Morgunblaðið - 30.01.1997, Síða 52

Morgunblaðið - 30.01.1997, Síða 52
Q3> AS/400 er... ...þar sem grafísk notendaskil eru í fyrirrúmi <Ö> NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 - S'MI 569 7700 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SlMl 569 1100, SlMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 80. JANÚAR 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Krapa- og aurflóð féll á milli íbúðarhúsa á Bíldudal Flóðið stefndi á íbúðarhúsin MESTA mildi var að enginn varð fyrir stóru krapa- og aurflóði sem féll úr Gilsbakkagili og á milli íbúðarhúsa á Bíldudal í fyrra- kvöld. Fólk í þremur íbúðarhúsum sem standa við sjóinn neðan við gilið varð hrætt þegar það sá hversu stórt flóð stefndi á húsin. Það stöðvaðist að mestu við brú á þjóðveginum og dreifðist. Til- tölulega litlar skemmdir urðu á eignum. Um það leyti sem flóðið féll voru unglingar á leið heim af fundi í unglingadeild slysavarnadeildar- innar á Bíldudal. Ekki er vitað til þess að neinn þeirra hafi verið nálægt þegar flóðin féllu. „Dætur mínar höfðu komið við í húsi á leiðinni. Annars hefðu þær verið á þeim slóðum sem flóðið féll,“ segir Jón Þórðarson skipstjóri og kaup- maður. Kom eins og veggur Fólk í húsum við gilið heyrði miklar drunur i fjallinu í rúma mínútu áður en flóðið kom í birtuna frá götuljósunum. „Ég hélt fyrst að hávaðinn kæmi frá sjónvarpinu en hann minnkaði þegar ég fór þangað svo ég hljóp aftur út. Maður gat átt von á flóði vegna hlaupsins í hinu gilinu en ég sá ekkert og var farinn að halda að þetta væri veðurgnýr þegar hlaupið kom,“ segir Sigurður Brynjólfsson skipstjóri sem býr í Sælundi 3, á bakka gilsins niður við sjóinn. „Hlaupið kom eins og veggur og geysilegur gusugangur ofan á. Ég sá að gilið fylltist og ljósastaur- inn hvarf,“ segir Sigurður. Ljósa- staurinn er átta metra hár og brotnaði kúpullinn í hamförunum. „Ég hélt fyrst að grafan væri komin,“ segir Vilborg Jónsdóttir á Dalbraut 42, en það hús stendur á gilbarminum að vestanverðu. Hún leit út og sá flóðið þegar það kom í birtuna frá götuljósunum og það var svo hátt að húsið fyrir framan þeirra hús hvarf. „Ég kall- aði til Gunnars: Fjallið er að koma. Sá svo vatnsgusur fara niður um allt og hélt að flóðið færi yfir hús sonar okkar sem býr hér fyrir neð- an. Það var skelfilegt að finna titr- inginn og vita ekki hvar flóðið lenti,“ segir Vilborg. ■ Fjallið er að koma/4 ■ Stærsta skriðan féll/6 Morgunblaðið/Golli UNNIÐ var við að hreinsa aur, grjót og krapa af þjóðveginum fyrir neðan Gilsbakkagil á Bíldudal í gær. Þar stöðvaðist flóðið að mestu og olli því litlu tjóni á þremur íbúðarhúsum sem standa þar fyrir neðan. Þjálfari Völu Undrast áhugaleysi forystunnar ÞJÁLFARI Völu Flosadótt- ur, heimsmethafa unglinga í stangarstökki, segist undrast áhugaleysi frjálsíþróttafor- ystunnar á Islandi. Stanislav Szcybra segist aldrei hafa heyrt frá Frjáls- íþróttasambandinu. „Mér finnst ekkert til of mikils ætlast að frammámenn í frjálsíþróttum hafi samband við mig öðru hverju og kanni stöðu mála,“ segir hann við Morgunblaðið í dag. Pólveijinn segist hafa þjálfað Völu í sjálfboðavinnu, einskær áhugi og vissa um að Vala geti náð langt hafi rekið sig áfram hingað til. ■ Hættu að gleðjast/D4 Nýleg greinargerð Ragnars Aðalsteinssonar hrl. um samkeppnisstöðu Eimskips Eimskip orðið markaðs- ráðandi í landflutningum EIMSKIP hefur öðlast markaðs- ráðandi stöðu á landflutninga- markaðnum þegar tekið er tillit til heildarstyrkleika félagsins. Fyrir hafði Eimskip a.m.k. 75% hlutdeild í heildarflutningum til og frá ís- landi og er þá ekki tekið tillit til stórflutninga, þar sem félagið hef- ur jafnframt