Morgunblaðið - 18.02.1997, Page 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Tommi og Jenni
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Opið bréf til heil-
brigðis- og trygg-
ingamálaráðherra
Frá Guðmundi Karli Snæbjörns-
syni, Ásgeiri H. Bjarnasyni og
Magnúsi Geirssyni:
„HÁTTVIRTUR ráðherra, Ingi-
björg Pálmadóttir.
Við íslenskir sérfræðingar í heim-
ilislækningum í Noregi og Svíþjóð
viljum með bréfi þessu lýsa yfir
áhyggjum okkar vegna þeirrar al-
varlegu stöðu sem mál heimilis-
lækninga eru nú komin í á íslandi
og lýsum eftir aðgerðum ráðuneyt-
isins til lausnar þessum vanda.
Æðstu stjórnvöld landsins hafa
á undanförnum misserum dauf-
heyrst við röddum heimilislækna
um úrbætur, sem endaði með því
að nánast allir sem einn sögðu upp
og yfirgáfu störf sín á haustdögum.
Ekki er ætlun okkar hér að tí-
unda ágreiningsefnin eða atburða-
rás þá sem liggur hér að baki, það
hefur þegar verið gert af kollegum
okkar á Islandi.
í viðkvæmri stöðu mála heima
fyrir, meðan beðið er úrskurðar
kjaranefndar, þá kemur það okkur
spánskt fyrir sjónir þegar stjórnvöld
hafa samtímis í frammi tilburði til
að vega að kjörum sérfræðinga í
heimilislækningum, t.d. með svo-
kölluðum húsamálum lækna, bíla-
málum og möguleikum til endur-
og símenntunar.
Við heimilislæknar í Noregi og
Svíþjóð þekkjum vel til þess óróa
og öryggisleysis sem gætir hjá kol-
legum okkar vegna þessa ástands
heima fyrir. Við sjáum einnig þann
dreifbýlisflótta sem á sér stað á
landinu. Að það séu hátt á þriðja
tug lausar stöður í ekki stærra landi
en íslandi er og að stöðugt fer þeim
læknum fækkandi sem velja þessa
sérgrein. Sérfræðingar í heimilis-
lækningum í Læknafélagi íslands
eru núna einungis um 20% félags-
manna. Þetta ætti að vera okkur
öllum ákveðin vísbending um að
eitthvað er að.
Hvernig yfirvöld bregðast við
þessum vanda mun ekki einungis
hafa áhrif á þá kollega okkar heima
sem eftir sitja í héraði, heldur hefur
það einnig afgerandi áhrif á ákvarð-
anir manna hér úti um hugsanlega
heimflutninga. Sérstaklega þegar
kjör og öll starfsaðstaða er miklu
fremri hér í Skandinavíu.
Við gerum þá kröfu til íslenskra
heilbrigðisyfirvalda að þau taki
heilshugar á þessum viðkvæmu
málum og að með samvinnu við
forystu læknasamtakanna vinni að
heill og uppbyggingu heimilislækn-
inga á íslandi. Því það er hagur
allra.
Virðingarfyllst,
Fyrir hönd Félags íslenskra
lækna um heilsugæslu í Noregi og
Svíþjóð,"
GUÐMUNDUR K. SNÆBJÖRNSSON
formaður,
ÁSGEIR H. BJARNASON
MAGNÚS GEIRSSOn'
gjaldkeri.
Upplýsingar um alnets-
tengingu við Morgunblaðið
Tenging við heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heimasíðu
Morgunblaðsins, sláið inn slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar upp-
lýsingar um blaðið, s.s netföng
starfsmanna, upplýsingar um
hvernig skila á greinum til blaðs-
ins og helstu símanúmer.
Morgunblaðið á alnetinu
Hægt er að nálgast Morgun-
blaðið á alnetinu á tvo vegu.
Annars vegar með því að tengjast
heimasíðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða
með því að tengjast heimasíðu
blaðsins og velja Morgunblaðið
þaðan.
Strengur hf. annast áskriftar-
sölu Morgunblaðsins á alnetinu
og kostar hún 1.000 krónur.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um alnetið noti
netfangið: mbl@centrum.is.
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem má
finna á heimasíðu blaðsins. Það
tryggir öruggar sendingar og
einnig að efnið rati rétta leið í
blaðið. Senda má greinar, fréttir
og myndir eins og fram kemur á
heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar
við alnetið
Þeir sem hafa Netscape/Mos-
aic-tengingu eiga hægt um vik
að tengjast blaðinu. Einungis þarf
að slá inn þá slóð sem gefin er
upp hér að framan.
Þeir sem ekki hafa Netscape/
Mosaic-tengingu geta nálgast
þessar upplýsingar með Gopher-
forritinu. Slóðin er einfaldlega
slegin inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota a.m.k.
14.400 baud-mótald fyrir
Netscape/Mosaic tengingar.
Hægt er að nota afkastaminni
mótöld með Gopher-forritinu.
AUt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.