Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 43

Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 43 AÐSENDAR GREIIMAR Frumkvæði, ákveðni og árangur Röskvu INNRITUN . stúd- ents í Háskóla íslands felur ekki eingöngu í sér inngöngu hans í Háskólann heldur einnig inngöngu hans í háskólasamfélagið. Þeir sem í þessu sam- félagi lifa eiga sameig- inlegra hagsmuna að gæta. Allir vilja þeir að aðstæður til kennslu og rannsókna séu sem bestar og að sú menntun sem stúd- entar fái sé sem allra best. Stúdentaráð sinnir hagsmunabaráttu stúdenta og leggur þannig sitt af mörkum við að bæta háskólasam- félagið. Síðustu ár hefur Röskva haft meirihluta í Stúdentaráði. Röskva hefur verið vakandi fyrir því sem betur má fara í samfélag- inu og leitað leiða til úrbóta. Frumkvæði Röskva hefur í gegnum tíðina tekið frumkvæði í málefnum stúd- enta. Sem dæmi má nefna þjóðar- átak fyrir bættum bókakosti Þjóð- arbókhlöðunnar, Nýsköpunarsjóð námsmanna og aðstoðarmanna- sjóð. Nú stendur yfir kennslumála- ráðstefna í Háskóla íslands að frumkvæði Röskvu. Þar er tekið á flestum þeim þáttum sem snerta kennslu og kennslumál við Há- skóla íslands. Röskva vill að niður- stöður þessarar ráðstefnu verði notaðar til að móta framtíðar- stefnu Háskólans í kennslu- og menntamálum. Röskva gjörbylti kynningarmál- um fyrir nýnema með því að gefa út, í upphafi skólaársins, kynning- armöppu sem tók á öllum þeim þáttum sem vafist hafa fyrir þeim sem eru að taka sín fyrstu skref innan háskólasamfélagsins. Akveðni Mörg mál eru þess eðlis að þau verða ekki leyst á einni nóttu. Baráttan fyrir breyttum lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna er eitt þeirra mála. Röskva hefur verið einörð í afstöðu sinni og nú í vetur náði baráttan um breytt Lánasjóðs- lög hámarki. Röskva hefur allt frá árinu 1992 gert þá skýlausu kröfu að samtíma- greiðslur verði teknar upp og endurgreiðslu- byrðin verði létt. Nú er verið að semja frumvarp til laga þar sem tekið er tillit til krafna náms- manna. Samtímagreiðslur verða teknar upp í einhverri mynd og létta á endurgreiðslubyrði ef marka má orð forsætisráðherra. Hins vegar gagnrýnum við í Röskvu að námsmenn fái ekki að koma að gerð frumvarpsins. Við í Röskvu teljum þátttöku náms- manna vera forsendu þess að ríkja megi þjóðarsátt um sjóðinn. Nauð- synlegt er að stúdentar haldi bar- áttunni áfram um breytt Lána- sjóðslög af sömu festu og ákveðni og hingað til. Árangur Atvinnumál námsmanna hafa löngum verið Röskvu hugleikin. Nýsköpunarsjóður námsmanna og aðstoðarmannasjóður eru góð dæmi um það. Eins og ég nefndi hér að framan þá eru báðir sjóðirn- ir tilkomnir að frumkvæði Röskvu og fyrir tilstuðlan hennar hafa þeir vaxið og dafnað. Síðasta sum- ar hafði Nýsköpunarsjóður náms- manna 25,5 milljónir til umráða og auk þess komu u.þ.b. 5 milljón- ir í sjóðinn sem mótframlög fyrir- tækja. Nýlega var samþykkt til- laga Röskvu um tveggja milljóna króna aukningu til aðstoðar- mannasjóðs þannig að nú hefur aðstoðarmannasjóður 5 milljónir til umráða. Við í Röskvu teljum þátttöku námsmanna í gerð frumvarps um LÍN, segir Haraldur Guðni Eiðsson, vera forsendu þess að þjóðarsátt megi ríkja um sjóðinn. Atvinnumiðstöð stúdenta Þó að margt hafi verið gert síð- ustu ár þá er Röskva ekki á því að leggja árar í bát. Eitt þeirra nýju mála seiri Röskva mun leggja mikla áherslu á er Atvinnumiðstöð stúdenta. Hugmyndin felur í sér að Félagsstofnun stúdenta ráði til sín starfskraft til að sjá um hin ýmsu mál er snerta atvinnumál námsmanna. Helstu þættir sem starfræktir verða í Atvinnumiðstöð stúdenta eru: Öflug sumarstarfa- miðlun, hlutastarfamiðlun, fagleg atvinnuráðgjöf, atvinnumiðlun fyr- ir nýútskrifaða háskólanema, Lokaverkefnabanki og kynning