verulega markaðs- hlutdeild. Þetta kemur fram í greinargerð Ragnars Aðalsteinssonar, hæsta- réttarlögmanns, sem hann vann fyrir umbjóðanda sinn á landflutn- ingasviði í október sl. Þar eru færð fyrir því rök að Eimskip hafi um 75% hlutdeild í stykkjavöruflutn- ingum. Félagið hafi jafnframt öðl- ast veruleg ítök í rekstri og starfi Flugleiða hf. sem annist um 95% allra flutninga milli Islands og annarra landa með flugi. Hér innanlands megi ætla að félagið sé með um 77% hlutdeild í sjóflutningum í kringum landið og á landflutningamarkaði er fé- lagið talið vera með rúmlega 50% hlutdeild. Almennir landflutningar séu eini þáttur flutninganna sem Eimskip hafi ekki haft hingað til, en félagið virðist hins vegar stefna markvisst að því að auka hlut sinn í þessum markaði með kaupum og yfirtöku fyrirtækja. Ragnar kemst að þeirri niður- stöðu að nægar ástæður séu að lögum til að félaginu verði gert að losa sig við beina eða óbeina eignaraðild að Vöruflutningamið- stöðinni hf. m.a. með því að selja eignarhluti sína í Dreka hf., Viggó hf. og Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórð- arsonar hf. Að auki virðist nægar ástæður til að Samkeppnisráð leggi bann við því að Eimskip auki áhrif sín á sviði landflutninga með því að fjárfesta í landflutningafyrir- tækjum beint eða óbeint eða með því að stofna slík félög. ■ Þorri allrar/12 Básafell og Kambur ræða sam- einingu KAMBUR HF. á Flateyri og Bása- fell hf. á ísafirði hafa hafið viðræður um sameiningu fyrirtækjanna. Sam- einað kæmi fyrirtækið til með að ráða yfir um 12.000 þorskígildis- tonnum og yrði meðal stærstu sjáv- arútvegsfyrirtækja landsins. Kambur hf. hafði áður en til sam- einingarviðræðna kom tilkynnt for- svarsmönnum Frosta hf. og Bakka hf., sem hann hefur átt í viðræðum við um sameiningu, að hann drægi sig út úr þeim viðræðum. Einar Oddur Kristjánsson, stjórn- arformaður Kambs hf., og Gunnar Birgisson, stjórnarformaður Bása- fells hf., staðfestu í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að fyrir- tækin tvö stæðu af mikilli alvöru í viðræðum um sameiningu. Báðir kváðust bjartsýnir á jákvæða niður- stöðu. ♦ ♦ ♦----- Bankamenn krefjast 14% hækkunar Heimild til verkfalls- boðunar samþykkt BANKAMENN hafa veitt samninga- nefnd Sambands íslenskra banka- manna og formönnum starfsmanna- félaga heimild til boðunar verkfalls ef ekki verði séð fram á árangur af samningaviðræðum sem standa yfir. Ekki þarf að viðhafa almenna atkvæðagreiðslu vegna boðunar vinnustöðvunar í bönkunum en um bankastarfsmenn gilda lög frá 1977 og skv. þeim getur samninganefnd og formenn félaga tekið ákvörðun um vinnustöðvun með 15 daga fyr- irvara eftir að hafa fengið heimild til verkfallsboðunar. Áður en til verkfalls kemur ber sáttasemjara að leggja fram sáttatillögu og um hana þarf að fara fram allsheijaratkvæða- greiðsla. Bankamenn vilja að samið verði til tveggja ára. Kreíjast þeir 14% hækkunar allra launataxta og til viðbótar því hækki laun undir 100 þús. kr. á mánuði um 7%. ■ Krefjast 14%/10 -----♦-♦-♦-—.- Hæstiréttur Kæru Hanes-hjóna vísað frá HÆSTIRÉTTUR ákvað í gær að vísa frá kæru lögmanns Hanes hjón- anna, sem var til komin vegna óánægju með töku lögreglu og barnaverndaryfirvalda á barnabarni Connie Jean Hanes í seinustu viku úr þeirra umsjá. Hjónin töldu að hagsmunum barnsins hefði verið betur borgið í þeirra höndum. Hanes-hjónin kynntu í fyrradag sjónarmið sín varðandi athugun Út- lendingaeftirlitsins á brottvísun þeirra úr landi og segir Jóhann Jó- hannsson yfirmaður Útlendingaeft- irlitsins ekki ljóst hvenær endanleg ákvörðun um mál þeirra liggi fyrir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.