Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Reuter SYSTURNAR Dagbjört Vesile og Rúna Aysegiil mættu fyrir rétt í Istanbúl I gærmorgun ásamt föður sínum, ísak Halim Al, vegna umgengnisréttarbrota hans gagnvart Sophiu Hansen, og báru að þær óskuðu ekki eftir að hitta móður sína. 37% skattþrep er talið kosta ríkissjóð 5 milljarða SERFRÆÐINGAR fjármálaráðu- neytisins telja að tillögur lands- sambanda innan ASÍ, um að lækka skatthlutfall tekna undir 150 þús- und krónum á mánuði í 37%, myndi kosta ríkissjóð um fimm milljarða króna, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. ASÍ hefur haldið því fram að skattatillögur lands- sambandanna kosti ríkið um fjóra milljarða. Ráðherrar hitta forystu ASÍ á fundií dag Ekki er meðtalið í mati sérfræð- inganna hugsanlegt tekjutap vegna hugmynda um breytingar á tekju- tengingu bóta eða hærri launa sam- kvæmt launakröfum. í yfirlýsingu landssambandanna sl. föstudag segir að þau vænti þess að eiga á næstu dögum sem best samstarf við aðra aðila um endanlega útfærslu á tillögum sem uppfylla þessi markmið í skattamál- um. Ákveðið hefur verið að forystu- menn landssambanda ASÍ eigi fund með ráðherrum í stjórnarráðinu í hádeginu í dag um kröfur ASI á hendur stjómvöldum. Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, kvaðst ekki vilja staðfesta mat sérfræðinga ráðuneytisins á áhrifum tillagna landssambanda ASI um lægra skattþrep. Ráðherra telur viðræður eðlilegar en fulltrú- um ASI gefist í dag tækifæri til að kynna tillögur sínar. „Það er á hinn bóginn forsenda af okkar hálfu að niðurstaða við- ræðna um skattkerfisbreytingar, jafnt í starfi ráðherraskipaðrar nefndar um það efni og í viðræðum ASÍ og stjómvalda, leiði ekki til halla á ríkissjóði," sagði ráðherra. Óráðlegt að hnýta skatta- breytingar við samninga Forystumenn BSRB ætla að kynna sjónarmið samtakanna um launa- og skattamál í dag. Ögmund- ur Jónasson, formaður BSRB, vill lítið tjá sig um kjarastefnu ASÍ að svo stöddu en segir að menn vilji sjá heildarpakkann og hvernig fjár- magna eigi skattkerfisbreytingar. „Við höfum verið þess mjög fýs- andi að hafa sem nánast samstarf við Alþýðusambandið og önnur samtök launafólks um skattabreyt- ingar. Ég hef hins vegar mjög mikl- ar efasemdir um að Vinnuveitenda- sambandið eigi að koma að þeim málum og tel að þeir hafi haft of mikil áhrif á liðnum árum á skatt- kerfísbreytingar. Ég tel því óráðlegt að hnýta þetta fast við frágang kiarasamninga." seffir hann. Systumar bám vitni í undirrétti RÉTTARHALDI í sakamáli ísaks Halims Al, sem ákæruvaldið höfð- aði gegn honum vegna umgengn- isréttarbrota hans gagnvart Sop- hiu Hansen, var frestað í undir- rétti í Istanbúl í gærmorgun til 7. mars. Að sögn Ólafs Egilssonar sendi- herra stóð réttarhaldið aðeins í um 40 mínútur. Dætur þeirra Halims A1 og Sophiu, Dagbjört Vesile og Rúna Aysegiil, komu fyrir réttinn og báru að þær ósk- uðu ekki eftir að hitta móður sína. Lögmaður Sophiu benti á að hún væri búin að koma 142 ferðir til Tyrklands í von um að hitta þær. Því hefði óhjákvæmilega fylgt ærinn tilkostnaður. Þess vegna væri óheyrilegt ef málinu lyki með óverulegri sekt. Refsing- in þyrfti að vera þess eðlis að hún skapaði raunverulegan þrýsting á sakborninginn til þess að hann breytti háttum sinum. Lögmaður ísaks Halims A1 bað um frest til þess að bera fram vamir í málinu og var faliist á að fresta réttar- haldinu þar til 7. mars nk. Columbia tekur ákvörðun um álver á Grundartanga fyrir lok mars Hráefni er tryggt og búið að semja um sölu afurða COLUMBIA Ventures Corporation hefur tryggt sér hráefni til vinnslu áls á Grundartanga og einnig sam- ið um sölu á því áli sem fyrirhugað er að framleiða í væntanlegu álveri á Grundartanga. James Hensel að- stoðarforstjóri Columbia segir að þessir samningar séu stórt skref í þá átt að álver rísi og einn af loka- áföngum verkefnisins. Hensel kvaðst í gær vænta þess að endan- leg ákvörðun um byggingu álvers- ins verði tekin fýrir lok mars en áður þurfí að semja um fjármögn- un, fá starfsleyfí gefið út og ljúka lagasetningu frá