á Nýsköpunarsjóði námsmanna í þeim tilgangi að ná fram auknum framlögum fyrirtækja til sjóðsins. Með því að setja á fót Atvinnumið- stöð mun árangur í atvinnumálum stúdenta margfaldast. Röskva hefur sýnt frumkvæði, ákveðni, og árangur í þau ár sem hún hefur haft meirihluta í Stúd- entaráði. Röskva ætlar að halda áfram á sömu braut, vera trú sjálfri sér og stefnumálum sínum. Við munum halda áfram að vinna í þeim málum sem við höfum trú á og þannig gera háskólasamfélagið að betra samfélagi. Höfundur situr í Stúdentaráði fyrir Röskvu ogerað sækjast eftir endurkjöri. Haraldur Guðni Eiðsson Skýr stefna Vöku! SÍÐAN 1992 hafa námsmenn krafist rót- tækra breytinga á reglum LÍN og nú, fimm árum síðar er þessi barátta að skila árangri eftir samstillt lánsjóðsátak allra námsmannahreyfing- anna á síðast ári. Sú samstaða skilaði okk- ur námsmönnum yfir- lýsingu ríkisstjórnar um aukaframlag upp á 100 milljónir til LIN á hverju ári svo mögu- legt sé að breyta lög- um um lánasjóðnum til hagsbóta fyrir okk- ur stúdenta. Vaka fagnar þessum sigri í lánasjóðsbaráttunni og ítrek- ar mátt samvinnu en leggur jafn- framt áherslu að baráttunni sé ekki lokið. Forgangsröðun er lykilatriði Stefna Vöku í málefnum LÍN er og hefur alltaf verið skýr. Vaka telur farsælast að námsmenn for- gangsraði kröfum sínum og setji á oddinn það sem mestu skilar fyrir þorra lánþega. Eins og staðan er í dag er mikilvægast að létta end- urgreiðslubyrði námslána fyrir stúdenta. Það er óvið- unandi að eiga það yfir höfði sér að þurfa greiða 7% launa sinna í námslán um ókomna tíð. Afborganir af námslánum eiga að vera sanngjamar og mega ekki koma í veg fyrir að fólki takist að eignast þak yfir höfuð- ið að námi loknu. Vaka telur einnig nauðsyn- legt að Stúdentaráð beiti sér fyrir viðræð- um við félagsmála- ráðuneytið um að Hús- næðisstofnun taki tillit til sérstöðu náms- manna við mat á láni til húsnæðis- kaupa. Vaka lætur ekki þar við sitja í kröfum sínum og fer fram á sveigj- anlegri námsframvindukröfur og að samtímagreiðslur verði teknar upp að nýju. Þessi tvö baráttumál eru að nokkru leyti samtvinnuð í framkvæmd. Námsframvindukröf- ur LÍN eiga að vera í samræmi við kröfur sem háskólinn telur full- nægjandi námsárangur. Þetta þýð- ir t.d. að 75% námsárangur skili sér í rétti til 100% láns. Annað forgangsmál er samtímagreiðsl- Snúi stúdentar bökum saman um kröfur sínar og baráttuaðferðir, seg- ir Georg Lúðvíksson, er hálfur sigur unninn. urnar. Eins okkur námsmönnum er kunnugt þá eru námslán nú eftirágreidd sem getur leitt til ýmissa vandræða fyrir lánþega. Vaka telur að þar sem námslán eru framfærslulán sé æskileg stefna að þau séu greidd út mánað- arlega þegar námsmaður er búin að sýna fram á námsárangur, eftir fyrstu önn í skólanum. Ábyrgðarmenn burt! Meginbaráttumál Vöku eru skýr og leggur Vaka áherslu á að náms- menn fylgi eftir kröfum sínum og forgangsraði þeim svo væntanleg- ar breytingar á sjóðnum skili sér sem best til stúdenta. Fyrrnefnd atriði eru meginkröfur Vöku í málefnum LÍN en einnig er rétt að hyggja að öðrum málum er varða Iánasjóðinn. Þau málefni eru þó af nokkrum öðrum toga spunn- Georg Lúðvíksson Kennslumála- ráðstefna er tæki til breytinga BETRI kennsla var okkur í Röskvu efst í huga þegar við settum fram hugmyndina um kennslumálaráðstefnu fyrir allan Háskólann á síðasta ári. Fyrri hluti ráðstefnunnar var 16. nóvember, en ráðstefnan er haldin I samvinnu við kennslu- málanefnd Háskólans. Á ráðstefnunni voru settir á laggirnar starfshópar um sex mjög mikilvæga þætti háskólasamfélagsins, sem taka m.a. á málum eins og réttindum og skyldum nemenda og kennara, sí- og endurmenntun kennara, náms- mati og prófamálum. Síðari hluti ráðstefnunnar verður haldinn 