Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 30

Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Verk eftir Mozart á Háskóla- tónleikum Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor- ræna húsinu miðvikudaginn 19. febrúar flytur Sigurður Marteins- son píanóleikari Fantasíu í c-moll KV 475 og Sónötu í c-moll KV 457 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Tónleikarnir eru um hálftími að lengd og hefjast kl. 12.30. Sigurður hóf nám sitt 13 ára gamall hjá Evu Sveinbjarnardóttur á Sauðárkróki. Þrem árum síðar lá leiðin til Ak- ureyrar þar sem hann nam við Tónlistarskól- ann. Tvítugur fór hann til London og lærði þar hjá Philip Jenkins í þrjú ár. Því næst naut Sigurður leið- sagnar Árna Kristjánssonar við Tónlistarskólann í Reykjavík jafn- framt því sem hann byijaði kennsluferil sinn. Á árunum 1988-91 hellti hann sér út í píanó- æfingar og naut tilsagnar Bohum- ílu Jedlicovu sem er dósent við Det kongelige Muikkonervatorium í Kaupmannahöfn. Síðan þá hefur hann verið virkur bæði sem einleik- ari og undirleikari ásamt því að vera kennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Af sónötum Mozarts eru einung- is tvær í moll-tóntegundum, önnur í a-moll og hin í c-moll, en það er sú em leikin verður á þessum tón- leikum. Stundum hefur verið sagt um Mozart að hann hafi ekki gert sér far um að vera frumlegur í tónsmíðum sínum, hann hafi ein- faldlega ekki haft þörf fyrir það. Þó gerir hann þá hluti í fantas- íunni í c-moll sem hljóta að hafa þótt æði byltingarkenndir á hans dögum, bæði hvað varðar tónteg- undabreytingar, skyndilegar styrk- leikabreytingar og alls kyns hraða- skipti. Sama er upp á teningnum í sónötunni sem mjög algengt er að leika á eftir fantasíunni, en hin síðarnefnda virkar þá sem heljar- mikill forleikur. Handhöfum stúdentaskírteina er boðinn ókeypis aðgangur, en aðgangseyrir fyrir aðra er 400 kr. Mailer skrifar um Jesú Krist BANDARÍSKI rithöfundurinn Nor- man Mailer ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í væntan- legri bók sem kemur út i maí nk. Hún segir ævisögu Jesú Krists á rúmum 220 síðum en áður hefur Mailer skrifað ævisögu spænska málarans Pablos Picassos. Bókin um Krist er skrifuð sem sjálfsævisaga. Segist Mailer ekki gera tilraun til að vera dyggðugur eða kaldhæðinn, heldur reyni hann eftir bestu getu að rekja „stórkost- legustu sögu sem nokkurn tíma hafi verið sögð“. Meira vill hann ekki segja að svo stöddu til að vekja ekki meiri athygli og vænt- ingar en hann geti staðið undir, áður en bókin kemur fyrir almenn- ingssjónir. Segja útgefendur bók- arinnar, Random House, að Mailer haldi sig til hlés þar sem hann búist fastlega við því að margir muni verða ósáttir við bókina. í The New York Times segir að bók Mailers sé eins og ágrip af guðspjöllunum, orðfæri gamaldags og flúrað og minni helst á gamlar biblíuþýðingar. Engar pífur, ekkert prjál! Morgunblaðið/Kristinn ÍSLENSKI dansflokkurinn: „Ein“. LISTPANS Borgarlcikhúsið ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN „Ein“ eftir Jochen Ulrich. Leik- _ mynd og búningar. Elín Edda Ámadóttir. Tónlist: Skárren ekk- ert: Eiríkur Þórleifsson, bassi, Guð- mundur Steingrímsson, harmóníka og pianó, Frank Þórir Hall, gítar, Kjartan Guðnason, slagverk, Egg- ert Þorleifsson, klarinett. Lýsing: Elfar Bjamason. „La cabina 26“ eftir Jochen Ulrich. Leikmynd: Jochen Ulrich. Sviðsetning: Katrín Hall. Búningar: Jutta Delome og Mechthild Seipel. Tónlist: La Fura dels Baus. Lýsing: Elfar Bjamason. Dansarar dansverkanna: Birgitte Heide, David Greenall, Grit Hartw- ig, Guðmundur Helgason, Julia Gold, Katrin Lngvadóttir, Katrín Á. Johnson, Lára Stefánsdóttir, Leszek Kuligowski, Marcelo Pe- reira, Margrét Gísladóttir. ÞAÐ ríkti eftirvænting og for- vitni