Morgunblaðið - 18.02.1997, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 59
| -----------------
í Mennt er máttur
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
A
Hvalfjörður og ógæfa Islands
Frá Jóni Pétrí Zimsen:
KENNARASTARFIÐ er eitt van-
metnasta starf þjóðfélags okkar.
Þegar það kemur upp í huga fóiks
sér það oft fyrir sér stétt manna sem
vinnur frá 8-14 og hefur það síðan
. náðugt það sem eftir er dags og
sinnir tómstundum sínum, svo ekki
sé minnst á hið ianga sumar„frí“
(vinnuskylda kennara er 46 stundir
1 á viku en hinn almenni borgari vinn-
ur 40 stundir þess vegna er sum-
arfrí kennara lengra en annan-a auk
þess að margir kennarar sækja ýmis
endurmenntunarnámskeið á sumrin).
Mikil undirbúningsvinna
Þetta er stóri misskilningurinn
- sem skapar svo neikvæða afstöðu til
1 kennara. Það myndi engum koma til
hugar að borga fréttamönnum sjón-
i varpsins laun eftir þeim tíma sem
' þeir birtast á skjánum eða leikaran-
um þann tíma sem leiksýning tekur,
ég er hræddur um að launaleg upp-
skera þessara hópa yrði heldur rýr.
Almenningur virðist vera tilbúinn að
skilja að að baki fréttatíma og leik-
sýninga liggi mikil undirbúnings-
vinna sem menn eiga auðvitað að fá
borgað fyrir. Sama er með kennara,
i hann þarf að undirbúa hveija
kennslustund fyrir sig, semja verk-
i efni, fara yfir próf, skipuleggja ýms-
' ar uppákomur, vera í góðu sambandi
við foreldra og svona væri hægt að
telja lengi upp ýmsa þætti sem ætl-
ast er til að kennari sinni bæði innan
og utan vinnutíma.
Kennarinn þarf að kenna 20-25
börnum sem eru mismunandi eins og
þau eru mörg, allt frá mjög greindum
bömum til bama með námsörðug-
( leika, misþroska börnum og bömum
i sem koma með mikla erfiðleika frá
’ heimilum sínum inn í skólana o.s.frv.
( Þetta er ekki alltaf auðvelt því að oft
er brotalöm á því að aðstæður séu
sem bestar til þess að sinna bömum
með sérþarfir. Ekki er kennurum
heldur auðveldað þegar að námsgögn-
unum kemur, oft eru gögn gömul og
úrelt t.d. er námsefni í stærðfræði
um 20 ára gamalt og þarfnast nauð-
synlega andlitslyftingar.
Úrelt kennsluefni
- vanbúnir skólar
( Útkoman úr TIMSS-könnuninni
frægu þar sem íslensk börn voru
heldur aftarlega á merinni í raun-
greinum kallar á úrbætur í skólakerf-
inu. Eðlis- og efnafræðikennslustofur
margra skóla eru mjög vanbúnar og
lítið um spennandi hluti sem fangað
gætu huga bama og gert þessar
„grýlur" námsgreinanna áhugaverð-
( ar. Einnig þyrfti að koma fleiri stúlk-
um inn í þennan námsgeira. Þar
hefur þjóðarsálin gefið frá sér dulin
| skilaboð um að drengir séu betur ti!
þess fallnir að stunda þessar náms-
greinar. Margar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar þar sem kemur í ljós að
að meðaltali standa drengir sig örlít-
ið betur en stúlkur í raungreinum
en þessi litli munur skýrir ekki þann
fjöldamun á kynjunum í raungreina-
deildum framhaldsskólanna. A þessu
verður að ráða bót.
Fyrir mig sem verðandi kennara
er ekki fýsilegt til þess að hugsa að
þegar ég útskrifast og þarf að fara
að lifa af launum mínum sem eru
ekki allskostar há, grunnlaun grann-
skólakennara eru 74.972 kr á mán-
uði. Og á næstu tveimur áram hækka
þau um tvo launaflokka og eitt þrep
og þá eru þau komin upp í 83.000
kr. Þessi laun fyrir háskólamenntun
eru til háborinnar skammar fyrir þjóð
sem þykist vera bókaþjóð og krefst
þess að menntunarstig okkar sé það
sama og ríkja sem við viljum bera
okkur saman við. Auk þess að þegar
sveitarfélögin tóku við grunnskólan-
um og einsetningu komið á verður
erfitt fyrir kennara að fá fullar stöð-
ur, nú þegar fá margir þeirra ekki
nema V2—3/4 stöðugildi og þá sér
hver heilvita maður að launin era
orðin að engu.