8. mars en þar verða niðurstöður starfshópanna kynntar. Of oft... arra starfsmanna há- skólasamféalgsins er mikilvægur liður í því að ná fram úrbótum í kennslumálum. Röskva vill að úr niðurstöðum þessarar ráðstefnu, sem lýkur þann 8. mars nk. verði mótuð heild- stæð stefna í kennslu- málum Háskólans. Sóknarfæri við rektorskjör Nú í vor mun há- skólasamfélagið kjósa nýjan rektcr. Við í Röskvu hvetjum stúd- enta til að nota þetta tækifæri til þess að efla stefnumót- unarumræðu og fá fram skýrari forgangsröðun verkefna innan Há- skólans. Atkvæði stúdenta vega þriðjung heildaratkvæða og því - þykir okkur eðlilegt að frambjóð- Katrín Júlíusdóttir í þessu yfirgripsmikla starfi hef- ur komið berlega í ljós að úrbóta er þörf á mjög mörgum sviðum í Háskólanum. Eitt af þeim snýr að prófum og reglum um próftöku. Það gerist of oft að stúdentar þurfi að bíða of Iengi eftir niðurstöðum prófa frá kennurum. Það gerist of oft að stúdentar fá vitlaust próf í hendur eða blaðsíður vantar. Það gerist of oft að ónógt eftirlit sé með fram- kvæmd prófa. Það gerist of oft að eftirlitsaðilar standa skvaldrandi yfir prófþreyttum stúdentum. Og svo mætti lengi telja. ... en aldrei aftur Fulltrúar Röskvu hafa fengið tækifæri til að setja fram sínar áherslur og skoðanir á ráðstefnunni með öfiugri þátttöku í starfshópum. Þeir hafa lagt fram raunhæfar til- lögur til að bæta kennslu í háskól- anum, sem fela m.a. í sér róttækar úrbætur í framkvæmd prófa, hertar reglur um einkunnaskil og prófsýn- ingar. Samvinna stúdenta og ann- in en eru ekki síður brýn hags- munamál fyrir stúdenta. Vaka tel- ur ákaflega mikilvægt að laga- rammi sjóðsins og hlutverk stjórn- ar verði skýrara og betur afmarkað en nú. í þessu felst að eðlilegt er að vaxtaprósenta námslána og endurgreiðsluhlutfall þeirra sé bundið í lög en ekki háð ákvörðun stjórnar sjóðsins hveiju sinni. Jafn- framt er nauðsynlegt að endur- skoða þá grunnframfærslu sem miðað er við núna og tryggja að hún sé í samræmi við raunverulega framfærsluþörf og fylgi verðlags- þróun í landinu. Kröfur LÍN um ábyrgðarmenn á námslánum geta verið námsmönnum erfiður ljár í þúfu og eru ekki í samræmi við markmið sjóðsins um jafnrétti til náms. Rétt er að endurskoða þessa kröfur enda má segja að ríkisábyrð á lánum ætti að veita góða trygg- ingu. Snúum bökum saman Við námsmenn megum ekki láta deigan síga og barátta okkar fyrir bættum lánsjóð eru ekki lokið þó mikilvægur áfangi sé í augsýn eft- ir samstillt átak stúdenta. Það er nauðsynlegt að allir námsmenn standi vörð um hagsmuni sína í málefnum lánsjóðsins allt til enda. Baráttunni er hvergi nærri lokið. Samstaða skilar árangri! Höfundur er verkfræðinemi og skipar 2. sæti á lista Vöku til Stúdentaráðs. Stúdentar eiga að taka virkan þátt í allri stefnu- mótun, segir Katrín Júlíusdóttir, er varðar háskólasamfélagið. endur í rektorskjöri gefi stúdentum skýra mynd af því hvernig þeir ætli sér að vinna innan háskólasam- félagsins, nái þeir kjöri. Hinn nýi rektor leggi síðan fram heildstæða verkáætlun í upphafi skipunartíma síns, sem unnin verður í samráði við stúdenta. Skýr stefna Stúdentar eiga að taka virkan þátt í allri stefnumótun er varðar háskólasamfélagið. Röskva leggur áherslu á að stefna Háskólans í menntamálum sé skýr og forgangs- röðun verkefna liggi fyrir. Þannig eignumst við betri háskóla. Höfundur er mannfræðinemi og skipar 1. sæti á lista Röskvu til Háskólaráðs. Fallegar og vandaðar gjafavörur á frábæru verði Listhúsinu (gegnt Hótel Esju), sími 568 3750. BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR fyf/r WIND0WS Á annað þúsund notendur m KERFISÞRÓUN HF. “ Fákafeni 11 - Sími 568 8055 www.treknet.is/throun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.