Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 53
ATVINNUA UGL YSINGA R
Kjötiðnaðarnemar
og aðstoðarfólk í
kjötvinnslu óskast
Kjötvinnsla á Stór-Reykjavíkursvæðinu óskar
eftir kjötiðnaðarnemum og aðstoðarfólki í
þrif og pökkun.
Svar berist afgreiðslu Mbl. fyrir föstudaginn
21. febrúar 1997 merkt: „KJ - 2049“.
Grunnskólar Hafnarfjarðar
Enskukennsla
Vegna forfalla vantar nú þegar kennara til
að kenna ensku á unglingastigi í Lækjar-
skóla til vors.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
555 0585.
Skólafulltrúinn íHafnarfirði.
Heilsugæslan í Reykjavík
Stjórnunarsviö
Barónsstíg 47,101 Reykjavík
Sími 552 2400 Fax562 2415
Laus staða
hjúkrunarforstjóra
við Heilsugæslustöðina íÁrbæ
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfor-
stjóra við Heilsugæslustöðina í Arþæ. Æski-
legt er að umsækjandi hafi reynslu af störfum
í heilsugæslu og við stjórnun.
Nánari upplýsingar um starfið gefa Sigríður
Þorvaldsdóttir hjúkrunarforstjóri Heilsu-
gæslustöðvarinnar í Árbæ í síma 567 1500
og starfsmannastjóri Heilsugæslunnar í
Reykjavík í síma 552 2400.
Staðan veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt
samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 17. mars nk.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist starfsmannastjóra á
þar til gerðum eyðuþlöðum, sem fást hjá
starfsmannahaldi Heilsugæslunnar í Reykja-
vík, sendist Heilsugæslunni í Reykjavík.
14. febrúar 1997.
Heilsugæslan í Reykjavík,
stjórnsýsla,
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík.
Starfsfólk
íþjónustudeild!
Stöð 3 óskar eftir lipru og þjónustulunduðu
fólki sem á auðvelt með að umgangast ann-
að fólk. Unnið er á föstum dag-, kvöld- og
helgarvöktum.
Umsóknir með mynd þurfa að berast til
Stöðvar 3, Kringlunni 7, fyrir 22. febrúar
1997.
Umsóknareyðublöð fást hjá Stöð 3 alla daga
milli kl. 9.00 og 18.00.
Ritari óskast
Lítið þjónustufyrirtæki leitar að dugmiklum
og þjónustuliprum einstaklingi í afgreiðslu
fyrirtækisins og til þess að sinna hefðbundn-
um ritarastörfum, símvörslu og fleiru.
Einhver tölvukunnátta nauðsynleg.
Um er að ræða fullt starf. Viðkomandi þarf
að geta byrjað strax.
Áhugasamir vinsamlegast sendið inn um-
sóknir á afgreiðslu Mbl. fyrir 21. febrúar,
merktar. „Ritari - 1421“.
Flugmálastjórn
Flugmálastjórn/loftferðaeftirlit óskar að ráða
flugvéltæknimenntaðan eftirlitsmann til
starfa í lofthæfideild. Viðkomandi þarf að
hafa haldgóða þekkingu og reynslu í tækni-
legu viðhaldi loftfara, viðhaldskerfum, tækni-
bókhaldi og flugöryggismálum. Þekking á
rafeindakerfum loftfara er æskileg. Góð
enskukunnátta er áskilin og einhver reynsla
í notkun tölvu er nauðsynleg.
Laun samkvæmt launakjörum opinberra
starfsmanna.
Umsóknum ásamt gögnum um menntun og
reynslu skal skilað á skrifstofu Flugmála-
stjórnar eigi síðar en 6. mars 1997.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannahald
Flugmálastjórnar, sími 569 4100. Öllum
umsóknum verður svarað.
„Au pair“ Kalifornfa
Ung hjón búsett í Los Gatos í Kaliforníu,
með 8 mánaða gamla dóttur, bæði útivinn-
andi, óska eftir „au pair“.
Þarf að hafa bílpróf og má ekki reykja.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf
óskast í síma 557 4223.
