist þjóðarinnar; í stað þess valdi hann sér einfaldlega annan starfsvettvang um sinn, og beið síns tíma. Hringur komst varla á skrið í eigin listsköpun fyrr en á sjöunda áratugnum, en fetaði sig síðan öruggum skrefum fram á veginn í þeirri persónulegu list, sem hann lagði rækt sína við alla tíð. Vegna kringumstæðna væri eðli- legt að álykta að sýningin á Kjar- valsstöðum hefði verið ákveðin að Hringi látnum, og henni ætlað að veita nokkurt heildaryfírlit yfír fer- il hans. Það er hins vegar ekki rétt; sýningin hafði verið í undirbúningi nokkuð lengi, og það var listamað- urinn sjálfur sem ákvað að miða tímaramma hennar við árin eftir 1970, enda nefndi Hringur gjarnan tímabilið fyrir 1970 sem „tilrauna- skeiðið í list sinni.“ Þeirri ákvörðun hefur verið fylgt eftir og er það vel, því afraksturinn verður afar sterk heild, sem þó verður að hafa í huga að birtir ekki alla þá þætti sem listsköpun Hrings náði til. í vestursal Kjarv- alsstaða hefur verið komið fyrir rúmlega sextíu málverkum Hrings sem spanna síðasta aldarijórð- unginn. Hér er sam- ankomið gott úrval mynda sem stað- festir með glöggum hætti helstu atriðin sem þekkt eru af ferli listamannsins. Þar er hvergi að finna neinar stórar breytingar, heldur jafna þróun, sem m.a. má tengja við stöðuga leit lista- mannsins að for- vitnilegum sjónar- hornum, tilvísanir hans í mannlega nánd í náttúrunni (t.d. með mannlaus- um vélum, heybögg- um, girðingum o.s.frv.), speglanir í vatni, gleri og öðru yfírborði, hlutverk þokunnar í land- inu og loks vaxandi hlut birtunnar hvort sem er að nóttu sem degi í verkum síðustu ára. Aðaldalurinn og almenn upplifun listamannsins af náttúrunni þar var kveilqan að mestum hluta listar Hrings, og nær öllu því sem hér ber fyrir augu. Staðhættir skipta hér minnstu máli, því það er í fæst- um tilvikum mikilfengleiki fjallanna eða sjóndeildarhringsins sem verður honum að myndefni; mýrarpollar, kargaþýfi, rigningin, birta og skuggar - uppsprettur myndanna eru í hinu nálæga og hversdagslega sem má fínna í hverri sveit á íslandi. Þannig eru náttúrumyndir Hrings í raun andstæða þeirrar landslagshefðar, sem íslendingar kenna við Kjarval, Ásgrím eða Jón Stefánsson. Þar er það oftar en ekki glæsileiki fjarlægðarinnar eða hrikaleiki hrauns og brattra hlíða sem eru í aðalhlutverki, en hér er það öðru fremur mýktin, nálægðin og síðast en ekki síst kyrrðin, sem er áhrifamest. Þessi sérstaða er sterkasti þáttur þess aðdráttarafls sem verk Hrings hafa ætíð haft, og hefur staðið utan við allar formbyltingar myndlistar- innar í meira en aldarfjórðung. Það var því hárrétt hjá listamanninum að velja þetta tímabil og slíkar myndir á eigin yfirlitssýningu - sem við verðum þó að njóta hér án hans. í sýningarskrá er að finna yfirlit yfír sýningarferil Hrings, sem og nokkrar ljósmyndir af verkum á sýningunni. Mestur fengur er að ágætri ritgerð Auðar Olafsdóttur listfræðings, sem tekst einkar vel að þræða saman alla helstu þætti í listsköpum Hrings og setja í sam- hengi við það umhverfí, sem lista- maðurinn starfaði í. Auður vitnar oft til orða hans og eigin viðhorfa, eins og þau komu fram í fjölmörg- um viðtölum í gegnum árin. Þar kemur hógværð listamannsins vel fram í síðasta blaðaviðtalinu sem var tekið við hann, þegar hann er spurður um framlag sitt til íslenskr- ar myndlistar: „Ég held ég sé að vinna að smá kapítula í íslenskri myndlist og er alveg sáttur við það.