Morgunblaðið - 30.01.1997, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997 25
AÐSENDAR GREINAR
ALMENNINGUR
þarf að átta sig á því
hve mikið er í húfi,
þegar rætt er um end-
anlegt markaðsverð
kvóta úthlutað á skip,
sem sjávarútvegsráð-
herra getur ráðskast
með að eigin geðþótta
samkvæmt hinum
misheppnuðu úthafs-
veiðilögum. Endan-
legt markaðsverð á
úthafsveiðikvóta er
nokkurn veginn sem
hér segir: Flæmski
hatturinn, (rækja),
6.800 tonn, verðmæti
kr. 1,4 milljarðar.
Reykjaneshryggur, (karfi), 50.000
tonn, kr. verðmæti 12 milljarðar.
„Smugan“ (þorskur), 20.000 tonn,
kvótaverðmæti kr. 12,0 milljarðar;
reyndar er nokkur óvissa um
Smuguveiðarnar. Markaðsverð-
mæti í dag er því samtals rúmir
25 milljarðar króna.
Verði settur skipak-
vóti á íslensk-norska
síldarstofninn fengi
sj ávarútvegsráðherra
margra milljarða verð-
mæti í viðbót til út-
hlutunar.
Enginn árangur af
kvótakerfinu!
Það er kátbroslegt
að hafa heyrt formæ-
lendur kvótans halda
því fram, að verið sé
að ná einhveijum ár-
angri í uppbyggingu
þorskstofnsins með
kvótanum.
Ef þorskveiðin er skert um
100.0001 á ári, er það gert í þeirri
von, að þau náist aftur á næstu
árum eða einhvern tíma seinna.
Það er af og frá, að slíkt borgi
sig. Þorskafii okkar hefur aukist
lítillega á síðustu tímum, en þó
Það hefur ekki fyrr í
mannaminnum, segir
Gunnlaugnr Þórðar-
son, veiðst þorskur í
Miklavatni í Fljótum.
er langt frá því að aflinn nái því,
sem hann var í gamla daga. Afla-
magnið er helmingur á við það,
sem það var, þegar Bretar og aðr-
ar þjóðir veiddu í skjóli 3ja sjó-
mílna langhelginnar uppi í land-
steinum. Fiskurinn hefur synt í
sjónum í miklum mæli, engum til
gagns og orðið sjálfdauður. Út-
gerðin rekst á matadorspil kvóta-
kerfisins.
Merkilegar rannsóknir
Allt er þetta að koma betur í
ljós. Merkilegar eru rannsóknir og
kenningar hinna þriggja ungu vís-
indamanna á Veiðimálastofnun,
en þeir hafa leitt rök að því, að
það sé viss samsvörun á miili fisk-
gengdar í Barentshafí og í Island-
sálum, sem lýsi sér í því, að fisk-
gengd í Barentshafi komi fram á
miðum okkar tveimur árum
seinna. Það hefur einmitt reynst
svo um þessar mundir. Mesta
þorskfískgengd í Barentshafí á
síðustu 30 árum kemur nú fram
á miðum okkar sem sú mesta í
30 ár.
Veiði hefur lítil áhrif
á fiskstofnana
Skal til fróðleiks aðeins nefnt
eitt dæmi til sönnunar um hina
mikla fiskgengd. í manna minnum
hefur aðeins silungur veiðst í
Miklavatni í Fjótum, en úr vatninu
er ós út í sjó. Að undanfömu hafa
bændur í Fljótum veitt mörgum
hundruðum saman rígaþorska með
dorg, og rækju að beitu, úr Mikla-
vatni. Það hefur ekki komið fyrir
síðustu hálfa öldina, að þorskur
yrði dorgaður eða veiddur úr
Miklavatni. Þessi óvenjulega þors-
kveiði sannar aftur á móti hina
miklu þorskgengd, að fískurinn
leitar meira að segja inn í ár lands-
ins vegna fæðuskorts, svo og
vegna þess að hann er of lítið
veiddur.
Allt, sem nefnt hefur verið í
skrifum mínum hér í blaði undan-
farið, sannar það, sem sá merki
skipstjóri og útgerðarmaður, Þórð-
ur Hermannson, hélt fram meðan
hans naut við og fjöldi annarra
sjómanna, að sjálf veiðin hafi
hverfandi áhrif á stærð fiskstofn-
anna. Kvótinn hafi frá upphafi
verið rugl, eins og sá mæti maður
orðaði það.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
Qjóstuijiidaslofa
CJuntiars úngituarssottar
Suðurveri, simi 553 4852
________________________________mmmm
Milljarða kvótaúthlutun
Þorsteins Pálssonar
Gunnlaugur
Þórðarson.
í. , e
Árangursríkt samstarf
Við erum stolt yfir tilnefningu HÉR & NÚ auglýsingastofu til EPICA verðlaunanna
þriðja árið í röð. í þetta sinn fyrir markpóst til kynningar á Moltu,
lífrænum jarðvegsbæti frá SORPU.
Árangurinn byggir á góðri samvinnu við listafólk og viðskiptavini.
Að verkinu komu eftirfarandi auk HÉR & NÚ auglýsingastofu:
Valdís Harrysdóttir - ung listakona sem blæs nýju lífi í íslenska hefð
meðfrumlegri ogglæsilegri hönnun sinni, Völuskríni, sem unnin er
úr náttúrulegum efnum; grísaþvagblöðru, grænmeti og endurunnum pappír.
Kristján Logason - ungur Ijósmyndari sem hefur metnað í vinnubrögðum
og listræn, spennandi efnistök.
SORPA - gott fyrirtæki sem er tilbúið til að fara ótroðnar slóðir
til að ná árangri og bæta umgengni okkar við umhverfið.
Heiður okkar er einnig þeirra. Hafi þau þökk fyrir samstarfið.
\mi\
AUGIYSINGASTOFA