í sal Borgarleikhússins á frumsýningu Islenska dans- flokksins föstudagskvöldið var. Dansflokkurinn bauð áhorfend- um sínum að sjá frumflutning dansverksins „Ein“ sem sérstak- lega er samið fyrir íslenska dans- flokkinn og dansverkið „La cab- ina 26“. Jochen Ulrich höfundur dans- verkanna er íslenskum dansunn- endum góðkunnur en hann setti hér upp „BIindisleik“ og „Ég dansa við þig“ fyrir fáeinum árum. Jochen er Þjóðverji og einn stofnenda dansflokksins Tanz Forum sem hefur aðsetur í Köln. Hann er nýráðinn listdanstjóri Hannover dansflokksins og hef- ur samið fjölda dansverka. Verk hans flokkast undir nútímadans og í þeim gætir áhrifa víða að. Má þar nefna Kurt Jooss og Pinu Bausch. Hann vinnur á sama hátt og margir danshöfundar samtímans gera, þ.e. með döns- urum sem hafa áralanga klass- íska ballettþjálfun að baki að viðbættri þjálfun í nútímadansi, til dæmis danstækni sem kennd er við Martha Graham. Tækni Martha Graham og fleiri frum- kvöðla nútímadanslistar byggir á að dansarinn finni miðju líkam- ans, -andi í gegnum hreyfíngarn- ar og láti bakið leiða frá einni hreyfingu til annarra að ógleymdri hreyfingu höfuðsins. Samband líkamans við jörðu og þyngdarafl hennar er veigamikið atriði í nútímadansi. Dansgerð Jochen Ulrich byggir þannig á klassískri balletttækni þó hún komi óbeint við sögu og nútíma- dansi með jazzívafi að viðbættu flæði frá einni hreyfingu til ann- arrar. Dansarinn verður að hafa yfir að ráða krafti, snerpu og mýkt. Hann þarf að geta sam- hæft hreyfingar og útfært þær frá höfundi yfir á sjálfan sig þannig að persóna dansarans sjálfs skíni í gegn. Rólegt og átakalítið Fyrra dansverk kvöldsins, „Ein“, er rólegt og átakalítið. Hreyfingarnar eru jazzlegar, lausar en formaðar. Verkið íjall- ar um samskipti ólíkra persóna. Þar ber að líta ungt par sem reynir að ná saman. Konu sem ferðast um sviðið í leit að ein- hveiju óræðu. Kraftmikið sam- stillt par, tjullklætt brúðulegt par og sirkusstjóra eða töframann sem stjórnar öllu sjónarspilinu með glotti og truflar sambönd einstaklinganna að vild. Persón- ur verksins bera með sér anda revíu fyrri tíma og teiknimynda- persóna. Lítill heildarsvipur er á verk- inu og framvindan hæg og sundurlaus. Hlutverk persón- anna eru óljós. Hvítklædda parið Julia Gold og David Greenall dansa tvídans og er dans Juliu fallegur, léttur og ungstelpuleg- ur. Búningur hennar er í stíl við franskan sjóliðabúning og átti vel við dans hennar. Samspil parsins er truflað með innkomu sirkusstjórans eða töframanns- ins sem Lára Stefánsdóttir dans- ar. Hlutverk hennar virkaði van- þakklátt og verkinu ofaukið. Dökklædda dansparið sýndi bráðskemmtileg tilþrif og greini- legt að dansgerðin er vel á færi þeirra Katrínar Ingvadóttur og gestadansarans Marcelo Pereira. Tilgangurinn með samspili þeirra við sirkusstjórann er óljós frá hendi höfundar. Hlutverki Birg- itte Heide sem konunnar í stöð- ugri leit mátti hafa gaman af. Birgitte er mjög þokkafullur dansari sem gerir gott úr hlut- verki sínu. Löng dans- og sviðs- reynsla hennar nær til áhorfenda og gefur heildarsvip verksins dýpt. Hlutverk tjullklædda brúðu- parsins dansað af Katrínu Á. Johnson og Guðmundi Helgasyni gerði sig ekki. Hreyfingar þeirra voru tilgerðaylegar og allt að marklausar. Á köflum vöktu þó tilþrifin kátínu áhorfenda. Tjull- pils þeirra og búningar undir- strikuðu máttlaus hlutverkin. Leikmyndin fellur vel að verkinu. Hún er látlaus með íslensku ívafi, ísbjörg sem minna á nýafstaðið Skeiðarárhlaup. Lýsingin er fal- leg og kallar fram haust- og vetrarbirtu landsins. Undirleikur hljómsveitarinnar Skárren ekkert var verkinu mik- ill stuðningur og nánast stal sen- unni. Lifandi tónlistin gerði það að verkum að áhorfandinn var í meiri snertingu við listviðburðinn en