Morgunblaðið - 30.01.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997 23
LISTIR
Dagskrá í tilefni af níutíu ára afmæli Samkomuhússins á Akureyri
Kossar og
kúlissur
Fyrir réttum 90 árum reis Samkomuhúsið
á Akureyri, sem þjónað hefur leiklistinni frá
þeim tíma. Margrét Þóra Þórsdóttir heim-
sótti leikfélagsfólk, sem riflar upp söguna í
dagskrá sem verður frumsýnd í kvöld.
í KOSSUM og kúlissum er
brugðið ljósi á helstu verkefni
sem sett hafa verið upp í ní-
ræðu Samkomuhúsinu.
ingin er riú'uð upp og nokkrir vin-
sælir söngleikir seinni ára, Fiðlar-
inn á þakinu, Edith Piaf og My
Fair Lady, verða ljóslifandi á
gamla sviðinu og helstu persónum
þeirra bregður fyrir.
Tónlistin veigamikill þáttur
Tónlistin setur mikinn svip á sýn-
inguna, en Kór Leikfélags Akur-
eyrar tekur virkan þátt í henni.
Kórinn er tveggja ára og taka tutt-
ugu félagar þátt í sýningunni, þar
er bæði um að ræða fólk sem áður
hefur tekið þátt í sýningum leikfé-
lagsins og þekkir til starfa í leikhús-
inu og einnig fólk sem er að stíga
sín fyrstu skref á sviði. „Þetta er
góð blanda og kórinn fær með þessu
verkefni góða reynslu. Hugmyndin
að stofnun kórsins var sú í upphafi
að leikfélagið hefði aðgang að vönu
söngfólki sem hefði nokkra æfingu
í að koma fram á sviði, þannig að
þessi uppfærsla verður okkur dýr-
mæt reynsla,“ segir Jóhann Möller,
einn kórfélaga. „Þetta hefur verið
mikil vinna, við höfum verið við
æfingar svo til linnulaust allan jan-
úarmánuð - en ekki þreytu að sjá
á nokkrum manni.“
Guðbjörg Thoroddsen leikur
Þórgunni leikstjóra, Marta Nordal
Hörpu leikkonu, Þórey Aðalsteins-
dóttir fer með hlutverk Málfríðar
og Jónsteinn Aðalsteinsson leikur
Sigurmar Ólafsson, sendifulltrúa
bæjarstjórnar. Sigríður Elliðadóttir
og Aðalsteinn Bergdal syngja ein-
söng í sýningunni. Nokkrir kórfé-
lagar taka einnig nokkur söngnúm-
er. Gréta Baldursdóttir leikur á fiðlu
og Richard Simm leikur á píanó.
Roar Kvam útsetti tónlistina sem
flutt er og æfði hana. Sunna Borg
leikstýrir, Freygerður Magnúsdóttir
sér um búninga í sýningunni, Ing-
var Björnsson hannar lýsingu.
LEIKFÉLAG Akureyrar í sam-
vinnu við Kór Leikfélags Akur-
eyrar frumsýnir í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 30. janúar, dagskrá
sem hlotið hefur nafnið Kossar og
kúlissur. Dagskráin er sett saman
í tilefni af 90 ára afmæli Sam-
komuhússins en flutt er tónlist úr
nokkrum vinsælustu sýningum
Leikfélags Akureyrar sem settar
hafa verið upp í hinu níræða húsi.
Höfundur handrits er Hallgrímur
Helgi Helgason.
Samkomuhúsið var byggt árið
1906 og fyrsta leiksýning þar var
í janúar 1907. í bókinni Saga leik-
listar á Akureyri eftir Harald Sig-
urðsson segir frá því að stúkurnar
ísafold og Trúföst hafi byggt Iítið
Templarahús á árunum 1902-3
sem stóð undir brekkunni þar sem
Samkomuhúsið stendur nú. Þegar
ijölga tók í stúkunum þótti brýn
nauðsyn á meira rými þannig að
forsvarsmenn stúknanna urðu
sammála um að byggja nýtt sam-
komuhús.
Húsið kostaði 28.500 krónur
Smiðirnir og reglubræðurnir
Guðbjörn Björnsson og Guðmund-
ur Ólafsson keyptu litla Templara-
húsið og fluttu það norður á Torfu-
nef.
