Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
W
Morgunblaðið/Þorkell
Gleij að á Granda
Það hefur ekki alltaf viðrað til hlánaði um tíma gripu þessir Granda. Nú ætti ekki að vera
að dytta að húsum í höfuðborg- menn því tækifærið til að glerja hætta á að snjórinn nái að
inni undanfarnar vikur. Þegar glugga atvinnuhúsnæðis á þröngva sér óvelkominn inn.
Fyrirhuguð sorpurðun á Vesturlandi
Ráðist verður í frekara mat
á umhverfisáhrifum
Hætt við mislæg gatnamót við
Miklubraut og Kringlumýrarbraut
Skipulagsfor-
sendur óbreyttar
PÉTUR Ottesen, formaður Samtaka
sveitarfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi, segir að farið verði í frekara
mat á umhverfisáhrifum vegna fyrir-
hugaðrar sorpurðunar í nágrenni
Fíflholta í Borgarbyggð og í landi
Jörfa í Kolbeinsstaðahreppi, en ekki
verði leitað að öðrum hugsanlegum
urðunarstöðum.
Umhverfisráðherra felldi fyrir síð-
ustu helgi úr gildi úrskurð skipuiags-
stjóra ríkisins þar sem urðun var
leyfð á þessum stöðum og gerði að
UMSÓKNARFRESTUR fyrir Nord-
jobb 1997, sem renna átti út í gær,
hefur verið framlengdur til 25. febr-
úar þar sem færri umsóknir hafa
borist nú en áður. Óðinn Albertsson,
verkefnisstjóri Nordjobb á íslandi,
telur að aðalskýringin á fáum um-
sóknum sé sú að umsóknarfrestur
er skemmri en undanfarin ár.
í fyrra, þegar umsóknarfrestur
var til 15. mars, bárust umsóknir
frá um 450 ungmennum á aldrinum
18-25 ára og fékk 271 sumarvinnu
á vegum Nordjobb á einhveiju hinna
Norðurlandanna.
Að þessu sinni var ákveðið að
hafa skemmri umsóknarfrest og í
gær sagði Óðinn að sennilega hefðu
á annað hundrað umsóknir borist.
Allt benti til að hægt yrði að útvega
mun fleiri íslenskum ungmennum
skilyrði að frekara mat á umhverfis-
áhrifum urðunar færi fram.
Pétur sagði í samtali við Morgun-
blaðið að í samræmi við úrskurð
umhverfisráðherra yrði farið í frek-
ara umhverfismat á áhrifum malar-
tekju vegna sorpurðunarinnar og
gerð grein fyrir mótvægisaðgerðum
vegna umhverfisröskunar sem verði
vegna eyðingar votlendis.
„Úr því að það var ekki mengun-
arvarnaþátturinn sem var í ólagi,
sem hefði í rauninni tafið okkur
vinnu á Norðurlöndunum í sumar
og halda sama fjölda eða auka jafn-
vel hlut íslands frá því í fyrra.
íslendingar fengu
271 starf af 754
í fyrra voru alls í boði 754 störf
á vegum Nordjobb og voru umsækj-
endur á öllum Norðurlöndunum
4.920. Kom 271 starf í hlut íslend-
inga en 105 ungir Skandinavar
komu hingað til starfa. _Að jafnaði
hafa um tvöfalt fleiri íslendingar
farið utan en þeir útlendingar sem
komið hafa hingað til starfa.
Nordjobb býður ungu fólki á aldr-
inum 18-25 ára tækifæri til að kynn-
ast nágrannaþjóðunum, útvegar
húsnæði og störf í ýmsum atvinnu-
greinum. Nánari upplýsingar veitir
Norræna félagið.
mest, tel ég að þetta sé flötur sem
allir geti sætt sig við að finna lausn
á,“ sagði Pétur.
Hann sagði að ekki væri á döfínni
að leita að nýjum urðunarstöðum
vegna þess hve undirbúningsvinna
vegna urðunar í Fíflholtum væri
langt komin, en mörg ár hefði tekið
að fínna þann stað. Um aðra staði
væri einfaidlega ekki að ræða og
því yrði reynt til þrautar að uppfylla
þær kröfur sem fram koma í úr-
skurði umhverfisráðherra.
Borgin tek-
in við Mið-
skólanum
MIÐSKÓLINN hefur verið lagður
niður og hafa viðræður milli skóla-
stjórnar Miðskólans og fulltrúa
Reykjavíkurborgar leitt til þess að
Reykjavíkurborg tekur yfir skóla-
hald út þetta skólaár.
Reykjavíkurborg hefur tekið
skólahúsnæði Miðskólans á leigu frá
og með 1. febrúar sl. og kennarar
skólans hafa verið ráðnir af grunn-
skólum Reykjavíkur frá sama tíma
til áframhaldandi starfa með nem-
endum skólans. Bragi Jósepsson,
stofnandi skólans, hefur hætt sem
skólastjóri og Árni Magnússon,
skólastjóri Hlíðaskóla, sinnir jafn-
framt skólastjórn í Miðskólanum.
Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslu-
stjóri Reykjavíkur, sagði að reynt
yi'ði að hafa skólastarfið sem líkast
því sem það var. „Við erum með
þessu að koma til móts við nemend-
ur sem annars hefðu dreifst í allar
áttir. Kennarar eru ungar stúlkur
og þær kenna 25 nemendum skólans
áfram. Við getum ekki tekið skóla-
gjöld en þarna verður boðið upp á
lengri viðveru eins og er í öllum
grunnskólum og foreldrar greiða
fyrir,“ sagði Gerður.
Starfsaðferð Miðskólans
haldið áfram
„Ég er hættur störfum í þeim
skóla sem þama er starfræktur
núna. Stjórn Miðskólans er ennþá
starfandi og umboð til þess að reka
slíka starfsemi annars staðar er fyr-
ir hendi,“ sagði Bragi.
Hann sagði að það væri sam-
komulag milli stjórnar skólans og
borgarinnar um að þeirri starfsað-
ferð sem Miðskólinn hefur fylgt verði
haldið áfram. Bragi kveðst sár yfir
því hver þróunin hefur orðið frá því
skólanum var sagt upp húsnæði sínu
í Miðbæjarskólanum fyrir rúmu einu
ári. „Ég held að það hafi verið enda-
hnúturinn á starfseminni."
í TILLÖGU að endurskoðuðu Aðal-
skipulagi Reykjavíkur 1996-2016,
er ekki lengur gert ráð fyrir mislæg-
um gatnamótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar. Gunnar Jó-
hann Birgisson, fulltrúi Sjálfstæðis-
flokks í skipulagsnefnd, segir minni-
hlutann ósáttan við þessa breytingu
og bendir jafnframt á að skipulags-
forsendur undanfarinna ára hafi
ekki breyst. Þá sé tillaga um að
leggja Miklubraut í stokk frá Engi-
hlíð að Snorrabraut óviðunandi lausn
að hans mati. Hann bendir jafnframt
á að ef leggja eigi niður Hlíðarfót
verði að leysa aðkomu að flugstöðv-
arbyggingunni.
í stað mislægra gatnamóta Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar
gerir skipulagstillaga Reykjavíkur-
listans ráð fyrir að gatnamótunum
verði stýrt með ljósum og að tvær
akreinar verði fyrir vinstribeygju
þegar ekið er eftir Kringlumýrar-
braut í suðurátt og tvær akreinar
fyrir vinstribeygju þegar ekið er eft-
ir Miklubraut í austurátt auk þess
sem akreinum verður fjölgað um
eina við gatnamótin. „Við teljum að
þessi lausn dugi ekki,“ sagði Gunnar
Jóhann. „Allar þær skipulagsfor-
sendur, sem unnið hefur verið með
undanfarin ár eru óbreyttar. Þarna
hafa menn viljað fá mislæg gatna-
mót og það er hægt að leysa það
vandamál á þessum stað.“
Of dýr lausn
Benti hann á að 'þótt því sé hald-
ið fram að ljósastýrð gatnamót séu
nánast jafnörugg og mislæg gatna-
mót þá lækki þjónustustig gatna-
mótanna með þeim afleiðingum að
umferðin leiti í nærliggjandi íbúða-
hverfi. „Auk þess sem við teljum
augljóst að öruggara sé að ferðast
um mislæg gatnamót heldur en um
ljósastýrð," sagði hann.
VIÐ umræður í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar um kosningu á ný í skóla-
nefnd og hafnarstjórn, voru lagðar
fram bókanir bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokks þeirra Magnúsar Gunn-
arssonar og Valgerðar Sigurðardótt-
ur, þar sem áréttuð er sú skoðun
að kosningin sé ekki í samræmi við
lög um grunnskóla né hafnarlög.
Farið var fram á að forseti bæjar-
stjórnar úrskurðaði um lögmæti
kosningarinnar og að úrskurðurinn
yrði rökstuddur skriflega. í annarri
bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokks, er því mótmælt að Ellert
Borgar Þorvaldsson, forseti bæjar-
stjórnar, og Tryggvi Harðarson,
fyrsti varaforseti, úrskurði í málinu,
þar sem þeir séu vanhæfir vegna
aðildar að málinu. Óskað var eftir
skriflegum úrskurði um vanhæfnina.
Forseti úrskurðaði að hann væri
ekki vanhæfur og var úrskurðurinn
samþykktur með sex atkvæðum
gegn tveimur.
Sambærilegt
við Húsavík
Forseti lagði þá fram úrskurð fé-
iagsmálaráðuneytisins um að kjósa
bæri í hafnarstjórn og skólanefnd.
