Morgunblaðið - 18.02.1997, Qupperneq 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
S VEINBJÖRN
BENEDIKTSSON
+ Sveinbjörn Benediktsson
var fæddur í Kaupmanna-
höfn 1. janúar 1933. Hann lést
á Landspítalanum 2. febrúar
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Fossvogskirkju 11.
febrúar.
Sveinbjörn frændi minn lést 2.
febrúar síðastliðinn á Landspít-
alanum, 64 ára gamall, eftir lang-
vinn veikindi. Sveinbjöm var fjöl-
hæfur og næmur maður sem vand-
aði sig í allri framgöngu við annað
fólk. Fjölskylda hans og ástvinir
hafa misst mikils við fráfall hans.
Sveinbjörn er í huga mínum
kærleiksríki frændi minn sem al-
veg frá því ég man eftir mér vildi
allt fyrir mig gera. Hjálpsamur og
áhugasamur um allt sem ég tók
mér fyrir hendur. Spurði mig
spjörunum úr af nákvæmni og
kom fram við mig sem barn og
ungling af mikilli virðingu svo
maður fann til sín eftir að hafa
spjallað við Sveinbjöm frænda.
Mér finnst eins og hann hafi
alltaf vandað sig við allt sem hann
gerði og sagði. Hvort sem það var
að tala við barn eða smíða kerru
eða járna hest eða skoða fugl.
Sveinbjöm var mér mjög innan-
handar þegar ég sem unglingur
byijaði að fikta við hesta, því að
sjálfur kunni hann mikið fyrir sér
í þeim efnum þó hann léti lítið
yfir því. Hann leiðbeindi mér með
handtökin við járningar eitt vor-
kvöld fyrir löngu og gaf mér góð
ráð varðandi allt það sem hestum
tengdist.
Sveinbjörn hafði stundað hesta-
mennsku á árum sínum í Gunnars-
holti og þar hafði hann eignast
hest einn sem við ræddum mikið
um. Það var Tvistur, rauðblesóttur
foli sem hann tamdi og sýndi á
innansveitarmótum og var loks
valinn í gæðingakeppnina á lands-
mótinu á Þingvöllum. Ekki varð
af því að þeir Sveinbjörn kepptu
þvi Tvistur steig haltur út úr kerr-
unni eftir flutninginn til Þingvalla.
Samt sló engum skugga á minn-
inguna um Tvist og af frásögn
Sveinbjöms skynjaði ég hversu
djúpt og innilegt sambandi þeirra
var. í mínum huga getur samband
manns og hests varla verið nánara
og varð þetta mér mikil fyrirmynd
í þessum efnum.
Sveinbjöm stundaði guðfræði-
nám en hætti áður en kom að
embættisprófi og var mér sagt að
áður hafi hann tekið próf í hebr-
esku og grísku og fengið hæstu
einkunn sem þá hafí verið gefín
við guðfræðideildina.
Hann var mikill áhugamaður
um fuglaskoðun og stundaði hana
af miklum krafti þegar færi gafst.
Einnig var hann áhugamaður um
sauðfjárrækt og landgræðslu og
hugsaði mikið um þau mál. Hann
dreymdi um að fá að stunda
sauðfjárrækt í smáum stíl í ná-
grenni Reykjavíkur og gerði ýmis-
legt til að láta þann draum ræt-
ast. Meðal annars smíðaði hann
sér forláta fjárkerra og flutti í
henni fé fyrir vini sína og lánaði
mér og fjölskyldunni hvenær sem
á þurfti að halda.
Sveinbjörn var mjög íjölhæfur
og umhyggjusamur maður og öll-
um reyndist hann vel. Missir okkar
er þekktum hann og nutum hans
við er því mikill en þó mestur þeim
er honum stóðu allra næst. Lífs-
förunauti hans Auði og Hlín einka-
dóttur hans votta ég innilegustu
samhryggð mína og bömum Hlín-
RADAUGl YSINGAR
UN6T fÓLK í £VB5tU
Styrkir til
ungmennaskipta
„Ungt fólk í Evrópu“
Landsskrifstofa verkefnisins „Ungt fólk í
Evrópu" heldur opinn kynningarfund um
verkefnið í Hinu húsinu, Aðalstræti 2 (við
Ingólfstorg) þriðjudaginn 18. febrúar kl.
20.00-22.00. Fundurinn er ætlaður ungu
fólki á aldrinum 15-25 ára, leiðbeinendum,
sem starfa með ungu fólki í æskulýðsstarfi,
þeim, sem vinna að rannsóknum varðandi
ungt fólk og öðru áhugafólki. Kynntir verða
helstu möguleikar sem verkefnið hefur upp
á að bjóða.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir.
Verkefnið „Ungt fólk í Evrópu" er verkefni á
vegum Evrópusambandsins og Evrópska
efnahagssvæðisins (ESB/EES). Því er ætlað
að efla ungmennaskipti milli Evrópulanda.
Verkefnið skiptist í 5 meginflokka, A, B, C,
D og E, sem sumir skiptast í undirflokka:
Styrkir til Evrópusam-
starfs íheilsueflingu
Evrópusambandið er með áætlun til fimm
ára í heilsueflingarmálum, frá 1996 til 2000.