REYKJALUNDUR
Endurhæfingarmiðstöð
Hjúkrunarfræðinga
vantar f eftirtaldar stöður:
Geð-/verkjasvið: 5 daga deild, unnið á tví-
skiptum vöktum, engar næturvaktir, unnið
þriðja hvert sunnudagskvöld.
Miðtaugakerfissvið: 7 daga deild, mjög fáar
næturvaktir, unnið þriðju hverja helgi.
Hæfingar- og gigtarsvið: 7 daga deild, unn-
ið þriðju hverja helgi, mjög fáar næturvaktir.
Þroskaþjálfa, sjúkraliða eða aðstoðarfólk
vantar að sambýlinu Hlein.
Unnið á þrískiptum vöktum og þriðju hverju
helgi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri eða
deildarstjórar á hverju sviði
í síma 566 6200.
Gula Bókin '97
Ggla bókin 1997 kemur út 28,febrúar nk. 11 érgangur. Gula bókin er frumkvöðull
á Islandi í útgáfu upplýsingarita um rekstur og þjónustu fyrirækja fyrir almenning.
Ný kynslóð af þessum ritum verður kynnt með útgáfu Gulu bókarinnar 1997. Hjá
Gulu bókinni starfa nú að jafnaði 20 manns. Skráning í Gulu bókina 1998 hefst
3.mars nk.. Vegna mikilla verkefna framundan og stækkun bókarinnar hefur verið
ákveðið að bæta við nokkrum framtíðarstarfsmönnum.
Skráningarfulltrúar á vettvangi og með símaviðtölum: Fulltrúar
Gulu bókarinnar heimsækja 20 þúsund fyrirtæki á hverju ári. Þeir
yfirfara með rekstraraðilum upplýsingar sem fyrir eru i gagnabanka
bókarinnar og skrá leiðréttingar. Þá kynna þeir valkosti öflugri
skráninga og auglýsinga. Umsækjendur þurfa að vera vel að sér
i íslensku, hafa góða rithönd, góða framkomu, söluhæfileika, bíl
til umráða og vera tilbúnir að vinna krefjandi starf sem býður upp
á mikla tekjumöguleika og sjálfstæði. Nauðsynlegt er fyrir
símaviðtalsfulltrúa að hafa að auki þekkingu og reynslu af innslætti
á tölvu.
Sölumaður í gagnadeild: Gagnabanki Gulu bókarinnar inniheldgr
upplýsingar um 45 þúsund rekstraraðila á íslandi. Úr
gagnabankanum eru unnar ýmsar safnskrár sem seldar eru til
fyrirtækja. Umsækjendurþurfaaðhafagóðainnsýnítölvur, góða
framkomu og söluhæfileika, geta unnið eftir skipulagðri dagskrá,
vera sjálfstæðir, hafa góða rithönd og menntun við hæfi. Um nýja
stöðu er að ræða þannig að nýr starfsmaður tekur þátt í þróun starfs
síns.
Umsóknir skulu vera skriflegar | eiginhandar) og innihalda nauðsynlegar
upplýsingar um viðkomandi. Umsóknareyðublöó liggja frammi á skifstofu
okkar að Suðurlandsbraut 20. Umsóknum skal skilað merktar viðkomandi
starfi á sama stað fyrir 21. febrúar nk. Viðtöl er hægt að panta í sima 588-
1200 á skrifstofutima.
WtAW>AUGL YSINGAR
Hjallasókn
Aðalsafnaðarfundur
Boðað er til aðalsafnaðarfundar í Hjallasókn
í Kópavogi sunnudaginn 23. febrúar nk.
Fundurinn verður haldinn í Hjallakirkju að
aflokinni guðsþjónustu, sem hefst kl. 11.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál löglega upp borin.
Ársreikningur liggur frammi á skrifstofutíma
kirkjunnar kl. 10.00-17.00.
Sóknarnefnd.
|||P^£j Garðabær
Skíðalyfta
Garðabær auglýsir til sölu toglyftu af tegund
BORER, gerð STAR.
Upplýsingar gefur Gísli Valdimarsson, rekstr-
arstjóri hjá Garðabæ. Sími: 565 8500.
- kjarni málsins!