Tilboði þeirra félaga í byggingu
nýs húss fyrir 21. 500 krónur var
tekið, en Björn Björnsson smiður
kom að einhveiju leyti einnig inn
í samninginn. Bærinn ábyrgðist
7.000 króna lán og tók neðstu hæð
hússins á leigu fyrir lestrarsal,
bókasafn og bæjarstjórnarfundi.
Hafist var handa við bygginguna
vorið 1906 og með bjartsýni og
stórhug tókst að reisa þetta glæsi-
lega hús á rúmlega hálfu ári, en
það þótti um langt skeið eitt veg-
legasta samkomuhús utan Reykja-
víkur. Fullbúið með húsgögnum
kostaði húsið 28.500 krónur.
Það var vígt á Þorláksmessu,
templarar héldu hátíðarfund
skrýddir einkennum sínum, Hekla
skemmti með söng og Guðlaugur
Guðmundsson bæjarfógeti flutti
vígsluræðu og þá þakkaði séra
Matthías Jochumsson reglubræð-
rum húsbygginguna sem væri
bænum til sæmdar. Fyrsta leik-
sýningin í Samkomuhúsinu var á
leikritinu Ævintýri á gönguför
HELENA Eyjólfsdóttir og Þráinn Karlsson í hlutverkum sínum
i Ævintýri á gönguför sem sýnt var leikárið 1959-1960.
LJÚFSÁRI söngleikurinn Bláa kápan naut mikilla vinsælda þegar hún var sett upp leikárið 1960-1961.
sem var frumsýnt 20. janúar árið
1907.
Undarlegir atburðir gerast
I Kossum og kúlissum segir frá
metnaðargjörnum leikstjóra sem
ráðinn er til Leikfélags Akureyrar
til að setja upp afmælisdagskrá í
tilefni af 80 ára afmæli félagsins.
Leikstjórinn mætir á svið Sam-
komuhússins ásamt ungri leikkonu
og hyggst fara að undirbúa sýn-
inguna. Fulltrúi, sem bæjarstjórn
ætlaði að senda á fund leikfélags-
manna vegna afmælisins, villist
inn á sviðið og fyrr en varir fara
undarlegir atburðir að gerast.
Málfríður, gamli búningameistari
hússins á leið um og fer að rifja
upp nokkur þau helstu verk sem
bæjarbúar og gestir þeirra hafa
notið á fjölum Samkomuhússins í
níu áratugi. Ævintýri á gönguför,
Meyjarskemman, Nitouche,
Skugga-Sveinn, Fjalla-Eyvindur,
Piltur og stúlka, stríðsárastemmn-
.Tölvukjör
TOlVUr
verslun
heimilanna
Kynning á CorelDraw 7.0
í kvöld fáum við sérfræðing frá Hugbúnaði hf. til að kynna fyrir gestum okkar nýjustu útgáfuna
af hinu frábæra forriti CorelDraw. CorelDraw er heilsteyptur pakki sem hentar vel í alla
grafíska hönnun. Þar er að finna öflugt teikniforrit, myndvinnsluforrit og fleira.
Corel 7.0 aðeins kr. 52.482 - Rétt verð: kr. 62.752
Litahylki í HP prentara1 ’og Corel 4.0 á geisladisk fyrir aðeins kr. 3.500!
Geisladiskurinn inniheldur m.a. forritin CorelDraw 4.0, CorelChart og CorelPhoto myndvinnsluforritiöj
100 leturgerðir og 1.000 myndir. Frábær pakki fyrir |tá sem vilja gera glæsilegt kynningarefni!
(*) HPDtskJel310 . 320/340 400 500c 540 550c 560c og OcskWriter C 310 320 340 / 540 S50c 560c
'JmíÍ, öll timmtudagskvöldl
Fræðsla
& fjör
í Tölvukjör
r»rá klukkan sjö til tiu
Faxafeni 5
108 Reykjavik
Sími 533 2323
Fax 533 2329
TÍLHUIUÖR
tolvukjor@itn.is
Opið virka daga 12:00-18:30
fimmtudaga 12:00-22:00
og laugardaga 10:00-16:00 A