Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 25

Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 25 ERLENT Gíslar laus- ir í Tadsí- kístan HÓPUR íslamskra uppreisnar- manna í Tadsíkístan leysti í gær úr haldi síðustu fimm gíslana en þeir voru 15 flest- ir. Imomali Rakhmonov, for- seti landsins, samdi sjálfur um lausn gíslanna en þeir voru starfsmenn Sameinuðu þjóð- anna. Málið hófst 4. febrúar sl. þegar foringi skæruliða- hópsins, Bakhrom Sadirov, handtók fyrstu gíslana og krafðist þess, að stjórnvöld leyfðu bróður sínum og 40 mönnum öðrum að koma til landsins frá Afganistan. Var gengið að því að mestu leyti. Sókn gegn skæruliðum HERINN í Alsír felldi meira en 60 skæruliða í mikilli sókn gegn þeim í Tamesguida-hér- aði í norðausturhluta landsins um helgina. Var ráðist gegn þeim á þyrlum í skóglendi upp til fjalla og hermenn síðan sendir á vettvang. Skæruliðar hafa drepið um 300 manns á aðeins einum mánuði en um 170 skæruliðar hafa fallið síð- an Liamine Zeroual, forseti Alsírs, blés til sóknar gegn þeim 24. janúar sl. Búlgarar vilja í NATO STJÓRNIN, sem skipuð hefur verið til bráðabirgða í Búlgar- íu, lýsti í gær yfir, að hún stefndi að fullri aðild að Atl- antshafsbandalaginu, NATO. Nýtur þessi afstaða stuðnings Petars Stoyanovs forseta og Stoyan Stalev, utanríkisráð- herra Búlgaríu, sagði unnið að því að landið uppfyllti öll skilyrði fyrir NATO-fundinn í júlí. Þar verður ákveðið hvaða ríki fá aðild. Vísindamað- ur veldur hneykslan JAMES Watson, sem hlaut á sínum tíma Nóbelsverðlaun fyrir að uppgötva uppbygg- ingu DNA-kjarnasýrunnar, hefur vakið mikla hneykslan með þvi að lýsa yfir, að hann sjái ekkert athugavert við, að konur eyði fóstri komi í ljós, að það hafi í sér arfbera, sem valda samkynhneigð. Hafa margir vísindamenn mótmælt þessu en Watson bendir á, að það sé siðferðileg skylda for- eldra til að gera allt til að börnin verði heilbrigð. Tugir tonna í sjóinn TVEIR spænskir togarar voru færðir til hafnar í Tromso um helgina en talið er, að þeir hafi kastað allt að 90 tonnum af ýsu og 15 tonnum af ufsa í sjóinn. Voru skipin saman um troll og sóttust aðeins eft- ir þorski og lét skipstjórinn kasta út fiski jafnvel eftir að norskir eftirlitsmenn voru komnir um borð. Það kom líka í ljós við athugun, að í lestinni var aðeins þorskur en afli ná- lægra skipa var mjög blandað- ur. Atök milli þjóðernissinna úr röðum Baska og lögreglu á Norður-Spáni Málaga. Morgunblaðið. Skotvopnum beitt í Baskalandi TVEIR menn voru særðir skotsár- um og 18 til viðbótar slösuðust þegar til átaka kom á milli þjóð- emissinna úr röðum Baska og lög- reglu í Bilbao á Norður-Spáni síð- degis á laugardag. Lögreglan í Baskalandi, sem nefnist Ertzaintza á máli Baska, greip til þess úrræðis að beita skotvopnum þegar fólk, sem þátt tók í fjöldagöngu þar sem krafist var sjálfstæðis Baskalands frá Spáni, þrengdi að lögreglusveitun- um og ógnaði þeim, að sögn tals- manna þeirra. Lögreglusveitirnar beittu bæði gúmmíkúlum og hefð- bundnum skotum til þess að dreifa göngumönnum. Byssukúlur hæfðu tvo sjálfstæðissinna og aðrir tveir urðu fyrir gúmmíkúlum en þeir munu ekki vera alvarlega særðir. Talsmenn Ertzaintza sögðu sex lögreglumenn hafa slasast í átök- unum, sem blossuðu upp laust fyrir klukkan 17 að íslenskum tíma. Hart var deilt um hvort viðbrögð lögreglusveitanna gætu talist rétt- mæt og boðað var að málið yrði tekið upp á þingi í vikunni. Um 10.000 manns tóku þátt í göngunni, og fóru þeir um Bilbao hrópandi slagorð í nafni sjálfstæð- is Baskahéraðanna þriggja á Norður-Spáni auk þess sem göngumenn létu í ljós stuðning við ETA, aðskilnaðarhreyfingu Baska. Það var Herri Batasuna, hinn pólitíski armur ETA, sem skipulagði gönguna. Aðskilnaðarsamtökin ETA eru talin hafa líf tæplega 800 manna á samviskunni frá því að þau tóku upp vopnaða baráttu fyrir sjálf- stæði Baskahéraðanna. I liðinni viku bættust þrjú fórnarlömb í þennan hóp þegar byssumenn myrtu dómara við Hæstarétt Spánar fyrir framan heimili hans í höfuðborginni Madrid og tveir menn týndu lífi í sprengjutilræði í Granada í suðurhluta landsins. • 16 MB EDO vinnsluminni • 1.7 GB harður diskur • ATI Mach64 2 MB PCI skjákort • 256 Kb Pipelined Cache • Win'95 lyklaborð + mús • 15" SVGA litaskjár • Windows 95 Borð- eða turntölva þitt er valíð Myndin sýnir margmiðlunarútgáfuna af töivunni 1 2 hraða geisladrif • SoundBlaster 16 hljóðkort • 60 W Screenbeat hátalarar Sharp JX-9210 geislaprentari 600 p.á.t. 4 bls/mín. með kapli ')íi kotnmn iiisin ':3J þín stf. þís ii-z bjúr niizini) nihii uppiiT/jjxjgu ts'fyj 'iöJJistsn) þi/j/j] - þír zsii J:o5':;j'jþ'jrJíiJj5!jJ raiJUir iiiíins mi. ii'irj'á'Minumjiiii'iii) Þetta verð gildir aðeins fyrir þá sem kaupa tölvu. Listaverð í búð 27.900 kr. Microcom DeskPorte Þetta verð gildir aðeins fyrir þá sem kaupa tölvu. Listaverð í búð 14.900 kr. Tæknival UMBOÐSMENN OG ÞJÓNUSTA UM LAND ALLT: • AKRANES Tölvuþjónustan 431-4311 • KEFLAVÍK Tölvuvæðing 421-4040 • AKUREYRI Tölvutæki-Bókaval 462-6100 • SAUDÁRKRÓKUR Skagfirðingabúð 455-4537 • HORNAFJÖRÐUR Hátíðni 478-1111 • SELFOSS Tölvu- og rafeindaþj. 482-3184 • HÚSAVÍK Tölvuþj. Húsavík 464-2169 • VESTMANNAEYJAR Tölvun 481-1122 • ÍSAFJÖRÐUR Tölvuþj. Snerpa 456-5470 Skeifunni 17 108 Reykjavlk Sfmi 550 4000 Fax 550 4001 Netfang: Reykjavíkurvegi 64 220 Hafnarfiröi Sfmi 550 4020 Fax 550 4021 Netfang: mottakaðtaeknival.is fjordur@taeknival.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.