Þær raddir verða alltaf háværar
sem segja að kennaralaunin séu al-
veg nógu há, þessir menn skyldu
hugsa um það að stór hluti hæfustu
kennaranna sér sig knúinn til þess
að velja sér annað starf eða að vinna
aukavinnu sem kemur þá kanski nið-
ur á kennslunni. Kennarar verða að
geta lifað sómasamlegu lífi af laun-
um sínum.
Þróun kostar peninga
Þróunin er það hröð í þjóðfélagi
okkar að við verðum að fylgjast
grannt með til þess að verða ekki
undir í samkeppni við aðrar þjóðir.
Þetta kostar allt peninga en við eram
að leggja inn fyrir framtíðina, því
að menntun barna okkar er undir-
staða þess þjóðféiags sem við kjósum
að Iifa í. Ef undirstöðurnar era veik-
ar þá á endanum hrynur allt það sem
hefur verið byggt upp.
Nú þýðir ekki lengur fyrir mennta-
málaráðherra að beija höfðinu við
steininn heldur opna augun og skoða
máiið af nákvæmni og alúð og veita
meira fé til menntamála. Það mun
borga sig þegar til langs tíma er lit-
ið, skammtíma sjónarmið eiga ekki
rétt á sér í þessum mikilvæga mála-
flokkh jóN PÉTUR ZIMSEN,
nemi í KHÍ, Espigerði 16.
Tsurumi
BJARGVÆTTURINN
VATNSSUGA/GÓLFDÆLA
Þar sem þurrka þarf upp vatn
eða hættervið flóðum.
Sýgur upp vatn niður í
1-2 mm vatnsborð!
Sterk og öflug, hefursannað
ágæti sitt víða um land.
Frábær fyrirtæki
1. Sérvörur með föndurvörur og leikföng fyrir alla aldursflokka.
2. Falleg gjafavöruverslun á frábærum stað. Einstakt tækifæri.
Framtíðarfyrirtæki.
3. Litil heildverslun með smávörur. Mikil viðskiptasambönd út á
landi. Gott verð.
4. TrésmkSaverkstæði — fullur salur af vélum. Selst ódýrt. Laust
strax.
5. Stór og nýtískuleg prentsmiðja úti á landi. Glæsilegt húsnæöi
fylgir með. Næg verkefni.
6. Lakkrísverksmiðja sem getur verið hvar sem er á landinu.
7. Mikið úrval af matsölu- og vínveitingastöðum í öllum
verðflokkum.
6. Mikið úrval af söluturnum af öllum stærðum og verðflokkum.
Komdu í cappucino og flettu fyrirtækjaskránni.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRT/EKIASALAN
SUÐURVERI
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Frá Albert Jensen:
EFTIR að Sovétlöndin og leppríkin
fyrrverandi opnuðust upp á gátt,
blöstu við afleiðingar þess að virða
ekki umhverfið. Þar era ummerki
náttúruspjalla og mengunar óviðráð-
anleg í ófyrirsjáanlegri framtíð.
Ólán okkar íslendinga er, að í
mörgum valda- og áhrifastöðum eru
menn sem greina ekki milli afglapa
og góðara verka. Það er staðreynd
sem sést m.a. á umhverfis- og auð-
lindamálum. Ég tala nú ekki um mál
aldraðra og öryrkja þar sem skömm
valdhafa er sérlega niðurlægjandi.
En hvað sem öllu þessu líður, ber
umhverfismál hæst. Vellíðan og
hamingja manna byggist á að þar
fari ekkert úrskeiðis. Vitað er að
mörg lönd eru svo þrælmenguð og
umhverfisspillt, að lífi er þar varla
vært.
Ljóst er að útlendir gróðafíklar
hafa spillt sjón og skilningi íslenskra
ráðherra þessara mikilvægu mála.
