Morgunblaðið - 18.02.1997, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 29
LISTIR
Morgunblaðið/Kristinn
FRÁ tónleikunum í Langholtskirkju,
Síminn
til Aðai-
steins Ing-
ólfssonar
ÞAÐ er síminn til Aðalsteins
Ingólfssonar listfræðings í
dag þriðjudaginn 18. febrúar
kl. 15 og á iínunni eru fimm
ungar listakonur og gallerí-
istar. Þær eru Sæunn Stef-
ánsdóttir, Dóra ísleifsdóttir,
Jóní Jónsdóttir, Sigrún
Hrólfsdóttir og Helga Þórs-
dóttir.
Galleríin sem þær reka eru
Gúlp, Undir pari og Nema
hvað. Þær ætla að ræða við
listfræðinginn um það hvern-
ig er að vera listamaður og
að reka galleri á íslandi í dag.
Á Mokka verður samtalinu
útvarpað beint. Gestir staðar-
ins geta fylgst með samtalinu
og blandað sér í umræðurnar.
30 ára
söngafmæli
TÓNLIST
Langholtskirkja
KÓRSÖNGUR
Fjórir kórar samfagna Arnesinga-
kómum á 30 ára starfsafmæli kórs-
ins. Laugardagurinn
15. febrúar, 1997.
SAGA tónlistar á Islandi er stutt
og má segja að hún spanni vart
meira en 100 ár og þótt margt gott
fólk færi utan í tónlistarnám um og
eftir aldamótin 1900 má með sanni
segja að stofnun Tónlistarskólans í
Reykjavík 1930 marki upphaf regiu-
legrar kennslu sem síðar blómstraði
í stofnun Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, stofnun íslensku óperunnar
og alþjóðlegri þátttöku íslenskra
söngvara og hljóðfæraleikara.
Einn sérkennilegasti þáttur ís-
lenskrar tónmenntar er mikill fjöldi
kóra sem sumir hveijir hafa hlotið
alþjóðlega viðurkenningu. í tilefni
30 ára starfsafmælis efndi Árnes-
ingakórinn til kórveislu þar sem fram
komu tveir átthagakórar, Árnesinga-
kórinn og Seikórinn, unglingakórinn
Kvennakór Kvennaskólans, barna-
kórinn Skólakór Kársness og Karla-
kórinn Fóstbræður.
Tónleikarnir hófust með söng Ár-
nesingakórsins, undir stjórn Sigurðar
Bragasonar, sem flutti söngva eftir
nokkra Árnesinga og voru flest lögin
af léttara taginu. Bestur var söngur
kórsins í lþgunum, Ég beið þín lengi,
lengi og í kvöld þegar ísinn er úti,
eftir feðgana Pál ísólfsson og ísólf
Pálsson en einnig átti frændi þeirra,
Pálmar Þ. Eyjólfsson gott og ágæt-
lega sungið lag, Flóinn, við texta
Freysteins Gunnarssonar. Önnur lög
eftir Björgvin Þ. Valdimarsson, Loft
S. Loftsson og Eirík Bjamason voru
í ætt dægurlaga og þokkalega sung-
in. Eldgamla Ísafold eftir Sigurð
Ágústsson er svolítið hornótt í hljóm-
skipan og raddferli, svo að tæplega
mun það leysa gamla lagið, enska
þjóðsönginn, af hólmi. í heild var
söngur kórsinn ágætlega mótaður
og eins fyrr segir, bestur í lögum
Stokkseyringanna.
Selkórinn, undir stjórn Jóns Karls
Einarssonar, bauð upp á metnaðar-
fulla efnisskrá, fimm lög úr Ástar-
völsunum eftir Brahms. Þetta er sér-
lega góð tónlist en því miður er Sel-
kórinn ekki skipaður því söngfólki
sem ræður sönglega við þessa tón-
list. Með kórnum léku Arndís Inga
Sverrisdóttir og Bjarni Jónatansson
á píanó en hann lék einnig með Ár-
nesingakórnum og þegar allir kór-
arnir sungu saman í lok tónleikanna.
Kvennakór Kvennaskólans söng
þrjú lög við undirleik þriggja karl-
nema skólans, fyrst lag eftir Sigurð
Bragason, við texta Tómasar, Fagra
veröld, þá þjóðlag frá Úkraínu og í
bláum skugga eftir Sigurð „Bjólu“,
poppara, sem lítið hefur farið fyrir
undanfarið. Lögin voru sungin með
sætum æskuhljómi og áreynslulausri
tónmyndun, sem auðheyrilega má
þakka stjórnandum, Sigurði Braga-
syni.