Vitnað er í úrskurðinum til nefndar-
kjörs á Húsavík í kjölfar meirihluta-
skipta í bæjarstjórn. Að áliti ráðu-
neytisins ætti það sama við um
Lagt er til að Miklabraut verði
lögð í stokk frá Engihlíð að Snorra-
braut og sagði Gunnar Jóhann að
sú lausn væri of dýr miðað við hvað
hún leysti mengunarvanda fyrir fáa.
Leggja þyrfti götuna í halla nánast
við ljósin á mótum Lönguhlíðar með
þeim afleiðingum að gjá myndast
milli byggðarinnar og Miklatúns að
göngunum.
„Við teljum að með þessu sé ver-
ið að skipta landinu í sundur," sagði
hann. „Við teljum að skoða verði
hvað hægt sé að gera fyrir alla hina,
sem búa við sama vandamál ofar í
götunni. Því er eðlilegt að reyna að
hugsa þetta heilstætt og finna ein-
hveija lausn sem miðar að því að
leysa vandamál allra en ekki einung-
is ákveðins hóps. Við erum að tala
um framkvæmd sem kostar 500
milljónir króna.“
Vandræði
við Hlíðarfót
Gunnar Jóhann sagðist ekki
skilja hvernig leysa ætti umferðar-
vandann sem skapast þegar vegur-
inn um Hlíðarfót í Öskjuhlíð verður
felldur niður eins og standi til í
endurskoðuðu aðalskipulagi. Breyt-
ingin muni hafa í för með sér veru-
lega umferðaraukningu á gatna-
mótum Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar.
„Ef ætlunin er að flugstöðvar-
byggingin verði áfram á þeim stað
sem hún er sýnd í þessu aðalskipu-
lagi eða nánast úti í Nauthólsvík,
þá skil ég ekki hvernig menn ætla
að leysa umferðarmálin þegar Hlíð-
arfóturinn er farinn," sagði hann.
„Ég hefði talið að ef menn ætla að
fella niður Hlíðarfótinn þá þyrfti að
finna aðra iausn og færa til flugvall-
arbygginguna áður en tekin er
ákvörðun um að fella niður Hlíðar-
fótinn.“
nefndarkjör í Hafnarfirði. Magnús
Gunnarsson óskaði eftir atkvæða-
greiðslu að viðhöfðu nafnakalli og
var úrskurður forseta bæjarstjórnar
samþykktur með sjö atkvæðum gegn
tveimur. Magnús Jón Árnason og
Lúðvík Geirsson, bæjarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins, bókuðu að þeir
greiddu ekki atkvæði, þar sem þeir
teldu að eðlilegast hefði verið að
bregðast við óskum bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins um að leita eft-
ir sérstökum úrskurði félagsmála-
ráðuneytisins um lögmæti nýrra
kosninga í nefndirnar.
Magnús Gunnarsson óskaði þá
eftir listakosningu um fimm menn í
hafnarstjórn og fimm til vara og var
orðið við því. Af A-lista meirihlutans
voru kjörnir þrír en einn af B-lista
Sjálfstæðisflokks og einn af C-lista
Alþýðubandalags.
Þá var kosið í fimm manna stjórn
skólanefndar og fimm til vara. Voru
þrír kjörnir af lista meirihluta bæj-
arstjórnar og einn.af B-lista Sjálf-
stæðisflokks og einn af C-lista Al-
þýðubandalags. Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks lögðu fram bókun
og vísuðu til fyrri bókana um að
þátttaka í kosningunum væri með
fyrirvara um lögmæti þeirra og að
áskilinn væri réttur til að leita úr-
skurðar um lögmæti hjá þar til bær-
um aðilum.
Frábær fyrirtæki
1. Sérvörur með föndurvörur og leikföng fyrir alla aldursflokka.
2. Falleg gjafavöruverslun á frábærum stað. Einstakt tækifæri.
Framtíðarfyrirtæki.
3. Lítil heildverslun með smávörur. Mikil viðskiptasambönd út á
landi. Gott verð.
4. Trésmíðaverkstæði — fullur salur af vélum. Selst ódýrt. Laust
strax.
5. Stór og nýtískuleg prentsmiðja úti á landi. Glæsilegt húsnæði
fylgir með. Næg verkefni.
6. Lakkrísverksmiðja sem getur verið hvar sem er á landinu.
7. Mikið úrval af matsölu- og vínveitingastöðum I öllum
verðflokkum.
8. Mikið úrval af söluturnum af öllum stærðum og verðflokkum.
Komdu í cappucino og flettu fyrirtækjaskránni.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVERI
SIMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Færri sækja um Nordjobb en áður
Framlengdur
umsóknarfrestur
Sjálfstæðismenn um kosningu í hafn-
arstjórn o g skólanefnd Hafnarfjarðar
Kosningin ekki í
samræmi við lög