En þeim er engin vorkunn. Nær
væri ráðherrum að vera ekki svo
bláeygir og varast gildrar útlendra.
En allra síst eiga þeir að vera með
lygar og blekkingar gagnvart þjóð
sinni. Undirförall forleikur að því
sem koma skyldi var tal valdhafa
um Grundartanga sem iðnaðarsvæði.
Stóriðja er allt annað mál. Staðreynd
er, að Landsvirkjun, í skjóli ótrúlega
glámskyggnra ráðherra, er í stríði
við land og þjóð.
í skilmerkilegri Morgunblaðsgrein
segir Birgir Sigurðsson m.a.: Verði
Ijallavatnadraumsýn Jakobs Bjöms-
sonar og samheija hans að veruleika
glatast hundrað ferkílómetra af há-
lendisgróðri í dögun nýrrar aldar.
Frá hæðum og leitum á miðhálendinu
munu manngerð og steingeld miðlun-
arlón blasa við augum. Stíflugarðar,
línuvegir, háspennumöstur og raflín-
ur fullkomna sjónmengunina. Tilv.
lýkur. Þeir menn sem hafa lokað
augunum fyrir raunverulegum hags-
munum lands og þjóðar í umhverfis-
og atvinnumálum ættu að kynna sér
skýrslu dr. Þóra Ellenar Þórhalls-
dóttur sem heitir: Áhrif miðlunarlóns
á gróður og jarðveg í Þjórsárverum.
Þar má sjá hluta hrikalegra afleið-
inga þess sem yrði ef bjartsýniskján-
ar koma hugðarefnum sínum í fram-
kvæmd á hálendinu. Miðlunarlón
hækka og lækka af skiljanlegum
ástæðum. Við það deyr allur gróður
sem ýmist er hulinn vatni eða ekki.
Umhverfis þau myndast því hrað-
stækkandi uppblástursskilyrði. Allt
líf og gróður mun hefja hratt undan-
hald fyrir sandi. Eyðimörk mun taka
við og enginn sér fyrir endann á
slíku.
Við Islendingar verðum að gæta
þess að hleypa ekki Landsvirkjun
eins og óbeisluðum óvætti inn á há-
lendisperlur okkar.
Við eigu að gæta hófs í virkjunum
og nýta afraksturinn til fullnustu.
Ekki selja rafmagn á hálfvirði til
útlendinga sem svo flytja afrakstur-
inn úr landi. Notum það í eigin þágu
í mengunarlausan iðnað. Höldum
stóriðju í lágmarki og eingöngu við
úthaf eða á annesjum. Virkjanir til
rafmagnssölu með sæstreng yfir haf-
ið væra glæpur gegn landi og kom-
andi kynslóðum. Rök landauðnar-
sinna eru svo út úr þjóðhagslegri
mynd að engu tali tekur.
Við eigum fyrst og fremst að hag-
ræða fyrir heildina í sjávarútvegi og
m.a. að fullvinna fiskinn í landi.
Við eigum að stórauka innlendan
og erlendan ferðaiðnað.
Við eigum að smíða og gera við
okkar skip sjálfir.
Við eigum að görbreyta öllu varð-
andi sorp og frárennslismál og horfa
þar til framtíðar.
Það era ótal leiðir í atvinnusköpun
án þess að eyðileggja landið og heil-
næmi loftsins.
ALBERTJENSEN,
Háaleitisbraut 129, Reykjavík.
MERKING
Merktu vió tímann
sem þú hefur þjálfað.
Þú horfir meö stolti
á krossana á dagatalinu
og heldur enn frekar áfram.
Safnaðu 5 hoílráóum og þú færó 1000 kr.
afslátt af þriggja mánaóa kortum í Mætti
og Gatorade brúsa og duft frá Sól hf.
Heimilistæki hf
Umboösmenn um land allt
SÆTUNI 8 SlMI 569 1500
þad kemwL e k k e * t annad tiL ntá
ADP941 með fjórum þvottakerfum, 44 db.
nú »<««*<!# U kr. eða 49.875 kr.stgr.
verðáður 63.100 kr.
ADP952 með fimm þvottakerfum, 39 db.
nú ■ HMFIF kr. eða 65.930 kr.stgr.
verðáður 79.900 kr.