“ Hér er að finna yfirlit þessa kap- ítula, sem er rétt að hvetja allt áhugafólk um íslenska menningu til að njóta í eigin persónu. Síðustu verkin í Gallerí Fold stendur yfir sýning á nokkrum af síðustu verkum Hrings, sem einnig er rétt að vekja athygli á. Kjarni sýningarinnar eru pastelmyndir sem hann vann á síðustu vikum ævi sinnar, sem og nokkur olíumálverk, þar sem aukið vægi birtunnar er í aðalhlutverki. Pastelmyndirnar leiða hugann að vinnulagi listamannsins, enda eru þær oft afar ferskar og unnar hraðar en málverkin. Hringur vann þannig myndir oft á vettvangi, og þó þær séu fullgild og sjálfstæð listaverk, urðu þær ásamt teikningum kveikjan að olíumálverkunum, sem hann vann í vinnustofunni að Haga. Þar endurskapaði hann sjónarhomið á hið hversdagslega við fætur sér, breytti litaspjaldi og færði viðfangsefnið í þann búning, sem honum þótt hæfa því og miðlinum, sem hann vann með. Teikningar Hrings em síðan kapítuli út af fyrir sig, sem mætti veita meiri athygli, en hér er einnig að fínna nokkur sýnishom þeirra, t.d. af hestum. Helst má sakna þess að ekki séu fleiri teikningar úr Reykjavík; borgarmyndir hans eru um margt sérstakar, en þær sáust síðast á sýningu hans á Mokka fyrir tveimur ámm. Það er því af ýmsu að taka í listsköpum þessa listamanns, eins og m.a. kom fram í bók Aðalsteins Ingólfssonar um listamanninn 1989, og er glögglega staðfest með þessum tveimur sýningum. Þó hógvær skilgreining Hrings sjálfs kalli ekki eftir slíku, er vonandi að ferill hans og list hljóti þá athygli sem vert er í framtíðinni. Eiríkur Þorláksson Mannlífsflóran á horninu II. Nigel Kennedy snýr aftur London. The Daily Telegraph. VILLINGURINN með fíðluna, Nigel Kennedy, hyggst snúa sér aftur að tónleikahaldi, þrátt fyrir yfírlýsingar um annað fyrir tæpum fimm árum, er hann dró sig út úr sviðsljósinu. Tilkynnt hefur verið að hann muni halda tónleika í Roy- al Festival Hall þann 10. apríl en þar mun hann leika verk eftir J.S. Bach, Béla Bartok og Jimi Hendrix. Kennedy skaust upp á stjömu- himininn með ógnarhraða á síðasta áratug. Hann var virtur og fyrirlit- inn fyrir klæðaburð sinn, hegðun og óveiyulega túlkun á helstu meist- araverkum sígþldrar tónlistar en álagið var einnig gífurlegt. Árið 1992 fékk hann nóg og dró sig í hlé. Lítið hefur heyrst til hans síðan nema hvað í lok síðasta árs kom út geisladiskur með verkum eftir Kennedy sjálfan. Hann er nú orðinn fertugur, ný- orðinn faðir, og útgefandi hans seg- ir hann hafa öðlast þá sálarró sem hann sakn- aði svo mjög. Vinir hans segja hann þó ekki hafa glatað áhug- anum á því að koma fram, hann klæi í fíng- umar að komast á tón- leikapall að nýju. Hann leggi hins vegar áherslu á að endur- koman verði eins lát- laus og kostur sé. Að undanförau hef- ur hann æft fimm klukkustundir á dag. í júní hyggst hann leika fiðlukonsert Elgars með hljómsveit St. Martin-in-the-Fields í Nigel Kennedy Hong Kong, skömmu áður en Kín- veijar taka við völdum í nýlend- unni. í júlí mun hann leika konsert- inn undir stjórn Sir Simons Rattle með sinfóníuh(jóm- sveitinni í Birmingham en Kennedy er þekktur fyrir túlkun sína á þessu verki Elgars. Nigel Kennedy var þekktur fyrir villtan klæðaburð og enn villt- ari hegðun á köflum, t.d. varð hann að greiða um 300.000 ísl. kr. vegna skemmda á hóteli í Berlín árið 1992. Útgefandi hans segist ekki alveg vita á hveiju sé von þegar Kennedy birtist á pall- inum að nýju. „Hárið stendur ekki alveg jafnstrítt út í loftið og það gerði. En ég held ekki að hann komi fram í Iqól og hvítu. Hann birtist í þvi sem honum dettur í hug.