Veittir eru styrkir til samstarfsverkefna milli
a.m.k. tveggja ESB/EES-landa. Umsóknar-
frestur til styrkja á þessu ári er til 15. mars,
en 15. september fyrir styrki á árinu 1998.
Nánari upplýsingar:
Anna Björg Aradóttir, verkefnisstjóri
Heilsueflingar, Laugavegi 116.
Sími 562 7555, bréfsími 562 3716, netfang
annabara@landlaeknir.is
Kópavogsbúar
- menntamál
Sjálfstæðisfélag
Kópavogs heldur
opinn fund um
menntamál fimmtu-
daginn 20. febrúar
nk. kl. 20.30,
Hamraborg 1, 3.
hæð.
Dagskrá:
1. Framsöguræða
Björns Bjarna-
sonar, menntamálaráðherra.
2. Fyrirspurnir.
Fundarstjóri Gunnsteinn Sigurðsson formaður Sjálfstæðisfélags
Kópavogs. Allir bæjarbúar velkomnir.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Kringlan
Til leigu 63 fm húsnæði á mjög góðum stað
í Kringlunni 8-12.
Vinsamlegast leggið inn nafn og símanúmer
til afgreiðslu Mbl. í lokuðu umslagi merktu:
„T - 3591 “ fyrir kl. 12 á hádegi föstudaginn
21. febrúar 1997. Öllum fyrirspurnum verður
svarað.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins, Bjólfsgötu 7, 710
Seyðisfirði, föstudaginn 21. febrúar 1997 kl. 14.00 á eftirfarandi
eign:
Skógar II, Vopnafirði, þingl. eig. Einar Sigurbjörnsson og Kristín Jóns-
dóttir, gerðarbeiöandi Sýslumaðurinn á Seyðisfirði.
17. febrúar 1997.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði.
Flokkur A: Samskipti ungs fólks í Evrópu.
Flokkur B: Leiðbeinendur íæskulýðsstarfi.
Flokkur C: Samvinna milli stofnana aðild-
arríkjanna.
Flokkur D: Ungmennaskipti við lönd utan
Evrópusambandsins.
Flokkur E: Upplýsingar fyrir ungt fólk og
kannanir á sviði æskulýðsmála.
Algengustu ungmennaskipti eru milli tveggja
Evrópulanda. Skipulagðir hópar ungmenna
(10-15 manns) geta sótt um styrki til ung-
mennaskipta. Einstaklingar eru ekki styrktir.
Tveir svipað stórir hópar ungmenna koma
sér saman um verkefni/þema sem þeir vinna
með og verkefnið varir í 1-3 vikur.
Mögulegt er að fá styrk, sem nemur allt að
50% af kostnaði við verkefnið, hvort sem
um er að ræða ferð eða móttöku.
Ekki eru veittir styrkir til námsferða eða sam-
starfsverkefna skóla, til leiklistarhátíða,
íþróttamóta, ráðstefna né skemmtiferða.
Stjórn UFE-verkefnisins á íslandi úrskurðar
um hæfni umsókna og ákveður styrkupp-
hæðir.
Landsskrifstofa UFE minnir á að næsti
umsóknarfrestur vegna ungmennaskipta
er 1. maí fyrir verkefni, sem framkvæma
skal á tímabilinu 1. júii-30. nóvember 1997.
Nánari upplýsingar:
Landsskrifstofa „ Ungt fólk í Evrópu",
Aðalstræti 2, 101 Reykjavík,
sími 552 2220,
bréfsími 562 4341,
netfang u/e@centrum.is
Hveragerðisbær
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í fast-
eignina Austurmörk 24 (Tívolíhúsið), Hvera-
gerði. Húsið er 3.100 fm að stærð og byggt
árið 1987.
Frestur til að skila inn tilboðum er til 17.
mars nk. Áskilinn er réttur til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður, skrif-
stofustjóri eða bæjartæknifræðingur í síma
483 4000.
Bæjarstjórinn í Hveragerði.
□ Edda 5997021819 III 1 Frl.
□ HAMAR 599702181911 Frl
IOOF Ob. 1 = 1782188:30 =
I.O.O.F. Rb. 4= 1462188 - 8'/z I.
□ Fjölnir 5997021819 I 1 Frl.
Miðilsfundur
Opinn miðilsfund-
ur með Þórhalli
Guðmundssyni í
íþróttahúsinu,
Strandgötu.Hafn-
arfirði í kvöld kl.
20.30. Húsið opn-
að kl. 19.00. Aðgangseyrir kr.
1.000.
Forsala í síma 565 4087 eftir kl.
17.00.
□ Hlín 5997021819 VI - 2
AD KFUK
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Biblíulestur í umsjón Önnu Páls-
dóttur guðfraeöings.
Allar konur velkomnar.
Pýramídinn -
andleg
miðstöð
Bibí Ólafsdóttir,
læknamiðill, er
væntanleg til
starfa næstu
daga.
Tímapantanir í
símum 588 1415
og 588 2526.
Pýramídinn,
Dugguvogi 2.
blaðið
-kjarni málsins!