Morgunblaðið - 18.02.1997, Page 51

Morgunblaðið - 18.02.1997, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 51 in fyrir honum á heimilinu. Ekki gleymi ég heldur Dórotheu ömmu minni sem eyddi sínu ævikvöldi hjá dóttur sinni og tengdasyni á þessu mannmarga heimili, fyrst á Borg og síðan í Reykjavík. Hún hafði með sinni kyrrlátu og blíðu fram- komu, góð áhrif á heimilislífíð. Frá þessu fólki öllu stafaði mikil hlýja og kærleikur og mikil reglusemi ríkti á öllum sviðum. „Kontór" hús- bóndans, sem hafði að geyma hið mikla bókasafn hans, litum við á sem helgidóm og þar leyfðist eng- um að hafa hátt, en spennandi var að fá að gægjast í eina og eina bók, eða gamalt, innbundið Morg- unblað. Oft var glatt á hjalla á Berg- staðastrætinu, einkum um jól, og á afmælum, þegar bömin voru enn- þá í heimahúsum. Mikið var spilað, farið var í margskonar leiki og fleira var sér til gamans gert. Árin liðu og fjölskyldan stækkaði, tengdadætur og tengdasynir bætt- ust í hópinn og síðan hvert barna- bamið af öðm. Þröng var á þingi þegar fjölskyldan var öll saman komin, en einmitt á þeim stundum nutu húsbændumir sín best. Ekki verður skilið við minning- una um þau hjónin, án þess að minnst sé á sumarbústaðinn þeirra við Hreðavatn. Þar dvöldu þau langdvölum öll sumur meðan heils- an leyfði. Lindarbrekka var þeirra sælureitur og þar fékk Bjöm útrás fyrir athafnasemi sína, hvort sem var við jarðarbætur, girðingavinnu eða við að róa út á vatnið í bátnum sínum til að vitja um silunganetið. Og til þess að geta tekið á móti sístækkandi hópi barnabarna, byggði hann við húsið oftar en einu sinni og bætti það sífellt, svo að öllum mætti líða þar vel. Eftir að Charlotta lést árið 1977, bjó hann áfram á Bergstaðastræt- inu og stundaði sín fræðistörf. Ættfræði var honum alla tíð mjög hugleikin og liggja eftir hann merk rit á því sviði, sem og á öðmm sviðum. Að lokum endurtek ég þakklæti mitt til hjónanna Charlottu og Bjöms um leið og ég og fjölskylda mín sendum afkomendum þeirra og öðm venslafólki, innilegar samúðarkveðjur. Valgeir J. Emilsson. Vitur maður úr læknastétt komst nýverið þannig að orði er hann minntist starfsbróður síns, að til að vera góður læknir væri nauðsynlegt að vera góður maður. Þetta á ör- tigglega einnig við um prestsstarfið og mér er nær að halda að hið sama gildi um starf kennarans. Þessi ummæli komu mér því í hug er ég spurði andlát dr. Bjöms Magnús- sonar prófessors. Á langri starfsævi sinni var Björn fyrst prestur í sveit og síðan dósent og prófessor við guðfræðideild Há- skóla íslands. Vitnisburður þeirra er kynntust honum er á einn veg: Hann var drengur góður, hógvær og heiðarlegur maður, sem gegndi störfum sínum af einstakri sam- viskusemi, jafnt sem kirkjunnar þjónn og innan veggja Háskóla ís- lands. Dr. Þórir Kr. Þórðarson pró- fessor, er um langt árabil var sam- starfsmaður próf. Björns við guð- fræðideild Háskóla Islands, mælti fyrir munn margra er hann komst þannig að orði um Bjöm sjötugan: „Engan mann hef ég reynt af meira heillyndi og heiðarleika í starfi en hann.