“ KVIKMYNPIR Regnboginn BLÁR f FRAMAN (BLUE IN THE FACE) ★ ★★ Leikstjórar og handritshöfundar Paul Auster og Wayne Wang. Kvikmyndatökusljóri Adam Holend- er. Tónlist John Lurie ofl.. Aðal- leikendur Harvey Keitel, Roseanne, Michael J. Fox, Giancarlo Esposito, Lou Reed, Jim Jarmusch, Mel Gor- ham, Jose Zuniga, Steve Gevedon, Lily Tomlin, Jared Harris, Madonna, Mira Sorvino, Malik Yoba. 95 mín. Bandarísk. Miramax 1995. KVIKMYNDAGERÐARMENN- IRNIR sem stóðu að hinum eftir- minnilegu mannlífsrannsóknum í Reyk, höfðu greinilega ekki síður gaman af en áhorfendur. Auggie tóbakssali (Harvey Keitel) og versl- unin hans á hominu í Brooklyn, er enn á ný þungamiðja atburðanna. Mannlífsflóran fjölbreytt og öll hin líflegasta og tengist kaupmanninum á einhvem hátt. Yfírbragðið og að- ferðir Austers og Wangs við að draga fram sérkenni og oftast sér- viskulegt háttalag persónanna eru þau sömu og fyrr. Leikarar koma og fara, spinna samræðurnar meira og minna frá eigin bijósti. Hér eru flestir burðarásamir til staðar, Keit- el, Esposito, Gorham og Gevedon, síðan setja frægir gestaleikarar mis- munandi mikinn svip á umhverfíð. Það væri til of mikils ætlast að fara framá að hópurinn næði jafn eftirminnilegum árangri og í Reyk, sem var á sinn hátt nánast lýta- laus. Smávægilegur áherslumunur er þó á framvindunni til hins verra. Það snjalla púsluspil persónanna og umhverfisins - sem var einn besti þátturinn í Reyk- er ekki eins áberandi hér heldur er myndin frekar röð uppákoma og virkar sundurlausari fyrir bragðið. Þá saknar maður rithöfundarins hans Williams Hurt. En maður kemur í manns stað. Mest á óvart kemur sá goðsagnar- kenndi neðanjarðarrokkari, Lou Reed, með sínum heimspekilegu vangaveltum um heimaborgina sína (sem hann telur mun hættu- minni en Svíþjóð - þar sem ailt sé svo fjári gerhugult!) Jim Jarmusch, sá snjalli leikstjóri og sögumaður, er líka velheppnað krydd í Brooklyn bixímatinn, í meinfyndnu hlutverki manns sem er að reykja síðustu sígarettuna. Lily Tomlin og Micha- el J. Fox eru einnig óborganleg í litlum hlutverkum, nánast óþekkj- anleg. Svo mætti lengi telja. Keitel og félagar hans úr fyrri mynd- inni, Esposito, og ekki síst Gorham í hlutverki spánskættaðrar, ást- sjúkrar hasargellu, fara öll mik- inn. Skemmtileg viðbót, sem unn- endur Reyks ættu alls ekki að missa af. Sæbjörn Valdimarsson UMDEILD bók Daniels Goldsteins um hlut þýsks almennings í helför- inni gegn gyðingum í heimsstyijöld- inni síðari er á meðal þeirra verka sem tilnefnd hafa verið til bók- menntaverðlauna bandarískra gagn- rýnenda, The National Critics Circle Awards. Tilkynnt verður um verð- launin, sem eru ein þau eftirsóttustu vestanhafs, þann 18. mars nk. í New York. Veitt eru verðlaun fyrir skáldverk, ljóð, ævisögur og heimildaverk, auk bókmenntagagnrýni sem út hefur komið á bók. Skáldverkin sem eru tilnefnd, eru: „About Schmidt" eftir Louis Begley, „Women in their Beds“ eftir Ginu Berriault, „Dancing after Hours“ Goldstein tilnefndur til gagnrýnenda- verðlauna eftir Andre Dubus, „The Auto- biography of My Mother" eftir Jama- ica Kincaid og „From Bondage" eftir Henry Roth. Heimildaskáldsögumar eru, auk verks Goldhagens, „Hitler’s Willing Executioners": „The Great Books“ eftir David Denby, „Ashes to Ashes“ eftir Richard Kluger, „The Middle East“ eftir Bernard Lewis og „Bad Land“ eftir Jonathan Raban. Tilnefndar ævisögur eru: „Angel- a’s Ashes“ eftir Frank McCourt, „Pearl S. Buck: A Cultural Biograp- hy“ eftir Peter Conn, „Lush Life: A Biography of Billy Strayhorn” eftir David Hajdu, „The Last Happy Occ- asion“ eftir ALan Shapiro og „Char- les Ives: A Life in Music“ eftir Jan Swafford. Ljóðskáldin fímm sem tilnefnd eru, heita Stephen Dunn, fyrir „Loosest- rife“ Martin Espada, höfundur „Imagine the Angels of Bread“, Rob- ert Hass fyrir „Sun Under Wood“ Jane Shore fyrir „Music Minus One“ og C.K. Williams fyrir bók sína „The Vigil“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.