Morgunblaðið - 18.02.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.02.1997, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Landsvirkjun veitir Járnblendifélaginu frest til að taka ákvörðun um stækkun Beðið með ákvörðun þar til söluverðið skýrist Landsvirkjun samþykkti í gær ósk eigenda Jámblendiverksmiðjunnar um að gefa fyrirtækinu frest til 8. mars til að taka ákvörðun um stækkun verksmiðjunnar. Samkvæmt upplýsingum Egils Ólafssonar tefur ágreiningur íslenska ríkisins og Elkem í Noregi, um hvaða verð Elkem eigi að greiða fyrir aukinn eignarhlut í fyrirtækinu, fyrir ákvörðun um stækkun. ÁFORMAÐ er að stækka Járnblendiverksmiðjuna um einn ofn, en tveir ofnar eru núna í verksmiðjunni. ELKEM í Noregi, sem á 30% eign- arhlut í Jámblendifélaginu á Grund- artanga, hefur sett það sem skil- yrði fyrir stækkun verksmiðjunnar að fyrirtækið eignist meirihluta í verksmiðjunni. Andstaða er við það af hálfu íslenskra stjórnvalda, en mestur ágreiningur er hins vegar um hvað Elkem eigi að borga fyrir aukinn hlut í félaginu. Undirbúningur að stækkun Járn- blendiverksmiðjunnar á Grundar- tanga hefur staðið í bráðum þrjú ár. Allar forsendur um hagkvæmni stækkunar lágu fyrir sl. haust. Engu að síður hefur ákvörðun um stækkun tafist. Ástæðumar eru aðallega tvær. í fyrsta lagi reyndist nauðsynlegt að gera breytingar á markaðssamningnum og í öðm lagi blandaðist inn í málið umræða um breytingar á eignaraðild. Sam- komulag hefur tekist um breytingar á markaðssamningnum, en enn er mikill ágreiningur um eignaraðild- ina. Breytt eignaraðild er skilyrði fyrir stækkun íslenska ríkið á 55% í Járnblendi- félaginu, Elkem 30% og Sumitomo í Japan 15%. íslensk stjómvöld hafa haft uppi áform um að losa íslenska ríkið að hluta eða að öllu leyti út úr rekstrinum og flestir reikna með að það gerist á næstu árum. íslensk stjórnvöld hefðu hins vegar helst kosið að sjálfstæð ákvörðun yrði tekin um stækkun verksmiðjunnar og í framhaldinu yrðu teknar upp viðræður milli eigenda um breyting- ar á eignaraðild. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins hafa stjórn- endur Elkem hafnað þessu og sett það sem skilyrði að niðurstaða fáist í umræður um eignaraðildina áður en formleg ákvörðun verði tekin um stækkun. Elkem hefur sett fram þá kröfu að fyrirtækið eignist meirihluta í Járnblendifélaginu, annaðhvort strax eða fljótlega. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa fulltrúar íslands í stjórninni ekki hafnað því ef samkomulag tekst um verðið. Ágreiningur hefur hins vegar verið um kaupverðið og mik- ill munur er á verðhugmyndum Elk- em og íslenskra stjómvalda. Full- trúar beggja aðila hafa rætt verðið fram og aftur undanfamar vikur án þess að hafa náð samkomulagi. í rauninni virðist hálfgert þrátefli ríkja í viðræðunum og eftir því sem næst verður komist hafa menn ekki þokast nær samkomulagi á síðustu dögum. I síðasta mánuði settu fulltrúar íslenska ríkisins í stjórn Jámblendi- félagsins fram þá hugmynd að Elk- em yki hlut sinn í verksmiðjunni í 45% og íslenska ríkið minnkaði sinn hlut niður í 45% og Sumitomo í 10%. Þetta leysti ekki ágreininginn því Elkem heldur enn fast í kröfu sína um meirihluta í félaginu. Tilboð lagt fyrir Elkem Einn heimildarmanna Morgun- blaðsins sagði að á næstu dögum myndu fulltrúar íslands í stjórn Járnblendifélagsins leggja fyrir Elkem tilboð um breytta eignar- aðild. Ef því tilboði yrði hafnað væri eins líklegt að ekkert yrði af stækkun verksmiðjunnar. Þó menn vonist almennt eftir því að sam- komulag takist telja viðmælendur Morgunblaðsins að málið geti allt eins endað með því að áform um stækkun verði lögð til hliðar. Sá möguleiki hefur verið ræddur að íslenska ríkið bjóði hlut sinn í Járnblendifélaginu til sölu á al- mennum markaði og selji hann inn- lendum fjárfestum. Sumir telja að verði þessi leið farin kæmi í Ijós að verksmiðjan er mun verðmætari en Elkem vill vera láta. Elkem á hins vegar, samkvæmt samþykkt- um félagsins, forkaupsrétt að hlut annarra í verksmiðjunni og gæti gengið inn í tilboðið. Þessi leið er hins vegar vandfar- in. Elkem og Sumitomo sjá um að selja alla framleiðslu Járnblendi- verksmiðjunnar samkvæmt mark- aðssamningi milli eigenda. Það er því ákaflega erfitt fyrir íslenska ríkið að taka ákvarðanir í þessu máli án samráðs við aðra hluthafa. Raunar er hefð fyrir því innan stjómar Járnblendifélagsins að allar ákvarðanir séu teknar samhljóða. í klemmu „Við erum í klemmu,“ sagði einn stjórnarmanna í Islenska járn- blendifélaginu um stöðuna. Það eru orð að sönnu. Ef stjórnin tekur ekki ákvörðun fyrir 8. mars