“ Ég var svo lánsamur að vera nemandi próf. Bjöms um skeið, var > síðasta árganginum sem hann kenndi samtíðarsögu Nýja testa- mentisins, en nýjatestamentisfræð- in vom aðalkennslugrein hans, en auk þess hafði hann lengst af með höndum kennslu í siðfræði og kennimannlegri guðfræði. Jafnvel okkur sem þá voru nýliðar í guð- fræðinni duldist ekki sú vandvirkni og virðing fyrir viðfangsefninu sem einkenndi allt starf Björns Magnús- sonar, þó að hlýlegt og kærleiksríkt viðmót hans hafi kannski orðið okk- ur enn minnisstæðara. Eftir að próf. Björn lét af störfum við guðfræðideild hafa kynni mín af honum mestmegnis verið óbein. Um skeið var ég starfsmaður sam- starfsnefndar fjögurra háskóla- stofnana að gerð tölvuunnins orð- stöðulykils að Biblíunni, sem út kom 1994. í því sambandi höfðu tveir okkar, er að því verki unnu, sam- band við próf. Bjöm til að afla upp- lýsinga hjá honum, en hann hafði unnið það mikla afrek að handvinna Orðalykil að Nýja testamentinu, sem út var gefínn á prenti 1951, og gera síðan sams konar lykil að Gamla testamentinu, sem raunar er einungis til í vélriti og er það í vörslu Guðfræðistofnunar. Móttök- urnar sem við fengum hjá hinum aldna fræðimanna voru sérlega hlý- legar, en það var í fullu samræmi við eðlislæga hógværð hans að hann gerði lítið úr afrekum sínum á þessu sviði og taldi sig fátt geta kennt okkur. Meðan á vinnunni að tölvu- lyklinum stóð varð mér oft hugsað til þess hvílíkt þrekvirki hinir hand- unnu lyklar Björns voru löngu fyrir tilkomu tölvunnar. Þar hefur í senn reynt á mikla iðjusemi, þolinmæði og síðast en ekki síst nákvæmni. Alla þessa eiginleika hafði Bjöm Magnússon til að bera í ríkum mæli. Það var ekki síst fyrir störf Björns á þessum vettvangi sem guðfræðideild Háskóla Islands ákvað að sæma hann heiðursdokt- orsnafnbót í guðfræði 1977. Á sviði ættfræðinnar liggja eftir Björn mikil verk. Skyld þeim verk- um em guðfræðingatöl hans frá 1947, 1957 og 1976. Er mér kunn- ugt um að hann hélt áfram að fylgj- ast náið með gömlum nemendum sínum og einnig þeim er braut- skráðust úr guðfræðideild eftir að hann lét af störfum þar, hélt til haga og skráði upplýsingar um náms- og starfsferil þeirra og mun sú vinna hans væntanlega auðvelda gerð nýs guðfræðingatals. Óbein kynni hafði ég aftur af dr. Bimi er Guðfræðistofnun ákvað að gefa út í ritröð stofnunarinnar sam- keppnisritgerð hans frá 1936 um „Sérkenni kristindómsins." Kom í minn hlut það ánægjulega verkefni að sjá um útgáfu á því riti og kom það út árið 1993 (183 bls.). Þrátt fyrir mjög lofsamleg ummæli dóm- nefndar um ritgerðina hlaut Bjöm ekki stöðu við guðfræðideildina þá. Hann var hins vegar skipaður dós- ent við deildina nokkmm ámm síð- ar eða 1945 og kenndi þar síðan samfellt í um 30 ár. í samkeppnis- ritgerðinni komst Björn að þeirri niðurstöðu að sérkenni kristindóms- ins væm framar öllu öðm hin ein- stæða staðreynd: Jesús Kristur. „Hann er sú mikla forsenda, sem allar niðurstöður kristindómsins byggjast á, hvort heldur litið er á hann sem þekkingaratriði, guðs- samfélag eða siðgæðishugsjón." Greinagott yfírlit yfír boðskap kennimannsins Bjöms Magnússon- ar er að fínna í prédikanasafni hans „Frá haustnóttum til hásumars," sem verðskuldar, að mínu mati, tvímælalaust meiri athygli en það hefur hlotið. Boðskapurinn um hið bróðurlega tillit gengur eins og rauður þráður í gegnum ritið. Þar er það boðað að öll elska til Guðs hljóti að birtast út á við sem elska til annarra manna. í þeim anda lifði og starfaði dr. theol. Bjöm Magnús- son prófessor. Guð blessi minningu hans og vandamenn. Gunnlaugur A. Jónsson. • Fleiri minningargreinar um Björn Mngnússon bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. t Faöir okkar, tengdafaðir og afi, GlSLI GUNNARSSON, Fossvogsbletti 