Skólakór Kársness undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur og við sam-
leik Marteins H. Friðrikssonar söng
fjögur lög, rússneskt þjóðlag, tvo
negrasálma og Vinamál, eftir Oscar
Peterson, við frábæran texta Heimis
Pálssonar. Söngur barnanna og
Karlakórsins voru bestu atriði tón-
leikanna en Fóstbræður sungu Ut i
vor hage, Dómaradansinn og gamla
og góða sönglagið, Skjaldbreiður,
sem tollir býsna vel við textann, þótt
áherslur hans og lagsins stangist oft
illa á. Ámesingakórinn steig aftur á
pail, með lag eftir stjórnandann, Sig-
urð Bragason og það fallega lag Nú
sefur jörðin eftir Þorvald Blöndal.
Það var þokki yfir söng kórsins, sem
framfærður var með áreynslulausum
söng.
Tónleikunum lauk með samsöng
allra kóranna en til leiks voru kallað-
ir söngvararnir Signý Sæmundsdótt-
ir og Þorgeir Andrésson. Signý söng
einsöng í lagi eftir Sigurð Bragason,
við ljóð eftir Valdimar Lárusson, um
gamalkunnungt þema, Ave María.
Þetta er rismikið lag sem var að
mörgu leyti vel flutt, sérstaklega af
Signýju Sæmundsdóttur. Nessum
Dorma, úr Turandot, eftir Puccini,
var flutt af Þorgeiri Andréssyni og
hann skiiaði því af reisn en tónleikun-
um lauk með Árnesþinginu eftir Sig-
urð Ágústsson. Það er vandi að setja
saman efnisskrá fyrir svona tónleika
og í heild tókst það nokkuð vel og
er Árnesingakómum óskað til ham-
ingju með afmælið.
Jón Ásgeirsson
Valgerður Einarsdóttir:
Margrét Amundadóttir:
Ég hef stundað æfmgábekkina í 4 ár og
flnn stórkostlegan mun á vextinum og ekki
hvað síst hafa vöðvabólga og höfuðverkur
algjörlega horfið.
Þetta er það besta sem ég hef reynt og vil
ekki missa úr einn einasta tíma.
Vilhelmína Biering:
Stefanía Davíðsdóttir:
Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar
sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki hefur
stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma.
Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk, sem ekki
stundar almenna leikfimi vegna stifra vöðva
o.fl. 7 hekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og
eykur hlóðstreymi til vöðva þannig að ummál
þeirra minnkar. Einnig gefur það gott nudd og
slökun.
• Ert þú með lærapoka?
• Ert þú búin að reyna allt, án árangurs?
• Hjá okkur nærð þú árangri.
• Prófaðu og þú kemst að því að senti-
metrunum rækkar ótrúlega fljótt.
• Er vöðvabólga að hrjá þig í baki,
öxlum eða handleggjum?
Undirrltuð hefur stundað æfingabekkina
reglulegaí 8 áf og líkað nyög vel. Égþjálst
verulega af liðagigt og vöðvábólgu og þoldi
þess vegna ekki venjulega leikfimi. Með
þjálp æfingábekkja hefur vöðvabólgan
smám saman horfið og líðan í liðamótum
er allt önnur. Þetta er eitthvert það besta
æfingabekkjakerfi iyrir allan líkamann
sem flestir ættu að þola.
• Stirðleiki í mjöðmum og þreyta
í fótum?
• Vantar þig aukið blóðstreymi, þol
og slökun?
• Þá hentar æfingakérfið okka vel.
Erum með tvo auka nuddbekki,
göngubraut og þrekstiga.
Æfíngabekkir Hreyfingar, Ármúia 24, sími 568 0677
Ath. breyttan opnunartíma.
Mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9-12 og kl. 15-20, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 9-18
og föstudaga kl. 9-12. Frír kynningartími.
Fyrírþig í vetur!
Ég hef stundað æflngabekkina í 3 ár og
líkað mjög vel. Ég var slæm af vöðvabólgu
og er nú allt önnur. Ég mæll því eindregið
með æfingábekkjunum.
Ég er eldri borgari og hef verið tyá Sigrúnu
í æfingabekkjunum í 9 ár og hlákika til í
hvert sinn. Mér finnst þetta ómetanleg
hreyfing ftrir alla vöðva og finnst mér ég
ekki mega missa úr einn tíma enda finnst
mér að eldri borgarar eigi að ryóta þess
að vera í æfingum til að halda góðri heilsu
og um leið hafa eigin tíma.