um stækkun Járnblendiverksmiðjunnar missir hún af samningi við Lands- virkjun um raforkusölu vegna reksturs þriðja ofnsins. Samningur- inn er fyrirtækinu dýrmætur því óvíst er hvenær það næði nýjum samningi við Landsvirkjun og sömuleiðis er óvíst hvort það fengi orku á sama verði. Ef ekkert verð- ur af stækkun Járnblendiverksmiðj- unni verður Landsvirkjun af um- talsverðum tekjum og áform fyrir- tækisins um virkjanir myndu þarfn- ast endurskoðunar við. Elkem er að sjálfsögðu vel kunn- ugt um þá klemmu sem Landsvirkj- un og fulltrúar íslenska ríkisins í stjórn Járnblendifélagsins eru í. Stjórnendur Elkem virðast stað- ráðnir í að notfæra sér þessa stöðu því þeir tengja stækkun verksmiðj- unnar við breytta eignaraðild. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu hefur raforkuverð í Nor- egi farið hækkandi. Ólíklegt er þess vegna talið að Elkem muni auka kísiljárnframleiðslu í Noregi, en fyrirtækið rekur íjórar kísiljárn- verksmiðjur þar í landi, sem allar eru orðnar nokkuð gamlar. Elkem hefur hagnast ágætlega síðustu tvö árin og er komið yfir þá miklu erfið- leika sem fyrirtækið átti í þegar heimsmarkaðsverð á kísiljámi var sem lægst á ámnum 1989-1994. Það hefur áhuga á að ráðstafa þess- um hagnaði með því m.a. að auka markaðshlutdeild sína í framleiðslu á kísiljárni. Fulltrúar Elkem hafa hins vegar sagt í viðræðum við ís- lensku samningamennina, að þeir eigi fleiri kosti en að auka fram- leiðsluna á íslandi. Andlát GUÐMUNDUR SVEINSSON STENST ALLT SEM Á ÞAÐ ER LAGT SÉRA Guðmundur Sveinsson skólameist- ari lést sl. sunnudag í Reykjavík á 76. ald- ursári. Guðmundur fæddist í Reykjavik 28. apríl 1921 sonur Sveins Óskars Guðmundsson- ar múrarameistara og Þórfríðar Jónsdóttur húsmóður. Guðmundur lauk stúdentsprófí frá MR 1941, embættisprófi í guðfræði við Hf 1945, stundaði framhalds- nám í gamlatestamentisfræðum við háskólann í Kaupmannahöfn 1948- 1950, lauk prófi í hebresku 1949, stundaði framhaldsnám í semítamál- um og gamlatestamentisfræðum við háskólann í Lundi og lauk þaðan fil.cand.-prófi 1951. Hann var skólastjóri Samvinnu- skólans í Bifröst 1955-1974, skóla- stjóri Bréfaskóla SÍS 1960-1974 og skólameistari Fjöl- brautaskólans í Breið- holti 1974-1988. Guðmundur var for- maður nefndar sem samdi heildarfrumvarp um fullorðinsfræðslu 1971-1974, sat í nefnd er gerði tillögur um skipan fjölbrautaskóla í Reykjavík 1973 og sat í námskrárnefnd Fjöl- brautaskólans í Breið- holti frá 1978. Guð- mundur var ritstjóri Samvinnunnar 1959- 1963. Hann skrifaði fjölda greina og ritgerða um guð- fræðileg, trúarleg og menningarleg málefni. Guðmundur skipulagði og stjórn- aði fyrsta fjölbrautaskólanum hér á landi, Fjölbrautaskólanum í Breið- holti. Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Guðlaug Einarsdóttir og eiga þau þijár uppkomnar dætur. Samtök kvenna sem ver- ið hafa þjóðarleiðtogar Vigdís Finn- bogadóttir í forsæti FRÚ Vigdís Finnbogadóttir, fyrr- verandi forseti íslands, verður í forsæti alþjóðlegra samtaka kvenna sem verið hafa þjóðarleið- togar, en stofnun samtakanna er nú í undirbúningi. Hún tilkynnti þetta í ræðu sinni á laugardag á ráðstefnu Alþjóða- þingmannasambandsins um jafna stöðu kvenna og karla í stjórnmál- um, sem haldin er í Nýju Delhí dagana 14.-18. febrúar. Vigdís var einn af aðalræðu- mönnum ráðstefnunnar, en hana sitja af hálfu íslandsdeildar Al- þjóðaþingmannasambandsins þingmennirnir Jóhanna Sigurðar- dóttir og Kristín Halldórsdóttir. Auk þeirra situr Geir H. Haarde ráðstefnuna af hálfu undirbún- ingsnefndarinnar, en hann er varaforseti Alþjóðaþingmanna- sambandsins. Lést í um- ferðarslysi í Astralíu JÓN Kirby Guðmundsson búsettur í Maleny í Ástralíu lést í umferðar- slysi 7. febrúar sl., 22 ára að aldri. Jón Kirby var í ástralska hernum og var á leið heim í helgarfrí er slysið varð. Foreldrar hans eru Jón Eyjólfur Guðmundsson og Robin Guð- mundsson. Gripinn með efni við fíkni- efnabæli LÖGREGLAN í Kópavogi fann fíkniefni í fórum öku- manns bifreiðar sem stöðvuð var um helgina og játaði hann við yfirheyrslu að vera eig- andi þess. Um var að ræða lítilræði af kannabisefnum og hvítu dufti, sem talið er vera amfetamín. Málið telst upp- lýst og var manninum sleppt úr haldi í kjölfarið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu tengist þetta mál alræmdu skjólshúsi fíkniefna- neytenda og óreglufólks í Kópavogi, og virðist sem fólk sem hafi eiturlyfjaneyslu í hyggju leiti þangað, þar sem þar sé að finna aðstöðu til notkunar efnanna. I ) 11 I [ i I t i I I « I t L 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.