18, Reykjavik, lést á Hrafnistu, Reykjavík, laugardag- inn 15. febrúar. Guðmundur Gíslason, Sigríður Gísladóttir, Magnús Jónsson og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN KARITAS BJARNADÓTTIR, Akralandi 3, er látin og Guði falin. Guðrún Ragnarsdóttir, Hrafnhildur Bogadóttir, Edda Björk Bogadóttir, Jenna Kristin Bogadóttir, Bjarni Bogason, Ingi Bogi Bogason, barnabörn og barnabarnabörn. Gústaf Adolf Jakobsson, Jón Hilmar Alfreðsson, Gunnar Örn Jónsson, Þórunn Hulda Sigurðardóttir, Hallgerður Bjarnhéðinsdóttir, t Ástkær eiginkona mín, dóttir, systir, dótturdóttir og frænka, SANDRA KRISTJÁNSDÓTTIR, sjúkaraliði Lækjarsmára 102, Kópavogi, Lést á Landspítalanum þann 17. febr- úar síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Magnús H. Steingrímsson, Kristján Mikkaelsson, Kristján Þ. Ólafsson, Elías Kristjánsson, Ásrún Kristjánsdóttir, Þorsteinn M. Kristjánsson, Gunnar S. Kristjánsson, Sigri'ður Kristjánsdóttir, Kristófer Kristjánsson, Kristján Þór, og fjölskyldur þeirra. t Hjartkær sonur okkar, faöir, bróðir og mágur, ÁRNI PÉTUR JÓHANNSSON, lést í Landspítalanum 8. febrúar sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir til séra Braga Skúla- sonar, lækna og hjúkrunarfólks sem önnuðust hann í erfiðum veikindum. Emilía Kristjánsdóttir, Erla Ingibjörg Árnadóttir, Kristján Jóhannsson, Guðbjörn Jóhannsson, Jóhann Guðbjörnsson, Haukur Davíð Árnason, Kristín Andrewsdóttir, Steinunn Jóhannsdóttir. t Elskulegur sonur minn, ALBERT SÖLVI KARLSSON, Eiðsvallagötu 28, Akureyri, andaðist aðfaranótt 17. febrúar á heimili sínu. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Kristfn Albertsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, áðurtil heimilis að Skúlaskeiði 10, Hafnarfirði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, 14. febrúar. Sigrún Sigurbjartsdóttir, Halldór Hjartarson, Ragnheiður Sigurbjartsdóttir, Ingólfur H. Ámundason, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, HELENA SIGURGEIRSDÓTTIR, Brekkuseli 18, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju miðviku- daginn 19. febrúar kl. 13.30. Bæringur Guðvarðsson, Ólöf Gestsdóttir, Ólöf Bæringsdóttir, Áslaug Bæringsdóttir, Jóhann Halldórsson, Guðný Bæringsdóttir, Jóhanna Sigurgeirsdóttir, Ingi R. Bæringsson, Garðar Sigurgeirsson og barnabörn. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, FRÍÐA JÓHANNSDÓTTIR, Seljahlíð, áður Hátúni 4, Reykjavík, lést þriðjudaginn 11. febrúar sl. Jarðarförin hefur farið fram f kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Seljahlíðar fyrir góða aðhlynningu. Svala Magnúsdóttir, Jóhann Ágústsson, Magnús V. Jóhannsson, Bjarnveig Ingvarsdóttir, Guðmundur Ö. Jóhannsson, íris Gunnarsdóttir, Sólveig F. Jóhannsdóttir, Ingimar Bjarnason og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, Borgareyrum, Vestur-Eyjafjöllum, síðast til heimilis í Bláhömrum 4, Reykjavík, verður kvödd í Langholtskirkju föstu- daginn 21. febrúar kl. 13.30. Jarðsett verður frá Stóradalskirkju laug- ardaginn 22. febrúar kl. 14.00. Hrefna Markúsdóttir, Eygló Markúsdóttir, Erla Markúsdóttir, Ester Markúsdóttir, Erna Markúsdóttir, Grímur Bjarni Markússon, Þorsteinn Ólafur Markússon, ömmu- og langömmubörn. Sveinbjörn Ingimundarson, Haraldur Hannesson, Árni Ólafsson, Trausti Árnason, Sofffa Einarsdóttir, Þóra Gissurardóttir,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.