ella. Lifandi dans, raunveru- legar tilfinningar Seinna verk kvöldsins, „La cabina 26“, er af öðrum toga. Þar er hraði og snerpa hreyfinga í hávegum höfð. í verkinu eru regluleg uppbrot í anda upp- reisnar með tilheyrandi ringul- reið. Dansaramir hreyfa sig hratt og ákveðið yfirleitt tveir saman eða í hóp. Átök eru milli dansara. Firring, spenna og ofsi. Dansararnir eru svartklæddir í aðsniðnum búningum og dansa í skóm. Leikmyndin er einföld, hrá og verksmiðjuleg. Járn- stangir uppsviðs og til beggja hliða. Stór vifta og uppblásinn bolti fyrir miðju sviði. Dansað er við spænska nýbylgjutónlist. Dansgerðin í „La cabina 26“ er hröð, kröftug og falleg. Dans- ararnir sýna tilfinningar eins og reiði, ótta og kynhvöt. Tilfinn- ingar sem tilheyra mannlegu eðli en hafa verið kyrfilega fald- ar bakvið tjullpils klassíska bal- lettsins. í „La cabina 26“ sjást þær í öllu sínu veldi. Reiði og óttatilfinning er framkölluð á einfaldan hátt með sviðsettu of- beldi. Einn dansari limlestir ann- an sem má sín minna. Áhrifarík og ógnvekjandi sena. Annar dansari hleypur hring eftir hring meðan aðrir slást og kemst ring- ulreiðin þannig vel til skila. Þungur andardráttur dansar- anna heyrist og gerir dansinn lifandi og raunverulegan. Innlifun og kraftur hvers og eins dansara skilar sér vel til áhorfenda. Allir sem einn gerðu þeir hlutverkum sínum góð skil. Þeir nutu þess greinilega að dansa verkið. Útfærsla Juliu Gold og Katrínar Ingvadóttur á dansgerðinni var sérstaklega kröftug. Báðar hafa þær til að bera snerpu í hreyfingum og ná að fylla út í hreyfingarnar þann- ig að hreyfingin lifir frá upphafi til enda. Jafnframt hefur Julia Gold óhefta og sterka leiktúlkun. Minnisstæður er dans Marcelo Pereira, sem hefur ótrúlegt vald yfir hreyfingum sínum auk hríf- andi sviðsframkomu. Tvö áhrifamikil uppbrot eru í dansverkinu. Það fyrra þegar kvendansarar líða inn á sviðið með nakin bök til áhorfenda og hreyfa sig hægt. Þær eru í kjól- um sem þær halda uppi með annarri hendi til að hylja bijóst sín. Á einfaldan hátt skapa þær erótíska spennu með því að skipta um hendi reglulega. Á sama tíma liggur nakinn karl- maður við fætur þeirra en kyn- færi hans hulin með dulu. Hann hreyfir sig hægt um sviðið án þess að bera sig áhorfendum. Snjöll hugmynd sem virkar. Seinna uppbrotið er engu síðra. Boltanum er rúllað niður sviðs og Birgitte Heide kemur inn í kjól sem er hringlaga eins og boltinn. Hún gerir einfaldar hreyfingar á boltanum og í lok- in stendur hún upp á honum og gerir titrandi óttahreyfingar með höndunum starandi út í loftið. Þessi sena var myndræn og dramatísk og aftur skapaði Birgitte Heide áhrifaríkt andar- tak með sterkri nálægð sinni. Búningarnir í „La cabina 26“ hæfa verkinu vel. Svartir, að- skornir og sumir hveijir tæt- ingslegir. Sviðsmyndin studdi við and- rúmsloft verksins. Hún er látlaus og verksmiðjuleg. Tónlistin er afar kröftug, takt- föst og hæfir verkinu vel. Að sleppa fram af sér beislinu Það er ekki sjálfgefið að dans- arar sem lengi hafa eingöngu æft klassískan ballett nái að sleppa fram af sér beislinu og dansa hraðan og tilfínningaríkan nútíma dans. Dansarar Islenska dansflokksins sýndu það í dans- verkinu „La cabina 26“ að þeir hafa alla burði til að verða góðir nútíma dansarar. Þróun danslistar í Evrópu hefur verið hröð undanfarin ár. Framtíð danslistarinnar virðist liggja í nútíma dansinum og öll- um þeim fjölbreyttu möguleik- um sem hann býður upp á. Von- andi er þessi sýning íslenska dansflokksins undir stjórn Katr- ínar Hall listdansstjóra einungis forsmekkurinn að því sem koma skal. Lilja ívarsdóttir Lilja ívarsdóttir er Iærður dans- ari og danshöfundur og hefur starfað að list sinni hér heima og erlendis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.