Alþingi. Viljayfírlýsingamar tvær fela í sér að Columbia og fyrirtækið Bill- iton Marketing and Trading BV hafa komist að samkomulagi til 10 ára um að Billiton sjái álveri Col- umbia fyrir súráli og kaupi af því framleitt ál. Verðmæti súrálsins á samkomulagstímanum er 200-300 milljónir dollara, 14,2-21,3 milljarð- ar króna og veltur á heimsmarkaðs- verði á áli. Samið um kaup á kolaskautum Þá hefur Columbia undirritað viljayfírlýsingu vegna samkomu- lags við fyrirtækið VAW Alumin- ium AG í Þýskalandi um að fyrir- tækið láti álverinu á Grundartanga í té kolaskaut og taki notuð kola- skaut til endurvinnslu. Það sam- komulag er metið á 150-200 millj. bandaríkjadala, 10,7-24,2 milljarða íslenskra króna. James Hensel sagði í gær að þátt- taka þeirra tveggja fjölþjóðlegu fyr- irtælq'a sem samkomulag hefur náðst við um hráefnisþáttinn styrki þetta verkefni. „Við erum glaðir og spenntir yfir því að þessi tvö fyrir- tæki gangi til liðs við okkur,“ sagði Hensel. Hensel sagði að þrír stórir áfang- ar væru eftir áður en ákvörðun um byggingu álvers verður tekin. I fyrsta lagi að ljúka fjármögnun, í öðru lagi fá starfsleyfi útgefið og í þriðja lagi að sjá fyrir endann á lagasetningu frá Alþingi. „Við erum að vinna að öllum þessum málum á sama tíma og ég tel að við mun- um vilja taka ákvörðun um að byggja álverið fyrir lok marsmánað- ar. En það er eftir að stíga mörg skref og þar á meðal mörg skref sem eru ekki á okkar valdi.“ Engar óvæntar hindranir Um það hvað hann teldi stærstu hindrunina í veginum núna sagðist James Hensel telja að það væri ekk- ert óvænt framundan. „Það verða hindranir á veginum en ég held að þar sé ekkert sem við vitum ekki um nú þegar. Við höfum góða hugmynd um hvað er framundan og fyrst og fremst er mikil vinna óunnin." Fyrirtækið Billiton er hollenskt að uppruna, stofnað 1860 og á hlut í álverum í S-Ameríku og boxítnám- ur og súrálsvinnslur í Ástralíu, Sur- inam og Brasilíu í samstarfi við nokkur önnur stórfyrirtæki, t.d. Alcoa, Alcan og Reynolds. Billiton er dótturfyrirtæki Gencor, sem er fjölþjóðlegt málm- og námuvinnslu- fyrirtæki í S-Afríku, og hefur ný- lega lokið við að reisa þar álver sem er sjö sinnum stærra en fyrirhugað álver á Grundartanga. VAW Aluminium AG er helsta álfyrirtæki Þýskalands og eitt af stærstu álfyrirtækjum Evrópu. Það starfrækir nokkur álver í Evrópu og er í samstarfi við önnur álfyrir- tæki víða um heim. Klámefní til sýnis á heimasíðu RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið út ákæru á hendur ung- um manni fyrir að hafa til sýnis á heimasíðu sinni klám- efni án verulegra takmarkana. Á síðunni fundust margar klámmyndir en á hinn bóginn fannst ekkert sem kalla mátti bamaklám. Málið verður þing- fest á næstunni í Héraðsdómi Reykjaness. Rannsóknarlögregla ríkis- ins komst á snoðir um söfnun- aráráttu mannsins fyrr í vetur og lagði hald á tölvu hans. Maðurinn féllst á að eyða efn- inu sem hann fann á alnetinu, afritaði og sýndi á sinni síðu. Hörður Jóhannesson, yfir- lögregluþjónn hjá RLR, segir að í þessu máli reyni einkum á hvort sýning klámefnis á alnetinu teljist dreifing eða birting klámefnis í skilningi almennra hegningarlaga og varði við 210. gr. laganna. í lagagreininni segir að óheimilt sé að „búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á ann- an hátt út klámritum, klám- myndum eða öðrum slíkum hlutum, eða hafa þá opinber- lega til sýnis ..." RLR kannar barnaklám RLR kannar nú ábendingu um að hægt sé að fá aðgang að barnaklámi með því að tengj- ast fréttahópum í upplýsinga- kerfinu Usenet sem íslenska tölvufyrirtækið Internet á ís- landi (INTÍS) annast. í grein í nýútkomnu eintaki tölvublaðsins ET-blaðið er var- að við fjölmörgum fréttahóp- um sem tengjast má í gegnum Usenet-kerfi INTÍS og snúast um harðasta klám. Fyrirtækið, sem er í eigu Háskóla íslands, ríkis og nokk- urra smærri aðila, er harðlega gagnrýnt í greininni, en það sér um að velja þá fréttahópa sem íslenskir alnetsnotendur geta tengst. Ekki náðist í forráðamenn Intemets á íslandi í gærkvöldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.